Þjóðviljinn - 15.05.1955, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 15.05.1955, Blaðsíða 9
A ÍÞRÓTTIR RlTSTJÚRl FRtMANN HELGASON knettmum, Um daginn, þegar einn leikur Heykjavíkurmótsins fór fram skeði það eins og raunar oft áður að línuvörður stöðvaði knött sem var á mikilli ferð útaf vellinum og hefði annars farið fleiri tugi metra burt frá þeim stað, þar sem hann fór útaf. Sjálfsagt af gömlum vana fannst mér ekkert við þetta að athuga, leit á þei-ta^gem .vin- samlega hjálpsemi við þann mann eða lið sem átti knött- inn, Mér hefði satt • að segja þótt það full letilegt að hreyfa sig ekki en láta knöttinn renna framhjá sér. En um leið og línuvörðurinn stöðvaði knöttinn og rétti hann til leikmannsins sem kasta átti inn, sagði félagi minn, sem sat hjá mér: „Hví gerir maðurinn þetta, hann hefur ekki heimild til að skipta sér af knettinum'1. Eg lét á mér skilja að ég skildi ekki alveg hvað hann væri að fara. „Sjáðu nú til“, sagði félagi minn, með þessu er línu- vörðurinn beinlínis að blanda sér inn í gang leiksins. Þú sást að hann stöðvaði knöttinn þeg- ar í stað og rétti hann leik- manninum, og þú sást að það skeði það fljótt að mótherjar höfðu ekki tíma til að „dekka upp" áður en knötturinn var komj|in í leik aftur. Með þessu er þessi starfsmaður leiksins að hafa áhrif á gang leiksins. Hann veldur í þessu tilfelli því að knötturinn er lengur inni á vell- sidpta sér af hann fer út af? inum en hann annars hefði ver- ið. Hver þau afskipti sem hann hefur í þá átt að eltast við knött sem hefur farið útaf, hvort sem það er til að flýta fyrir eða tefja, er að hafa á- hrif á gang leiksins. Afstaða mannanna á vellin- um hvers til annars er stöðugt að breytast og það þó knöttur- inn sé úr leik. Óbeinlínis er línuvörðurinn valdur að öllu þessu með afskiptum sínum. Hitt er svo annað mál, þegar félögin hafa drengi til að sækja knött.sem fer langt t.d. aftur fyrir mark, þau um það, en hinn opinberi starfsmaður leiks- ins má ekki viljandi hafa þessi áhrif“. Ég viðurkenndi strax að þetta væri sjónarmið en hvað finnst dómurunum ? Hvað finnst KRR, og hvað finnst ykkur, góðir á- hugamenn? Félagi minn sem hjá mér sat var Albert Guðmundsson. Hvaðá árangur næst í frjálsum íþróttiun í Melbourne? i Hinn 19. janúar s.I. kepptu « unglingalið Englendinga og j ítala í knattspyrnu. Sigraði: enska liðið með miklum yfir-: burður, skoraði 5 mörk gegn : einu. Myndin er frá leiknum j og sýnir knöttinn „Uggja j inni“ hjá ítölunum — en j markið var dæmt ógilt. ítalski j markmaðurinn, sem sést á: myndinni, heitir Stefani. I erlendum blöðum og tímarit- um er þegar farið að ræða um sigurmöguleika á olympíuleik- unum í Melboume næsta ár. I- þróttamennirnir eru fyrir löngu famir að æfa með förina þang- að fyrir augum að stórmótin í sumar mætti nefna nokkurs konar „generalprufur“ fyrir leikana. Sænska tímaritið- Ali Sport hefur spurt sænska þjálfarann Gösse Holmér, sem er einn mesti kunnáttumaður um frjálsar í- þróttir á Norðurlöndum, hvaða árangur han geti hugsað sér að náist á ó.L. að ári. Holmér sagðist að sjálfsögðu geta gizk- að á, það væri hægast, en það verði aldrei nema ágizkanir. Það getur verið skýfall á vell- inum, það getur verið rok og það getur orðið 35° hiti í skugg- anum en allt þetta hefur áhrif á árangurinn. En miðað við eðlilegar að- stæður skrifaði Holmér niður eftirfarandi ágizkanir: 100 m hlaup 10.2 200 — — 20.5 400 — — 45.8 800 — — 1.46.0 1500 — — 3.42.0 5000 — — 13.45.0 10.000— — 28.55.0 110 m. grindahlaup 13.5 400 m grindahlaup 50.0 3000 m. hindrunahlaup 8.42.0 Maraþonhlaup 2.20.00.0 4x100 m boðhlaup 39.6 4x400 m boðhlaup 3.04.0 Hástökk 2.12 Langstökk 8.10 Þristökk 16.30 Stangarstökk 4.70 Kúluvarp 18.50 Kringlukast 59.00 Spjótkast 83.00 Sleggjukast 64.50 Spurningar og svör um knattspyrnulög? 1. spuming: Við þekkjum allir hinn svo- nefnda „háa fót“ (þ.e. fótur sem teygður er hátt upp eftir knetti), sem getur verið leiður bæði fyrir háa sem lága. En ber að dæma á háan fót? 2. spurning Markmaður spymir frá marki, knötturinn fer uppi loftið og eftir að hafa þó farið út fyrir vítateig fýkur hann til baka. Sækjandi hleypur til og vill skora en áður en sækjandi hefur snert markmaim eða knött slær markmaður knöttinn yfir þver- slá. Hvað á að dæma? Sunnudagur 15. maí 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (9 Gunnar M. Magnilss: Börnin frá Víðigerði ir atbeina þessara fílefldu karlmanna, sem stóðu svo voðalega vondir yfir honum. Víðigerðisfólkið varð logandi hrætt, safnaðist kringum bændurna og bað þá í guðanna bænum að stilla reiði sína, því að margir væru farnir að horfa á þá, og sumt af því fólk með blýanta bak við eyrun, stráha’tt og gleraugu og gætu vel verið lögreglur eða fangaverðir. En bændurnir gleymdu því um s’tund, að þeir voru í Ameríku. Finnur hótaði öllu illu, en Guð- mundur heimtaði son sinn af Stjána, umsvifa- laust. Stjáni var nokkra stund að átta sig, meðan æs- ingin var í bændunum. En þegar þeim fór að leið- ast þessi aumingjaskapur í stráknum, litu þeir enn í ýmsar áttir og sáu, að það var satt, sem fólkið sagði: margir horfðu á þá og sumt töluVert illilegir menn. Stjáni rétti sig upp og settist utan í poka, strauk framan úr sér með húfunni og greiddi hárið upp og aftur með fingrunum. Síðan byrjaði hann að tauta í hálfum hljóðum og smáhækkaði sig. „Það er naumast, að aldrei má segja orð í gamni. En ég held, að það eigi ekki vel við þá hérna í Ameríku, þessi íslenzka fýla, sem leggur af ykkur, þegar þið þykist vera eins og heilagar guðsorðabækur“. — Stjáni stóð upp og gekk nokk- ur spor frá Finni. „Þið haldið, að ég verði ykkur lengi til styrktar með svona framkomu. Eg gef stokkið frá ykkur á þessu augnabliki, en ég ætla ekki að gera það. Þið hafið ekki viljað láta mig hafa yfirumsjón með krakkaormunum ykkar, en: ef einhver af þeim týnisl', þá heimtið þið, að ég skili þeim“. Kvennadeiid S.V.F.I. í Reykjavíku heldur I FUND I i , s í Sjálfstæðishúsinu mánudaginn 16. maí kl 8.30. : • * « Til skemmtunar: Upplestur: Gunnar Gunnarsson. Einsöngur. Dans. : | Fjölmennið Stjómin Nemendatónleikar Framhald af 3. síðu. Loks er að geta fiðlusveitar skólans, sem Ruth Hermanns, fiðluleikari í Sinfóníuhljóm- sveitinni, hefur þjálfað og lék þarna tvö lög eftir Charleg Vale og Telemann undir stjórn kennara síns. Það var auðfundið, að Ruth Hermanns hefur lagt hér af mörkum mikið og gott starf, og er þesg að vænta, að þessi vísir, þó að enn sé mjór, boði meiri hluti síðar. Slíkir tónleikar eru ánægju- legir, því að þeir bera vitni um gróandi líf, sem á áreið- anlega eftir að bera góðan á- vöxt. Laugarnesskólinn hefur hér gengið á undan með góóit fordæmi um tónlistarstarfsemi meðal æskulýðsins, og er von- andi, að sem flestir skólar megi ná jafngóðum árangri. B.F.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.