Þjóðviljinn - 15.05.1955, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 15.05.1955, Qupperneq 12
Veirklýðsflokkarnir telja olíu- eiakcssölu nauðsynlegt stórmál Gylfi Þ. Gíslason og Karl Guðjónsson birtu sameig- inlegt nefndarálit um frumvarp Alþýðuflokksins Eitt af ,þeim málum, sem stjórnarflokkarnir fengust ekki til aö afgreiða úr nefnd var frumvarp AlþýÖuflokks- manna um olíueinkasölu. — Fulltrúar verkalýðsflokk- anna í ijái’hagsnefnd neðri deildar skiluðu sameiginlegu áliti um frumvarpið og mæltu með því. Er nefndarálit þeina á þessa deild. Meirí hluti nefndarinnar, leið: Frumvarp þetta var flutt á öndverðu þessu þingi af þing- mönnum Alþýðuflokksins í neðri Góður afli í Hornafirði Höfn í Hornafirði. Frá fréttaritara Þjóðviljans. Afli hefur verið góður hér síðustu dagana eftir aflaleysi um nokkurt skeið, og gera menn sér vonir um að vorhlaup sé að koma. Hafa bátarnir fengið 18—20 skippund í róðri síðustu dagana. Lægsti báturinn er Hvanney, sem hefur rúmlega 900 skippund eftir vertíðina. Hæsti báturinn er Gissur hvíti með rúm 1100 skippund. Mikill kuldi hefur verið hér siðustu dagana, 3—4 stiga frost á næturnar og pollar hemaðir á morgnana. Frostlag í jörðu er enn um það bil hálft fet. Ljósmyndasýmng á næsta ári Aðalfundur Ljósmyndarafélags Islands var haldinn 9. þ. m. Stjórn félagsins var endurkjörin, en hana skipa: Sigurður Guð- mundsson formaður, Guðmund- ur Hannseson ritari og Óskar Gíslason gjaldkeri. í stjórn hins nýstofnaða nor- ræna ljósmyndarasambands var Óskar Gíslason kjörinn fulltrúi fyrir ísland, en þar að auki á formaður Ljósmyndarafélags ís- lands sæti í stjórn sambandsins, ásamt formönnum hinna félag- anna. A næsta ári á Ljósmyndara- félag íslands 30 ára afmæli, og var í tilefni af því ákveðið að efna til ljósmyndasýningar, og voru eftirtaldir ljósmyndarar kosnir í sýningarnefnd: Sigurð- ur Guðmundsson, Guðmundur Erlendsson, Sigurhans, Vignir, Jón Kaldal og Ingibjörg Sigurð- ardóttir. þ. e. fulltrúar stjórnarflokk- anna, hefur ekki viljað taka afstöðu til þess. Við undirrit- aðir teljum hins vegar, að hér sé um hið nauðsynlegasta stór- mál að ræða. Fram á það hef- ur oftsinnis verið sýnt í um- ræðum um þetta mál, enda augljóst, að innkaup, flutning- ar og dreifing á vörum eins og olíum og benzíni gætu orðið þeim mun ódýrari og liagkvæm- ari sem um stærri rektur væri að ræða og þá auðvitað hag- kvæmast að hafa þessa verzlun alla á einni hendi. Nú um nokkurt skeið hefur ríkisstjórn- in, svo sem kunnugt er, keypt alla þá olíu, sem landsmenn nota, á einum stað, í Sovétríkj- unum, en flutningar og dreifing er þó í höndum olíufélaganna. Það, að innkaupin eru komin á eina hönd, styður þá skoðun, að rétt væri, að ríkisvaldið tæki öll þessi viðskipti að sér. Enginn vafi er á því, að verð- lag á olíum og benzíni er ó- þarflegt hátt og að atvinnuveg- ir landsmanna gjalda á þann hátt ónauðsynlegan skatt til gróðafélaga. I verkfalli því, sem nú er nýafstaðið, og með verðhækkunum þeim, sem olíu- félögin hafa auglýst á veittri þjónustu nú fyi'ir skemmstu, hafa þau enn á ný sýnt á sér það snið, að hagsmunum at- vinnuveganna og almennings væri tvímælalaust betur borgið, ef ríkisvaldið tæki þennan rekstur i sínar hendur. llásetalilutfi* 40-50 þíis. kr. Sandgerðisbátar halda enn á- fram róðrum og er afli sæmi- legur. Hæstu bátarnir, Muninn II, Sandgerði og Víðir frá Garði, eru komnir með um 1880 skp. á vertíðinni. Hásetahlutur á þessum bátum mun vera 40—4ó þús. kr. þJÓÐVIUIN Sunnudagur 15. maí 1955 — 20. árgangur — 109. tölublað Husturríkismeiui fá frelsi sitt i dag Utanríkisráðlherramii gengu endanlega frá orðalagi ríkissamningsms í gær Fánar verða dregnir að hún og kirkjuklukkum hringt um gervallt Austumki í dag klukkan ellefu, þegar utan- ríkisráðherrar stórveldanna fjögurra og Austurríkis koma saman í Belvederehöll í Vín til aö undirrita ríkissamning- inn, sem bindur endi á 17 ára hernám landsins. Utanríkisráðherrar fjórveld- anna, þeir Dulles, Macmillan, nætti 11. ? Til verkfalls kami að hafa komiö í Sandgeröi á mið- nætti í nótt. Hafði Verkalýðs- og sjómannafélag Miðnes- hrepps boðað atvinnurekendum vinnustöðvun með til- skildum fyrirvara og rann fresturinn út í gærkvöld. Samningar verkalýðsfélagsins voru úr gildi 1. marz s.l. en fé- lagið hefur frestað aðgerðum Minning íslendinga, sem férust og féllu á styrjaldarárunum Fyrirspurn írá Gunnari M. Magnúss iil ríkisstjórnarinnar Hefur ríkisstjórnin gert nokkrar ráðstafanir til þess að minnast þess, að 10 ár eru liðin frá stríðslokum, minnast hinna 250 íslendinga, sem fórust og féllu í siglingum á styrjaldartímunum, og minnast fórnanna, sem íslendingar urðu aö þola þá? Konéff yfirmaður herja A-Evrópu Skipulagi varnarbandalags A-Evrópu svipar til skipulags Aflanzbandalagsins í gæmiorgxin undirrituðu forsætisráðherrar Sovétríkj- anna og sjö alþýðuríkja Austur-Evrópu gagnkvæman vin- áttu- og öryggissáttmála í þinghúsinu í Varsjá. Auk sáttmálans undirrituðu I herstjórn fyrir aðildarríkin. Yf- forsætisráðherrarnir samning um irmaður sameiginlegs herafla að setja á stofn sameiginlega \ þeirra verður fvan Konéff mar- skálkur, einn fremsti herfor- ^ ’W , , ingi Sovetnkjanna i; siðustu heimsstyrjöld og núverandi varalandvarnaráðherra þeirra. Bækistöðvar hans verða í Moskva og mun hann hafa sér til ráðuneytis foririgjaráð, sem aðildarríkin skipa hvert um sig einn mann í. Aðild- arríkin leggja öll fram lio til hins sameiginlega herafla og verður því skipt niður á löndin samkvæmt samkomu- lagi ríkisstjórnanna. Austur- Þýzkaland verður ekki fyrst um sinn aðili að hinni sam- eiginlegu herstjórn, en aðild þess verður siðar rædd. Vináttu- og öryggissamningur- inn gildir til 20 ára og framleng- ist um 10 ár, hafi ekkert land- anna sagt honum upp fyrir þann tíma. I 11. grein samningsins er tekið fram, að hann falli sjálfkrafa úr gildi ef komið verði upp öryggiskerfi fyrir alla Ev- rópu. Öll ríki í Evrópu geta orð- ið aðilar að samningnum, hvert sem stjómskipuiag þeirra er. Auk hinnar sameiginlegu her- stjórnar munu aðildarríkin setja á stofn ráðherranefnd, sem fjalla Framhald á 5. síðu. Konéff Þessi fyrirspurn var borin fram í þinglok í tilefni þess, að nágrannaþjóðir okkar, og raunar þjóðir víða um heim hafa minnst þess að 10 ár eru liðin frá styrjaldarlokum. Þeg- ar litið er á hinar ægilegu fórn- ir íslendinga á stríðsárunum, væri ekki með ólíkindum þó að íslenzka ríkisstjórnin beitti sér fyrir því að landa okkar, sem fórust og féllu, væri minnst með virðingu og hluttekningu. þar til nú. Héldu samningsaðilar fund með sér á föstudagskvöldið en ekkert samkomulag náðist. Fóru atvinnurekendur fram á frest en því hafnaði verkalýðs- félagið. Ef til verkfalls hefur komið nær það til allrar vinnu verka- manna og verkakvenna í Sand- gerði en ekki til sjómanna. Kröf- ur verkafólks eru í meginatrið- um miðaðar við þann árangur sem verkalýðsfélögin í Reykja- vík, Hafnarfirði og Akureyri náðu í verkföllunum. Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur er einnig með lausa sanminga en þar hefur verk- fall ekki verið boðað ennþá. Aðilar ætluðu að ræðast við á fundi í Keflavík í gærkvöld, og má vera að samkomulag hafi náðst þótt blaðið hefði ekki fregnir af því. Pinay og Molotoff, og Figl, ut- anríkisráðherra Austurríkis, komu saman á fund í keisara- höllinni í Vin, þar sem hernáms- lið þeirra hafa aðalbækistöðvar, klukkan fimm í gær til að ganga endanlega frá orðalagi samnings- ins. Eitt atriði olli þá enn nokkr- um ágreiningi: Austurríska stjórnin hafði farið fram á að felld yrði úr formála sámnings- ins setning, þar sem lýst var yf- ir að Austurríki bæri nokkra ábyrgð á síðari heimsstyrjöld- inni. Utanríkisráðherrarnir sátu á fundi í eina klukkustund og að honum loknum var tilkynnt, að þeir hefðu samþykkt að verða við tilmælum austurrísku stjórn- arinnar. Tugþúsundir fögnuðu þeim Tugþúsundir manna söfnuðust saman fyrir framan hina fornu keisarahöll meðan utanríkisráð- herrarnir sátu á fundi og fagn- aðarlátunum ætlaði aldrei að linna, þegar mannfjöldinn fékk að vita, að síðasta tálmanum hefði verið rutt úr vegi. Ræddu um fund æðstu maima Bandaríski sendiherrann í Vín bauð utarfríkisráðherrunum til kvöldverðar í gær og var talið víst, að þeir myndu nota tæki- færið að máltíð lokinni til að ræða um fund æðstu manna stórveldanna. Reynt að leysa Kashnirdeilnna Múhameð Alí, forsætisráð- herra Pakistans, kom til Nýju Delhi í gær til viðræðna um Kaslimirdeiluna við Nehru, for- sætisráðherra Indlands. Þetta er í þriðja sinn sem þeir reyna að leysa deiluna, og kvaðst Mú- hameð Alí í gær vera vongóð- ur um að það tækist í þetta skipti. Nú þarf lögregluþjón á Höfn í Hornafirði! Kristinn Guðmundsson utanríkisráðherra undirbýr hernámið Höfn í Hornafirði. Frá fréttaritara Þjóðviljans. Ríkisstjómin sendi nýlega lögregluþjón hingað, og mun það hugsað sem undirbúningur undir hernámið. Lögregluþjónninn er af Kefla- víkurflugvelli og mun heyra undir lögreglustjórann þar. Er ætlunin að lögregluþjónn dvelj- ist hér til frambúðar en manna- skipti munu eiga að verða mán- aðarlega. Búist er við að hernámsliðið flytjist í stöðvar sínar hér eystra í júlí í sumar og er talið að það verði hátt á annað hundrað manns. Þrjú stór íbúðarhús eru þegar tilbúin að mestu. Hús rad- arstöðvarinnar sjálfrar er einnig að mestu komið upp en vélarnar eru ókomnar enn.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.