Þjóðviljinn - 22.05.1955, Síða 9

Þjóðviljinn - 22.05.1955, Síða 9
Sunnudagur 22. maí 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (9 ÍÞRÓTTIR RtTSTJÓRJ FRtMANN HELGASON Úr fréttabréfi írá Stokkhólmi U. maí 1955 Ungverjaland — Svíþjóð 7:3 Þeir knattspyrnuimnendur em lánsamir sem eiga þess kost að sjá hina ungversku snillinga Eins og vant er, fór fólk að koma um tveim tímum fyrir leiksbyrjun, og klukkan 6.30 var leikvangurinn þéttskipaður. Rétt áður en liðin komu inn á völlinn var skotið upp tveim kúlum, þegar þær sprungu, komu í ljós ungversku og sænsku fánarnir, þeir smá svifu svo til jarðar í fallhlífum eftir að hafa sveimað um stund yfir leikvanginum. Það má geta þess að þegar sænski fáninn fór að blakta í golunni, rifnaði hann næstum í tvennt. Tákn- rænt á vissan hátt, fyrir úrslit leiksins. Síðan komu liðin inn á leikvanginn, þjóðsöngvarnir Voru leiknir og því næst hófst leikurinn. Ungverjarnir taka þegar for- ustuna með sínum snjalla og góða leik. Svíar eiga þó af og til allgóð upphlaup, sem auð- sjáanlega er ætlað að koma hinni mjög svo framsækjandi vörn Ungverja á óvart. Langar spyrnur inn á eyðurnar. Hvor- Ugt markið kemst þó í verulega hættu þessar fyrstu mínútur. En smám saman eykst sóknar- þungi Ungverjanna, þeir leika hraðan samleik ýmist með stutt- um eða löngum spyrnum. Allt liðið er á lireyfingu og ávallt 2-3 menn reiðubúnir að taka við knettinum. Og auðvitað er það Puskas, sem stjórnar og leiðbeinir samherjum sínum. Á 16. mín. skorar svo Koscis. Svíar svara með sókn, en ekk- ert skeður og það eru eftir sem áður Ungverjar sem að mestu ráða leiknum. Á 21. mín. skorar Puskas úr vítaspyrnu. Svíar herða róðurinn og eiga Uokkur góð áhlaup, en það eru þó Ungverjar sem skora á 29. mín. Hidegkuti sendir heldur lausa spyrnu að marki, en fyr- ir mistök markmannsins, renn- ur knötturinn í netið. Og mín- útu síðar skorar svo Koseis. En nú finnst Svíum nóg kom- ið og halda þeir uppi sterkri sókn, sem lýkur loks með því að Löfgren skorar á 39. mín. Sókn Svía byggist mikið á löng- um spyrnum. Þó eiga þeir nokk- ur virkilega góð áhlaup, með mörgum stuttum og vel miðuð- um sendingum. Hinn ungi mið- framherji þeirra Isgren, sem leikur nú sinn fyrsta landsleik, er mjög athafnasamur og hrað- ur leikmaður, sem mikils má vænta af. Á 45. mínútu skorar Svenson annað mark Svía úr vítaspyrnu. Seinni hálfleikur er jafnari. Svíar eiga möx-g góð áhlaup, eru af og til inni í vitateig andstæðinganna en skortir ná- kvæmni í sendingum þegar plássið þrengist, og þeim hættir einnig til að skjóta úr vonlaus- um stöðum. Ungverjar aftur á móti eru yfirleitt hárná- kvæmir í sendingum sínum og leikni þeirra að taka við knett- inum hvernig sem hann kemur er aðdáunarverð. Það er Czor- das sem skorar fyrir Ungverja, aðdáanlega fallegt mark, þegar á 48. mínútu. Leikurinn er hrað ur, upphlaupin skiptast á og á 71. mínútu skorar svo Isgren fyrir Svía eftir að hafa leikið gegnum vöm Ungverja. Ung- verjar svara með sterkri sókn og á 76. mínútu skorar Puskas. Á 79. mínútu skorar svo Koscis sitt 3ja mark og leikurinn stendur nú 7:3 fyi’ir Ungverja. Það sem eftir er leiksins er mjög hratt leikið, og það eru kannski Svíar sem eiga fleiri tækifæri, en ekkert skeður og UngveTjar hljóta stóran og verðskuldaðan sigur. Leikni og knattmeðferð Ung- verja er aðdáunarverð. Sóknar- leikur þeirra er hraður, skipu- lagður og nákvæmur. En í sóknarþunga sínum verður vörn þeirra af og til opin, þannig að langar sendingar til fljótra leikmanna geta verið árangurs- ríkar fyrir mótherjann, og það notfærðu Svíar sér talsvert mikið. Sænska liðið lék yfirleitt vel, en í leikni í að stöðva knöttinn og nákvæmni sendinga standa þeir Ungverjum ansi langt að baki. Áð endingu vil ég svo geta þess að ég álít þá knatt- spyrnuunnendur lánsama, sem eiga þess kost að sjá hina ung- versku snillinga. 13. fundur Sambands- ráðs ÍSl Fundur var haldinn í sam- bandsráði íþróttasambands ís- lands laugardaginn 14. maí ’55 í félagsheimili Knattspyrnufé- lagsins Fram í Reykjavík. Fundinn setti og stjórnaði forseti ÍSl Ben. G. Waage og í upphafi fundarins minntist hann tveggja íþróttafrömuða er látizt hafa síðan síðasti fund- ur sambandsráðs var haldinn, þeirra Sigurjóns Péturssonar, Álafossi og Georgs Gíslasonar, Vestmannaeyjum. títhlutun á kennslustyrk til íþróttagreinanna, íþróttafulltrúi, Þorsteinn Ein- arsson, lagði fram mjög ýtar- lega skýrslu er hann hafði unn- ið úr framkomnum kennslu- skýrslum íþróttaþandalaga og Frá leik Akurnesinga og Reykvíkinga s.l. sunnudag. héraðssambandanna. Var sam- þykkt svohljóðandi tillaga: Sambandsi'áðsfundur ÍSÍ 14. maí 1955 felur framkvæmda- stjóra ÍSl að úthluta þeim 110 þúsund krónum, sem íþrótta- riefnd ríkisins veitir ISÍ til kennslustyrkja 1954, þannig með hliðsjón af skýrslu þeirri, ér fyrir fundinum liggur, að samanlagt framlag ISÍ og Umf. I. nemi sem næst verður kom- ist, 75% til héraðssambanda utan kaupstaða og 50% í kaup- stöðum, af þeim 62,5% af heild- artekjukostnaði (kr. 239.876. 51), sem hinn veitti kennslu- styrkur hrekkur til að greiða. Ákvörðun um hvar íþrótíaþing 1955 verði haldið. Rætt var um tvo staði fyrir næsta íþróttaþing, Akureyri og Hlégarð í Mosfellssveit. Var síðarnefndi staðurinn sam- þykktur og vei'ður Iþróttaþing ISl haldið laugardaginn 23. júlí og sunnudaginn 24. júlí n. k. Albert Guðmundssyni veitt áhu gamannar éttindi. Fyrir fundinum lá erindi um að Albert Guðmundssyni yrði veitt áhugamannaréttindi og mælti stjórn Knattspyrnusam- bands Islands með því einróma að það yrði gert.' Framkvæmdastjórn ÍSÍ lagði fram eftirfarandi tillögu, sem samþykkt var: Fundur í sambandsráði ÍSÍ, haldinn 14. mai 1955, samþykk- ir með tilvísun til meðmæla Knattspyrnusambands íslánds, að veita Albert Guðmundssyni áhugamannaréttindi nú þegar. Gunnar M. Magnúss: t Börnin frá Víðigerði „Við verðum víst að hýrast þar í nótt“, sagðí hann. Og það var fyrsta ólundarorðið, sem hann sagði í Ameríku. En Guðmundur var ekki farinn að segja neitt ljótt ennþá. XIV. Til grænu skóganna. Loksins var fjölskyldan með öllu dótinu komin undir húsþak 1 nýja landinu. Og það þurfti að taka upp áhöld og ílát, tína sitt af hverju matarkyns saman, því munnarnir og magarnir heimtuðu sitt. Börnin ætluðu að spyrja fullorðna fólkið um rauðmennin og hætt- urnar í grænu skógunum, en það varþaggað niður í þeim, fullorðna fólkið hafði um annað að tala, því í býtið morguninn eftir átti að leggja af stað á stórum vögnum með stórum hestum fyrir, langar, langar leiðir til grænu skóganna, þar sem jörðin gat látið vaxa hveiti og hafra, bygg og rúg og þar sem fólkið mátti sjálft’ eiga stóru trén í skógunum til þe$s að byggja hús. Það var svo sem ekki að marka þennan stað, sem þau voru á þessa nóttina. Það fór að dimma snögglega og loftið var fúlt og kalt, rétt eins og á íslandi. Karlmennirnir fóru í rökkrinu aðtakaupp stóru viðaraxirnar, sem þeir höfðu keypt. Þeir gátu ekki látið glampa á spegilfagrar stálkinn- arnar, en í stað þess þreifuðu þeir um egg og skalla og dáðust að því, hvað þetta væru göfug' verkfæri — breið fyrir eggina og biturleg — eig- inlega væri allt hægt að gera með svona verk- færum. Hijémsveit Svavars Gests Sigurður Ólafsson syngur meö hljómsveitinni. Aðgöngumiðar seldir klukkan 6 til 7 Nýja hljémsveitin leikur frá kl. 3.30—5 Þýzki samkórinn SINGGEMEINSCHAFT DES ST&DTISCHEN GYMNASIUMS BERGISCH GLADBACH Samsöngur í Austwbœjarbíói í dag klukkan 3 e.h. Aðgöngumiðar seldir í Austurbæjarbíói frá kl. 1. • •■■■■■■■■■••■■•■■•■■■■■■■■■■■•■■•••••■•■■■■■■■»*••■■■■••■■•■■••■••■■■••■■■•■•■■••■■•■•■■■■•■ AðalfwMtur Starfsstúlknafélagsins Sóknar verður haldinn þriöjudaginn 24. maí kl. 8.30 e.h. í AÖalstræti 12. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Samningarnir Önnur mál. Kaffi. FÉLAGSKONUR mæti vel og stundvíslega. 1 Stjórnin •#•*»»•»»»•■»■■•■■•■■■■•■■■«■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■•••■■•■■■■■■•••*■■•■■■■■■■■•■••■■■■■■■■■»»■■■ i

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.