Þjóðviljinn - 16.06.1955, Page 9
Fimmtudagur 16. júní 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (9
X
Sm
(
A ÍÞRÚTTiR
RíTSTJÓRl FRÍMANN HELGASON
íslandsmótið:
Akranes vann Þrótt 8:0
Sidlo kastar
nær 80 metra
Markatalan gæti gefið til
kynna að Akranes hefði tekið
fram stór-kanónurnar, og hæft
markið eftir góðan hreyfihem-
að. Hvað hreyfihemaðinn snert
ir höfðu þeir yfirburði yfir
Þrótt, en það merkilega skeði
að þeir komu ekki við stór-
skotaliðinu að þessu sinni.
Flest mörkin komu eftir mis-
tök í vörn Þróttar sem meira
vanir leikmenn hefðu losnað
við að gera. Hefði Þróttur átt
að geta losnað við a. m. k. 4
mörkin af þessum 8. Voru þau
öll sett af stuttu færi eftir
þröng við mark Þróttar.
TJti á vellinum léku þeir létt
og leikandi, en voru þó furðu
oft truflaðir og búið að loka
er upp að marki kom, þannig
að skot í lok áhlaupa eins og
við eigum að venjast þeim
vom ekki mörg. Ríkarður
komst t. d. aðeins í eitt skipti
innfyrir í sínum sérstæða stíl,
en skaut beint á markmann.
Þrátt fyrir þessi mörk lék
Þróttur e. t. v. betri knatt-
Bpyrnu en nokkm sinni áður
miðað við hve sterkt og gott
lið þeir áttu í höggi við. Þeir
éttu mörg nokkuð vel upp-
byggð áhlaup og áttu a. m. k.
eitt opið tækifæri. Þeir höfðu
Evrópumeistarar í
hnefaleikum 1955
Úrslitaleikir Evrópumeistara-
mótsins í hnefaleikum fóm
fram um fyrri helgi i íþrótta-
höllinni í Berlín. Úrslit urðu
þessi:
Bantamvigt;
líka úthald og gerðu tilraunir
til að leika knattspyrnu allan
timann. Eftir þessum fyrsta
leik Akraness með þeirri mót-
stöðu sem Þróttur þó veitti,
fer ekki hjá þvi að allar lík-
ur benda til þess að íslands-
bikarinn haldi til á Akranesi
eitt árið enn.
Lið Akraness var eins og
móti Rvíkurúrvalinu nema
hvað Jón Leós lék í stað Pét-
urs Georgs. Jón er gott efni
var þó ekki eins yirkur í
þessum leik og móti Þjóðverj-
unum um daginn. Sagnir höfðu
boiizt um að Halldór Sigur-
bjömsson væri meiddur í hiié.
Sem betur fór kom hann frísk-
ur og heill og gerði margt
vel. Ríkarður var líka ágætur,
þó Guðmundur Gústafsson
gerði honum nokkuð erfitt fyr-
ir. Kristinn var sterkur sem
miðframvörður, og sama er að
segja um Guðjón og Svein
Teits. Af Þróttarmönnum vom
þeir Halldór Backmann, Har-
aldur OEyjólfsson og Hörður
Guðmundsson beztir. Nýliðinn
Ásgeir sem var útherji vinstra-
megin lofar góðu. Jón Ásgeirs-
son er nú aftur kominn í mark
ið og þrátt fyrir sáralitla æf-
ingu gerði hann margt vel og
verður varla sakaður um meira
en tvö af mörkunum. Liðið
sem heild vantar meiri reynslu.
Með samheldni og þjálfun gæti
það náð miklu lengra.
Mörkin skomðu Þórður Þórð-
ar 4, Þórður Jóns 2 og Rík-
arður 2. Dómari var Þorlákur
Þórðars. Veður var mjög gott
og áhorfendur um 1500.
Á móti sem haldið var nýlega
í Kouvana kastaði Janus Sidlo
Janus Sidlo
spjóti 79,30. Annar varð Þjóð-
verjinn Heiner Will, 72,54, þriðji
varð Toivo Hyytiainen 71,19.
Annar í sleggjukasti varð
Finninn Oivo Holmetaja sem
kastaði 54,54 m.
Norsknr dómari 3. júlí
Nórðmaðurinn Petter Gunder-
sen hefur verið valinn dómari
í landsleik Dana og íslendinga
hér í Reykjavík þann 3. júní nk.
Milan efst í ítalíu
ftölsku deildakeppninni í knatt
spymu er nú lokið og sigraði
Milan með 47 stigum, Udinese
hlaut 42 stig, Bologna 39.
Stevuk, Pólland, vann Step-
anoff frá Sovétríkjunum.
Fjaðurvigt:
G. Nickols, England, vann
Sasutsjin frá Sovétríkjunum.
Fluguvigt:
Edgar Basil, A-Þýzkalandi,
vann Bobrescu, Rúmeníu.
Velti\igt:
Harry Kurschajs, V-Þýzkal.,
vann Mustavo frá Egypta-
landi.
Létt\igt: 1
Grogosz, Pólland, vann Palu-
day frá Ungverjalandi.
Weltervigt:
Weck Gorgano, England, vann
Hippolyt Anneks frá Frakk-
landi.
Léttmillivigt:
Pietrezykowsky, Pólland.
vann Sjarerjan frá Sovétríkj-
unum.
MiIIivigt:
Sjalkoff, Svétríkin, vann Stig
Sjöin frá Svíþjóð.
Iættþunga\igt:
Erich Schoppner, V-Þýzkal.,
vann Ulrich Netsechke frá A-
Þýzkalandi.
Þungavigt
Sjorzikas, Sovétrikin, vann
Horst Witterstein, A-Þýzka-
landi.
Aarkus GF varð Danmerkurmeistari
Deildaekppni í knattspymu
í Danmörku er nú lokið og
þau tíðindi gerðust að félag
frá Árósum sigraði, var það
A.G.F. Það var í fyrsta sinn
í fyrra að félag utan Kaup-
mannahafnar vann í keppni
þessari (Köge). Það var því
stór viðburður að á þessu ári
skyldi titill þessi líka lenda
hjá félagi utan Kaupmanna-
hafnar. Úrslitin vom óviss allt
til síðasta leiks en þá keppti
AGF og AB og fyrir leikinn
höfðu bæði jöfn stig eða 23
hvort, en A.G.F. hafði betri
markatölu og hefði því sigrað í
deildinni á því. En Jótamir
sigmðu 3:1 og þó léku þeir á
íþróttavellinum í Kaupmanna-
höfn. Það byrjaði þó svo að
AB setti fyrsta markið og var
það Knud Lundberg sem skor-
aði, en svo tóku Jótarnir við
og skoruðu þrjú eins og fyrr
segir.
Það vildi svo til að í ár á
A,G.F. 75 ára afmæli svovarla
verður annað sagt en þessi
sigur hafi verið skemmtileg
afmælisgjöf. Aftur á móti var
það lið frá.Fjóni sem féll niður
í n. deild, Odense Bold Klub.
Staðan í lok keppninnar í I.
deild var þessi:
A.G.F.
A.B.
Frem
K.B.
Esbjerg
Köge
B-1909
B-1903
Skovshoved
O.B.
Mörk St.
38-24 25
42-28 23
34-27 21
31- 27 18
38-37 18
32- 37 17
28-33 16
21-28 15
26-37 14
30-42 13
Bandaríkjamaðurinn Rafer
Johnson bætti heimsmet landa
síns Bobs Mathias í tugþraut
nú um sl. helgi. Hlaut hann
samanlagt 7983 stig, en met
Mathias, sem sett var á olym-
píuleikjunum í Helsinki 1952,
var 7887 stig.
Einstök afrek Johnson voru
þessi: 10(hn hlaup: 10.5, lang-
stökk: 7.49, hástökk: 1.84, 400m
hlaup: 49.7, kúluvarp: 13.80,
llOm grindahl.: 1*1^5, kringlu-
kast: 47.20, stangarstökk: 3.87,
spjótkast: 59.70, 1500m hlaup:
5:01.5.
Iimri gerð elnisins
' Framhald af 7. siðu.
ur að nafni F. W. Aston sem
fann upp áhald til að aðgreina
og vega hinar misþungu gerðir
sama frumefnis, Tæki þetta
nefnist massaspektrograf og er
aðgreiningin gerð með áhrifum
rafsviðs og segulsviðs á frum-
eindirnar.
••
MÆLING ATÓM-
GEISLUNAR
Það var áður nefnt að el-
ektrónur eða rafeindir eru
hlaðnar neikvæðu rafmagni.
En rafeindir eru ekki hinar
einu sjálfstæðu efnisagnir sem
eru hlaðnar rafmagni. Ef raf-
eindir tengjast atómum eða
atóm-hópum eða losna frá þeim
verða til rafhlaðin atóm sem
nefnast jónir. Þessar svonefndu
jónir eru til í vatnsupplausn-
um efna og geta einnig orðið
til í lofti við það að hraðfara
efnisagnir, t.d. rafeindir rek-
ast á frumeindir loftsins.
Geislar frá geislavirkum efn-
um sem til eru í náttúrunni og
frá kjarnasprengingum gera
loftið leiðandi. Til þess að
mæla þessa geislun er haft ein-
falt tæki sem er gamalkunnugt
frá tilraunum með rafmagrí;"
nefnilega elektróskópið eða
rafsjáin. Rafsjáin er einangr-
uð málmelektróða (rafskaut)
með tvö létt gullblöð á endan-
um, sem slá út eí elektróðan er
hlaðin rafmagni. Ef loftið í
kringum tækið er leiðandi
vegna geislunar verður þess
vart við það að blöðin falla
smátt og smátt saman. Þoku-
hylki Wilsons er mjög skemmti-
legt og einfalt tæki, en með
því geta menn séð með eigin
augum áhrif einstakra atóma
eða atómkjarna, þó að atómin
sjáist að vísu ekki sjálf — til
þess eru þau alltof smá, eins og
lýst hefur verið.
Ef hraðfara efnisagnir, t.d.
alfaagnir sem geislavirkt efni
sendir frá sér, fara gegnum
tækið, myndast rafhlaðnar
loftsameindir eda loftjónir
meðfram braut agnarinnar og
og er þá hægt að gera braut-
ina sýnilega með því að láta
vatnsgufu þéttast á loftjónun-
um.
Hólfið í þokuhvlkinu er mett-
að með vatnsgufu og ef loftið
í hólfinu er skyndilega látið
þenjast út kólnar það. Vatns-
gufan verður yfirmettuð og
þéttist þá og myndar röð vatns-
dropa meðfram braut hinnar
hraðfara efnisagnar.
Þessa þokurák sem_ þannig
myndast, má bæði sjá með ber-
um augum og ljósmynda ef
lýsing er góð.
Geiger-teljarinn er annað
tæki sem sýnir verkanir ein-
stakra efniseinda hverrar fyr-
ir sig.
Geiger-teljarinn er holur sí-
valningur sem inniheldur org-
on- og alkoholgufu við þrýst-
ing sem svarar 1/10 úr loft-
þyngd. Aðalhlutar áhaldsiins
eru tvö rafskaut úr málmi.
Pípan sjálf er annað skautið,
hitt er mjór vír, málmþráður,
sem liggur eftir miðri pípunni.
Pípunni er lokað loftþétt til
endanna með rafeinangrandi
eboníttöppum.
Á milli pípunnar og þráð-
arins er sterkt rafsvið, ca. 1000
volta spenna. Við venjulegar
aðstæður er spennan ekki nógu
há til að straumur gangi gegn-
um loftið milli rafskautanna.
En ef rafhlaðin efnisögn, t.d.
frá geislavirku efni eða geim-
geislun kemur inn í pípuna
verður loftið leiðandi og gef-
ur straumkipp í þræðinum.
Þessa straumkippi má styrkja í
magnara og láta þá vekja telj-
ara, þannig að hægt er að telja
hve margar rafmagnaðar efnis-
agnir fara gegnum tækið á
mínútu.
Þetta tæki er notað til að
mæla geimgeisla og geislun frá
geislavirkum efnum og er til
dæmis notað við leit að úran-
málmi.
Tæki þau sem nú voru talin
er hægt að nota til að verða
var við eða mæla hreyfingar
raíhlaðinna frumeinda og frum-
eindabrota. En eins og getið
hefur verið eru til efnisagnir,
hlutar frumeindakjarna án raf-
hleðslu, hinar svonefndu nev-
trónur eða neindir,
Áhrif þeirra má þó finna pg
mæla á óbeinan hátt með því
að þær hafa áhrif á frumeindir
sem þær rekast" á," geta t.d.
klofið þær í tvo eða fleiri raf-
magnaða hluta.
Sigur firðarins
Framhald af 4. síðu.
mætti við fyrstum í flokki
þeirra manna, sem vinna að
friði á jörð. Það er nefnilega
eftirtektarvert, að fáir þjón-
andi prestar þjóðkirkjunnar
hafa enn sent nöfn sín undip
friðarávarpið, þó var þess
vendilega gætt, að þjónar
kirkjunnar fengi ávarpið í
hendur, svosem eðlilegtvar, og
kirkjuyfirvöldunum var gefinn
kostur á að stofna til friðar á
jörðu með aðild sinni. Friðar-.;
hreyfingin gekk að dyrum ís-
lenzku þjóðkirkjunnar, sam-
kvæmt fyrirmælum ritning-
anna: knýið á og fyrir yður
mun upp lokið verða! En það
kom enginn til dyra. Hvað
veldur þessu tómlæti íslenzkra
klerka? Kannski vorannir
kirkjunnar við fermingu og
altarisgöngur ? Nú er vorönn-
um lokið, enn er tími til stefnu
að undirrita friðarávarpið, en
tíminn er stuttur — og iðrun-
in löng.
Þegar Heimsfriðarþingið
hefst í Helsinki 22. þ.m. mun
koma i ljós, hver hlutur okkar
íslendinga verður í baráttu
mannanna fyrir friði. Ef hlut-
ur okkar verður lítill, þá er
engu öðru um að kenna en
andlegu sinnuleysi okkar og is-
lenzkum roluhætti. Þá höfum
við brugðizt sjálfsagðri sið-
ferðilegri skyldu okkar. Bar-
áttan fyrir friði er í rauninni
próf, sem allar þjóðir nútím-
ans ganga undir. Þá verður
dæmt um andlegan þroska og
skilning hverrar þjóðar, inn-
ræti liennar og hjartalag. Von-
andi verður íslenzka þjóðin
ekki að bera kinnroða á þeim
degi, er henni verður lesinn
vitnisburðurinn.
TIL
LIGGUR LEIÐIN
Im
’A>rK4ltU