Þjóðviljinn - 16.06.1955, Page 12
enhower í felum í óbyggðum hl^QVIiltN N
öll rikissf'iórnin og 15.000 embcBffismenn
flý/aWasbingfon i kjarnorkusfriðsœfingu
Eisenhower Bandaríkjaforseti flýði í gær höfuðborgina
Washington ásamt allri ríkisstjóm sinni og 15.000 emb-
ættismönnum úr ráðuneytunum.
Því er haldið vandlega leyndu
hvar forsetinn og hinir stjórnar-
herrarnir hafast við, en á felu-
staðnum eða stöðunum verða
þeir næstu þrjá daga og stjórna
Bandaríkjunum þaðan.
Deila Svía og
Islendinga
fer íyrir dóm
Skýrt var frá því í sænska
útvarpinu í gær að sænska
ríkisstjórnin hefði svarað til-
lögu íslenzku ríkisstjórnarinn-
ar um að deilan út af loft-
ferðasamningi íslands og Svi-
þjóðar verði lögð í gerð eða
fyrir dómnefnd Alþjóða flug-
málastofnunarinnar.
Sænska rikisstjórnin segist
vel geta fallizt á að deilan
verði lögð fyrir dóm, þar sem
samningaumleitanir hafi
reynzt árangurslausar. Leggur
hún til að málskotið verði
rætt nánar á fyrirhuguðum
fundi fulltrúa íslands og Sví-
þjóðar í Stokkhólmi.
Loks segist sænska stjórnin
vona að brátt komist á milli
íslands og Svíþjóðar loft-
ferðasamningur áem sé ,,í
samræmi við kröfur tímans“.
Eins og fyrri daginn hafa
íselnzk stjórnarvöld þann hátt
á að láta fregnir uni milli-
ríkjamál sem ísland varða
berast hingað frá útlöndum
áður en þau fást til að opna
sinn munn.
Gert ráð fyrir vctnissprengjum
á stórborgir
Þessi feluleikur er einn þáttur
í loftvarnaæfingu, sem nær um
öll Bandaríkin. Segja bandarísk
stjómarvöld að hún sé sú um-
fangsmesta sem gerð hefur ver-
ið í heiminum.
Um leið og loftvarnamerki var
gefið í gær yfirgáfu embættis-
mennirnir í Washington skrif-
stofur sínar í snatri og héldu
til fyrirfram útbúinna felustaða
með flugvélum og bílum. Yfir-
herstjórnin var flutt út úr borg-
inni í helikopterflugvélum.
Gert var ráð fyrir því að fjór-
vetnis- og plútóníumsprengjum
á 50 helztu borgir Bandaríkj-
anna.
I
i
í hellum og námugöngum
Reynt var að koma öllu fólki
á brott úr miðhverfum þeirra
borga, sem gert var ráð fyrir
að yrðu fyrir árásum.
Næstu þrjá daga mun svo
Bandaríkjastjórn heyja gervi-
kjarnorkustríð við ímyndaðan ó-
vin úr fylgsnum sínum. Hefur
sérstöku fjarskiptakerfi verið
komið upp milli hinna leynilegu
stjórnarsetra og herstöðva, flug-
stöðva og flotastöðva Banda-
ríkjanna um heim allan.
Talið er að „varahöfuðborg-
inni“ hafi verið komið fyrir í
djúpum hellum og yfirgefnum
Fimmtudagur 16. júní 1955 — 20.. árgangur — 133. tölublað
Málgagn páfasfóls boiar
bannfæringu Perons
Húsranitsóknii kjá ioríngjum kaþólskxa
í Argentínu
Taliö vai' víst í Páfagarði í gær að Peron forseti Argen-
tínu yrði á næstunni færður í bann kaþólsku kirkjunnar.
um stundum eftir að loftvarna- námum ekki langt frá Washing-
merkið hefði verið búið að varpa ton.
lleUóm kaup nýs togara í stað
Jóns BaMviitssonar
Á fundi bæjarstjórnar Reykjavíkur 2. þ.m. fluttu sós-
íalistar tillögu um að leita tilboða í smíði nýs togara í stað
bæjarútgerðartogarans Jóns Baldvinssonar, er strandaði
.1. vor. ’ |! i
Tillögunni var vísað til út-
gerðarráðs er samþykkti á
fundi sínum í gær eftirfarandi:
„Þar sem fyrir liggur já-
kvætt svar við fyrirspurn til
veðhafa í vátryggingarfé b/v
Jóns Baldvinssonar á þá leið,
að lán þau, sem hvíldu á skip-
inu megi yfirfærast á nýtt
skip, sem byggt sé í stað hins
strandaða togara, þá sam-
þykkir útgerðarráð í framhaldi
af umræðum þeim, sem fram
hafa farið um málið, að hefj-
ast handa um undirbúning að
byggingu nýs togara og leita
Gunnar Turesson, frægasti vísna-
söngvari Svía syngur hér 22. þ.m.
Sænski vísnasöngvarinn, Gunnar Turesson, sem er
frægasti vísnasöngvairi Svía, syngur hér í Gamla bíói
miðvikudaginn 22. þ.m.
Turesson syngur hér á veg-| ur nöfn sem kunn eru hér á
um félagsins Kynning, en það
beitir sér fyrir hingaðkomu
frægra erlendra manna, og
hafa m.a. komið hingað á þess
vegum norska skáldið Wilden-
vay og ástralski bóndinn og
fjallgöngumaðurinn Edmund
Hillary.
Gunnar Turesson er, sem
fyrr segir frægasti, vísna-
söngvari Svía nú og hefur
sungið á Norðurlöndum öllum
og víðar, m. a. í sjónvarp í
Bandaríkjunum. Hann leikur
sjálfur undir söng sinn á lútu.
Gunnar Turesson er einnig
afkastamikill sönglagasmiður
sjálfur, hefur hann samið um
300 lög, m.a. við Ijóð eftir
Dan Andersson, Harry Mart-
insson, Nils Ferlin og Hjalmar
Gullberg, svo nefnd séu nokk-
heimildar bæjarstjórnar Rvik-
ur og ríkisstjórnarinnar til
þess að mega semja um smíði
skipsins.“
Blaðið Osserva.tore Romano,
málgagn páfastólsins, kemst
svo að orði í gær í grein um
deilu ríkis og kirkju í Argen-
tinu, að þeir sem beiti þjóna.
kirkjunnar valdi fremji hróp-
lega synd, sem kirkjan refsi
með því að varpa sökudólgun-
um út í yztu myrkur.
Tato aðstoðarbiskup í Bu-
enos Aires og æðsti maður
kirkjunnar í Argentínu i for-
föllum Copello kardínála og
Novoa kanúki, sem Peron vék
úr stöðum þeirra í fyrradag,
komu í gær með flugvél til
Brasilíu á leið til Rómar. —
Kváðust þeir hafa verið hand-
teknir í fyrrakvöld og vísað I Þrjár þúsundir flugvéla taka
úr landi í gærmorgun. Stjórn j þátt í flugheræfingum í fimm
Perons sakar þá um að hafa þúsund metra hæð dagana 20.
ar á heimilum margra forystu-
manna kaþólskra. Óstaðfestar
fregnir herma að margir menn
hafi verið handteknir.
Peron bað í gær þdngið að
setja rétt yfir Casarez, einum
af dómurum Hæstaréttar Arg-
entínu. Sakar stjórnin hann um
að hafa reynt að fá herinn til
að veita kaþólskum mönnum
lið í viðureign þeirra við lög-
regluna um síðustu helgi.
Flugheræfingar
bandalagsins
stjórnað mótmælum kaþólskra
manna gegn fyrirætlunum
hennar um að skilja að ríki
og kirkju.
Lögreglan í Buenos Aires tók
í gær á sitt vald erkibiskups-
höllina í borginni og skrifstof-
ur samtaka kaþólskra leik-
manna. Húsaleitir voru gerð-
Velta Nordisk Andelsforbund
nemur looo millj. kr. árlega
Aðalfundur sambantísms var baldinn hér
í Reykjavík í fyrradag
Aöalfundur Norræna samvinnusambandsins — Nordisk
Andelsforbund — var haldinn hér í Reykjavik í fyrradag.
í gær ræddi stjórn sambandsins við blaðamenn og skýrði
þeim nokkuð frá störfum þess og því helzta sem gerzt
hefði á aðalfundinum hér.
til 28. júní. Flugvélar frá
ellefu af aðildarríkjum Atlanz-
hafsbandalagsins eiga hlut að
flugheræfingunum undir stjórn
brezka flugmarskálksins, Sir
Basil Embry, yfirmanns flug-
hers Atlanzhafsbandalagsins í
Mið-Evrópu.
Ræða Macmillans
Framhald af 1. síðu.
falla í stafi en þau mættu ekki
heldur draga sig inn í skel grun-
semda og hundingjaháttar. Við
höfum alltaf verið reiðubúnir til
að taka til greina réttmætar
kröfur og öryggisþarfir Sovét-
ríkjanna, sagði Macmillan, en
við munum aldrei gera samn-
inga sem stríða móti réttlæti
og sómatilfinningu.
Gunnar Turesson
Stjórn Norræna samvinnusam-
bandsins — oft skammstafað
NAF — skipa nú: Svíamir Al-
bin Johansson formaður, Carl
Lindskog og S. H. Sörensen,
Finnarnir Paavo A. Viding og
Uuno Takki, Norðmennirnir Olav
Meisdalshagen og Rolf Seming-
sen, Danirnir M. Refsgaard
Thögersen og Ebbe Groes og Er-
lendur Einarsson forstjóri SÍS.
Forstjóri er Daninn Mogens Ef-
holm, en skrifstofur hefur sam-
bandið í Kaupmannahöfn og
London.
37 ára samband
Norræna samvinnusambandið
var stofnað árið 1918 sem sam-
eiginlegt innkaupafyrirtæki sam-
vinnuhreyfingarinnar í Svíþjóð,
Noregi og Danmörku. Tiu árum
síðar bættust bæði finnsku sam-
vinnusamböndin í hópinn og
1949 Samband íslenzkra sam-
vinnufélaga. NAF hefur þannig
innan sinna vébanda samvinnu-
hreyfingu allra Norðurlandanna.
Það er rekið sem viðskiptafyrir-
tæki, er annast margvísleg inn-
kaup fyrir norræna samvinnu-
menn og hefur sparað þeim stór-
ar fjárhæðir á þann hátt.
1000 millj. króna velta
Skipti SÍS við NAF hafa farið
vaxandi á undanförnum árum. í
fyrra keypti Sambandið inn vör-
ur með milligöngu NAF fyrir
rúmlega 20 milljónir ísl. króna.
Heildarvelta Nordisk Andels-
forbund var á s.l. ári um 1000
milljónir íslenzkra króna og var
sænska samvinnusambandið þar
stærsti kaupandinn.
Aðalfundir NAF eru haldnir til
skiptis í hinum ýmsu Norður-
löndum. 1950 var fundurinn
haldinn síðast hér á landi en á
næsta ári verður hann haldinn i
Noregi.
Framhald á 3. síðu.
þjóðverjar mh
skip íyrir Breta
Brezkt útgerðarfélag hefur
samið við skipasmíðastöð í Brem-
en í Vestur-Þýzkalandi um
smíði þriggja skipa, sem öll
verða yfir 8000 tonn. Boð þýzku
skipasmíðastöðvarinnar var um
15% lægra en sex brezkra skipa-
smíðastöðva sem einnig buðu i
smíði skipanna. Þar að auki er
afgreiðslufrestur þýzku stöðvar-
innar átta mánuðum skemmri en
þeirra brezku.
IJíiI hveiti-
uppskera
I USA
Hveitiframleiðsla Bandaríkj-
ann á þessu ári verður sú
minnsta um margra ára skeið,
að tilkynnt hefur verið í Wash-
ington. Valda því þurrkar.
Cilæsileg skemmtun í Tívólí á sunnudaginn — Æsknlýðsfylkingln