Þjóðviljinn - 03.09.1955, Síða 2
2) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 3. ’september 1955
★ í dag er laugardagurinn 3.
september. Ramaclus. — 246
dagur ársins. — Tungl í há-
suðri kl. 1.54. — Árdegishá-
flæði kl. 6.48. Síðdegisháflæði
kl. 19.04.
Fástir íiðir eins
og venja er til.
12.50 Óskalög
sjúklinga. 19.00
Tómstundaþáttur
barna og unglinga. 19.30 Tón-
leikar: Létt sænsk lög. 20.30
Upplestur: Haraldur Bjöms-
leikari les úr „Huliðsheimum“
eftir Arne Garborg. 20.55 Tón-
leikar: Lög úr óperum eftir
Donizetti. 21.25 Leikrit: Hent-
ugt húsnæði“ eftir Yves Mir-
ande og Henry Caen, í þýðingu
Valborgar Þ. Eby. — Leikstjóri
Rúrik Haraldsson. 22.00 Fréttir
og veðurfregnir. 22.10 Danslög.
24.00 Dagskrárlok.
Lúðrasveitín Svanur
leikur í Bústaðahverfi kl. 3 í
dag, ef veður leyfir. Stjómandij
Karl Ó. Runólfsson.
Millilandaflug:
Sólfaxi f ór til!
Glasgow og Kaup-
mannahafnar í
morgun. Flugvélin er væntan-
leg aftur til Reykjavíkur kl. 20
á morgun. Gullfaxi er væntan-;
legur til Reykjavíkur frá
Stokkhólmi og Osló kl. 17 í
dag.
Edda millilandaflugvél Loft-
leiða h.f. er væntanleg kl. 9
frá New York. Flugvélin fer til
Gautaborgar, Hamborgar og
Lúxemborgar kl. 10.30.
Einnig er Hekla væntanieg frá
Noregi kl. 17.45. Flugvélin efr
til New York kl. 19.30.
Innanlandsf lug:
1 dag er áætlað að fljúga til
Akureyrar (2), Blönduóss, Eg-
ilsstaða, ísafjarðar, Sauðár-
króks, Siglufjarðar, Skógasands
og Vestmannaeyja (2). — Á
morgun eru ráðgerðar flug-
ferðir til Akureyrar (2),Gríms-
eyjar og Vestmannaeyja.
Genrrisskráning s
Kaupgengi
sterlingspund ...... 45.55
1 bandarískur dollar .... 16.26
Kanada-dollar ....... 16.50
100 svissneskir frankar .. 373 30
100 gyllini ............ 429.70
100 danskar krónur ..... 235.50
100 sænskar krónur .......314.45
100 norskar krónur ..... 227.75 j
100 belgískir frankar .... 32.65
100 tékkneskar krónur .... 225.72
100 vesturþýzk mörk...... 387.40
1000 franskir frankar ... 46.48
1000 lírur .............. 26.04
a aldrei líkindi til þess
Assessor Ámi komst Þar á ís-
landi í engin mál fyrir sjálfs
síns persónu, nema það eina
við Magnús Sigurðsson í
Bræðratungu. Magnús var ætt-
aður að norðan úr Þingeyjar-
þingi og var maður stórauðug-
ur og margt til kosta lagt, vel
persóneraður, hárprúður, vel
talandi og annað því líkt. Hann
var kvæntur í öðru sinni og
átti Þórdísi dóttur Jóns bisk-
ups Vigfússonar ert systyr Sig-
ríðar, hústrúr Jóns Þorkels-
sonar biskups í Skálholti. Þór-
dís var kölluð kvenna vænst á
öllu Suðurlandi og þó víðar
væri leitað. Magnús var
drykkjumaður, en " hún sagði
honum af einfeldni orð ýmissra
gesta, að það væri mein hún
ætti slíkan sörla. Af þessu fékk
Magnús grunsemj, að hún
mundi sér ei alholl, iét hana
illa og barði, jafnvel stundum
nauðuglega stadda í barnsburð-
ar veikindum síðan. Flúði hún
þá ofan að Skálholti til bisk-
ups og sýstúr sinnar. Magnús
kom og báð forlíkunar og sætt-
ust. En það fór á sömu leið.
Kom þá Magnús með kröfur,
en hún vildi ei heim. Sneri Magn-
ús þá þessu so, sem hún mundi
vera hallari að ass. Árna en
vera ætti. Hefi ég þó heyrt
Becker segja, að liann hafi
þó nálega aldrei merkt nokk-
ur líkindi til þess. Magnús hóf
mál um þessa grunsemd Við
Árna hér um anno 1703. Það
kom fyrir tuttugu og fjögra
réttinn (eður yfirréttinn öðru
nafni) og var Magnús fyrir ó-
virðingarlegan og ógrundaðan
áburð við Árna dæmdur í stór-
ar bætur. IVIig minnir þeir
gjörðu fullrétt hans xxx hdr. í
því máli ' máski það hafi verið,
sem áðurnefndir vestfirsku ann-
álarnir segja: Anno 1705 reisti
Árni Magnússon commissarius
um sumarið frá íslandi til
Kaupenhafn, var þar um vetur-
inn og kom aftur til íslands
1706. Og þá kom stóra bólan
úr klæðatunnu, er kom með
Eyrarbakkaskipi, gekk það sum-
ar hægt, en tók sig upp magn-
lega sumarið eftir, 1707“ ítem
segja sömu annálar: „1707.
Deyði Magnús Sigurðsson frá
Bræðratungu, í martio 1707, í
Kaupenhafn, af sjúkdómi“.
Féll þá málið niður. Jón Torfa-
son frá Flatey, er verið hafði
soldat utanlands, fór til ís-
lands og bauð sig til að taka
málið upp af hendi erfingja
Magnúsar. En honum var bor-
ið það að hann hefði stolið
silfurdósum frá Þormóði Torfa-
syni, historigrapho regio (sagn-
arritara konungs)), sem var í
Kaupenhafn staddur anno 1708.
Eyddist svo málið og varð að
engu, en Ámi gaf síðan upp
Þórdísi og bömum hennar mest-
an part sektarinnar.
(Jón Ólafsson úr Grunnavík:
Árni Magnússon)
Söínin eru opin
Náttúrugripasalnlö
kl. 13.30-15 á sunnudógum. 14-15 é
þriðjudögum og fimmtudögum.
Þ jóðmin jusaí nið
kl. 13-36 á sunnudógum, kl. 13-15
á þriðjudögum. fimmtudögum og
laugardögum.
Þjóðskjalasafnið
á virkum dögum kl. 10-12 og
14-19.
Eandsbókasafnið
kl. 10-12, 13-19 og 20-22 alla virka
daga nema laugardaga kl. 10-12 og
13-19.
Listasafn
Einars Jónssonar
er opið klukkan 13.30 til 15.30
alla daga yfir sumarmánuðina,
Næturvarzla
er í Reykjavíkurapóteki, sími
1760.
lyfjabCðib
Holts Apótek | Kvöldvarzla ti
fjagr- | kl. 8 alla dags
Apótek Austur- | nema laugar
L bæjar | daga tU kL 4
Nýlega voru gefin
saman í hjónaband
í Grenjaðarstaðar-
kirkju í Aðaladal
ungfrú Guðrún Sigurðardóttir
Rauðuskriðu í Aðaldal, og Gest-
ur Hjaltason, ýtustjóri frá
Rútsstöðum í Eyjafirði. Heimili
brúðhjónanna verður að Norð-
urgötu 27 Akureyri.
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband ungfrú Ingibjörg
Sigurðardóttir (skipstjóra Ei-
leifssonar) og Hinrik P. Lár-
ursson (bílstjóra Hinrikssonar).
Heimili brúðhjónanna er að
Grettisgötu 54B Reykjavík.
Þetta er hugmynd listamanns um útlit mannsins sem Grímur
Thomsen lagði þessi orð í mimn: Þótt páfi mér og biskup banni/
banasæng skal konungmanni|/ hásæti til hvílu reitt — og þá
munuð þið kannast við hannu
Æ.F.R.
Listar fyrir uppástungur á full-
trúum á sambandsþing liggja
frammi í skrifstofunni, sem er
opin kl. 6.30—7.30 eh. alla virka
daga nema laugardaga, kl. 3-5.
Síðastliðinn þriðju-
dag opinberuðu
trúlofun sína ung-
frú Sigríður Krist-
jánsdóttir, Eyri Glerárþorpi, og
Halldór Árnason, skósmiður
Grund Glerárþorpi.
NIÐURSUÐU I
VÖRUR
tuaðiGeús
siauumaKraRðon
Minningar-
kortin
eni til sölu í skrifstofu Sósi-
alistaflokksins, Tjarnargötu
20; afgr. Þjóðviljans; Bóka-
búð Kron; Bókabúð Máls og
menningar, Skólavörðustíg
21 og í Bókaverzlun Þorvald-
ar Bjamasonar í Hafnarfirði
Tímariðið
Samtíðin hef-
ur borizt, sept-
emberhefti 22.
árgangs. Þar
er fremst
greinin Allt fyrir þá sjúku.
Síðan koma Ástarjátningar og
Kvennaþættir Samtíðarinnar.
Dægurlagatexti mánaðarins er
Síldarstúlkumar, eftir Oddgeir
Kristjánsson og Ása í Bæ. 1
þessu hefti lýkur 198. sögu
Samtíðarinnar: Ævintýri á sjó
og í „Svörtu heimsálfunni".
Þá em tuttugu spurningar, en
af svömm við þeim eiga menn
að geta markað athafnasemi
sína. Síðan hefst 199. saga
ritsins: Dásamlegt sumarleyfi
—- og er það meira en margur
getur sagt hér á landi í sumar.
Þá er sagan Samtíðarhjónin,
eftir Sonju; ritstjórinn skrifar
ritdóm um Brimhendu — og
em þá ótaldar fjölmargar
skrýtlur, flestar af betra tagi.
výSsf.
Hallgrímsprostakall
Messa kl. 11 árdegis. Séra
Jakob Jónsson. Ræðuefni:
Dæmisagan sem allir þykjast
kunna.
á hóíninni
Eimskip:
Brúarfoss fór frá Hamborg í
fyrradag til Antverpen, Rotter-
dam, Hull og Reykjavíkur.
Dettifoss fer frá Leningrad í
dag áleiðis til Helsingfors,
Hamborgar, Hull og Reykja-
víkur. Fjallfoss kom til Reykja-
víkur í gær frá Hull. Goðafoss
fór frá Flekkefjord 31. ágúst á-
leiðis til Vestmannaeyja. Gull-
foss fer frá Kaupmannahöfn á-
hádegi í dag áleiðis til Leith
og Reykjavíkur. Lagarfoss kom
til Rotterdam 31. ágúst; fer
þaðan til Hamborgar pg
Reykjavíkur. Reykjafoss fór
frá Reykjavík til Hafnarfjarðar
snemma í morgun; fer þaðan
til' Grímsby, " Rotterdam og
Hamborgar. Selfoss fór frá Isa-
firði í gær til Siglufjarðar og
Húsavíkur. Tröllafoss fer frá
New York á morgim til Nor-
folk og þaðan aftur til New
Ýork og síðan til Reykjavíkur.
Tungufoss fór frá Siglufirði í
gærkvöld til Akureyrar, Dal-
víkur, Raufarhafnar, Þórshafn-
ar og þaðan til Gautaborgar
og Stokkhólms. Niels Winter
kom til Reykjavíkur síðdegis
í gær frá Hull.
Sambandsskip:
Hvassafell er á Sauðárkróki.
Amarfell er í Keflavik. Jökul-
fell fór frá Reykjavík 27. f.
m. áleiðis til New York. Dís-
arfell losar kol og kox á Húna-
flóahöfnum. Litlafell er í olíu-
flutningum á Faxaflóa. Helga-
fell er í Riga. Esbjöm Gorthon
fór 30. f. m. frá Álaborg áleið-
is til Keflavíkur.
Ríldsskip:
Hekla fer frá Reykjavík kl. 18
í dag til Norðurlanda. Esja fór
frá Reykjavík í gærkvöldi aust-
ur um land í hringferð. Herðu-
breið er á leið frá Austfjörðum
til Reykjavíkur. Skjaldbreið fer
frá Reykjavík kl. 20 í kvöld
vestur um land til Akureyrar.
Þyrill er norðanlands. Skaft-
fellingur fór frá Reykjavík í
gærkvöld til Vestmannaeyja.
Baldur fer frá Reykjavík á
mánudaginn til Hvammsf jarðar
og Gilsfjarðar.
MESSUR Á MORGUN:
Laugarnesldrkja
Messa kl. 11 árdegis. Séra
Garðar Svavarsson.
Langholtsprestakall
Messa í Laugarneskirkju kl. 2.
Séra Árelíus Níelsson.
DómMrkjan
Messa kl. 11. Séra Jón Auðuns.
Nesprestakall
Messa í Kapellu Háskólans kl.
11 árdegis. Séra Jón Thorar-
ensen.
Háteigsprestakall
Messa í hátíðasal Sjómanna-
skólans kl. 2. Séra Jón Þor-
varðsson.
Óháði fríldrkjusöfnuðurinn
Messa í Aðventkirkjunni kl. 11
árdegis. Séra Emil Björasson.
•■■■■■■■■■■■■■■■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■aaaaaauaa.«aaaaBaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa
| NANkÍh
d A*
KHflKI
«■■■■■■■••■■# •■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■«i