Þjóðviljinn - 08.09.1955, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 08.09.1955, Qupperneq 3
Fimmtudagur 8. september 1955 — ÞJÓÐVTLJINN (3 Akureyringar taka á móti Kínverjiuium á flug\Tellinum á Melgerðismelum s.l. föstudag. Kínverjarnir unnu hvers manns hug og hurfu héðan nieð ®óðar minningar Kínverska æskulýðsnefndin hélt heimleiðis í gærmorgun eftir tólf daga dvöl. Um lang- an veg kom hún hingað, og lengi mun hennar minnzt — með ánægju og af þakklæti. Þeir unnu hvers x manns hug Þetta unga fólk kynntist mörgum í hinni skömmu dvöl sinni á Islandi. Það æskti þess sjálft að mega heimsækja vinnustaði, og komst þannig í samband við þá alþýðu sem útlendir menn láta sér að jafnaði ekki títt um. Eisku- semi og óbrotin framganga hinna fjarkomnu gesta vann þeim hvarvetna vináttu, bra.ut niður án fyrirhafnar þá múra feimni og hlédrægni sem oft rís milli gests og heimamanns. Kínversku gest- imir voru ekki dýrkeyptir á list sína: þeir töldu ekkert sjálfsagðara en verða hverju sinni við óskum þeirra, er þeir heimsóttu, um söng og leik og íþrótt. Þeir komu til að láta sem flesta njóta góðs af list sinni, hverjar sem að- stæður væru, en ekki til að búa hér í fílabeinsturni í hálf- an mánuð. Sjaldkn hafa geð- þekkari og heilbrigðari gestir heimsótt okkur; framganga þeirra bar vott hinxn djúp- rættu menningu kínversku þjóðarinnar, dans þeirra og söngur vitnaði um dýra list- gáfu hennar. Þeir spenntu skinn á gjörð — og þar var komið ágætasta hljóðfæri; þeir smíðuðu sér dálítinn fork — og þar var komið furðu- legasta íþróttatæki: þeim dugðu litlir hlutir til að sýna stóra list. Fréttamaður blaðsins hafði í gærmorgun tal af þeim Inga R. Helgasyni og Einari Gunn- ari Einarssyni og spurði þá frétta af dvöl Kínverjanna hér, hvað þeir hefðu séð, hvar þeir hefðu flutt efni sitt, hvernig þeim hefði geðjazt dvölin á Islandi. Fara svör þeirra efnislega hér á eftir: ^ Vanlíðan á einum -stað — ánægja á öllum hinum Hér í Reykjavík efndi kín- verska æskulýðsnefndin til tveggja opinberra listskemmt- ana. Voru þær haldnar í Aust- urbæjarbíói, stærsta sam- komusal borgarinnar; og mátti heita fullt hús bæði skiptin. Ber þess að gæta í því sambandi að íhaldsblöðin gerðu ekki mikið stáss af þessum listviðburði; t. d. minntist Morgunblaðið hans'j'- aðeins einu sinni í smáklausu og þá af sýnilegri vanlíðan. Þá efndu ýmsir aðilar: Al- þjóðasamvinnunefndin, Æsku- lýðsfylkingin í Reykjavík og KÉM til funda með gestunum, og fluttu þeir þá alltaf hluta af dagskrá sinni. Mjög mikil aðsókn var að þessum fund- um; t. d. urðu margir frá að hverfa kaffikvöldi Alþjóða- samvinnunefndarinnar í Tjam arkaffi, enda þótt mörgum borðum væri bætt í salinn um- fram venjulega tölu. Siðast- liðinn föstudag fóru Kínverj- amir svo til Akureyrar og héldu skemmtun í Samkomu- húsinu þar, og var það fullt út úr dyrum. Æskulýðsfylk- ingin og iðnnemafélagið önn- uðust móttökur þar, og buðu að lokinni sýningu til kaffi- drykkju á hótel KEA. Var þar margt manna, m.a. meiri- hluti bæjarstjómar Akureyr- ar, skólameistari, bæjarfógeti. En gestirnir létu ekki við það sitja, heldur skoðuðu þeir verksmiðjumar Gefjuni og Iðunni; einnig heimsóttu þeir fiskþurrkunarhús og fluttu starfsfólkinu hluta af dagskrá sinni. Festu þeir hin fögm merki sín á alla viðstadda. Verkafólkið sló saman og keypti minjagripi, er síðan vom afhentir í kaffisamsæt- inu. Einnig bauð það gestum sínum til ferðalags daginn eftir, ef þeir gastu komið við að þiggja það, en því miður var það ekki unnt: þeir urðu að fara suður aftur strax næsta morgun. Ekki vitum við glöggt hvorir vom ánægð- ari: gestimir með gjafimar eða verkafólkið með heim- sóknina og listina — en það var að minnsta kosti almenn og sameiginleg og gagnkvæm ánægja. Nýstárlegar heim- sóknir á vinnustaði Leitazt var við að sýna Kínverjunum merkustu hús og söfn í Reykjavík. Þeim var sýndur Háskólinn, Þjóð- minjasafnið, Listasafn Einars Jónssonar, og einn daginn tók _ nefnd|n dhhifi||| 'Sá'i jfeanundi Sviéinssyni. Hann evaraði með Megi vinátta okkar hald ast allan aldur Kveðja írá kínversku æskulýðsneíndinni Kæm íslenzku vinir! s Kínverska æskulýðsnefnd- in, sem gist hefur hið fagra | land ykkar að undanförnu, ! heldur heimleiðis í dag. Á j kveðjustundinni verða okk- 5 ur enn í hug þær ógleyman- \ legu stundir sem við höfum : dvalizt með ykkur. Hinir á- : nægjuiegu dagar í Reykja- : vík og á Akureyri, helgi- staður ykkar, Þingvellir þar : sem elzta þjóðþing heims var haldið, hinir skemmti- legu hverir í landi ykkar — allt þetta og margt fleira \ mumim við geyma í minni, : ásamt hlýjum handtökum s æskufólks og alls almenn- : ings. Hvar sem við komum : var okkur fagnað með dá- : leikum og vinarþeli. I hinni : skömmu dvöl okkar á Is- • landi höfum við kynnzt at- s orkusamri og hugrakkri þjóð, sem ann friði, lýðræði og frelsi. Við höfum komizt að raun um góðvild ís— l /»nzkrar alþýðu og æsku í garð Kína. Við erum þess fullviss að hin persónulegu tengsl, sem skapazt hafa við heimsókn okkar, muira stuðla að aukinni vináttu þjóða okkar. Við trúum þvi einnig að heimsókn okkar geti orðið til að efla menn- ingartengsl og viðskipti Is- ,ands og Kína, — og þá um leið heimsfriðinn. Við mun- um flytja ámaðaróskir vina okkar á íslandi til Jtínversku þjóðarinnar. Megi vinátta okkar haldast alian aldur. Kínverska æslculýðsnefnd- in flytur hugheiiar þakair íslenzkum vinum sinum fyr- ir heimboð þeirra og hjart- anlegt viðmót. Lifið heil! Kínverska æskulýðsnefndin. því að gefa henni litlar af- steypur af nokkrum listaverk- um sínum. Einn daginn fór hún í ReykjaluncJ og dvaldist þar lengi dags, skoðaði alla stof nunina út og inn; svo var farið að syngja og leika fyrir vistmenn og starfsfólk; að lokum gefhar gjafir og þegnar. Ótaldar em þá enn heimsóknir á tvo fjölmenna vinnustaði í bænum: Bæjar- útgerðina við Grandagarð og fiskverkunarstöð Ingvars Vil- hjálmssonar. Á hvorum vinnu- staðnum munu þá hafa verið um 150 manns, og var gest- unum mjög vel fagnað: vinna felld, boðið upp á kaffi — og^ að sjálfsögðu sýndar listir. Voru heimsóknirnar þakkaðar með ræðum og lögð á það á- herzla hve nýstárlegt það væri hér á landi að verkafólk fengi heimsókn listamanna á vinnustaði. Var ánægjá'manna yfir þessum heimsóknum sönn og einlæg, og lýsti hún sér vel í gjöf starfsfólksins í fisk- verkunarstöðinni. Fréttamaðurinn innti þá Einar Gunnar og Inga að lok- Lœhnislaust á Höfn Læknislaust er nú á Höfn í Hornafirði. Læknir héraðsins fékk veitingu fyrir öðru læknis- héraði og er tekinn við starfi þar. Gerðar hafa verið ráðstaf- anir til þess að kandidat taki við læknisstörfum á Höfn, en hann er ókominn enn, og eru Homfirðingar því enn læknis- lausir. um eftir því hvemig hinu unga fólki úr austurálfu mundi hafa geðjazt dvölin á Islandi. Þeir svöruðu því til að allir hefðu verið sérstak- lega ánægðir og haft á orði ‘ að þeir hefðu ekki annarstað- ar á langri ferð sinni fyrirhitt meiri gestrisni né innilegri al- úð. Þeir dáðust mjög að fram- taki þessarar fámennu þjóðar og rómuðu mjög náttúru landsins, þó þeir sæju minna af henni en skyldi, vegna veðráttunnar. Þeir fara héðau með góðar minningar um land og þjóð; þeir viknuðu er þeir kvöddu. ---------------------------•« Bílstjórarnir sömdu við S.R. í í fyrrinótt. Enn verkfall hjá Vinnu- veitendafélagi Sigluf jarð- ar. A Siglufirði. Frá fréttaritara Þjóðviljans Togarinn Hafliði kom af veið- um í gærmorgun með rúmlega 200 tonn af karfa. Aflinn fer í hraðfrystingu. Seint á þriðjudagskvöld tók- ust samningar milli bílstjóranna og Síldarverksmiðja ríkisins, hófst því vinna hjá verksmiðj- unum í gærmorgun. Enn er ó- samið við Vinnuveitendafélag Siglufjarðar og er verkfall því enn hjá félagsmönnum þess. 1 fyrrakvöld var hér úrhellis- rigning, en í gær sólskin, heiðuir himinn og sunnangola. H.f. Eimskiptafélag íslands Breytingar á áætlun m.s, Gullfoss Vegna tafa af völdum bilunar, breytist áætlun skipsins næstu ferðir svo sem hér segir: 17. ferð: Frá Leith föstud. 9. sept. síðdegis. • Til Reykjavíkur mánud. 12. sept Frá Reykja miðvikud. 14. sept. kl. 12 á hádegi. Frá Leith laug-rd. 17. sept. Til Kaupmannahafnar mánud. 19. sept. árdegis. 18. ferð: Frá Kaupmannahöfn miðvikud. 21. sept. kl. 12 á hádegi. Frá Leith föstud. 23. sept. Til Reykjavíkur mánudaginn 26. sept. árdegis. Frá Reykjavík miðvikud. 28. sept. kl. 12 á hádegi. Frá Leith laugard. L okt. Til Kaupmannahafnar mánud. 3. okt. árdegis. • : ■ 19. ferð, (sem verður síðasta sumarferðin í stað þess E að vera fyrsta vetrarferðin): Frá Kaupmannahöfn laugard. 8. okt. kl. 12 á hádegi. (samkv. áætlun). Frá Leith mánud, 10. okt. [(í stað 11. okt.)i Til Reykjavíkur fimmtud. 13. okt. í stað 14. okt.) Frá Reykjavík laugard. 15. okt. kl. 12 á hádegi (í stað 5 18. okt.) ■ Frá Leith þriðjud. 18. okt. (í stað 21. okt.) Til Kaupmannahafnar fimmtud. 20. okt. árdegis [(i stað 23. okt.) Næsta ferð m.s. Gullfoss (20. ferð) verður síðan samkvæmt áætlun frá Kaupmannahöfn laugard. 29. okt. kl. 12 á há- degi og verður sú ferð þá fyrsta vetrarferð skipsins H.f. Eimskipafélag íslands j

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.