Þjóðviljinn - 09.10.1955, Síða 1
VILIINN
Iflakkunnnl
Sumiudagur 9. október 1955 — 20. árgangur — 228. tölublað
Deildarfundir verða annað-
kvöld kl. 8:30 á venjulegum
stöðum. Áríðandi að félagar
-fjölmenni á þessa fyrstu fundi
á haustinu. — Stjórnirnar
Ólöglegur gróði af dollarasölu Stef.
A.Pálssonar nam 1.250.000 króna
Fékk 228 jbús. dollara til kaupa á veiSarfœrum
frá USA en seldi þá innanlands á 22 kr. hvern
Dómsrannsókn í máli Stefáns A. Pálssonar heildsala?
hefur nú staðið yfir sleitnlaust síðan á mánudag og er
enn hvergi nærri lokið. Fyrir réttinum hefur Stefán játað
að hafa selt ólöglega hér innanlands 88 dollaraávísanir,
sem hann fékk til kaupa á netum og öðrum veiðarfær-
um í Bandaríkjunum á tímabilinu frá því seint í nóvem-
ber 1953 fram á mitt s.l. sumar. Ávísanir þessar voru að
upphæð samtals rúmlega 228 þús. dollarar eða um 3 millj.
721 þús. ísl. krónur miðað við núverandi gengi, en gróði
Stefáns af sölu þeirra mun hafa numið um einni millj.
250 þús. króna.
Guðmundur Ingvi Sigurðsson
fulltrúi sakadómara, hefir unn-
ið að rannsókn málsins og
skýrði hann blaðamönnum frá
gangi þess í gær.
228 þús dollarar
Kæra gjaldeyriseftirlits Lands
bankans til sakadómaraembætt-
isins varðand gjaldeyrissvik
Stefáns A. Pálssonar er dagsett
hinn 27. sept. s.l. en réttar-
rannsóknin hófst eins og áður
segir á mánudaginn var. Gjald-
eyriseftirlitið kærði Stefán fyr
ir að hafa eigi gert skil á
gjaJdeyrisyfirfærsIum samtals að
upphæð 228.031.50 dollarar. Alls
voru dollaraávísanirnar, sem
Útvegsbankinn gaf út, 88 tals-
ins, sú fyrsta dagsett 27. nóv-
ember 1953 en sú síðasta 12.
júlí s.l. Upphæð hverrar ávís-
unar var frá rúmum eitt þús.
dolurum í rúm þrjú þús., flestar
voru stílaðar á 2000 dollara.
Stefán bað um þennan gjald-
eyri og fékk á þeim forsendum
að hann væri að kaupa veiðar-
færi frá Bandaríkjunum.
1,25 milljón kr.
gróði
Samkvæmt upplýsingum
Guðmundar Ingva hefur Stef-
án nú viðurkennt fyrir saka-
dómi Reykjavíkur að hafa
selt allar fyrrgreindar ávisan-
ir innanlands og fengið 22
ferónur fyrir hvern doliar.
Skráð gengi Bandarikjadoll-
ars er nú 16,32 krónur, þann-
ig að hann hefur að greiddu
leyfisgjaldi o.þ.h. grætt um
5,50 krónur á hverjum dollar,
eða alls um 1 milljón og
250 þúsund krónur,
Stefáni og Grétari
ber ekki saman
Stefán hefur borið það fyrir
réttinum að hann hafi selt,
Grétari Emil Ingvasyni, bók-
ara hjá Áburðarverksmiðjunni
í kring um 220 þús. dóllara,
en f jórar ávísanir að upphæð;
um 7—8 þús. dollara segist'
hann hafa ráðstafað sjálfur á
annan hátt.
Grétar segist hinsvegar ekki
hafa fengið nema 40—50 þús.
dollara hjá Stefáni, en megnið
af þeirri upphæð hafi hann
síðan selt Kristjóni nokkrum
Ágústssyni heildsala hér í bæ.
Ber þeim Grétari og Kristjání
saman um að verðið hafi verið
23 íslenzkar krónur pr. dollar.
Seldi dollarana
áfram á 23—25
krónur
Kristján þessi hefur einnig
komið fyrir dóm en ekki viljað
kannast við að hafa keypt jafn-
mikið af dollurum og Grétar
vill vera láta. Hefur Kristjón
nefnt 11—16 þús. dollara en
en kveðst þó muna illa eftir
þessum viðskiptum. Hann seldi
síðan hinum og þessum mönn-
um dollarana á 23—25 krónur
stykkið og er þessi þáttur máls-
ins enn í frumrannsókn.
Framhald á 3. síðu.
Stjjórn Faures hefur
von um gálgafrest
Hann guggnaði á að biðja um traust,
vonar að kratar bjargi sér frá faili
Edgar Faure, forsætisráðheiTa Frakklands, guggnaði á
þvi að biðja þingið um traustsyfirlýsingu vegna stefnu
stjórnarinnar í Marokkó og gerir sér nokkrar vonir um að
sósíaldemókratar muni bjarga stjórn hans frá falli.
Ólafur og Stein-
grímur með Kópa-
Þegar umræðurnar um Mar-
okkó hófust á franska þinginu
á fimmtudagskvöldið lýsti
Faure yfir þvi að hann myndi
gera atkvæðagreiðsluna að
þeim loknum að fráfararatriði,
en í gær tók
hann aftur
kröfu sína
um trausts-
yfirlýsingu.
Taldi hann
sig hafa
nokkra von
til þess að fá
meirihluta í
atkvæða-
greiðslunni,
ef ekki væri um traustsyfirlýs-
ingu að ræða, þar sem sósíal-
Faure
demókratar myndu þá senni-
lega sitja hjá. 1 óstaðfestum
fréttum frá París í gær var
sagt að þingflokkur sósíaldemó-
krata hefði ákveðið að sitja
hjá.
Samt ekki viss um
meirihluta
Enda þótt sósíaldemókratar,
sem áreiðanlega hefðu greitt
atkvæði móti traustsyfirlýs-
ingu, sitji hjá, er ekki víst
að Faure fái meirihluta og mun
honum þá reynast erfitt að
sitja lengur. Umræðumar á
þinginu í gær vora mjög harð-
ar og voru nær allir ræðumenn
andvígir stefnu stjómarinnar.
Framhald á 12. síðu.
Eitt stjórnarfrumvarp sem
nú er lagt fyrir Alþingi ber
virðulegt naf n!: „Frumvarp til
laga um að kjörskrá sú er sasn-
in var í febrúar 1955 skuli gilda
við bæjarstjórnarkosninga-r í
Kópavogskaupstað 2. október
1955“.
Þetta er frumvarp til stað-
festingar á bráðabirgðalögum
þeirra Steingríms Steinþórsson-
ar og Ólafs Thórs um að önnur
kjörskrá skyldi gilda við bæjar-
stjómarkosninguna í Kópavogi
en gilt hefði samkvæmt gild-
andi kosningalögum.
Hins vegar mun höfundum
þeirra bráðabirgðalaga vera
það takmarkað ánægjuefni að
eiga eftir að velta þessu frum-
varpi sínu gegnum sex umræður
á Alþingi, eins og nú er kom-
ið.
Rhee méti frjáis-
um kosningum
Þing Suður-Kóreu samþykkti
í gær einróma ályktun þar sem
lýst er yfir að ekki komi til
mála að haldnar verði „frjáls-
ar kosningar undir alþjóðlegu
eftirliti" í íandinu, ef að því
kemur að Suður- og Norður-
Kórea sameinist. Það er álit
suðurkóreska þingsins að slík-
ar kosningar eigi aðeins að
fara fram í Norður-Kóreu.
Maður barinn til bana í fyrrinótt
ÁrásarmaSurlnn réSst á hann úti á götu
Sá hörmulegi atburður gerðist í fyrrinótt að maður
sem var á leið heiman að frá sér til heimilis foreldra
sinna var bai-inn svo að hann höfuðkúpubrotnaði. Hann
vai* fluttur í sjúki’ahús um nóttina og lézt þar í gær af
völdum áverkans.
Títinda flokksþing Sósialista-
flokksms hefsl U. §m,
Tíunda flokksþing Sósíalistaflokksins — sam-
einingarflokks alþýöu verður sett föstudaginn 28.
okt. í fundarsalnum aö Tjarnargötu 20.
Sósíalistafélög utan Reykjavíkur eru beöin að
tilkynna fulltrúaval sem fyrst.
Miðstjórn Sósíalistaflokksins —
sameiningarflokks alpý&u.
Þessi maður var Ingvi Hraun-
f jörð, átti hann heima í Heima-
hvammi í Blesugróf. Rannsókn-
arlögreglan var enn að rann-
saka málið í gærkvöldi og gat
ekki gefið skýrslu um málið, en
að því Þjóðviljinn bezt hefur
fregnað eru málavextir þessir.
Ingvi var, ásamt Pétri bróður
sinum á leið heiman að frá
sér til foreldra sinna er búa
í Sogamýri. Þeir bræður munu
hafa verið eitthvað hreyfir af
víni. Þegar þeir komu á móts
við Skeiðvallarveginn kom á
móti þeim bíll er var á leið til
Blesugrófar. Bíll þessi sneri
fljótlega við og kom á eftir
þeim bræðrum. Var Pétur þá
nokkuð á undan Ingva á vegin-
um og heyrði að bíllinn stopp-
aði. Leit hann þá við og sá
hann þá farþega úr bílnum
vera að berja Ingva. Sneri hann
þá bróður sínum til hjálpar, en
þá fór bílstjórinn út úr bílnum
og réðist á Pétur.
Hús er þarna skammt frá er
nefnist Vellir og þegar Pétur
kom Ingva til aðstoðar mun
hann hafa háldið heim að hús-
inu í því augnamiði að komast
í síma og hringja til lögregl-
unnar, en eftir að bílstjórinn,
var farinn að slást við Pétur
elti farþegi hans Ingva heiní
að húsinu.
Pétur og bílstjórinn munií
fljótlega hafa hætt að slást og
fór þá Pétur heim að húsinu.
Lá Ingvi þá upp við tröppuriÞ>
ar og blæddi úr nösum hans
og munni. Fór þá Pétur að tala,
við mann þann er barið hafði
Framhald á 12. síðu.
Ælþingi írar sett í gær
Alþingi kom saman í gær og er það 75. löggjafarþingið,
en 90. þing frá því Alþingi var endurreist.
Sæmundssonar. Risu þingmenn
úr sætum í virðingarskyni við
hina látnu.
Tilkynnt var að vegna fjar-
veru Eggerts Þorsteinssonar*
tæki Kristinn Gunnarsson sæti
á Alþingi.
Vegna þess að allmargt er
enn ókomið af þingmönnum til
þings frestaði aldursforseti
fundum til mánudags.
Að aflokinni guðsþjónustu
gengu alþingismenn í þingsal,
hlýddu setningarræðu forseta
íslands og hrópuðu ferfalt
húrra fyrir Islandi.
Aldursforseti, Jömndur Bryn-
jólfsson, stjómaði fundi, bauð
þingmenn velkomna til starfa
og minntist látins þingmamis,
Jóhanns G. Möllers, og látins
fyrrverandi ráðherra, Jóhanns