Þjóðviljinn - 19.10.1955, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 19.10.1955, Blaðsíða 6
fi) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 19. októtíer 1955 -----------------—-> luóaviuiNii m Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósialistaflokkurinn — L——----------------- ! Sök i þjóðfélagsins Fjórir piltar hafa orðið upp- vjsir að hrottalegri árás á kaup- mann hér í bænum til þess að komast yfir peninga, og var mildi að ekki skyldi mannlát hljótast af. Um þetta efni er að vonum mikið rætt og ritað, og það er ástæða til að spyrja hvað valdi slíkum atburðum. Piltarnir eru 18—19 ára að aldri, einmitt á því skeiði þegar lífið á að blasa við ungum mönnum og bjóða ótal verk- efni, þegar bjartsýni og starfs- gleði eiga að vera ríkastir eig- inleikar. En þessir ungu menn virðast ekki hafa talið sig eiga góðra kosta völ. Lögreglan skýrir svo frá að einn þeirra sé heimilislaus, eigi ekkert at- hvárf, sé útilegumaður í Reykjavík á miðri tuttugustu öld. Við vitum að þessi ungi pitur er ekkert einsdæmi, slíkt útilegufólk skiptir mörgum tugum; það á hvergi afdrep nema í tukthúsinu á Skóla- vörðustíg 9. En það þarf ekki mtkið luigarflug til að gera sér grein fvrir því livert hlióti að vera viðhorf þess til lífsins og umhverfis síns, og því þjóðfé- lagi sem veldur slíkri niðurlæg- ingu ferst hvorki að undrast né hneykslast á afleiðingum verka sinna. Það er skipulagður húsnæð- isskortur í Reykjavík. Hundr- uð æskumanna, sem þó eru svo lánsamir að eiga heimili, hafa þar ekkert afdrep eða svigrúm; þeir hrekjast út á götuna í öll- um frístundum sínum. Og hvað bý(5st þar? Kvikmyndahús sem ieggja á það mikið kapp að fjaíla um glæpi, sjoppur þar se^ii lifað er óheilbrigðu skúma- síptalifi, böll þar sem þeir þyk’ja fremstir sem röskastir eru' við að þamba brennivín at ’stút. Og alstaðar er otað að ungu fólki ódýru lesefni, þar sem svo er að sjá sem glæpir og afskræmdar kynhvatir séu meginatriði tilverunnar. Og hvað blasir svo við í framleiðslustörfum þeim sem eiga að taka við öllum þorra æskufólks. Verkafólk og sjó- menn verða i sífellu að heyja harða baráttu fyrir frumstæð- ustu lífsþörfum sínum og rétt- indum, og valdhafarnir leggja á það allt kapp að þau störf verði lítt eftirsóknarverð ungu fólki. Hins vegar lokka og laða þjónustustörf hjá innfluttum óþverralýð, og betl og sníkjur eru talin bjargráð þjóðarinnar. Allt atferli valdhafanna miðar að því að kæfa hjá ungu fólki trú á land og þjóð og mögu- Íeiká sína til að beita hæfileik- unúm til jákvæðra starfa í þágu framtíðarinnar. Um leið og við dæmum pilt- ana fyrir óhæfuverk þeirra skulum við minnast þess að sök þeirra er einnig sök þess þjóð- félags sem hefur fóstrað þá. Staðreyndir um mál Baldvins Jcnssonar - Hvað er rangt? Alþýðublaðið tekur í gær á sig þami vanda að verja Bald- vin Jónsson (og er þess þá að vænta að næst komi röðin að séra Ingimari Jónssyni). Vörnin er þó aðeins falin í upphrópunum: staðlausir staf ir, rangar upplýsingar og gróusaga! Þjóðvil jinn hefur þó ekkert gert annað en birt óhagganlegar staðreyndir um mál Baldvins Jónssonar: Það er staðreynd að Bald- vin Jónsson skrifaði á 100.000 kr. víxil fyrir Brand Bryjólfs- son og sá víxill var síðan veittur sem okurián með 5% mánaðarvöxtum — 60% árs- vöxtum. Það er staðreynd að því aðeins var \lxill þessi seljan- legur í Iðnaðarbankamun að nafn Baldvins Jónssonar bankaráðsmanns stóð á hon- um. Það er staðreynd að skráð- ur ,eigandi‘ okurskuldarinnar, Ragnar Ingólfsson, samdi um 40% eftirgjöf á henni. Það er staðreynd að Bald- vin Jónsson leysti ]>á til sín víxiiinn, gerðist opinber eig- andi skuldarinnar og heimtaði að hán yrði greidd 100%. Það er staðreynd að lög- reglurannsókn var hafin gegn Baldvini Jónssyni fyrir hlut- deild í okurlánastarfsemi. Það er staðreynd að eftir að lögreglurannsóknin var hafin \-ar samið um greiðslu á skuldinni — án dóms í Hæstarétti —í því formi að Ragnar Blöndal h.f. greiðir aðeins 60%. Það er staðreynd að um ieið og samningar þessir höfðu tekizt var dregin til baka krafan um rannsókn gegn Baldvin Jónssyni fyrir hlutdeild í okurstarfsemi. Enga þessa staðreynd reyn- ir Alþýðublaðið að hrekja, og hvað eru þá staðlausir stafir, rangar upplýsingar og gróu- saga? Þjóðviljinn hefur eftir- látið lesendum sínum að draga ályktanir af staðreynd- unum, enda ætti það að vera eins auðvelt og að léggja saman tvo og tvo. Elcki hef- ur Þjóðviljinn heldur haldið uppi árásum á Alþýðuflokk- inn af þessu tilefni; Alþýðu- blaðið virðist hins vegar ætla að gera þessa sérkennilegu fjármálamennsku Baldvins Jónssonar að flokkslegu bar- áttumáli og virðist telja að þannig skuli þeir breyta sem valdir eru í bankaráð, rikis- skattanefnd og önnur trúnað- arstörf í þágu almennings. Er það raunar I samræmi við annað. Nú eru skólarnir að hefjast í blásandi vindum haustsins. Ekki er mér kunnugt um hvort nokkur nýr skóli hefur verið stofnaður í haust, en á mánu- daginn byrjar Kvöldskóli al- þýðu annað starfsár sitt. Það hefur verið áuglýst, að þeir Jón Rafnsson og Eðvarð Sig- urðsson kenni þar sögu ís- lenzkrar verklýðshreyfingar á árunum 1920—1940; en skóla- nefndin stofnar til þeirrar námsgreinar af þeim skilningi að vinnandi fólki sé nauðsyn að þekkja verklýðsbaráttuna, á sama hátt og reikningskennari verður að kunna stærðfræði- reglur og tungumálakennari málfræði. — í>ú ætlar að fara að kenna verklýðssögu, segi ég svona við Jón Rafnsson er ég hitti hann í gær. — Já, við Eðvarð Sigurðsson höfum tekið að okkur að segja þátttakendum í Kvöldskóla al- þýðu eitthvað af sögu verk- lýðshreyfingarinnar, aðallega á árunum 1920—1940. Við höf- um nú ekki enn skipt efninu nákvæmlega milli okkar, en ég geri ráð fyrir því að ég ræði í upphafi þróunarsögu verklýðs- hreyfingarinnar almennt á þessu 'tímabili: innra ástand hennar og ytri viðhorf; og síð- an býst ég við að segja frá ýmsum athyglisverðum við- burðum í sögulegri röð — til4> að skýra mál mitt og ef það mætti verða öðrum til nokkurs lærdóms. Eðvarð mun á hinn bóginn einkum taka til með- ferðar samfylkingarbaráttuna í kaupgjalds- og atvinnumálum verkalýðsins, sérstaklega hér í Reykjavík. ÞáttUr okkar mun verða einu sinni- í viku, en það er samkomulagsatriði milli okk- ar Eðvarðs hvor okkar talar í hverri kennslustund. — Telur þú ekki heppilegt að Kvöldskóli alþýðu efni til fræðslu í þessari grein? — Vissulega. í afstöðunni til fortíðarinnar hafa menn horfið fyrir horn, ef svo má að orði komast; við ættum að láta okk- ur annt um að koma á lifandi tengslum milli fortíðar og framtíðar. þróunin hefur verið svo geisilega ör síðustu ára- tugina, að jafnvel við þessir gömlu, sem höfum upplifað hana, verðum að staldra við öðru hvoru til að átta okkur á því hvað raunverulega hefur gerzt — hvað þá heldur æsku- menn nýrrar kynslóðar sem ekki eiga þess kost að sjá þessa hluti nema með annarra aug- Gult félag í Vestmannaeyjum, „öfugt verkfall” á Akureyri Jón Rafnsson segir frá fyrirhuguðu nám- skeiði í Kvöldskóla alþýðu um sögu ís- lenzkrar verklýðshreyfingar 1920—1940 um: af bók og frásögn. Það liggur í augum uppi að æskan getur ekki axlað skylduarf sinn * ' : Jón Rafnsson við framhaldandi baráttu al- þýðustéttanna nema hún hafi innsýn í hið liðna og varðveiti tengslin við gamlan tíma. — Vildirðu nefna einhverja þeirra athyglisverðu viðburða sem þú kemur til með að segja frá í skólanum? — Eg mun t. d. .segja frá því er verklýðsfélög voru fyrst skipulega klofin hér á landi. Það voru atvinnurekendur sem beittu sér fyrir þeirri iðju, og er frægt „gula félagið" í Vest- mannaeyjum. Það var kallað svo eftir öðrum hliðstæðum fé- lögum úti í heimi, en þau létu mjög að sér kveða meðan verklýðshreyfingin var ekki bú- in að slíta barnsskónum. En nafnið mun víst vera tilkomið af því, að gult er upplitað rautt. Þessi gulu félög þótt- ust vera verklýðssinnuð, en verkamönnum þótti byltingar- stefna þeirra heldur upplituð. Svo mun ég segja frá saltslagn- um í Vestmannaeyjum, þar sem verkamenn þurftu að berj- ast á tvennum vígstöðvum: annarsvegar gegn atvinnurek- endum og kauplækkunaráætl- unum þeirra, hinsvegar gegn klofningshættunni innan frá. Þetta var um páska 1930, og þá kváðu verkamenn öðru sinni niður klofningsdrauginn og fyr- irhugað gult félag. Einnig verð- ur sagt frá Borðeyrardeilunni, Nóvudeilunni á Akureyri, og frá fyrsta „öfuga verkfallinu“ sem ég þekki til. Það var háð á Akureyri sumarið 1934. — Hvað er öfugt verkfall? — Öfugt verkfall er það þeg- ar verkamenn vinna í banni at- vinnurekenda og annarra yfir- valda. Nú voru nokkrir akur- eyrskir verkamenn að vinna í svonefndum spítalagrunni er bæjarstjórnin samþykkti. „í sparnaðarskyni“, að þessari vinnu skyldi hætt. Þá voru krepputímar og atvinnuleysi, og neituðu verkamenn að hætta þessari vinnu, enda höfðu þeir sem þarna unnu ekki í önnur hús að venda um atvinnu. Loks mun ég lýsa einingarbaráttu róttækra verkamanna’á þessum símum og sókn einingaraflanna til sigurs í verklýðshreyfing- unni. Og má segja að við Ev- varð mætumst í þeim punkti. Jón Rafnsson er á brott, en það er grunur minn að þeir sem sækja tíma þeirra í Kvöld- skóla alþýðu telji sig ekki svikna af fræðslu þeirra. Þeir munu blása lifanda lífi í bar- áttusögu íslenzkrar alþýðu á stórbrotnum tíma. B.B. 14. sambandsþing Æskuiýðslylkingarinnar: Launakjör iðnnema verði bæti Iðnskólanám fari fram að degi fil alls sfaSar á landinu A 14. þingi Æskulýðsfyík- ingarinnar var gerð eftir- iarandi áiyktun nm iðn- nemamál: 14. þing Æ.F. vítir harðlega, hve illa er búið að iðnaðar- æsku landsins. Krefst þingið þess, að nú þegar verði orðið við réttmætum kröfum iðnnema um, að launkjör þeirra og menntunarskilyrði verði bætt til stórra muna. Þess eru of mörg dæmi, að efnilegir, en efnalitlir iðnnemar hrökklist frá iðnnámi vegna hinna hrak- legu launakjara, meðan meist- arar og iðnfyrirtæki raka sam- an gróða af vinnu þeirra. Þrátt fyrri það að með nýju Iðnskólalöggjöfinni hafi að nokkru leyti verið ráðin bót á því ófremdarástandi, sem rikt hefur í þessum málum, telur þingið, að viðunandi lausn fá- ist eigi fyrr en iðnfræðslan fer öll fram í verknámsskólum. 14. þing Æ.F. vítir Iðn- fræðsluráð harðlega fyrir að vanrækja gersamlega þá skyldu sína, sem því er lögð á herð- ar, að hafa eftirlit með fram- kvæmd verklegrar kennslu iðn-' nema. ^ Meðan verklegt iðnnám fer enn fram hjá meisturum, heitir Æ.F. iðnnemum fullum stuðn- ingi í áframhaldandi baráttu 'Jj þeirra fyrir eftirtöldum kröf- um: 1. Lágmarkskaup iðnnemal verði ákveðinn hundraðs-1 hluti af grunnkaupi sveina,’ sem skiptist þannig: 1. námsár 40% 2. — 50% 3. — 60% 4. — 70% 2. Iðnnemum verði eigi gert að greiða skatta og útsvör. 3. Að iðnskólanám fari und- antekningalaust fram að degi til alls staðar á land- inu. 4. Að öll ákvæði Iðnskóla- laganna komi nú þegar til framkvæmda. Sérstaklega vill þingið vekja athygli á þeim kafla laganna, sem tekur yfir það, að iðnskól- ar geti útskrifað iðnsveina, er einungis stunda nám við skólana. Krefst þingið þess, að sú deild skól- anna taki nú þegar. til starfa.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.