Þjóðviljinn - 19.10.1955, Side 10
Jí) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 19. október 1955
Rceða Lúðvíks Jósepssonar
Framhald af 7. síðu.
styrkja hefur þurft togara-
flotann með.
En auk þess hefur svo ver-
ið sívaxandi gróði allskonar
milliliða.
Þannig hefur fjármála-
stefna ríkisstjórnarinnar leitt
til þess ófremdarástands, að
aðalatvinnuvegir landsmanna
eru reknir sem styrkþegar.
Hún hefur leitt til versnandi
kjara vinnandi fólks, og til
stórfelldra framleiðslustöðv-
ana.
Hún hefur jafnframt ýtt
undir brask og milliliðaokur
og hjálpað nokkrum auðfé-
lögum til þess að raka að
sér stórgróða á kostnað at-
vinnuveganna.
^ Nýjar álögur í
vændum
Fjárlagafrumvarpið fyrir
komandi ár ber það með sér
að sama stefnan er fyrirhug-
uð í öllum meginatriðum.
Rökrétt framhald þessarar
stefnu mun koma fram í því,
að á þessu þingi verði enn
ákveðnir nýir tollar og nýjar
skattahækkanir á almenning í
einu eða öðru formi.
Telja má alveg víst, að í
vetur verði lagður á.. nýr toll-
ur til þess að standa undir
verðuppbótum á útfluttum
landbúnaðarvörum.
Nýjar álögur munu einnig
verða samþykktar til þess að
forða stöðvun togaranna, og
bátagjaldeyrisskatturinn verð-
ur hækkaður til stuðnings
bátaflotanum.
í fullu samræmi við þessa
stefnu er svo sú staðreynd
að ríkisstjórnin hefur látið
semja nýtt írumvarp til
breytinga á skatta- og út-
svarslöggjöfinni.
Þar er gert ráð fyrir að
leggja algjörlega niður öll
veltu-útsvör fyrirtækja og
gera raunverulega allan rekst-
ur skattfrjálsan.
1 stað þessa er lagt til að
hækka söluskattinn um 25%
og láta þá hækkun renna til
bæjar- og sveitarfélaga í stað
veltu-útsvaranna.
Með þessu á að gera öll út-
svör og allan tekjuskatt að
hreinum persónugjöldum.
Allur rekstur og þá fyrst
og fremst verzlunarrekstur á
að losna að fullu við útsvör
og tekjuskatt.
Þessi ráðstöfun miðar að
því að koma gjöldunum yfir
á herðar einstaklinganna, en
losa verzlun, iðnað og annan
rékstur við beina skattlagn-
ingu. *
Sú hugsun, sem að baki
þessu stendur, er í fyllsta
samræmi við grundvallarskoð-
un þá, sem stendur á bak við
fjármálastefnu ríkisstjórnar-
innar, þá skoðun, að kaup-
máttur almennings sé of mik-
ill og því sé rétt að draga
úr honum með hærri skatt-
lagningu, hærra verðlagi og
auknum gróða félaga og fyr-
irtækja.
Þetta er jafnvægiskenning
ríkisstjórnarinnar og sérfræð-
inga hennar. Sú kenning, að
þá fyrst megi vænta heil-
brigðs f jármálaástands að
takast megi að koma á því
jafnvægi, að kaup vinnandi
fólks minnki en gróði ríkis,
banka og milliliða vaxi að
sama skapi.
^ Gengislækkun?
Það er út frá þessari skoð-
«»■»■■■■■■■■■•••■■•»■■»•■■»■■■■■■■■■■■■•■■»•■■■■■■■■■■■■■■*■■■■■■■■■■■■■■■■■■*•■■•■■■■■■■■■"
Stórt athafnasvæði við
Grindavíkurhöfn
Til sölu eru hús og mannvirki að Hópi III
í Grindavík ásamt tilheyrandi erfðafestulandi,
samtals 9.21 ha., þar af er tún 1.41 ha., en annað
land 7.80 ha.
Eign þessi liggur á bezta stað við Hópið, þar
sem nú er hin nýja höfn Grindavíkur. Eignin er
mjög vel fallin til reksturs skipasmíðastöðvar,
fiskverkunarstöðva eða fyrir hverskonar verk-
smiðjur og verkstæði, og jafnframt sem bygginga-
lóðir.
Upplýsingar gefur á staðnum Jónas Gíslason,
Hópi III, og ennfremur undirritaður. Kauptilboð
sendist undirrituðum fyrir 1. nóv. n.k., og er á-
skilinn réttur til þess aö taka hverju þeirra sem
er eða hafna þeim öllum.
ÞORVALDUB ÞÖRARINSSON.
lögfrœðingur, Þórsgötu 1, Reykjavík
Sími 6345 og 5391.
«■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■*■■■■■■■■■;
Röskir sendisveinar óskast
Fyrir hádegi (vinnutími kl. 9—12)
m
:: \ 1.. .
Eftir hádegi (vinnutími kl. 1—6)
MÖÐVILJINN, Skólavörðustíg 19, sími 7500
un, að ríkisstjómin og sér-
fræðingar hennar eru alltaf
að ræða um möguleika á
nýrri gengislækkun.
Sérfræðingar stjórnarinnar
telja sjálfsagt að samþykkja
nýja gengislækkun með það
sem aðalmarkmið að kaupið
verði lækkað. Ríkisstjórnina
vántar ekki viljann, en hún
hefur ekki þorað vegna al-
mennrar andúðar á gengis-
breytingu. En enginn launþegi
þarf að efast um, að núver-
andi ríkisstjórn situr um færi
til gengislækkunar og hún
mun grípa til þess hvenær
sem tækifæri býðst, en senni-
lega leggur hún þó ekki í
slíkt fyrr en að afstöðnum
kosningum til Alþingis. (Frh)
55% DAGRON - 45% ULL
Höfum aftur fengið karlmannaföt úr þessum efnum, sem mjög hafa
rutt sér til rúms.
Falleg
Létt
Halda vel brotum
Fást aðeins
HJÁ
OKKUR
Andersen & Lauth bi.
Vesturgötu 17 — Laugavegi 37
«■■■■ .■■»■:*■■•>•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■:
■ ■■■«■■■«■■■■!(
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■u■■■■■■»■■■■a■■so:
Tékkneskt byggingarefni úr
asbest-sementi
Varanlegt
Öruggt gegn eldi
Veggplötur, þilplötur, bárupiötur, þakhellur,
þrýstivatnspípur, fráreiutslispípur og tengistykki
EINKAUMBOB:
MARS TRADING COMPANY
Klapparstíg 20 — Sími 7373
CZECHOSLOVAK CERAMICS. PRA6. TEKKÖSLðVAKtU
ilHHIMUI
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■!