Þjóðviljinn - 05.11.1955, Qupperneq 9
Laugardagur 5. nóvember 1955 — 1. árgangnr — 35. tölublað
Orðsendingar
Botnamir. Fyrstu botn-
arnir við ljóðlínurnar sem
Ö. K. S. sendi okkur,
hafa borizt. Það var svo
sem auðvitað að við
fengjum rímorðið kyssa
á .móti missa, enda var
það svo í tveimur fyrstu
bptnunum. En þeir bár-
ust ekki frá neinum á
stuttbxum eða stuttpilsi,
heldur frá kunnum mál-
arameistara í Reykjavík.
Af þessu má ráða, að
Óskastundin litla er farin
að teygja sig svolítið upp
til þeirra fullorðnu, og
mætti það verða báðum
til nokkurrar skemmtun-
ar.
Frá £>órhildi, 11 ára:
„Ég er alls ekki sammála
Tótu 13 ára um danslög-
in, því að mér finnst
mjög gaman að dans- og
dægurlögum, og ætla því
að biðja Í3Í^,"k&ra Óská-i1
stund, um að birta fyrir
mig í blaðinu textana við
3 lög“ (og svo tilgreinir
Þórhildur þá og heldur
Eldspýtnaþraut
Hér eru 24 eldspýtur.
Tak burtu átta af þess-
um spýtum svo að tveir
ferhyrningar verði eftir.
svo áfram). „Mér þykir
voða gaman að skálda-
þættinum og ætla því að
biðja þig að hafa ein-
hverntíma í honum þá
Jónas Hallghímsson og
Kristján Jónsson.“ Við
munum eftir þér, Þór-
hildur.
Hafmeyjar. Tvær syst-
ur vestur á Mýrum, sem
nefna sig „hafmeyjar“ til-
nefna 7 dægurlagatexta,
sem þær óska að fá birta,
Þær segjast eiga Óska-
stundina frá byrjun og
geyma hana vel. þ>að
verður áreiðanlega mun-
að eftir þessum litlu haf-
Framhald á 2. síðu
Pósthólfið
Mig langar mikið til að
skrifast á við stelpú eða
strák 10 eða 11 ára. Nú
langar mig til að vita,
hvort þú getur ekki
hjálpað mér, kæra Óska-
sfund.
Vildís Hallsdóttir
Langholtsvegi 39
Reykjavík
Óskastundin hefur ekki
fengið miklar fregnir af
því, hvort þeir sem hafa
beðið hana að koma sér
í bréfasambönd hafa feng-
ið þau, en þykir það þó
sennilegt. Gaman væri að
fá fregnir af þessu. En
líklegt er, að þeir sem
skrifuðu Vildísi fengju
Framhald á 2. síðu
Langt, langt i burtu
Ljóð eftir Jón frá Ljárskógum við
lag eftir Foster
Langt, langt í burt til hárra heiða
liverfur mín þrá.
Langt, langt í fjarska faðminn breiða
fjöllin mín hvít og blá.
Vorsins ljóð í hjarta hljómar:
„Hugur einn það veit“.
Heim, lieim í sál mér endurómar.
Eilíf er þrá mín og heit.
Langt, langt í burt til heimaliaga
liugurinn flýr.
Enn man ég liðna dýrðardaga,
dásamleg aevintýr,
sólskin yfir Suðurfjöllum,
söng og vængjaklið,
sól, sól og vor í hugans höllum,
liamingja, gleði og frið.
L.
Ritstj.: Gunnar M. Magnúss. Útgefandi: Þjóðviljinn.
Mest gaman að koma aftur
faeim til mömmu
í>að er stundum alveg'
sérstaklega gaman að fá
bréf sem er blýantsteikn-
að með stóru upphafs-
stafaletri með misháum
stöfum og misfeitum, en
þó vönduðum og ágæt-
lega læsilegum. Óska-
stundin fékk svona bréf
fyrir nokkrum dögum, og
gladdist mjög af þeirri al-
úð, sem litli bréfritarinn
lagði í að segj.a okkur frá
hinu mikla ævintýri sínu,
þegar hann fór í kringum
ísland í fyrsta sinn. Hann
var nýlega búinn að eiga
fimmta afmælisdaginn
sinn, þegar hann ritaði
bréfið. Það er skrifað á
ge-ysistóra örk óstrikaða,
stærsta bréf sem litla
blaðinu okkar hefur bor-
izt. Og samanlögð lengd
allra línanna v.ar um 250
sm. eða 2V> metri. Bréf-
inu fylgdi annað blað
með mörgum myindum
af skipum með rjúkandi
strompum, svífandi fugl-
um, bílum að draga bil-
aða bíla, svo að eitthvað
sé nefnt. Óskastundin
þakkar litla ferðalangn-
um og hinum unga bréf-
ritara kærlega fyrir send-'
inguna. Og nú skulu les-
endur fá að lesa bréfið
orðrétt:
,,'5g heiti Jóhannes.
Ég varð 5 ára í sumar.
Þá leyfði pabbi mér í
hringferð. Ég sé Vest-
mannaeyjar, þar kom
brimalda á skipið okkar.
Á Dalatanga er stór þoku-
lúður, hann baular eins
og kálfur. Á Seyðisfirði
býr afi minn, þangað var
gaman að koma, Ég köm
í land í Húsavík, á
Langanesi og Lundey.
Þar var lundakarl að
veiða lunda. Ég kom á
marga fleiri staði, en.
mest gaman var að koma •
aftur heim til mömmu.
Skipið hans pabba heit*
ir Hermóður".
Jóhannes litli á heima
í Reykjavík. Á mynda-
blaðið setti hann fúllt
nafn sitt Jóhannes Ólafs-
son og heimilisfang.
í skólaleik
— Mamma, við erum
í skólaleik,. sagði Sigga
litla.
— Þá vona ég, að þú
kunnir að hegða ’ þér
særqilega, svaraði Ajtaóðisj
hennar.
— Ég ' þarf ekkert að
„hegða mér“ mamma, ég
er kennarinn!
Kt*v *.£ nJ' *>
Einn báturinn sem ég sá.
A ÍÞRÚTTIR
RITSTJÓRJ FRtMANN HELGASON
Vetrarolympíuleikirnir í Cortina
Rússar keppa þar í fyrsta
skipti í Alpagreinum og
listhlaupi á skautum
Sovézkir skíðamenn taka í
fyrsta sinn þátt i keppni í Alpa-
greinum og listhlaupi á skautum
á OL í vetur. Að þessu sinni
kepþa þeir í öllum greinum
nokkuð óvænt þar sem þessar
greinar eru nýjar hjá þeim og
varla talið líklegt að þeir hafi
náð þeim árangri sem þeir
sjálfir telji ,að hægt sé að sýna.
„Við gerum ekki ráð fyrir að
sigra gamlar skíðaþjóðir eins og
Frakkland, Austurríki, Ítalíu og
Sviss, en ég get fullvissað ykkur
um að við höfum mjög efnilega
nienn í bruni og stórsvigi, sagði
varaforseti íþróttaráðuneytis
Sovétríkjanna. Michael Pesliak.
Hann sagði ennfremur að þeir
hefðu haft menn við leikina í
Osló 1952 og síðan hafi átt sér
stað miklar breytingar í skíða-
íþróttum í Sovétríkjunum. Það
hefur verið unnið úr þeirri
reynslu sem þar fékkst og skipu-
lögð þjálfun með vaxandi ár-
angri. Sveit sú sem fara á til
Cortina verður í sérstakri
þriggja vikna þjálfun á stað sem
hefur svipað loftslag og er í
Cortina.
Um göngumennina sem þegar
hafa vakið á sér athygli í al-
þjóðakeppni sagði Pesliak að
þeir væru betri nú en nokkru
sinni fyrr, og að þeir myndu
veita Norðurlandabúum harða
keppni.
Skautamennimir hafa líka æft
Dýr veð-
hlaupahesfur
Því hefur verið við brugið að
Aga Khan hafi átt og eigi góða
veðhlaupahesta.
Ef dæma skal eftir kaupverði
á hesti sem hann seldi nýlega
félagi einu í Bandaríkjunum, þá
tekur það af öll tvímæli, því
klárinn var seldur á rúmar 14
milljónir ísl. króna. Hesturinn
heitir Tulyar og hefur unnið
mörg stórhlaup víðsvegar um
heim.
Laugardagur 5. nóvember 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (9
mjög vel, og samvizkusamlega,
og þar eru líka framfarir. En
Pesliak sagði að þeir myndu
ekki keppa í Alma Ata fyrir
leikina.
Áhugi á listhlaupi á skautum
hefur aukizt mjög í Sovétríkjun-
um á síðustu árum. Á mynðinni
sjást tvær ungar telpur sýna
listir sínar á skautamóti i
Moskva.
Skautasamband Hollands hef-
ur ákveðið að senda 17 menn til
æfinga í Noregi en 6 þeirra*.eiga
svo að veljast úr og fara til
Cortina. Þeir æfa á Hamri og
síðan í Davos í Sviss nokkra
stund áður en leikirnir byrja.
Listdansskóli
Innriiun fer fram sem hér segir, en kennsla get-
ur ekki hafizt fyrr en síðar og verður þá auglýst.
Þriðjudag S. nóvember kl. 4 síðdegis fyrir nem-
endur sem voru síðastliðið ár í A — B og C flokk-
um, alla sem þátt tóku í sýningum á Dimmalimm
og ennfremur alla sem hafa verið í Listdansskóla
Þj óðleikhússins þrjá vetur eða lengur og ætla að
vera í skólanum í vetur.
Miðvikudag 9. nóvember kl. 4 síödegis fyrir alla
aðra nemendur sem hafa verið í Listdansskóla
Þjóðleikhússins og ætla að vera í skólanum 1 vetur.
Fimmtudag 10. nóvember kl. 4 síðdegis fyrir nýja
nemendur sem óska að taka þátt í kennslu í vetur,
og hafi þeir meö sér leikfimiskó.
Börnin hafi Ýheö sér stundatöflur sínar, þannig
að þau viti á hvaða tíma þau geta veriö í skólan-
um, þar sem reynt verður aö skipa í flokka um leið
og innritun fer fram.
Innritun fer ekki fram á öðrum tíma en að ofan
greinir og ekki í síma.
Inngangur um austurdyr uppí æfingasal Þjóð-
leikhússins.
Lágmarksaldur er 7 ára. — Kennslugjald er kr.
100.00 á mánuði og greiðist fyrirfram.
Kennarar veröa Lísa og Erik Bidsted ballett-
meistari. Kennslan stendur væntanlega yfir til
apríl-loka.
Leikhúsið getur ekki skuldbundið sig til að taka
alla þá nemendur sem kunna aö gefa sig fram.
Þjóðeikhúsið
5 i
■
8 :
S 1