Þjóðviljinn - 18.12.1955, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 18.12.1955, Blaðsíða 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 18. desember 1955 Læknishendur safn frásagna af mestu skurðaðgerðum, sem framkvæmdar hafa verið af fremstu skurðlæknum heimsins, í þýðingu Björg- úlfs Ólafssonar læknis. Þessi bók leiðir lesandann inn í handlækningadeild sjúkra- hússins. bak við vandlega lokaðar hljóðþéttar dyr skurðstof- unnar, þar sem menn og konur eiga í ákafri baráttu við að hrífa eina og eina fóm úr greipum dauðans, útbúin með ný- tízku áhöldum, sem læknisfræðin, vísindin og iðnfræðin hafa lagt þeim í hendur. Þannig berjast þau um líf sjúklinganna og ótrauð stjóma þau, án þess að hugsa um laun, herförinni, sem aldrei er lokið, gegn veikindum og dauða. Þýzkir bókmenntafræðingar segja að þessi bók sé hin fyrsta, sem út liafi koinið, með svona, ná- kvæmum frásögnum af hinum frábæru uppskurðum, þar sem þessir snillingar eru sigurvegarar í kapphlaupinu við dauðann. - SJÖÁR I ÞjONUSTU FRIÐARINS, F rumskóga-Rútsí, ein fegursta unglingasaga heimsbókmenntanna, eftir Carlota Carvalló de Nunez Menntamálaráðuneytið í Perú verðlaunaði bókina, sem beztu barna- og unglingabók, sem komið hefði út í landinu, og mælti jafnframt með því að allir barna- og unglingaskólar landsins kynntu nemendum sínum þessa bók. Kjarni bókarinnar er frábmgðinn öðmm unglingabókum, sem út hafa komið hér á landi. Hún er fögur, göfgandi, og hefur þroskandi uppeldisgildi. Hún er fögur bók, sem kennir ung- lingunum að leita hins fagra og góða, og sýnir veglyndi, fórnfýsi og hjálpsemi, hvar sem er og hvenær sem er. Hún er spennandi bók, full af lífsþrótti og æskufjöri. Þetta er fyrsta unglingabókin, sem þýdd hefur verið úr spönsku, beint á íslenzka tungu, og er þýðingin gerð á vandaðra og kjarnmeira mál, en gerst mun hafa áður með barna- og ung- lingabækur. Frumskóga-Hutsí er bókin, sem allir foreldrar velja barninu sínu í jólagjöf. • eítir kaptein J. Y. Cousteau, höhrnd og brautryðjanda köíunaraðferðarmnar með vafnslunganu * Bókin segir frá reynslu og ævintýrum hinna fyrstu ,,froskmanna," er hættu sér niður í undirdjúpin með vatnslungað á bakinu og svömluðu fríir og frjálsir, eins og fiskarnir> óháðir öllu sambandi við yfirborðið, um ókunna heima, könnuðu ný og áður óþekkt svæði, sem að sumu leyti gjörbreyttu hugmyndum okkar jarðarbúa um lifnaðarhætti sævarbúa.* Frásögn höfundar er ævintýraleg og þó raunsæ í senn, og honum hefur tekizt að gæða hana slíku seiðmagni, að les- andinn leggur ógjarnan frá sér bókina á náttborðið, fyrr en síðustu blaðsíð- unni hefur verið flett. enduxminningar Trygve Lie, fyrrver- andi aðalritara sam- einuðu þjóðanna, eins frægasfa núlifandi manns heimsins. Bókiim er kafli úr lifandi ver- aldarsögu, sem hér birtist í skýrum og einföldum dráttum, frásögn eins þeirra manna, sem móta hana öðrum fremur, rit- uð á persónulegan, lífrænan og hrífandi hátt. 1 bók sinni dregur Lie meðal annars upp skýrar myndir af örlagaríkum atburðum, sem hann er sjálfur þátttakandi í eða áhorfandi að. Segir hann þar frá ýmsu, sem aldrei hefur verið skýrt frá oninberlega áð- ur, og vakið hefur gífurlega mikla athygli um allan heim. Lie er afburðasnjall minn- ingaritari. Frásagnir hans og lýsingar eru fjörlegar og stælt- ar, þrungnar spennu, mannleg- ar og lifandi. Víða átakanlegar og æsandi, en spaug og fyndni vantar heldur ekki. Bókin er eigin minningar og reynsla manns, sem býr yfir ó- venju miklu efni, sett fram á óvenju hrífandi og skemmtileg- an hátt. Hún er dýrmæt bók sem m.a. er og verður eitt hinna þýðingarmiklu heimildarrita um hluta af veraldarsögunni. Sjö ár í þjónustu friðarins kom fyrst út samtímis í Noregi og Bandaríkjunum á síðastliðnu hausti, en hefur nú komið út í 14 löndum. Uún hefur verið met- sölubók heimsins á síðastliðnu ári. Hrímfells-bók er valin bók BÖKAÚTGÁFAN „HRÍMFELL"

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.