Þjóðviljinn - 18.12.1955, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 18.12.1955, Blaðsíða 15
Sunnudagur 18. desember 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (15 Hans Kirki Klitgaard og Synlr 70. dagur vei'ksmiðjum og skrifstofum til þess að hreinsa rústimar, ungir menn sem varla er sprottin grön og gamlar konur sem ættu að sitja í stofuhomi og prjóna sokka. En þetta fóHí er að byggja upp sína eigin borg, sitt eigið þjóð- félag. Því að það er allm' leyndardómurinn, Gregers, aö þrátt fyrir alla fátæktina og eyðilegginguna þá er að skapast hérna nýtt líf. Gömlu konurnar eiga ef til vill ekki eftir aö lifa það, en þær hugsa um bömin sín og leggja fram síðustu krafta sína til að vera rneð í sköpun hins nýja þjóðfélags. Ég veit ekki hvort maður getur risið upp frá dlauðum, en þetta er borg, land og þjóö sem er aö snúa aftur til lífsins. Hiö liðna er gieymt, myrkrið er að baki og fram- undan er birta. Þetta veröur góö borg og gott land og það er fólkið sjálft sem byggir það upp. Og þú skalt ekki trúa því sem þú lest í dönsku blöðunum um okkur hérna. Við lifum ekki við neina kúgun, það eram við sjálf sem ráðum, en hér hefur veriö gei't hi'eint, nýju iofti veitt inn og það er gott loft. Þeir hafa tekið land- spildumar frá austui'þýzku júnkurunum og aflrent það leiguliöunum, þeir hafa gert upp reikningana víð nas- istana, og vera má að hér séu ekki bananar á borðum, en hér er atvinna og brauð handa öllum. Eg er farin að vinna í vei'ksmiðju sem framleiðir raf- magnsáhöld, því að ég vil vinna fyrir mér, einkxxm í landi þar sem allir vinna eftir beztu getu. Og ég er fjarska, fjarska hamingjusöm, þegar ég kem á kvöldin heim til mannsins míns, því aö það er hann núna. Og ég hef aldrei vitaö fyrr hvaö þaö er að eiga eiginmann, mann sem maöur tilheyi’ir af lífi og sál. - Eg er mjög hamingjusöm og mjög vinnulúin, góöi Gregers, og ham- ingjan gefi að þú eigir eftir aö njóta slíks samræmis í þínu lífi. Þú hefur bara þekkt mig sem borgarakerlingu, en nú tek ég þátt í aö byggja upp nýtt þjóðfélag. Og mér verður hugsað til foreldra minna, bakara- hjónaima á Brönshöj. Hvað þau strituðu mikið og hvaö þau fengu lítið í aðra hönd. Á fætur fyrh* allar aldir og seint í í'úmið og þrátt fyrir það sífelldar áhyggjur yfir reikningum og víxlum. Og fögnuður þeii'ra, þegar ég giftist syna íika mannsins — ég er viss um að þau^ þökkuðu guði, og ef til vill gerði ég það líka, því aö ég hafði smitazt af lífsótta þein'a. Því að við vorum ekki annað en fátæk bakamfjölskylda, sem vissum elckert hvað moi'gundagurinn bar í skauti sér, nema þaö að höi'ðu vínai’brauðin urðum við að borða. sjálf. Og þú getur i'eitt þig á að ég boi'öaöi mikiö af höi'öum vínar- bmuö'um. Það er eins og þetta sé kveðjubréf mitt til ykkar í Dan- mörk. Þið hafið verið mér góð, en einlægnin var ekki nóg. Eg las einu sinni svohljóðandi orö eftir skáld: Gei'ðu alvöra úr mér, guð. Og á einhvem hátt hefur guð gert alvöru úr mér, þótt ég trúi alls ekki á hann. Ef þú hittir Jóhamres, fyrri mann minn, skaltu ekk- ert minnast á að þú hafir frétt af mér, því að hann skilur ekki neitt. Og ef þú hittir Kristján, drenginn minn, sem ég skil ekki og ekki skilur mig, skaltu bai'a óska honum alls góðs. Og viö sjálfan þig segi ég þaö eitt, aö þú skalt halda áfram á þinni erfiðu bi'aut. Eg veit að þú ert kommúnisti. Eg þori ekki aö kalla mig það. En ég á samleið meö manninum sem ég elska í öllu sem Bálför föður okkar og tengdaföður BJÖRNS MAGNIJSSONAR, sem andaðist á Elliheimilinu Grund, fer fram frá Poss- vogskirkju þriðjudaginn 20. desember kl. 1.30. Athöfninni verður útvarpað. Þeim, sem vildu minnast hins látna, er vinsamlegast bent á líknarstofnanir. Börn og tengdabörn. Broslegar tilraunir Olafs Thors Framhald af 3. síðu. þingi væri frestað vegna þess, að stjórnin vissi enn ekki nein ráð til að leysa mál útvegsins. LÉT SAMÞYKKJA TRYGG- INGARVÍXLA Hann fullyrti, að Lúövák hefði barið fram stöðvun tog- aranna, en heimtað tii baka tryggingarvíxil sinn, ef það yrði ekki. Lúðvík upplýsti þá, að fyrir meir en mánuði hefði stjóm L.Í.Ú. samþykkt stöðv- un um áramót og togaraeig- endur hefðu samþykkt þetta eftir uppástungu bróður og umboðsmanns Ólafs Thors. Og svo harðvítugir hefðu stjórn- endtir þessara samtaka verið í þessu, að þeir hefðu látið alla útgerðarmenn samþykkja sýn- ingarvíxla til tryggingar því, að þeir skærust ekki úr leik. Allt þetta liefði Ólafur vitað. Varð Ólafur þá að hverfa frá þessu, en benti á Lúðvík og sagði: Þarna er sökudólgurinn. Hann hefur ekki skilað reikningum yf- irstandandi árs fyrir hraðfrysti- húsið á Norðfirði. Stjórnin getur ekkert gert á meðan hún fær ekki þá reikninga. Lúðvík benti honum þá á, að reikningar yfirstandandi árs myndi ekki hjá neinu hraðfrysti- húsi né útgerðarfélagi verða til- búnir fyrr en langt væri liðið á vertíð og áreiðanlega yrði eitt- hvað að vera búið að gera fyrr. Þá sagðist Ólafur eiga við reikn- inga ársins 1954, varð siðan að játa að þeir væru komnir. Áður hafði hann þó sagt, að á þess árs reikningum væri ekki byggjandi. Það upplýstist einnig, að réikn- ingar hraðfrystihúsanna eins og annarra fyrirtækja hafa legið meirihluta ársins hjá ríkisskatta- nefnd í næsta húsi við stjórnar- ráðið. Þetta eru nokkur dæmi um það hvernig Ólafur Thors hraktist frá einni fullyrðingu til annarrar í tilraunum sínum til að kenna öðr- um um ráðaleysi og slóðahátt stjórnarinnar. Höskulduropnar sýningu í Hvera- gerði Frá fréttarifcara Þjóðviljans. Höskuldur Björnsson listmál- ari hefur opnað málverkasýn- ingu í vinnustofu sinni hér. Sýnir hann þar olíumálverk, vatnslitamyndir, teikningar og „interíur“. Sýningin verður op- in fram að jólum og eru mynd- irnar til sölu. „LitBu |®l" í neðrideild ðlafus TIioes leikur íólasveift Þegar Ólafur Thors fann, að hann var kominn í rökþrot og orðinn margsaga í umræðunum í neðrideild um þdngfrestunina og mál fiskiflotans, greip hann til þess ráðs, að slá öllu upp í leikaraskap. Hefur honum sennilega fund- ist tilhlýðilegt, að deildin héldi sín „litlu jól“ eins og tíðkast í barnaskólunum og hann léki jólasveininn. Ólafur hefur oft sýnt það, að hann er ágætur leikari og sýndi það einnig nú. Var leikur hans svo sannfærandi, að það var eins og í kínversku óperunni, að maður sá skeggið, húfuna og kápuna, þó að ekkert af þessu væri til staðar. Hitt er svo annað mál, að þjóðinni mun finnast forsætis- ráðherrann hafa annað mikil- vægaxa hlutverk að rækja en að leika skopleik. BarnagaUar Verð kr. 200,00 Bamaúlpur Verð frá kr. 217,00 Fischersundl Kaupið jólaskrautið í SKILTAGERÐINNI Skólavörðustíg 8 : Þeir, sem fara í bókabúð- ■ | ir þessa dagana taka eftir að ; : ein álitlegasta og ðDÝE- • : ASTA bókin (eftir lesmagni) ■ er jUMH-VERFIS JÖRÐINA j ; En samt verða inenn eiinþá ■ ; ánægðari með bókina, þegar : • þeir hata lesið hana. • j I Bókaúígáian Einbúi " m LIGGUR LHÍBIN Um ull Víiamín Rannsókn á ullarþræðinum hefur leitt i Ijós að hann er byggður upp af 18 mismunandi amínósýrum. Þessi mörgu hrá- efni sem sameinast í ullinni, gera hana mjög frábrugðna gerviefnunum, sem eru af mjög einfaldri gerð, oft úr einu eða örfáum hráefnum. Hin kemísku sambönd í ullar- þræðinum gera það að verkum að ullin getur drukkið í sig mik- inn raka úr loftinu (allt að 30% af sínum eigin þunga) án þess að virðast vot. Uilarföt draga úr hættunni á skyndilegri ofkæl- ingu, • kvefsóttum og gigt. Loks stafar hinii mikli teygjanleiki ullarinnar og þol af hinni marg- breytilegu samsetningu ullar- þráðarins. Þegar borið er saman vita- míninnihald niðursoðins matar og þeirrar faeðu sem húsmóðirin býr sjálf til, hefur það komið í Ijós að vitamíntapið er mjög svipað. En hvað nú, þegar nið- ursuðuvörur eru geymdar? Geta hin viðkvæmu C-vítamín þolað langa geymslu. Það hefur sýnt sig að víta- míninnihald niðursoðins matar rýrnar ekki vitund þótt hann sé geymdur upp undir ár. Og það skiptir þvi nær engu máli hvort dósin er vikugömul eða átta mánaða. En um leið og dósin er opnuð er öðru máli að gegna. ,Þá þarf að hita matinn og borða nann næstum samstundis til að komast hjá því að vítamíninni- haldið rýrni að mun. Skémmtiiegt hálsmál Kínaflibbi og V-rauf í stað horna er skemmtilegt hálsmál eins og sést á myndinni af þess- ari léttu kápu, sem saumuð er úr kasmírtvídi. Þessa hugmynd getur maður Jíka notað við heimasaum á stórum hornum. Takið eftir litla hattinum sem fellur þátt að höfðinu eins og hjálmur. Hann er saumaður úr flóka, samlitum kápuefninu. ^iéfðVIUINN Útgeíandi: Samelningarflok'kttr albýðu — Sóslalistaflokkurlnn. — Hitstjórar: Magnú* Kjartansson (áb.), Sigurður Guðmundsson. — Préttaritstjóri: Jón BJarnason. — Blaða- menn: Ásmundur Sigurjónsson. Bjarni Benediktsson, Guðmundur Vigfússon. ívar H, Jónsson. Magús Torfi Ólafsson. -• Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. RitsWóm. axgrelðsla, auglýsingar, prentsmiðJu: Skólavörðustig 19. - Simi: 7500 (3 línurJS — Áskrift- arverð kr. 20 á mánuðl í ReykJavik og néerenni: kr. 17 anuarsBtaðar. — hr. 1. — PrentsmiðJa ÞióSvillana

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.