Þjóðviljinn - 18.12.1955, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 18.12.1955, Blaðsíða 11
Kærkomnar jólagjafir Fyrir dömur: Snyrtivörur: Helena Rubinstein Yardley Max Factor Revlon Number Seven Cutex o. fl. Öll fáanleg ilmvötn. Gjafakassar Snyrtitæki (Manicure Set) Fyrir herra: Old Spice — gjafakassar — — — rakspritt — — — rakkrem — — — Eau de Cologne Yai’dley Talcurn — Brillantine — Hárvatn — Eau de Cologne Veski með snyrtitækjum Corvette - raksápa o. fl. TfflF^■ W 1m M Hjúkrunar og snyrtivörur Austurstrœti 16 (Reykjavíkurapótek) Sími 82866 Sföðvasf úfburður á posfi? Framhald af 1. síðn. lægstlaunuðu, heldur en hinna hæstlaunuðu. Tillaga minnihluta nefndar- innar um að þeir sem hafa unn- ið 10 ár séu hækkaðir um 1 launaflokk var felld á Alþingi- og tillaga er einn þingmanna flutti um kjarabætur okkur til handa var felld að viðhöfðu nafnakalli. Okkur hefur fundizt að við ættum að fá sömu laun og póst- afgreiðslumenn, því við vinnum hliðstæð störf. Vinnutími okk- ar er lengri og vinnan erfiðari. Við berum einnig nokkra fjár- hagslega ábyrgð við útburð á ávísunum og ábyrgðarbréfum. Auk þess kemur sér betur að við getum eins og þeir borið nokkurt skynbragð á erlendar tungur. Okkur finnst furðulegt að kröfur okkar skyldu með öllu hundsaðar á Alþingi, sættum okkur ekki við það. Virðist nú full hætta á því að ýmsir æfð- ír og góðir starfsmenn muni nú hverfa til annarra betur borgaðra starfa. HR. JÓN JÓNSSON, REYKJAVÍK — Og hvað um erfiðleika í starfi? — Það er þetta endalausa vandamál með heimilisfangslaus bréf. Á fjölda bréfa stendur að- eins nafn eða heiti á fyrirtæki og síðan Reykjavík. Þessum bréfum eigum við að koma til skila í réttar hendur, en það reynist oft furðu tafsamt og erfitt. Þá eru einnig erfiðleikar vegna þess hvernig gengið er frá mörgum sendingum sem komið er með. Blöð og tímarit eru rúlluð upp, í stað þess að brjóta þetta flatt saman. Upp- rúlluð fara blöð og tímarit ekki aðeins ver í töskum bréfber- anna, heldur skemmast þau miklu fremur þannig en væru þau flöt. Það væri stórkostlegur tíma- og vinnusparnaður að fá blöðin samanbrotin, í stað þess að þurfa að hringsnúa þeim til að sjá utanáskriftina. — Og hvað viltu segja að síðustu? — Ég vil þakka formamninum okkar Guðmundi Þórðarsyni fyr- ir dugnað og ósérplægni í bar- áttunni fyrir að fá kjör okkar bætt. ★ Pósthúsið í Reykjavík er eins og allir vita gömul bygging, og fyrir löngu orðin úrelt til þeirra nota sem það er ætlað. Þrengsl- in eru orðin óþolandi og tor- velda mjög störf póstmanna. Áð- ur hefur verið frá því sagt að á 60 ferm. fleti vinna yfir 30 menn. Úti í einu hominu vinna t. d. 4 menn á ca. 2ja ferm. fleti og geta því ekki snúið sér við án þess að rekast hver á annan. Á annarri hæð er t. d. eitt salerni fyrir nær 50 mamis. 'Engin geymsla er fyrir föt póst- mannanna, en nú eru komnir stólar, eftir að einn póstmann- anna keypti sér stól sjálfur, — en þá voru hinir látnir fá stóla! Eins og að framan segir munu horfur á því að margir póst- menn hverfi nú frá starfi sínu. Póstmannafélag íslands heldur fund annað kvöld og verður þar til umræðu afstaða póst- manna til B. S. R. B. og launa- málin. Smmudagur 18. desember 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (ijC Harpa minninganzia „Ég sé ekki betur, en Harpa minning- anna sé í röð merkilegustu æviminn- ingabók, sem út hafa komið hér á Iandi“. (Ritdómur Gifðm. Danielssonar, Vísi 15. des.) Jólabœkur ísafoldar, Bréf og dagbókarblöð Ólafs Davíðssonar helzta þjóðfræðaritara íslendinga í útgáfu Finns Sigmundssonar landsbókavarðar. Lýsa þau í senn Ólafi sjálfum, áhugamál- um hans og lífemi og gffa persónulega mynd af höfundi, samtíðarmönnum hans og aldarfari. Jólabœkur ísafoldar Sögur Kerlæknisins Sögur herlæknisins í þýðingu Matthíasar Jochumssonar, sígilt verk í bókmennt- um Norðurlanda. — Heildarútgáfa á verkum Matthíasar, frumsömdum og þýddum hefst með þessu bindi af Sög- um herlæknisins. JólabœkurVy ísafoldan J.B.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.