Þjóðviljinn - 18.12.1955, Síða 16
reyrarflugvöllur
Kostnaður við íiugvallargerðina nemur
nú um háifri sjöítu miHjón króna
í fyrrakvöld lenti fjögurra hreyfla flugvél í fyrsta
skipti á Akureyrarflugvelli, eins og skýrt var frá í blað-
inu í gær. Var það Sólfaxi, önnur af millilandaflugvélum
Flugfélags íslands, en flugstjóri var Jóhannes Snorrason.
Flogið var frá Reykjavik kl.
18.30 og lent á flugvellinum
fyrir norðan klukkustundu síð-
ar. Gekk léndingin eins og bezt
varð á kosið, svo og flugtakið,
er haldið var suður aftur um
ki. 23.30. Ber flugmönnum
saman um að flugbraut Akur-
eyrarvallar sé mjög góð, en
hún er nú um 1400 metra löng
og búin fullkomnu ljósakerfi.
Er iiið mesta öryggi af flug-
vellinum í sambandi við milli-
landaflugið.
Flugfélagið bauð allmörgum
gestum norðíir með Sólfaxa í
fyrrakvöld, þ.á.m. flugmálaráð-
herra, tveim þingmönnum, flug-
málastjóra, flugráðsmönnum
o.fl. Bæjarstjórn Akureyrar hélt
gestunum kvöldverðarboð í
Gildaskála. KEA og fluttu þar
ræður 'Steinn Steinsen bæjar-
-stjóri, Ingólfur Jónsson ráð-
herra, Jónas Rafnar þingm.
Akureyrarkaupstaðar, Magnús
Jónsson annar þingmaður Ey-
MELAÐBILÐ
lieldur fund á morgun kl. 2 e.h. í
Kamp Knox G9. Áríðandi að allir
félagar mæti.
HHPPORÍETTl PJOÐUILJRnS
J5ex
? dagar eftir par til
dregið verður
t dag höfum vlð skiladag'. Tekið
er á móti skilum frá kl. 2-6 e.l».
i skrifstofu Sósíalistafélagsins
Tjarnargötu 20, og afgreiðslu Þjóð-
viljans. Nú er spenningurinn far-
inn að aukast; fimm deildir eru
nú komnar upp fyrir 70% og
sækja ört á. Mjótt er á mununum
niilli deildanna sem efstar eru og
ómögulegt er að spá fyrir um
hver efst verður næst þegar við
birt.um samkeppnlna, en nú fer
tímlnn óðmn að styttast og ættu
þær deildir sem enn eru eldíi
konmar af stað að láta heyra til
sín í dag. Notum öll helgina vel.
Gerið skil. — Röð deildanna er
nú þanuig:
★
1 miðadeild ..............77,9 %
2 Bústaðadeild .......... 77,3 —
3 Sunnuhvolsdeild ........74,3 —
4 Þingiioltsdeild......... 70,5 —-
6 Bolladeild .............. 70 1 —
6 Skerjafjarðardeild......66,9 —-
7 Hateigsdeild! . ....... 66,9 —
8 Hiafnn.rdeild ......... 64,6 —
9 Sogadeild ...............64 —
10 Laugarnesdeiid ........ 63,6 —
11 Skuggnhverfisdeild .... 63,5 —
12 Njarðardeild............ 63 3 —
13 ICleppsholtsdeild.......63,2 —
14 Túnadeild ............. 62,7 —
15 Múladeild ............. 63,3 —
16 Langholtsdeild ........ 62,1 —
17 Nesdeild................61,3 —
18 Vesturdeild ........... 61,2 —
19 Me!adeild ............. 61.1 —■
20 Valladeild ............ 60,8 —
21 Skóladeild ........^.....60 —
21 Barónsdeild ............ 60 —
21 Vogadeild ...............60 —
KhiUkan 4 síðdegis í dag
verður kveikt á norska. jóla-
trénu á Austurvelli. María Möll-
er kveikir á trénu, einnig verða
ávörp flutt, lúðrablástur og
fiöngur.
firðinga, Agnar Kofoed Hansen
flugmálastjóri og Jakob Frí-
mannsson forstjóri.
í ræðu sinni sagði ráðherra
að miklu fé hefði verið varið
til flugmáLanna hér á landi á
undanförnum árum og væru nú
t.d. komnar um 5.5 millj. króna
í framkvæmdir við Akureyrar-
flugvöll einan. Óskaði hann Ak-
ureyringnm og landsmönnum
Framhald á 14. síðu.
Norðmenn gefa
austurlenzkan
llstvefnað
Þjóðminjasafninu hefur borizt
góð gjöf frá Noregi, austurlenzk-
ur vefnaður og heíur verið opnuð
sýningj á gripunum í Bogasal
safnsins.
Gjöf þessi, sem er samtals 70
gripir, er austurlenzkur vefnaður
og útsaumur. Það er norska list-
iðnaðarsafnið sem gjöfina sendir
og átti forstöðumaður þess, Thor
B. Kielland frumkvæðið að því að
gjöfin var hinga send.
Sýningin verður opin í alian
dag, en síðan á venjulegum sýn-
ingartimum safnsins eitthvað
fram yfir áramótin. Vefnaðurinn
sem þarna er sýndur er hinn á-
gætasti, einkum mun hannyrða-
konum hugleikið að sjá hann.
Jólagjafi* íhaldsins:
| Hækkuð útsvör, vaxandi f jár-
bruðl og f jandskapur við
hagsmunamál almennings
Ihaldið hefur rétt Reykvíkingum sínar venjulegu jóla-
gjafir — og er með rausnarlegasta móti að þessu sinni.
fhaldið hefur ákveðið að hækka útsvarsupphæðina á
Reykvíkingum úr 101.4 millj. í 144.3 millj. kr. — eða
um 43%.
En um leið og íhaldið samþykkti að hækka útsvörin
um 43% ákvað það að skera framlag bæjarins til íbúða-
bygginga niður um 19% frá því sem var í fjárliagsáætl-
un yfirstandandi árs. Það er jólagjöf íhaldsins til hús-
næðisleysingjanna, jólaglaðningur þess til íbúa bragg-
anna, skúranna og anarra álíka vistarvera sem íhaldið
telur hæfa fátæklingunum í Reykjavík.
íhaldið felldi allar tillögur vinstri flokkanna um sparn-
að á skrifstofubákni bæjarins, bifreiðakostnaði og al-
gjörlega óþörfum útgjöldum. Það ákvað m.a. að hækita
skrifstofukostnað bæjarskrifstofanna nm 26%, skrifstofu
fræðslufulltrúa um 40% o.s.frv. Sem dæmi um hækkun-
aræði íhaldsins má nefna að kostnaður við skjalasafu
bæjarins á að hækka um 150% á einu ári!
Hins vegar feiidi íhaidið að hækka nokkuð framlag
til verkamannabústaða, felldi að heimila lántöku til í-
búðabygginga sem reistar væru í stað braga og annars
heilsuspillandi húsnæðis. íhaldið felldi að hækka fram-
lag til nýrra leikvalla. Slíkur er áhugi þess fyrir að
bjarga reykvískum börnum frá lífshættu götunnar og
umferðaröngþveitisins. Ihaldið felldi einnig að hækka
nokkuð framlag til byggingar verkamannahúss við
Reykjavíkurhöfn. íhaldinu þykir gamli þægindalausi
timburhjallurinn hæfilegur reykvískum hafnarverka-
mönnum.
ihaldið felldi að leggja nokkra fjárupphæð til bygg-
ingar félags- og tómstundaheimila fyrir æsku bæjarins.
Frá sjónarmiði íhaldsins eru bíóin, með amerískum glæpa-
myndum, og „sjoppur“ íhaldsgæðinganna hin réttu upp-
eldistæki og „menningarstofnanir" við hæfi æskulýðsins.
Ihaldið felldi að ætla nokkra fjárupphæð til byggingar
biðskýla á strætisvagnaleiðum. íhaldið þenur út byggð-
ina í Reykjavík með skammsýni sinni og skipulagsleysi
en neitar að taka afleiðingunum og telur farþega stræt-
isvagnanna ekki of góða til að hrekjast á bersvæði í
vetrarhörkum, þegar bíða þarf oft langtímum saman eftir
hinum óvissu ferðum strætisvagnanna.
Þannig mætti lengi telja. Ihaldið hefur afgreitt sínar
jólagjafir til reykvísks almennings. Jólagjafir þess eru
drápsklyfjar stórhækkaðra útsvara, nýjar miIÞ'ónafúlg-
ur í skrifstofubáknið og bitlingahítina en harðvítug and-
staða gegn framfaramálunum sem mest er aðkr, Hr>udi að
hrinda í framkvæmd.
l&É&föÍ
Skódeild verzlunar SIS í Austurstrœti
Frá því kjörbúð S.I.S. var
opnuð í Austurstræti hefur
verzlunin þar gengið mjög vel.
Virðist hafa komið í Ijós að
fólk hér sé fljótara að tileinka
sér hið nýja afgreiðslufyrir-
komulag en á hinum Norður-
löndunum.
Á hádegi í gær voru opnaðar
3 nýjar deildir í verzlun S.Í.S.
í Austurstræt.i, eru það fata- og
skódeildir, á annarri hæð húss-
ins. Deildir verzlunarinnar eru
þá orðnar 10 talsins. Ein nýung
þarna að farið er að selja
amerísk snið og verða þar veitt-
ar leiðbeinipgar um val sniða
og efna.
Sinfóníuhljómsveítin fœr 400
þúsund kr. úr bœjarsjóði
Aðeins 2 íhaldsfulltrúar fylgjandi f járveit-
ingu til hljómsveitarinnai!
Bæjarsjóður Reykjavíkur leggur á næsta ári fram 400
þúsund krónur til reksturs Sinióníuhljómsveitarinnar _ Er
þar um helmings hækkun að ræða frá því sem ákveðið
var í síðustu fjárhagsáætlun.
Við afgreiðslu fjárhagsáætlun-
ar Reykjavíkur fluttu þeir Gunn-
ar Thoroddsen, Sigurður Sigurðs-
son, Guðmundur Vigfússon, Gils
Guðmundsson, Alfreð Gíslason
og Óskar Hallgrímsson tillögu um
að veita 400 þúsund króna fram-
lag til Sinfóníuhljómsveitarinn-
ar. Er ætlunin að Þjóðleikhúsið
leggi fram aðrar 400 þúsundir og
og loks Ríkisútvarpið sjálft 900
þúsund krónur og á þá rekstur
hljómsveitarinnar að vera tryggð-
ur.
Þegar atkvæöagreiðsla fór fram
um tillöguna kom það í ljós að
einungis einn íhaldsmaður
greiddi henni atkvæði, auk borg-
arstjóra. Var tillagan samþykkt
með 8 atkv. gegn 2, en 5 sátu
hjá. Féllu atkvæði þannig að
viðhöfðu nafnakalli að já sögðu:
Alfreð Gíslason, Gils Guðmunds-
son, Geir Hallgrímsson, Guð-
mundur Vigfússon, Gunnar Thor-
oddsen, Ingi R. Helgason, Óskar
Hallgrímsson, Einar Ögmunds-
son. Nei sögðu: Ragnar Lárusson
og Guðbjartur Ólafsson. Hjá sátu:
Auður Auðuns. Einar Thorodd-
sen, Guðm. H. Guðmundsson,
Gróa Pétursdóttir, Þórður Björns
son.
Slíkur reyndist menningaráhugi
íhaldsins. Það varð hlutverk and-
stæðinga þess að bjarga Reykja-
vík frá þeirri smán að néit.a hlut-
deild að því að skapa Sinfóhíu-
hljómsveitinni nauðsynleg stárfs-
skilyrði.
Kertasniklr
flýgiir til Ak-
iireyrar í dag
I dag býður Flugfélag Is-
lands jólasveininum Kertasniki
að fl júga til Akureyrar og
heimsækja börnin þar. Mun
flugvélin lenda á Akureyrar-
flugvelli laust eftir hádegi en
þaðan ekur jólasveinninn á
skrautsleða að Ráðhústorgi, þar
sem efnt verður ti) skemmtun-
ar. Syngur jóla.sveinninn fyrir
börnin nokkur lög, segir þeim
sögur o.fl., Bragi Hlíðberg leik-
ur á harmoniku og barnakór
syngur. Eitthvað mun Kerta-
sníkir hafa meðferðis í poka-
horninu og skipta gjöfunum
milli krakkanna. Að lokinni
skemmtuninni á Ráðhústorgi
heimsækir hann yngstu sjúk-
lingana á Akureyrarspítala
spjallar við þá og gefur þeim
gjafir.
Allir dagar eru skiladagar. Skilastaðir
Skólavörðustígur 19 og Tjarnargata 20.