Þjóðviljinn - 10.08.1956, Qupperneq 4
jgy — ÞJÓÐVILJINN — Pöstudagur 10. ágúst 1956
IIIðÐVIUmN
Útgefandi:
Wameinmgarflokkur alpýOu — Sósíalistaflokkurinn
íliald og athafnafrelsi
er ekki alltaf ófróðlegt
'* að bera saman orð og at-
hafnir forkólfa S.iálfstæðis-
flokksins. í orði segjast þeir
vera unnendur athafnafrelsis
og sem frjálsiegastra viðskipta
í öllum greinum. Athafnir þess-
ara sömu íhaldsforkólfa sýna
hins vegar allt önnur viðhorf,
cnda fiestum vitanlegt að þeg-
ar íhaldsforingjarnir tala fag-
urlegast um ást sína á athafna-
frelsinu þá eiga þeir einfald-
lega við að hinir auðugu og
voldugu sem ráða stefnu
flokksins fái nægilegt svigrúm
til að safna áframhaldandi
gróða með því að rýja allan al-
jnenning.
Búsnæðisskorturinn er áreið-
anlega tilfinnanlegasta
Vandamálið sem fjöldi manna í
Reykjavik hefur átt við að
Stríða á undanfömum árum og
svo er enn. Framtak bæjarfé-
lagsins hefur verið smátt í
sniðum og aldrei miðazt við að
leysa vandamálið til frambúð-
ar. En ekki nóg með það. f-
haldið sem ræður bænum hef-
ur einnig gjörsamlega brugðizt
þeirri frumskyldu að sjá þeim
bæjarbúum fyrir lóðum sem
hafa vilja og einhverja getu til
þess að leysa húsnæðisvand-t
ræði sín. Útmæiing og afhend-s
ing lóða til íbúðabygginga ií
Reykjavík hefur í mörg ár ver-j?
ið í miklu öngþveiti en í árr
hefur alveg keyrt um þverbak.^
[eita má að engar lóðir hafi^
verið afhentar til íbúða-P
bygginga í Reykjavík á yfir-'-
st-andandi ári þegar undan eruj
skildar 18 byggingarlóðir við’
Gnoðarvog sem nýlega var út-|
hlutað. Það er allt framtak for-
ráðamanna höfuðborgarinnar ái
I
sama tíma og fámennir kaup-'
staðir í nágrenninu sjá hundr-J
uðum manna fyrir byggingar-j
ióðum. Það er engu líkara en
íhaldið sem ræður bænum'
i
haldi að fært sé að stöðva eðli-
lega þróun og byggingarstarf-
semi í borg sem telur yfir 60
þúsundir íbúa og býr við öm-
urlegra ástand í húsnæðismál-'
Um en dæmi eru til um nokk-
ursstaðar annarsstaðar í land-
inu og þótt víðar væri leitað.
Sú stöðvun sem íhaldið er
með þessari stefnu í lóða-
málunum að leiða yfir bygging-
ariðnaðinn í bænum kemur að
sjálfsögðu þeim einum að
gagni sem hafa hag af því að
viðhalda húsnæðisskortinum en
það eru leiguokrararnir sem
flestir eru í hópi máttarstólpa
íhaldsins. Allstór hópur manna
hefur lagt fyrir sig húsakaup í
stórum stíl á undanförnum ár-
um og aðrir lagt fjámagn í að
reisa einstök hús og sambygg-
ingar í því skyni að leigja í-
búðimar út. í skjóli húsnæðis-
okursins hefur húsaleigan far-
Ið hækkandi ár frá ári og fúlg-
an sem krafizt er í fyrirfram-
.greiðslu vaxið svo að alþýðu-
H
maðurinn er rúinn inn að
skyrtunni verði hann að sæta
þeim neyðarkjörum sem okrar-
amir skammta.
¥»essum „máttarstólpum“ þjón-
* ar íhaldið með því að við-
hafa þau vinnubrögð í undir-
búningi nýrra byggingarsvæða
og við úthlutun og afhendingu
lóða sem nú eru ráðandi. Með-
an þúsundir umsókna um bygg
ingarlóðir liggja óafgreiddar
hjá bæjaryfirvöldunum og ekk-
ert átak er gert til að leysa
vandann, geta okraramir verið
rólegir og öruggir við iðju sína.
Þeir halda áfram að hækka
húsaleiguna og hirða sífellt
stærri hluta af tekjum launa-
mannsins. Fólk er beinlínis of-
urselt húsaleiguokrinu með
þessari þróun, og verður að
neita sér um flest annað til
þess að láta þann „luxus“ eft-
ir sér og sínum að búa í hús-
um.
IVegar íhaldið skipuleggur
lóðaskortinn í Reykjavík
er það að auðvelda braskið og
okrið og þjóna hagsmunum
fárra útvaldra. Unnendur „at-
hafnafrelsisins" hafa í þessu
efni eins og mörgum öðrum
svipt af sér grímunni og sýnt
hvað fyrir þeim vakir þegar
þeir tala hæst og innfjálgast
um ást sína á frelsinu. Frelsi
þeirra er ekki ætlað alþýðu-
manninum eða manninum úr
millistétt sem þörfin knýr til
athafna i byggingamálum, held-
ur okraranum og braskaranum
sem þarf á neyðinni að halda
til þess að geta haldið féflétt-
ingunni áfram. Honum og hans
hagsmunum þjónar íhaldið af
dyggð og trúmennsku með því
að hindra íbúðabyggingar og
neita öllum almenningi um
jafn sjálfsagða og frumstæða
fyrirgreiðslu og það ætti að
vera í þjóðfélagi sem vill telja
sig siðmenntað, að þegninn fái
útmældan og afhentan lóðar-
blett undir íbúð fyrir sig og
fjölskyldu sína.
¥»essi fyrirgreiðsla er ofrausn
* að dómi íhaldsins sem ræð-
ur Reykjavík. Það sýnir slóða-
skapurinn og skipulagsleysið
sem ríkir í þessum efnum. En
málið hefur einnig fleiri hliðar.
Með sama áframhaldi vofir yf-
ir stöðvunartímabil í bygging-
ariðnaðinum. Eigi vinna við
byggingar að vera samfelld og
varanleg þarf ,að vera unnt að
úthluta lóðum í upphafi hvers
árs, að öðrum kosti vofir
„dauður tími“ yfir þeim sem
byggja atvinnu sína og afkomu
á byggingariðnaðinum. Lóða-
bannið sem íhaldið skipulegg-
ur gerir því hvorttveggja i
senn að auka húsnæðisskort-
inn og hlynna að leiguokrinu
— og bjóða jafnframt tíma-
bundnu atvinnuleysi heim í
byggingariðnaðinum sem fjöldi
verkamanna og iðnaðarmanna
byggir afkomu sína á.
Scsgnblinda „hjá Bergþórsson
Frá bridgemótinu i Stokkhólmi
Stokkhólmi 31. júlí.
Á sunnudaginn, þegar síð-
asta bréf var skrifað, var
íslenzka sveitin búin að spila
fyrri hálfleikinn við Egypta,
og staðan var þá 0:40. Enda
þót't okkar menn ynnu seinni
hálfleikinn með 30:16, þá
endaði leikurinn með stórtapi
sem vonlegt var, eftir út-
komuna úr fyrri hálfleiknum.
Á sunnudagskvöldið spiluðu
svo okkar menn við Svía.
Eftir fyrri hálfleik var ísland
10 punktum yfir, með 30:20.
En leikurinn endaði þó með
tapi, 41:50. Þetta var þó yfir-
leitt vel spilaður leikur hjá
okkar mönnum, svo að orð
var á gert. En það kom fyr-
ir stórslys, sem kostaði okk-
ar menn 13 punkta. Þetta
gerðist í fyrsta spilinu í seinni
hálfleik, þar sem Kristiim
sagði pass við spurnarsögn
hjá Stefáni. Kristinn mun
hafa orðið fyrir þeim álög-
um, sem hjá taflmönnum er
kallað skákblinda, en Norð-
menn nefna „járntjaldið," og
Svíar og Englendingar ,black-
out‘. Spilið var þannig:
Sp. 7
H. Á-D-G-6
T. K-D-G-9-7-3
L. D-8
S. 10-4-3-2 S. Á-K-D-
H. — G-8-5
T. 10-5-4 H. 10-9-7-4-2
L. Á-K-10- T. 2
6-5-4 L. 2
S. 9-6
H. K-8-5-3
T. Á-8-6
L. G-9-7-3
Þar sem Svíar voru A-V
gengu sagnir þannig: Norð-
ur 1 tígul. Austur 4 spaða.
Suður, vestur og norður pass.
Við hitt borðið gengu þrjár
fyrstu sagnirnar eins, en Stef-
án, sem sat vestur, ályktaði
réttilega, að slemmumögu-
leikar væru fyrir hendi, ef
Kristinn ætti fyrstu eða
aðra fyrirstöðu í tigli, svo
að hann bauð 5 tígla, sem er
ágæt spurnarslögn í þessari
stöðu. En Kristinn sagði
pass, og Svíinn Stenberg, sem
sat suður, og skildi hvað var
að gerast, var fljótur að segja
pass. f Stokkhólmsdagblaðinu
Expressen, þar sem skýrt er
frá þessum atburði, eru loka-
orðin á þessa leið: „Þetta var
náttúrlega hreint „blackout“
hjá Bergþórsson. Ef hann
hefði hugsað málið nán-
ar, hlaut hann að sjá, að
vestur gat ekki haft nokkra
ástæðu til að bjóða raunveru-
legan tígullit, jafnvel þó að
hann hefði haft sagnfæran
tígullit á hendi. Þetta urðu
dýrar sekúndur fyrir Island.
Rét't og eðlilegt svar við
spurnarsögninni hefði gefið
þvl 6 punkta fyrir spilið, I
stað þess að tapa 7, og sænski
sigurinn hefði farið veg allrar
veraldar.“
Auk þessa óhapps „grísuðu"
Svíarnir á alslemmu í síðari
hálfleik, þar sem trompkóng-
ur og annar kóngur voru úti.
Alslemman vannst þar sem
spilalegan var mjög hagstæð.
Okkar menn fóru aðeins í
hálfslemmu, sem var miklu
eðlilegri sögn. En þetta varð
til þess, að tapið varð algjört.
Eftir þennan óheilla sunnu-
dag hafði Island hrapað úr 5.
sæti niður í 10.
I gærmorgun fengu spila-
mennirnir að sofa út, og var
ekki byrjað að spila fyrr en
M. 14.30. Þá spiluðu okkar
menn fyrri hálfleikinn við
Finna. Unnu þeir hann með
65:15, svo að heita mátti, að
leikurinn væri unninn þegar
eftir fyrri hálfleik. I seinni
hálfleiknum, sem spilaður var
í kvöld, bættu þeir enn við,
svo að lokatölurnar voru
98:33, og var langstærsti sig-
urinn í þessari umferð.
1 9. umferð, sem spiluð var
I gærkvöld, kepptu okkar
menn við Austurríki, og unnu,
að vísu naumlega, með 57:51.
En þetta var frægur sigur,
þar sem þetta var fyrsti leik-
urinn sem Austurríkismenn
töpuðu á mótinu. I hinu
daglega yfirliti, sem gefið er
út hér á mótinu, segir svo
um þennan leik: „Hin mikla
„sensation" í þessari umferð
var vitanlega sigur íslending-
anna yfir Austurríki. Já, fólk-
ið úr norðrinu er dálítið óút-
reiknanilegt. Getur tapað fyrir
Egyptum með 40:0 í 20 spil-
um, til þess, strax á eftir,
að vinna einn líklegasta sigur-
vegara mótsins.“
í sveit Austurríkismanna
spilaði hið fræga par Schneid-
er og Reithoffen allan leikinn,
en á hinn vænginn var skipt
í hálfleik. Af okkar hálfu
spiluðu þeir Einar og Lárus,
Kristinn og Stefán fyrri hálf-
leikinn. En í síðari hálfleik
kom Lái’us á móti Stefáni og
Gunnar á móti Einari.
Eftir leikinn við Austurríki
komst Island í 8. sæti, og nú
i kvöld, að loknum síðari
hálfleik við Finna, er það í
6. sæti.
Það hefur vakið verðuga
eftirtekt hér, að íslending-
amir spila svo greitt, að
þeir hafa undantekningarlitið,
verið fyrst búnir með hvern
hálfleik, og eiga algjört met
í hraða. Það settu þeir á
sunnudaginn í seinni hálf-
leiknum við Egypta. Luku
þeir hálfleiknum á 1 klst. og
26 mínútum.
Það sem mesta eftirtekt
vakti í umferðinni sem lauk
í kvöld, var að Líbanon vann
Svíþjóð með 69:40. En áður
hafði Líbanon aðeins tekizt
að vinna írlendinga sem alltaf
fá 0. Það leynir sér ekki, að
Libanonmenn eru að sækja
sig, hvor't sem það stafar af
þvi að þeir séu famir að
venjast loftslaginu, eða
keppnishrollurinn er að réna,
en þeir hafa tapað sumum
síðustu leikjunum með mjög
litlum mun, og unnu nú Svía
svona hreinlega. Aftur á móti
virðist allt loft vera farið úr
Finnunum, sem byrjuðu þó
svo glæsilega, en tapa nú
stórt hverjum leiknum af öðr-
um. ítalir em nú taldir lík*
legastir sigurvegarar. Þeir eru
með 16 stig. Frakkland með
14 stig, og England með 13
stig. Þessi þrjú lönd eru nú
ein talin hafa sigurmöguleika,
þar sem Austurríki tapaði
fyrir íslandi í gærkvöldi og
svo fyrir Frakklandi í kvöld.
IJ' rSALAN
u á kjólum
drögtum
stuttjökkum og
kápum
stendur yfir aðeins í nokkia daga.
BE i Z T Vesturveri
Unglingar óskast
til að bera blaðið til kaupenda á
Melunum
við Hringbraut
Laugaveg
Leifsgötu
og víðar
næstu 2—3 vikur vegna sumarleyfa.
ÞJ0ÐVILIINN — Sími 7500
'HiiiHiHftiaiMBiBBmii