Þjóðviljinn - 10.08.1956, Síða 5
Föstudagur 10. ágúst 1956 — ÞJÓÐVILJINN (5
i
Jiimiwimm
t/nn/miwnm
iccccegvoxtC(CiC.xccfC(ccc-cic»cco<íciOLC»i:(ci^
& 3í
fíólum~
bíu
gátu, að Kólumbus hefði haft
sagnir af fundi Grænlands
og Vínlands hins góða (986
og 1000) en langlíklegast er
að hugmyndina um siglingar
til .landa í vestri hafi hann
fengið þegar hann kom árið
1476 til Lissabon. Portúgalar
voru þá mestu sæfarar heims
og bróðir Kólumbusar Bart-
olomes kom honum í kynni við
beztu skipstjórnarmenn sam-
tíðarinnar. Þessir menn ræddu
Kolumbus, eða Don (herra) Christobal
Colon eins og hann nefndist á Spáni.
450 ár eru liðin frá því að
fiiinandi Ameríku lézt í fá-
tæklegu hreysi, horfandi á
hlekkina sem hann hafði ver-
ið fluttur í heim til Spánar.
Svo fullkomlega höfðu menn
þá gleymt Kólumbusi, að
dauði hans þótti ekki annáls-
verður.
Gamall og lúinn kom aðmír-
állinn heim til að deyja. Hann
var þreyttur og slitinn, hár
og skegg snjóhvítt og líkam-
inn tærður af hitasótt. Minn-
ingar um ofviðri, skipsskaða
og samsæri hrjáðu hann. Kól-
umbus minntist hinnar jarð-
nesku paradísar, grænna
eyja og vingjarnlegra og
mildra í skapi. En nú voru
þeir ofurseldir nútímanum,
blóði drifnum og óseðjandi.
Það var bugaður maður, sem
varpaði akkerum 7. nóvem-
ber árið 1504 fyrir utan San
Lucar á Spáni. Skipið var
litið, og segl þess voru rifin
eftir glímuna við storma At-
lanzhafsins.
Hálfu öðru ári síðar lézt
hann, 20. maí 1506 í Valla-
dolid í Kastilíu. Herra Christ-
obal Colon, sem bar aðmíráls-
titil og varakonungsnafnbót
yfir öllum þeim höfum og eyj-
um, som hann uppgötvaði, lézt
í fátæklegu herbergi. En und-
ir var hesthús og svo var
Kólumbus einmana, að hann
gerði gat á gólfið til að hann
gæti horft á hestana. Á vegg-
inn höfðu menn hengt hlekk-
ina sem hann hafði verið
færður í frá eyjum Vestur-
Jieims, Indlandi eins og þær
voru þá kallaðar. Hlekkirnir
héngu þarna til að auðmýkja
Kólumbus.
Allt fram á síðustu stund
ihafði Kólumbus margbeðið
hinn kaldhæðna spanska kon-
ung Ferdinand að fá nokkurn
hluta þeirra auðæfa, sem hon-
um hafði verið lofað með
samningi, þegar hann sigldi
í vesturátt á .Heilagri Maríu.‘
En enginn tók mark á Kól-
umbusi. Hann var þegar orð-
inn fomgripur í lifanda lífi.
Hann hafði verið landkönnuð-
ur, en nú var þörf harðsæk-
inna stjórnenda, sem gæt.u
pínt auðæfin út úr hinum
nýja heimi með katólskum
bænum og beittum sverðum.
Grillufangari og lyga-
laupur.
450 árum síðar en Kól-
umbus andaðist hálfgleymdur
er raunar lítið um hann vitað.
Við vitum, að hann trúði á
efstu árum þeirri endileysu,
að hann hefði fundið sjóleið-
ina til Asíu. Espanola (Haiti)
hélt Kólumbus að væri Ind-
land, en Kúba vár ýmist Jap-
an eða hluti af Kína. Á þriðju
og fjórðu ferð sinni var hann
nærri kominn til Júkútan-
skaga og sá í fjarska fjöll
hins núverandi Hondúras. En
hér brást honum eðlishvötin
og hann komst aldrei á land.
Kólumbus kastaði einnig
landfestum við Veragua, sem
nú nefnist Panama.
Þetta gerðist í fjórðu ferð-
Af skipi sínu „Heilagri Maríu“ gekk Kolumbus á eina hinna mörgu eyja
fyrir utan Ameríku. Tréskurðarmyndin er frá árinu 1493 og er elzta lýsing
á fundi Ameríku. Það var titilmynd á flugriti, sem kom út í Flórenz.
rr
Ieitandi mann endurreisnar-
tímabilsins og þörf mann-
kynsins til að brjóta af sér
úrelt form.
Kólumbus fæddist árið 1446,
e. t. v. 1551, í borginni Gen-
úa á ítalíu. Faðir Kólumbus-
ar var ullarkaupmaður lítils-
háttar og sonurinn hefur
varla fengið reglulega mennt-
un. Snemma fór Kólumbus í
siglingar sem ullar- og silki-
prangari. Frásagnir hans um
hernaðarafrek í æsku eru á-
litnar gort.
Landafræðingurinn Malthe
Bruun kom fram með þá til-
daglega um löndin í vestri.
Þeir héldu því fast fram að
jörðin væri hnöttur og voru
andstæðir þeirri skoðun bisk-
upsins Kosmas, að jörðin
hlyti að vera flöt, þar sem
því yæri heitið, að allir ættu
að sjá endurkomu Krists. Og
hvernig leið svo þeim mönn-
um, sem voru hinum megin á
jörðinni og höfðu fæturna
upp í loft?
Aðmíráll úthafsins.
Ekki heppnaðist Kólumbusi
að hrinda áætlunum sínum í
Fjöldi skipanna og fjandskapur Indíánanna á þessari tréskurðarmynd sýnir að hún á
við einhverja af seinni ferðum Kólumbusar. Myndin er af einhverjum karabisku eyj-
anna, en þar stóð mannát með miklum blóma.
inni, en þá leitaði hann að
sundi, svo að hann gæti siglt
kringum jörðina. Hin fáu bréf
Kólumbusar, sem geymzt hafa
lýsa honum sem undarlegu
samblandi af skáldi, ofsatrú-
armanni og lygalaupi. Mælska
hans og hæfileikar til að
sannfærá jafnt háa sem lága
um réttmæti hugmynda sinna
var margfræg. Hann hræsnaði
eftir þörfum. En seinni tíma
mönnum er hann dæmi um
framkvæmd í Portúgal. Hann
hélt þá til Spánar og fékk á-
heym hjá Isabellu drottningu.
En Spánn var svo upptekinn
í baráttunni gegn Márunum
að hann hafði ekkert afgangs
til að hætta í þetta ævintýri.
Enda þótt kaþólskir klerkar
sæju þarna hilla undir miklar
og árangursrikar sálnaveið-
ar var Kólumbusi vísað á
bug æ ofan í æ. Síendurtekn-
um hótumnn hans um að
ganga í þjónustu Frakka var
ekki sinnt.
Að lokum, 2. janúar 1492,
féll síðasta vígi Máranna,
Granada. Kólumbus setti
fram úrslitakosti og þeim var
tekið. Kólumbus var gerður
aðmíráll úthafsins. Ennfrem-
ur var ákveðið í samningnum,
að Kólumbus yrði varakóngur
þeirra landa, sem hann fyndi,
og honum var lofað álitleg-
um hluta ágóðans og síðast
en ekki sízt var hann aðlaður.
— Annan ágúst lagði hann
upp frá hafnarbænum Palos
á þremur smáum og illa út-
búnum skipum, sem hétu
„Pinta,“ stjórnandi Martin
Alonzo Pinzon, ,,Nína,“ stjórn-
andi Vincente Yanez Pinzon.
Kólumbus stýrði sjálfur hinu
þriðja, sem hét „Heilög Mar-
ía“, og hafði sér til aðstoðar
siglingafræðinginn Juan de la
Cosa. Honum lýsti Kólumbus
svo, að hann væri „ónýtur
sjómaður og óhæfur land-
könnuður.“ Áhafnir skipanna
voru mestmegnis glæpamenn,
sem látnir höfðu verið lausir.
Gjár og ófreskjur.
Sjötíu og eitt dægur sigldu
skipin, unz land sást. Sigl-
ingatækin voru mjög frum-
stæð. Menn notuðu kompás,
en ekkert sólúr, það var ekki
til. Tíminn var mældur með
stundaglasi. Ymist sat Kól-
umbus uppi á þilfari og
skimaði í allar áttir eða hann
athugaði kort niðri í káetu.
Sjólítið var, en öðru hverju
urðu sjómennirnir ofsahrædd-
ir. Heyrðist ekki hvernig
vatnsflaumurinn steyptist of-
an í gjána fyrir handan? Um
nætur kæmu svo ægileg
skrímsli og drægju allt í kaf.
Aðmírállinn bað og hótaði á
víxl. Áfram varð að halda.
Hann falsaði einnig leiðar-
bókina.
1 dagbók sinni greindi Kól-
umbus frá öllu þvi markverðu,
sem fyrir bar í fyrstu ferð-
inni. Frumritið er týnt og er
Famhald á 7. síðu.