Þjóðviljinn - 10.08.1956, Qupperneq 7
Föstudagiir 10. ágúst 1956 — ÞJÓÐVIUINN — (7
James M. Cain
Mildred Pierce
72. dagur
og miskunnarlaus. „Veiztu hvers vegna Veda býður engum
heim í þetta hús ykkar? Veiztu hvers vegna enginn kem-
ur þangað nefna kerlingin í næsta húsi?“
„Já — vegna þess að þú ert búinn 'að snúa henni gegn
mér — “
„Vegna þess að þú ert bölvað þý og þú ert hrædd við að
taka á móti fólki, vegna þess að þú veizt ekki hvernig þú
átt að haga þér — þú þorir það ekki.“
Þegar hún leit á afmyndað andlit hans varð hún allt í
einu gripin sömu tómleikakenndinni og morguninn sem
ungfrú Turner talaði yfir-. Jhausamótunum á henni og
sendi hana til að sækja um ráðskonustöðuna, vegna
þess að hún væri ekki til annars nýt. :Hún hélt áfram að
rýrna meðan Monty hélt áfram að hella yfir hana beizkju-
■fullum ásökunarorðum „Það er kki hennar sök og ekki
mín. Það er sjálfri þér að kenna. Finnst þér það ekki hlægi-
legt? Að Veda skuli eiga qtal vini, hér og þar og allsstað-
ar, en þú enga? Nei, þetta er ekki rétt — þú átt eina
vinkonu. Bardömuna. Og það er allt og sumt. Engum
er boðið heim til þín, engum — “
„Um hvað ertu eiginlega að tala? Hvernig get ég haldið
veizlur eða boðið heim fólki þegar ég þarf að vinna úti?
Ég —
„Vinna, ja hérna! Það er bara afsökun, eklu orsök. Bannsett
kokkhúspían þín, segirðu að ég snúi telpunni gegn þér?
Ég? Hlustaðu nú á, Mildred. Enginn nema þý væri með
vangaveltur yfir því sem þú hefur verið að tala um í
kvöld. t>ar í liggur munurinn. Dömu stæði á sama, en ekki
þýi.“
Hann gakk fram og aftur másandi, sneri sér síðan að henni
aftur. „Og eins og fífl, eins og erkifábjáni, hélt ég einu
sinni að mér hefði ef til vill skjátlazt, að þú værir dama en
ekki þý. Það var þegar þú réttir mér 20 dala seðilinn um
kvöldið og ég tók við honum. Og svo tók ég við meiru.
Ég hélt meira að segja að dálítið væri í þig spunnið. Og
guð má vita hvers vegna, trúlega vegna þeirrar kímnigáfu
sem yfirstéttarfólki einu er gefin, þá bað ég þig meira að
segja um péninga. Og hvað svo? Gaztu staðið við það?
Þetta sem þú áttir sjálf upphafið að? Daraa hefði fyrr rúið
sig inn að skinni en hún léti mig finna að peningar
skiptu einhverju máli. En þú, áður en ég hafði fengið hjá
þér fimmtíu dali, þurftirðu að gera mig að bílstjóra, var
það ekki? Til að fá eitthvað í aðra hönd? Gera mig áð
þjóni, kjölturakka. Þú þurftir endilega að undirstrika það.
En aldrei framar. Ég er búinn að þiggja síðasta eyrinn af
þér, og guð má vita að ég skal endurgreiða þér áður en ég
er búinn að vera. Úrþvættið þitt — þjónustustúlka. Ég
býst við að það sé þess vegna sem mér þykir svo vænt um
Vedu. Hún tæki ekki við þjórfé. Það myndi hún aldrei
gera — og ekki ég heldur.“
„Nema frá mér.“
Föl af reiði opnaði hún töslcuna sína, tók upp úr henni
nýjan tíu dala seðil og fleygði honum að fótum hans.
Hann tók eldtöngina, tók hann upp og fleygði honum í
eldinn. Þegar eldtungurnar sleiktu hann tók hann upp
vasaklút og þurrkaði sér í framan.
Drykklanga stund mælti hvorugt þeirra orð frá
munni, og þegar þau voru hætt að mása, fann Mildred til
sektar, iðrunar og magnleysis. Hún hafði sagt allt sem hún
ætlaði að segja, hafði ögrað honum til að segja allt líka,
allt þetta sem hún vissi að honum lá á hjarta, og eftir sat
hún magnþrota og niðurdregin. Þó hafði ekki verið gert
út um neitt: þarna var hann og þarna var hún. Þegar
hún horfði á hann, sá hún fyrsta skipti að hann var
þreytulegur og tekinn og ellimörk voru farin að sjást á
andlitinu sem henni hafði alltaf virzt svo unglegt. Svo
varð hún allt í einu gagntekin innilegri blíðu í hans garð,
sem samanstóð af meðaumkun, fyrirlitningu og móður-
tilfinningu. Hana langaði mest til að gráta, og allt í einu
teygði hún út handlegginn og neri skallablettinn á honum.
Lengi höfðu þau hent gaman að honum. Hann hreyfði
sig ekki, en hann bandaði henni ekki frá sér, og þegar hún
hallaði sér aftur á bak á ný leið henni betur. Svo heyrði
hún aftur regnhljóðið og í fyrsta skipti fann hún til ótta.
Hún vafði að sér kápunni. Síðan tók hún upp þriðja hana-
I
Kélumbus og Kólumbía
Framhald af 5. síðu.
til aðeins í styttingu. Á bak
við knappan stílinn leynir sér
gleði og stolt yfir því, að
nú var brotið blað í þekking-
arleit mannkynsins:
6. ágúst. Stýrið laust á
„Pintu“. Kólumbus tæpir á
skemmdarverkum.
6. september. Þrjár portú-
galskar hersnekkjur sitja fyr-
ir skipum aðmírálsins.
16. september. Veðrið eins
og í Andalúsíu í apríl. Haf-
ið þakið grænum gróðri
(menn voru komnir í Sara-
gossahafið).
20. september. Veiddur fugl,
Þáð er ekki sjávarfugl.
21. september. Hvalur sést.
25. september. Heldur að
land sjáist.
7. október. „Nína“ dregur
fánann upp og slcýtur einu
skoti sem merki um að land
sé fyrir stafni. Kólumbus:
sigldi í vesturátt í klukku-
tíma eftir sólarlag, 25 sjó-
mílur.
10. október. Áhafnirnar sár-
biðja aðmírálinn að snúa við.
11. október. Bambusreyr og
utskorin súla á reki. Rodrigo
de Pinta segir f.yrstur frá
landsýn. 12. október. Klukkan
2 að morgni landtaka. (Indí-
ánarnir kölluðu eyjuna Gu-
anahani, e. t. v. var þetta
Waltungseyjan í Bahama-
eyjaklasanum). 13. október.
Farið í land. íbúarnir kvik-
naktir, vel limaðir og vopn-
lausir. Aðmírállinn gefur þeim
rauðar liúfur og glerperlur og
spyr eítir gulli.
14. október. Ný eyja. Indí-
ánarnir halda að Spánverjar
séu komnir frá himnum. Að-
mírállinn sér, að hér er tæki-
færi til að frelsa sálir.
17. október. Allt er dásam-
lega ósnortið og gróðursælt.
Heyrir um „kóng“ klæddan
gulli. 21. október. Skipin
leggjast við festar hjá nýrri
eyju. Páfagaukar skyggja á
sólina. Kólumbus: Fer til
nýrrar eyjar, sem ég ætla
að sé Cipango (Japan). —
(Þetta var Kúba). 6. nóvem-
ber. Hittir fólk, sem heldur
á þurrum plöntum, sem það
reykir. — Það kallar þær
tobacos. Aðmírállinn kallar
eyjaskeggja indianos. Þetta
eru friðsamar óherskáar
manneskjur. Allt sem þær
eiga vilja þær láta af hendi
fyrir lítið.
brúar. Ægilegt óveður.
„Pinta“ hrekst af leið. Að-
mírállinn óttast skiptapa.
4. marz. Komast til Lissa-
bon í vonzkuveðri. Þegar það
spyrst að aðmírállinn komi
frá „Indíalöndum" þyrpist
fólk að til að skoða Indíán-
ana, sem Kólumbus hefur
meðferðis. 13. marz. Aftur í
Palos.
„Pinta“ kom nokkru síðar
en ,Nína‘, en Kólumbus hafði
skýrt hirðinni frá því, að
hann áliti Martin Alonza
Pinzon sekan um svik og
Pinzon fékk að vita, að ná-
vistar hans væri ekki óskað
við hirðina. Hann dó nokkru
síðar af gremju.
Ný för — sautján skip og
2000 menn. Heimkoman var
geysilegur sigur fyrir aðmír-
álinn. Allt sem hann hafði
meðferðis, síðast en ekki sízt
gullmolarnir, og orðsnilld hans
sigraði allt. Leiðangurinn
hafði verið furðu ódýr, áleit
Ferdínand konungur, hagnað-
ur virtist vera geysimikill. I
sigurgöngu meðal sólbrenndra
sjómanna, málaðra Indíána og
marglitra páfagauka hélt Kól-
umbus frá Sevillu til Kordóvu
og áfram til Barcelónu.
25. september lagði nýr
leiðangur af stað frá Cadiz,
þrjú stór skip og fjórtán
minni auk 2000 manna voru
þar i för. Þama voru saman
komnir ævintýramenn, lækn-
ar, prestar og háttsettir emb-
ættisinenn. Nú átti að nema
lönd og leita gulls.
Förin varð mikil vonbrigði.
Nýjar eyjar voru að vísu
lagðar undir spönsku krúnuna
en þegar til Espanólu kom
höfðu Indíánarnir brennt virk-
ið sökum yfirtroðslna og
ranglætis Spánverjanna þar.
Klofningur í röðum nýlendu-
manna fci’ váxandi, íbúarnir
voru hraktir og hrjáðir og
KólUmbus varð að feta í ann-
arra slóð til að ná „árangri“.
Hann lagði gullskatt á Indí-
ánana og þeir sem guldu ekki
var refsað stranglega. Hita-
sótt lagðist þungt á Spánverj-
ana og fregnir um ástandið
komust til heimalandsins. Þess
vegna var tekið á móti Kól-
limbusi lítt særhilega, þegar
hann kom heim áftur 11. júní
1496. Lýðhylli hans var minni
en áður.
ferð sína sem varð langerfið-
ust. Manntjón og skipa var
óstjórnlegt. Kólumbus leitaði
sunds nokkurs, svo að hann
gæti siglt í kringum hnöttinn.
En leiðangurinn varð þess
vegna sextán mánaða mar-
tröð.
Metsölubók gaf Ameríku nafn
Þegar aðmírállinn var horf-
inn af sviðinu tók þróunin á
eyjunum undir sig stökk.
Indíánarnir voru gerðir að
þrælum. Sumir létust úr inn-
fluttum sjúkdómum. Stundum
kom þó ýmislegt skringilegt
fyrir eins og þegar höfðingi
einn varð svo hrifinn af ka-
þólskum, latneskum bænum,
að hann skipaði fjölskyldu
sinni að jæra þessar galdra-
þulur og þylja þær allan dag-
inn. En frásagnir af húð-
strýkingum, og hvernig
drukknir spánskir riddarar
hentu konur og börn á spjóts-
oddum lýsa betur ástandinu.
Hinn virðulegi munkur Bart-
olomes las Casas skýrir frá
því skelfingu lostinn að „tólf
milljónir Indíána hafi látizt
vegna óhæfuverka Spán-
verja.“ Á Espanólu bjuggu 3
milljónir manna, nokkrum ár-
um síðar voru aðeins 300 eft-
ir. Yfir þessa þjóð komu
Spánverjar eins og þegar
tígrisdýr, Ijón og úlfar ráðast
á iömb og kiðlinga.
Svo gersamlega ^leymdist
Kólumbus, að frægasta sagn-
ritara, samtímans, Peter Mar-
tin, sem þá dvaldist í Valla-
dolid fannst andlát hans ekki
annálsvert. Hin nýja álfa var
ekki einu sinni kennd við Kól-
umbus. Flórenskur ævintýra-
maður og gortari reit met-
sölubók um ferð sína til Vene-
zuela og eftir honum var álf-
an heitin. En þessi ómerki-
lega bók komst í hendur
smásmugulegs Þjóðverja og
hann lagði til árið 1507:
Eg sé ekki neina ástæða
til þess að við köllum ekki
þetta land Ameriku, það er
land Ameríkusar, eftir hinu
skarpskyggna landkönnuði
Ameríkusi.
Þar sem nú heitir Kólum-
bía steig Kólumbus aldrei fæti
sínum.
TIL
23. desember. Fregnir um
gullfund á Espanola (Haiti)i
25. desember. „Heilög Mar-
ía“ hleypir á grunn, veltur,
stórsiglan brotnar, skipið
glatað með öllu. Indíánarnir
hjálpa til með afferminguna.
Höfðinginn huglireystir að-
mirálinn og biður hann að
taka sér þetta ekki of nærri.
2. janúar 1493. Reisir virkið
La Navidad á Espanolu. Skil-
ur eftir 30 menn til að leitá
gulls.
4. janúar. Leggur heim á
leið á „Nínu“. 6. janúar. Hitt-
ir hið horfna skip ,,Pinta“.
Aðmírállinn heldur því fram,
að skipstjórinn hafi skilið við
þá til að leita gulls. 14. fe-
í lilekkjum.
Samt lagði aðmírállinn enn
af stað, en hafði aðeins sex
skip til umráða. Bæði í heima-
landinu og nýlendunum var
unnið gegn honum, og er Kól-
umbus kom í þrlðja sinn
heim 1. október árið 1500,
var hann í járnum. Ferdín-
and hafði skipað Francisco
Babadilla landstjóra Espan-
olu, og hinn nýi landstjóri
hafði þegar gripið tækifærið,
liandtekið Kólumbus og
hlekkjað.
Sþánskir hirðmenn urðu
skelfingu lostnir sökum þessa.
Kólumbus var endurreistur
með nokkrum hætti, og 9.
maí 1502 hélt hann í síðustu
LIGGUR LEIÐIN
Munið Kaffisöluna
í Hafnarstrætl 16.
ÐSOÐVILJINN Steclanrtl: Samelntnsarnokkur alÞífa — SöslaUstanokkurlnn. — mtstjórar: Uagnúa KJartans*o»
m (6b.». SlaurSur Oufiniundsaon. — Vréttarltatjórl: Jón BJamason. — Blaöamenn: Ásmundur Slffur-
lónsson, BJami Benedlktsson, QuBmundur Vlgtússoa, frar H. Jónsson. Magnús Torfl Ólafsson. —
A.UBlý«lngaRtJón: Jónatalnn Haráld6son. Hltstjórn. aferelSsla, auglýslnsrar, prentsmlöja: SfeólavörCustíg 19. — Bím) 7500 (3
Unur). — AsknftarvarB kr. 25 4 minuSi 1 Rerkjavlk oz n&grennl: kr. 22 «m«»»itaBak. — x«uuufiluv*rB V- i. _ »-»nt*a,tgj»
I>J6SvUJans h .f.