Þjóðviljinn - 10.08.1956, Side 8
Hvarvetna í Sovétríkjimum eru friðar-
málin íhúunum afar ríkt áhugaefni
Alit íslenzku friðarsendinefndarinnai. sem lagði af stað heim-
leiðis frá Moskva aðfaranótt miðvikudags
ríkjunum. Með það fyrir augum
áttum við ekki einungis tal við
Framhald á 6. síðu.
íslenzka sendinefndin, sem dvalizt hefur í Sovétríkjun-
um undanfarnar 3 vikur lagði af stað heimleiðis frá
Moskva aðfaranótt s.l. miðvikudags. Sömu nótt lagði ís-
lenzka kvennasendinefndin af stað frá Moskva áleiðis til
Armeníu.
Þorsteinn Einarsson íþrótta-
fulltrúi er nú einnig staddur í
Sovétríkjunum í sambandi við
hina miklu íþróttahátíð, sem
þar er haldin um þessar mund-
ir og nánar er sagt frá á 3.
síðu.
Álit seiulinefndariiinar
Sendinefndin sem dvalizt hef-
ur í boði rússnesku friðarnefnd-
arinnar sat fund með henni á
þriðjudaginn og afhentu ís-
lenzku nefndarmennirnir þá
eftirfarandi álit sitt að lokinni
dvölinni í Sovétríkjunum:
Sendinefnd sú frá Íslandi,
sem boðin var s.l. vor til Sov-
étríkjanna af friðarnefndinni í
Moskva og ferðazt hefur um
Sovétríkin síðan 20. júlí s.l., er
nú að ijúka dvöl sinni hér.
Nefndin hefur ferðazt mikið á
fyrrgreindum tíma og dvalið á
eftirtöldum stöðum: Leningrad,
Moskva, Stalingrad, Rostov,
Súkhomi og Tíflis. Dvöl á ein-
st.ökum stöðum hefur verið frá
einum degi upp í 6 daga.
Á öllum stöðum þar sem við
komum var sendinefndinni tek-
ið af innilegri alúð og vinsemd.
Friðarnefndir áðurnefndra
staða tóku hvarvetna á móti
okkur, voru með okkur meira
og minna þann tíma sem dval-
izt var á hverjum stað og
sýndu okkur margt það mark-
verðasta, sem komizt. var yfir
að sjá á þeim tíma sem við
höfðum yfir að ráða. Auk þess
var nefndinni sýnd frábær
60 ísienzkar konur
í Danmerkurferð
í dag leggja 60 íslenzkar
ihúsmæður af stað héðan áleið-
is til Danmerkur þar sem þær
munu sitja þing Húsmæðrasam-
bands Norðurlanda er haldið
verður í N.vborg Strand á
Fjóni. Konurnar fara héðan á
vegum Kvenfélagasambanda ís-
lands og verður Rannveig Þor-
steinsdóttir fararstjóri. Þingið
á Fjóni verður sett n.k. þriðju-
dag, en eftir það gefst þátt-
takendum kostur á að fara í
nokkurra daga ferð um Dan-
mörku. Islenzku konurnar
munu ikoma heim í byrjun næsta
mánaðar.
Timbri stoliS
í fyrrinótt var nokkru af
timbri stolið frá blokkbyggingu
sem er í smíðum við Gnoðavog.
Stolið va.r 125 borðum þuml-
ungsþyfckum og sex þumlunga
breiðum. Stóðu þau í stórum
timburhlaða, og voru rifin úr
honum. Bíl hafði verið ekið að
ihlaðanum.
Það eru tilmæli rannsóknar-
lögreglunnar að þeir, sem kynnu
a.ð geta gefið upplýsingar um
stuldinn, geri það nú þegar.
gestrisni og vinsemd viðsvegar
á einkaheimilum verkamanna
og bænda.
Með áðurnefndu heimboði
kvaðst friðarnefndin í Moskva
vilja gefa íslenzku sendinefnd-
inni sem bezt færi á að kynnast
afstöðu og skoðunum alþýðu
Sovétríkjanna til friðarmálanna
í heiminum. Ætlun okkar var
og sú að fræðast um þessi efni
meðan við dveldumst í Sovét-
Rannsóknarnefnd
á fyrsta fundi
Rannsóknarnefnd á milliliða-
gróða sem kosin var á Alþingi
rétt fyrir þinglokin í vor kom
saman til fyrsta fundar í fyrra-
dag og réð þá Berg Sigurbjorns-
son starfsmann sinn. í nefnd-
inni eiga sæti Gylfi Þ. Gísla-
son menntamálaráðherra . for-
maður, Bergur Sigurbjörnsson
ritari, Skúli Guðmundsson,
Magnús Jónsson og Sigurður
Bjarnason.
Siglfirðingar
sinna heyskap
Siglufirði. Frá frétta-
ritara Þjóðviljansi
Eftir að veður batnaði og
stytti upp rigninguna, sem var
um daginn, hafa flestir þeir
sem eiga kindur hér farið að
slá og sinna heyskapnum í frí-
stundum sínum. Er spretta orð-
in þolanleg hér í firðinum, en
afar léleg t.d. á Siglunesi, en
þar hefur kuldans og næðings-
ins gætt meira en hér í firð-
inum.
Staðan á skákmóti
í Kaupmannahöfn
Á skákmótinu í Kaupmanna-
höfn er staðan nú þannig: Lar-
sen hefur 6V2 vinning, Fuchs
hefur 4‘/2, Enevoldsen, Russel
og Berthold hafa 3l/2 vinning,
Nielsen og Pedersen hafa 3
vinninga, Freysteinn, Ingi og
Burmeister hafa 2 /2 vinning.
hiðmnuiNN
Föstudagur 10. ágúst 1956 — 21. árgangur — 179. tölublað
Bannað að fara til Kína
Óánægja meðal bandarískra fréttamanna
í Hong Kong og Japan
Bandarískum blaða- og fréttamönnum sem starfa í
Hong Kong og Japan hefur verið boöið í för til Kína, en
bandaríska utanríkisráðuneytiö hefur neitaö þeim um
leyfi til þess að takast þessa för á hendur.
Neitun þessi hefur valdið
mikilli óánægju meðal frétta-
mannanna, því að þetta er í
fyrsta sinn síðan Kínverska al-
þýðulýðveldið var stofnað að
Pekingstjórnin býður banda-
rískum fréttamönnum til Kína.
Mótinæli
Samtök blaðamanna hafa
hafa. sent Dulles, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, harðorð
mótmæli sökum þessa atburðar,
og telja þau neitun þessa ekki
samrýmast frelsishugsjónum
bandarísku þjóðarinar.
Utanrikisráðuneyti Bandaríkj-
anna hefur lýst því yfir fyrir
sína hönd, að sökum þess að
stjórnmálasamband sé ekki
milli Kína og Bandaríkjanna,
geti Bandaríkjastjórn ekki á-
byrgzt öryggi fréttamannanna.
Á þessum grundvelli hafi hún
neitað fréttamönnunum um far-
arleyfi.
Aösókn aö málverkasýningu Sveins Björnssonar í Lista-
mannaskálanum hefur veriö góö og margar myndir sélzt.
Hér er mynd af einu málverkanna á sýningunni, sem
opin veröur til 20. þ.m. daglega kl. 10—/*r.
Fundur norrænna veitmga- og gisti-
hnsaeigenda haldinn í Reykjavíh
á mánudag og þriðjudag í næsfu víku
Á mánudag og þriðjudag í næstu viku verður haldinn
hér í Reykjavík hinn árlegi fundur norrænna veitinga-
og gistihúsaeigenda.
Það eru samtök veitinga- og
gistiliúsaeigenda á Norðurlönd-
unum fimni sem að fundi þess-
um standa, en hann er eins og
fyrr segir haldinn árlega, til
skiptis í hverju hinna einstföku
Norðurlanda. Samband veitinga-
og gistihúsaeigenda hér á landi
hefur verið aðili að norrænu
samtökunum síðan 1947 og einu
Lokomótíf -
Winnipeg 10:0
Þær fregnir hafa boriz-t frá
rússneska knattspyrnuliðinu
Lokomótíf sem hér var um
daginn, að það lék í borginni
Winnipeg i Kanada í fyrradag
og vann með 10 mörkum gegn
engu.
Gagnrýnir
stjórnarsamstarf
f ræðu sem Leskinen, aðal-
ritari finslca sósíaldemókrata-
flokksins, flutti nýlega gagn-
rýndi hann stjórnarsamstarf
sósíaldemókrata. og Bænda-
flokksins. Þótti honum ráðherr-
ar sósíaldemóikrata undir of
ríkum áhrifum Bændaflokks-
manna og ekki leggja nógu
mikla áherzlu á iðnvæðingu
landsins. En alvarlegt ástand
væri í atvinnumálum landsins.
Til dæmis hefðu 70.000 Finnar
orðið að leita sér atvinnu í Sví-
þjóð. Gera yrði ráðstafanir til
að ráða bót á ástandinu.
Mestur verðmismunur á hrísmjöli og
hrísgrjónum í smásöluverzlunum
Einnig er talsvert mismunandi verð
á sveskjum og tei
Hæsta og lægsta smásöluverð
ýmissa vöi-utegunda í nokkrum
smásöluverzlunum í Reykjavík
reyndist vera 1. þ.m. sem hér
segir: (I fremsta dálki er lægst
verð, í öðrum dálki hæsta verð,
en vegið meðalverð í þeim
þriðja, miðað við kg. nema
annað sé tekið fram).
Rúgmjöl 2.40 2.55 2.40
Hveiti 2.75 3.30 3.14
Haframjöl 3.30 3.85 3.68
Hrísgrjón 4.80 6.20 5.21
Sagógrjón 4.80 5.85 5.23
Hrísmjöl 2.95 6.10 5.10
Kartöflumjöl 4.65 5.15 4.85
Baunir 5.70 6.10 5.90
Te ys lbs. ds. 3.65 6.00 4.78
Kakao V2lbs.d. 9.50 11.70 10.06
ICaffibætir 21.00 22.00 21.06
Suðusúkkulaði
76.00 77.00 76.97
Molasykur 4.90 5.80 5.49
Strásykur 2.80 3.85 3.65
Púðursykur 3.50 4.05 3.78
Rúsínur 16.00 23.20 22.23
Sveskjur 70/80
24.00 27.80 25.61
Sítrónur 18.00 20.00 19.03
Þvottaduft útl.
350 gr. pr. pk. 6.10 7.25 7.02
Þvottaduft innl.
250 gr. pr. pk. 2.85 3.85 3.64
Á eftirtöldum vörum er sama
vorð í öllum verzlunum:
Kaffi brennt & malað pr. kg.
kr. 44.80.
Mismunur sá er fram kemur
á hæsta og lægsta smásölu-
verði getur m.a. skapazt vegna
tegundamismunar og mismuna
innkaupa.
(Frá skrifstofu verðgæzlustj.)
sinni áður hefur ársfundur sam-
takanna verið haldinn hér á
landi, árið 1951.
Á funjáinum hér í Reykjavík
verða rædd ýmis sameiginleg
hagsmunamál norrænna veit-
inga- og gistihúsaeigenda. Full-
trúar á fundinum munu verða
um 20 talsins, þ.á.m. Villads
Olsen, formaður danska sam-
bandsins og forseti heimssam-
taka gistihúsaeigenda. Innan
alþjóðasambandsins eru nú tal-
in 120 þús. fyrirtæki og ein-
staklingar.
Gistirúmum fækkar
Sjálfsagt verður á fundinum
vikið að ástandinu í gistihúsa-
málunum hér á landi, en það er
sem kunnugt er harla bágborið,
einkum í Reykjavík. Þess má
t.d. geta að síðan 1930, er
íbúar höfuðstaðarins voru nær
helmingi færri en nú, hefur
gistiherbergjum í bænum fækk-
að! Þá voru hér starfandi fjög-
ur hótel, nú eru þau þrjú: Hót-
el Borg með 36 herbergjum,
Hótel Vík með 25 og Hótel
Skjaldbreið með 26. Auk þess
eru svo stúdentagarðarnir starf-
ræktir fjóra mánuði á sumrin
sem gistihús, en þar eru 90
herbergi. Ástandið í gistihúsa-
málum úti á landi hefur hins-
vegar batnað á nokkrum stöð-
um á sl. árum, risið hafa upp
ágætis gistihús við Hreðavatn,
á Akranesi og í Borgarnesi.
Fjórar ferðir
Ferðafélagsins
Ferðafélag íslands efnir til
fjögurra skemmtiferða um
næstu helgi. Tvær ferðirnar
eru hálfs annars dags, þ.e. í
Þórsmörk og Landmannalaug-
ar. Þá er 2l/o dags ferð um
Kjalveg til Hveravalla og loks
9 daga óbyggðaferð.