Þjóðviljinn - 12.09.1956, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 12.09.1956, Blaðsíða 1
■VILIINN Mið\ikudagur 12. september 1956 — 21. árg. — 207. tölublað Islendingar ip- uðu fyrir Belguiu Tefla næst við Chile Bretar og Frakkar reyna að stöðva alla umferð skipa um Súezskurðinn Hœtta á oð jbe/V gerl jboð til oð fá átyllu til oð ráSast með her gegn Egyptum, — eru andvigir ihlutun SÞ íslendingar töpuðu í gær fyr- ir Belgum á olympíuskákmót- inu í Moskvu með iy2 :2Vfc.' Friðrik gerði jafntefii við O’Kelly, Ingi gerði jafntefli við Limbos, Baldur gerði jafntefli við Tibo, en Sigurgeir tapaði fyrir Boye. Næst te la Islendingar við Chile, sem þeir töpuðu fyrir með 1:3 í undanrásinni. Enn voíir sú hætta yfir, að Bretar og Frakkar kveiki ófriðarbál í heiminum með því að fara með stríði á hendur Egyptum. Ákvarðanir sem sagðar eru hafa verið teknar á fundi ráðamanna þeirra í London í gær og fyrradag eru þess eðlis að hætta er á að afleiðingar þeirra verði notaðar sem átylla til að ráðast með her manns á Egypta. Viðræðum þeirra Mollet og ÍPineau, forsætisráðherra og utanr í k i s r áðhe r r a Frakklands, og Edens og Lloyds, forsætis- ráðherra og utanríkisráðherra' Bretlands, sem hófust seinni partinn í fyrradag lauk skömmu eftir hádegi í gær og héldu frönsku ráðherrarnir þá iþegar heimleiðis. 1 tilkynningu sem gefin var út um viðræðurnar segir, að ráðherrarnir hafi verið á einu máli um það að neitun Nassers forseta að fallast á samninga á grundvelli tillagna meiri- ihlutans á Lundúnaráðstefn- unni um Súezmálið hafi skapað injög alvarlegt ástand. Segjast ráðherramir hafa rætt um hvaða ráðstafanir skuli nú gerðar og hafi þeir náð algeru samkomulagi. „Með öllum viðeigandi raoum . Ráðherrarnir lýsa yfir þeim ásetningi sínum að halda áfram aáinni samvinnu í þessu máli og „að svara með öllum við- eigandi ráðum hverri gerrseðis- legri ráðstöfun sem brjóti í bága við þau réttindi sem tryggð eru í alþjóðasamning- um og hverri aðgerð sem sam- kvæmt orðum sáttmála Samein- uðu þjóðanna sé ósamrímanleg réttlæti og virðingu fyrir þeim skyldum sem stafi af samning- um og öðrum undirrótum al- þjóðaréttar". Fréttamenn í Washington segja að þar sé litið svo á, að með orðunum „með öllum við- eigandi ráðum“ sé einnig átt við beitingu hervalds og að talið sé að orðalagið „gerræð- isleg ráðstöfun“ eigi við hverja aðgerð egypzkra stjórnar- valda til að trufla siglingar um skurðinn. (Hafa verður í huga í þessu sambandi, að það er fjarri að egypzka stjórnin hafi nokkru sinni gefíð í skyn að hún ætli að hindra frjálsar siglingar skipa um skurðinn, hún hefur þvert á móti hvað eftir annað lýst yfir, að hún muni í einu og öllu halda á- kvæði Miklagarðssamningsins frá 1888 í heiðri). Starfsmönnum skurðarins skipað að hætta störfum. 1 gær birti stjórn hins gamla Súezskurðarfélags tilkynrúngu í París þess efnis að hún hefði heimilað öllum starrsmönnum sem vinna við skurðinn og ekki eru egypzkir þegnar að hætta störfum nú í vikulo cin og ráð- lagt þeim að hverfa heim og leita aðstoðar sendimanna landa sinna í Kaíró ef þess gerðist þörf. Brezka utanríkisráðuneytið tilkynnti í gær, að þessi til- kynning og ákvörðun um heim- sendingu starfsmannanna. verkfræðinga og hafnsögu- manna, hefði verið tekin af stjóm Súezskurðarfélagsins, og ættu stjórnir Bretlands og Frakklands þar engan hlut að máli. Þessi yfirlýsing utanríkis- ráðuneytisins er furðuleg hræsni, þar sem brezka og franska stjómin eiga yfirgnæf- andi meirihluta hlutabréfanna í Súezskurðarfélaginu og alger- an meirihluta í stjóm félagsins. Þegar Súezskurðurinn var þjóðnýttur bað hin brezk- franska stjórn félagsins fyrst alla starfsmenn hans sem ekki voru egypzkir þegnar að hætta Bandaríkin viðurkenna að Bretar og Frakkar hafi „rétt" til að beita hervaldi Eisenhower Bandaríkjaforséti hélt vikulegan fund sinn með blaðamönnum í gær og var mik- ið rætt um Súezmálið, sem búast mátti við. Eiscnhower sagði aðspurður, að Bandaríkjastjórn viðurkenndi rétt Bretlands og Frakklands til að beita valdi til að lialda Súez- skurðinum opuuiu. ef öll við- leitni til að leysa deiluna á frið- samlegan hátt bæri engan ár- angur. Eisenhower lýsti enn yf- ir þeirri von sinni, að samning- ■ ar tækjust um friðsamlega lausn deilunnar. Súezmálið til umræðu á brezlía þinginu í dag í dag koma báðar málstofur brezka þingsins saman á fund til að ræða um Súezdeiluna. Þing- ið var kvatt saman fyrir ein- dregna ósk og kröfu Verka- mannaflokksins. Leiðtogar þingflokks Verka- mannaflokksins, „skuggaráðu- neytið“ svonefnda, komu saman á fund í gær til að skipuleggja málflutning stjómarandstöðunn- störfum, en sneri aftur við blaðinu þegar hún eygði von til að knýja Egypta til undan- halds, og heimilaði þeim að vera áfram í Egyptalandi fram í miðjan þennan mánuð. Tæpur helmingur nú í Egyptalandi. Þegar skurðurinn var þjóð- nýttur störfuðu við hann 526 hafnsögumenn og verkfræðing- ar, og voru 463 þeirra erlendir. Meira en helmingur útlending- anna, þaraf 60 hafnsögumenn, voru þá erlendis í orlofi og eru það enn. Nú munu rúmlega 100 erlendir hafnsögumenn vera í Egyptalandi. en 40 egypzkir. Langflestir hafnsögumenn og verkfræðingar skurðarins voru franskir, eða 311, en 72 Bret- ar, 70 Svisslendingar og 17 Norðurlandamenn. Ef allir erlendu hafnsögu- mennirnir verða við fyrirmæl- um hins gamla Súezskurðarfé- lags má búast við því, að mikl- ir örðugleikar verði á að halda uppi siglingum um skurðinn, en rúmlega 40 skip fara að jafn- aði um hann á hverjum degi. Framhald á 5. síðu. ar i umræðunum, sem munu að líkindum standa í 2—3 daga. Leiðtogar flokksins hafa skipt um skoðun á Súezdeilunni síð- ustu vikur. Daginn eftir þjóð- nýtinguna lofaði Gaitskell, for- maður þingflokksins, stjóminni fullum stuðningi í málinu og var sízt mildari í garð egypzku stjórnarinnar en Eden. Leiðtogar Verkamannaflokksins hafa hins- vegar látið undan þeim tvímæla- lausa vilja brezks almennings að komið verði í veg fyrir að deil- an leiði til styrjaldar, og þeir munu nú krefjast þess, að brezka stjórnin grípi ekki til neinna örþrifaráða nema með því skilyrði að hún hafi til þess fullt samþykki Sameinuðu þjóðanna. Það er ekki fjarri lagi að tala um að borgarastríð geisi nú í suðurfylkjum Banda- ríkjanna. Hvað eftir annað hefur orðið að senda öflugt herlið, m. a. vopnað skrið- drekum til ýmissa borga þar í því skyni að koma í veg fyrir að óður skríll hindri framkvæmd landslaga um jafnan rétt allra bama til náms í skólum sem reknir eru fyrir almannafé. — Myndin er af skriðdrekasveit á leið um aðalgötu bæjarins Clinton í Tennessee. 5 íslenskir ténlist armeno boðnir tíl Sovéiríkiaima Menntamálaráðun.eyti Sovét- ríkjanna hefnr boðið 5 íslenzk- um tónlistarmönnum til Sovét- ríkjanna og munu þeir fara sneiiuna á næsta ári. Tónlistarmenn þessir eru Páll ísólfsson, Stefán Islandi, Guðiún Á. Símonar, Þuríður Pálsdóttir og Rögnvaldur Sigurjónsson. Ráðgert er að Stefán íslandi og Guðrún Á. Símonar fari í janúar n.k. en Páll ísólfsson, Þuríður Pálsdóttir og Rögnvald- ur Sigurjónsson í aprílmánuði. HfiPPDRETTI PJOÐUILJRIIS 1 gær bárust blaðinu 2000 krónur. Afniælishappdrættið fer vel af stað. Dreifingu á núna að vera lokið í öllum bænum og útsþlumönnum hafa verið send- ir iniðar. Það er mjög áriðandi að all- ir, sem geta, geri skil sem allra fyrst, þar sem margháttaðar greiðslur, m.a. vegna þessa glæsilega happdrættis þola enga bið. Einn góður vinur blaðsins kom á skrifstofuna í gær og gerði upp fyrir 10 blokkir, greiddi 1000 krónur. Annnr kaupandi sagði þetta um leið og hann greiddi sína miða: „Við munum á verðugan liátt minnast 20 ára afniælis Þjóð- viljans, því að aldrei höfum við notið í ríkari mæli ávaxtanna af baráttu blaðsins en einmitt í dag. Það sýna meðal anmirs skrif Morgunblaðsins þessa dagana“. Ilafi einhver ekki enn fengið miða, sem gjarnan vill le^gjn, blaðinu lið, þá er hann vinsoni- lega beðinn að gera skrifsíoí- unni aðvart í síma 7500 og munum við þá senda blokkir heim.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.