Þjóðviljinn - 12.09.1956, Síða 4
E$PER3NTO
Er hiim mikli mannvinur,
pólski læknirinn dr. Zamenhoff,
gaf heiminum alþjóðamálið
Esperanto fyrir 69 árum, þá
var ein aðalástæðan fyrir
þessu mikla afreksverki hans
sú, að hann hugðist skapa með
því tæki, sem borið gæti sátt-
arorð á milli hinna sundur-
leitu kynþátta sem bjuggu í
landi hans, og mæltu hver á
sína tungu svo sífelld misklíð
og misskilningur ríkti meðal
nágranna er þeir gátu ekki
skilið hver annan, eða þóttust
of góðir tíl að skilja mál hins.
— ESPERANTO, alþjóðamál-
ið auðvelda, sem dr. Zamenhoff
grundvallaði, hefur því frá
upphafi vegar síns haft það
mark og mið að bera sáttarorð
á milli manna og vera boðberi
friðar á jörðu. — Það hefur nú
þegar lifað nær sjö tugi ára og
er orðið alheimsmál í raun og
sannleika, því menn frá hundr-
uðuin þjóða nota það til hinna
margvíslegustu samskipta sín á
milli, bæði í ræðu og riti.
Róstutímar heimsstyrjald-
anna tveggja töfðu mjög fyr-
ir framgangi þess, en tímabilin
á milli þeirra og eftir hafa
mjög lyft undir útbreiðslu þess,
og þá einkum meðal hinna
smærri þjóða, sem sjá í því
möguleika á að spoma gegn
áhrifum og yfirgangi stórþjðða-
tungnanna, sem beint og óbeint
leitast við að setja sín mörk á
mál smáþjóðanna og útrýma
þeim og skapa þar með þjóð-
um, sem hinar útbreiddari
tungur eiga að móðurmáli,
hagsmunalega yfirburðaaðstöðu
vegna málsins, — Þess vegna
hefur útbreiðsla Esperantos
verið öflugust, einmitt meðal
þjóða eins og Hollendinga,
Belga, Svía, Ungverja, Júgó-
slava og margra annarra í
Evrópu. Meira að segja í Bret-
landi hefur esperantohreyfing-
Sn verið sterk og kennsla þess
fastbundin sums staðar í op-
Inberum skólum.
Þó er ekki að synja fyrir
það, að ýmsir áhrifamenn með-
al hinna smærri þjóða, sem lit-
ið hafa til þess hvílíkt hags-
munamál er fyrir stórþjóð að
eiga tungu sem er útbreidd,
hafa hamlað gegn Esperanto,
til þess, ef verða mætti, að
þeirra eigin þjóðtunga ætti þá
betri útbreiðslumöguleika, svo
sem sannar dæmið um and-
stöðu Frakkans og Danans
gegn Esperanto á UNESCO-
þinginu í Montevideo, er sam-
þykkt var að mæla með Esper-
anto sem tungu til að túlka á
þingi S.Þ. Þó er Esperanto
töluvert töluvert útbreitt bæði
í Frakklandi og Danmörku.
Þótt við esperantistar skilj-
um manna bezt að þróun al-
þjóðamálsins verði ekki stöðv-
uð héðan af, gleymum við ekki
að gleðjast í hvert skipti, sem
nýr vottur um viðurkenningu
á nytsemi þess kemur fram.
— Slíkt hefur sem sé gerzt ný-
lega í Sovétríkjunum. — Fyr-
ir seinni heimsstyrjöldina var
þar þó nokkuð öflugur félags-
skapur Esperantista, en um
mörg ár hefur hann víst lít-
ið starfað, iíklega af stjórn-
málaástæðum. — En nú fyrir
stuttu barst mér í hendur bréf
þess efnis að esperantistar þar
hygðust á ný vinna að út-
breiðslu málsins.
Eins og kunnugt er hefur
æskufólk frá mörgum löndum
safnazt saman á undanförnum
árum í ýmsum svokölluðum
„austantjaldslöndum“- á mót
sem nefnd hafa verið „heims-
mót æskunnar". — Þar hefur
komið í ljós að „yfirburðir"
þjóðtungnanna hafa lítt getað
hamlað gegn kostum Esperant-
os.
Bréf það, sem ég geri hér
að umtalsefni, er frá æskulýðs-
samtökum í Leningrad, og læt
ég það fylgja hér með í ís-
lenzkri þýðingu. Efni þess
skýrir sig sjálft. Vil ég geta
þess hér, að bréf þetta ásamt
Hér eru dansarar að sýna
listir sínar á torgi í Lhasa,
höfuðborg Tíbets, en í bak-
sýn sést Potala-höllin, að-
setur Dalai Lama. Dansinn
er æfaforn, en yzt á mynd-
inni tíl vinstri má sjá mann
með kvikmyndavél; þannig
mætist gamalt og nýtt í
hinu „Iokaða“ landi.
*
þessari greinargerð minni um
gagnsemi Esperantos, sendi ég
öllum dagblöðum í Reykjavík,
í trausti þess að þau birti hana
lesendum sínum, eingöngu sem
sýnishorn um útbreiðslu Esper-
antos, en ekki í pólitískum til-
gangi.
Fer svo bréfið hér á eftir:
” ' m
ÁVARP frá æskulýðs-
samtökum í Leningrad:
Til alls æskufólks og
allra æskulýðshópa,
sem ætla að taka þátt
x „Heimsmóti æskunn-
ar“ í Moskvu árið 1957:
Kæru vinir!
Æskulýður Leningradbo’rgar,
sem nú býr sig undir sjötta
Heimsmót æskunnar í Moskvu
árið 1957, hefur skipulagt á-
hugamannahljómsveit. — Yfir
100 æskumanna taka þátt í
hljómsveitinni: hljómsveitar-
menn, söngvarar, dansarar,
upplesarar, trúðleikarar, fjöl-
listarmenn, brúðuleikarar og
aðrir sem kynna sundurleitustu
tegundir lista; einnig áhuga-
menn um tónlist, skáld, leik-
ritahöfundar og málarar.
Við hópfélagarnir, ungir karl-
ar og konur, verkamenn, starfs-
menn, stúdentar, fórnum list-
inni allri ást okkar og hæfi-
leikum og öllum frístundum
okkar án endurgjalds.
Við erum að undirbúa stórt
tímarit sem við vonum að
ykkur falli í geð.
Við stingum upp á að við
höfum kynningarsamband við
ykkur fyrir heimsmótið og við
Framh. á 9. síðu
Hryssingsleg framkoma læknis — Læknar eru mis"
jafnlega færir eins og aðrir menn — Yngstu börnin
byrjuð í skólunum
MÓÐIR skrifar: „Kæri Bæjar-
póstur; Mig langar til að
skýra í stuttu máli frá því,
þegar ég fór með son minn
til læknis nú fyrir skömmu.
Drengurinn, sem er sex ára,
hafði nú um nokkurn tíma
kvartað um þreytu í öðrum
fætinum, og gekk hálf haltur
öðru hvoru.
Ég fór svo með hann til
heimilislæknis míns, en hann
var þá ekki við, annar læknir
gegndi störfum fyrir hann um
tíma. Ég tjáði honum að ég
ætlaði að biðja hann að líta
á drenginn minn. „Nú, hvað
er að stráknum ?“ spurði
læknirinn heldur stuttur í
spuna. Ég sagði honum sem
var, að drengurinn kvartaði
um þreytu í fætinum og gengi
hálf haltur. „Þetta er hara
uppgerð í stráknum, hann er
alveg sýnilega stálheilbrigð-
ur, — bara uppgerð og leti,
kona góð“, sagði læknirinn
stuttaralega. Mér þóttu þetta
í meira lagi kaldar viðtök-
ur, en bað lækninn þó að
skoða drenginn. Gerði hann
það með hangandi hendi og
tilkynnti síðan að ekkert væri
að stráknum, og við svo búið
fór ég. Leitaði ég svo annars
læknis, og tók hann okkur
með mesíu ljúfmennsku, og
skoðaði drenginn nákvæm-
lega, fann hvað að var og
gerði ráðstafanir til að ráða
bót á því. Nú vildi ég spyrja:
Eru heimilislæknar fólks ekki
skyldugir til að skoða fólk,
ef það biður þá um það?
Hafa þeir nokkra heimild til
að segja sem svo: Þetta er
bara uppgerð, að óathuguðu
máli, þótt börn eigi í hlut?
Tilheyrir það ekki einmitt
starfi læknanna að fylgjast
með heilsufari fólks og a.m.k.
reyna að ráða bót á þeim
meinum, sem þeir finna?
Þess eru því miður allt of
mörg dæmi, að læknar þekki
þá fyrst sjúkdóma (t.d. syk-
ursýki, magasár, o.fl.) hjá
fólki, sem gengið hefur til
þeirra lengi, þegar í óefni er
komið, og maður freistast til
að álykta, að í’annsókn þeirra
sé ekki alltaf eins sam-
vizkusamlega gerð og skyldi.“
LÆKNAR eru vafalaust
misjafnlega færir og sam-
vizkusamir í starfi sínu, eins
og aðrir menn. En jafn-
hryssingsleg framkoma og sú,
sem bréfritari segir frá, hygg
ég að sé sjaldgæft fyrirbæri,
sem betur fer. Og slík fram-
koma virðist mér með öllu ó-
afsakanleg. Það er afsakan-
legt, þótt læknunum skjátl-
ist stundum í greiningu sjúk-
dóma, en það er varla til of-
mikils mælzt, að þeir isýni
fólki, sem til þeirra leitar
fyllstu nærgætni.
EN NÚ ERU yngstu skóla-
börnin nýbyrjuð í skólunum,
og það er alltaf talsverður
viðburðnr, þegar maður byrj-
ar skólanámið. Þau eru líka
æði ábyrgðarfull á svipinn,
þegar maður mætir þeim á
götunni, sex og sjö ára
börnin, með spánnýjar skóla-
töskur undir hendinni, og
Gagn og gaman, blýant,
strokleður og skrifpappír í
töskunum. Langflest þeirra
hlakka til „að vera í skóla“
og vænta sér góðs af kynn-
ingunni við kennara og
skólasystkin. Ef til vill eru
sum þeirra þegar farin að
þekkja stafina og jafnveí
stauta dálítið, en flest eru þó
sennilega algerir byrjendur,
með öllu ókunnug nöfnum
hinna ýmsu bókstafa og
þeirri flóknu kúnst að raða
þeim saman og búa til orð.
En hvað um það. Pósturinu
óskar þeim öllum góðs geng-
is í skólanum og vonar að
þeim gangi vel að verða læs.
Það er nefnilega hin bráð-
nauðsynlega undirstaða undir
allt annað skólanám.
vmmms
j&&mm3OEtta£t0ðti
Minningarkortln era til söln
i skrifstofa Sósíalistaflokks-
ins, Tjarnargöta 20; afgreiftslni
Þjóðviljans; Bókabúð Kron;
Bókabúð Máls og menningar,
Skólavörðustíg 21; og í Bóka-
verzlan Þorvaldar Bjamason-
ar í HafnarfirðL
Munið Kaffisöluna
í Hafnarstræti 16.
| Húsnæði
Tékkneska sendiráðíð
óskar eftir a'ð fá leigða íbúS með húsgögnum, sem
j fyrst. íbúðin óskast aðeins leigö í 1—2 mánuði.
j Upplýsingar gefnar í síma 82823 miiii kl. 10 og 12
j og 2 og 4 næstu daga.