Þjóðviljinn - 16.11.1956, Síða 2
2)
r
ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 16. nóvember 1956
í dag; er föstudagurinn 16.
nóvember. Othmarus. —
— 312. dagur ársins. —
Tungl í hásuðri kl. 23.05.
—i Árdégisháflaeði kl. 3.49.
Síðdegisháflæði ki. 16.07.
Föstudagur 16. nóvember
Fastir liðir eins
l ■og venjulega. Kl.
13.15 Lesin dag-
skrá næstu viku.
\ \ 18.30 Framburðar-
kennsla í frönsku. 18.50 létt lög.
19.10 Þingfréttir. — Tónleikar.
20.30 Daglegt mál (Grímur
Helgason kand. mag.). 20.35
Kvöldvaka: a) Guðmundur Þor-
láksson kand. mag. talar um
íerðir íslenzkra farfugla. b)
Kristinn Guðmundsson skáld les
kvæði. c) Kórar úr Kirkjukóra-
sambandi Suður-Þingeyjarpróf-
astsdæmis syngja (Hljóðritað að
Skjólbrekku í Mývatnssveit í
júní s.l.). d) Ólafur Þorvaldsson
þingvjjrður flytur erindi: Upp-
grónir þjóðvegir. 22.10 Þýtt og
endursagt: Ástir og landráð. —
Frá Erlendi Nikulássyni; síðari
hluti (Helgi Hjörvar). 22.35 Tón-
leikar: Björn R. Einarsson kynn-
ir djassplötur. 23.15 Dagskrárlok.
Firmakeppni
Bridgesambands íslands
Önnur umferð firmakeppninnar
verður spiluð næstkomandi
sunnudag, 18. þ. m., en ekki á
■þriðjudaginn eins og áður var
tilkynnt.
Ráðning skákþrautarinnar
Við byrjum á að leiðrétta viliu í
stöðumyndinni: það stóð drottn-
ing á e7, en átti vitaskuld að
vera kóngur. Svo er liausnin
þannig:
1. Bal—f6 g7xf6
2. Ke7—f8 f6—f5
3. Rh6—f7v og mát.
Lárétt: 1 tímabil 3 bókstafur 6
bókstafur 8 grasgeiri 9 ákvað 10
iþróttafélag 12 tónn 13 100%
14 ung 15 tvíhljóði 16 viður 17
handlegg
Lóðrétt: 1 níðing 2 flatmagaði 4
afturendi 5 hirðuleysingjanum 7
þolir 11 heitur 15 ryk
Ráðning síðustu krossgátu:
Lárétt: 1 gil 3 br.a 6 rá 8 óu 9
hring 10 Na 12 ,al 13. dropi 14.
af 15 mó 16 rif 17 mýs
Lóðrétt 1 grandar 2 iá 4 róna 5
augljós 7 kropp 11 arfi 15 mý
DAGSKRA
Alþingis
Sameinað þing föstudaginn kl.
IV2 miðdegis.
1. Öryrkjaaðstoð, þáltill. —
FTvernig ræða skuli.
2. Hafnargerðir, þáltill. — Hvern
ig ræða skuli.
3. Endurskoðun varnarsamnings-
ins, þáltill. — Ein umr.
4. Samninganefnd um varnar-
samninginn, þáltill. — Ein
umr.
Næturvarzla
er í Ingólfsapóteki í Fischer-
sundi, sími 1330.
Safnaða rkvöld vaka
1 Óháða söfnuðinum verður í
kvöld í Breiðfirðipgabúð, hefst
kl. 8.30 Skemmtiatriði, rætt um
kirkjusmíðina.
„Systrafélagið Alfa“
Eins og auglýst var í blaðinu í
gær, heldur Systrafélagið Alfa
sinn árlega basar sunnudaginn
18. nóvember í Félagsheimili
verzlunarmanna — Vonarstræti
4. Verður basarinn opnaður kl.
2 stundvíslega. ^
Þar verður mikið um hlýjan ull-
arfatnað baraa, og einnig verð-
ur ýmislegt, sem hentugt gæti
orðið til jólagjafa eða annarra
tækifærisgjafa. — Félag þetta er
líknarfélag svo sem kunnugt er
og verður fé því, sem inn kem-
ur fyrir vörurnar, ráðstafað til
bágstaddra.
Allir eru velkomnir.
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
Millilandaflug:
Millilandaflugvél-
in Sólfaxi fer til
Glasgow kl. 8.30 í
dag. Vtenfanleg aft-
ur til Reykjavíkur kl. 19.45 í
kvöld. Millilandaflugvélin Gull-
faxi fer til Kaupmannahafnar og
Hamborgar kl. 8.30 í fyrramálið.
Innanlandsflug:
í dag er áætlað að fljúga til Ak-
ureyrar, Fagurhólsmýrar, Horna-
fjarðar, ísafjarðar, Kirkjubæjar-
klausturs og Vestmannaeyja.
Á morgun er ásetlað að fljúga
til Akureyrar (2 ferðir), Blöndu-
óss, Egilsstaða, ísafjarðar, Sauð-
árkróks, Vestmannaeyja og Þórs-
hafnar.
LOFTLEIÐIR
Edda er væntanleg í fyrramálið
kl. 6.00—7.00 frá New York, fer
kl. 9.00 áleiðis til Gautaborgar,
Kaupmannahafnar og Hamborg-
ar.
Iljónaband
Síðastliðinn laugardag gaf séra
Emil Björnsson saman í hjóna-
band ungfrú Ástu Lóu Einars-
dóttur frá Krosshúsum í Grinda-
vík, og Benóný Benediktsson,
frá Þórkötlustöðum i Grindavík.
Heimili brúðhjónanna verður að
Þórkötlustöðum.
Garðs apótck
er opið daglega frá kl. 9 árdegis
til kl. 20 síðdegis, nema á laug-
ardögum kl. 9—16 og sunnu-
dögum kl. 13—16.
“Trá hófninni*
Eimskip:
Brúarfoss fer frá Rostokk í dag
áleiðis til Hamborgar og Reykja-
víkur. Dettifoss fór frá Gdynia
í fyrradag áleiðis til Hamborgar
pg Reykjavíkur. Dettifoss fór frá
Gdynia í fyrradag áleiðis til
Hamborgar og Reykjavíkur.
Fjallfoss fór frá Hafnarfirði í
gær til Vestmannaeyja; heldur
þaðan til Rotterdam og Ham-
borgar. Goðafoss kemur til
Reykjavíkur árdegis í dag frá
Kotka. Gullfoss fer frá Kaup-
mannahöfn á morgun áleiðis til
Leith og Reykjavíkur. Lagarfoss
fór frá Reykjavík í gærkvöld til
Vestmannaeyja og áfram í hring-
ferð austur um land. Reykjafoss
kemur til Reykjavíkur árdegis á
morgun frá Hamborg. Tröllafoss
fór frá Reykjavík 7. þ. m. áleið-
is til New York. Tungufoss fór
frá Ólafsfirði í gær til Siglu-
fjarðar, Raufarhafnar, Seyðis-
fjarðar, Norðfjai'ðar og Eski-
fjarðar; heldur þaðan til Sví-
þjóðar. Straumey fór í fyrradag
frá Hull áleiðis til Reykjavíkur.
Vatnajökull lestar í Hamborg á
morgun fil Reykjavikur.
Sambandsskip:
Hvassafell er í Stettin, fer þaðan
væntanlega á morgun áleiðis til
Flekkefjord og Reykjavíkur.
Arnarfell fer í kvöld frá Reykja-
vík til Keflavíkur. Jökulfell fer
í dag frá Reykjavík til Vestur-
og Norðurlandshafna. Dísarfell
fór í gær frá Siglufirði áleiðis til
Hangö og Valkom. Litlafell fer í
dag frá Faxaflóa til Austurlands-
hafna. Helgafell fer í dag frá
Cork til Avonmouth og Ham-
borgar. Hamrafell væntanlegt til
Batum 19. þ. m.
ítikisskip
Hekla er væntanleg til Reykja-
víkur í dag að austan úr hring-
ferð. Herðubreið er á Austfjörð-
um á norðurleið. Þyrill er í
Reykjavík. Baldur fer frá
Reykjavík í dag til Snæfellsnes-
hafna og Hvammsfjarðar. Ásúlf-
ur er væntanlegur til Reykja-
vikur í dag frá Hornafirði.
Söluturninn við Arnarliól
hefur nú til sölu nýjustu blöðin
af Mjölni frá Siglufirði og Verka-
manninum frá Akureyri.
Þetta eru aðalleikendurnir, Alida Valli og Jean Marais, í
frönsk-ítölsku myndinni Aðeins einu sinni, sem Sijörnu-
bíó sýnir um þessar mundir. Myndin gerist aðallega í
seinustu styrjöld og lýsir aðskilnaði ungra elskenda og
endurfundum fullorðins fólks.
HRINGUmNN LOKAST
Við höfum rekizt á þessa
óskalista í sænsku blaði, og
nú skulum við hugleiða að
hvaða leyti þeir muni eiga við'
hérna hjá okkur. Við verð-
um aðeins að reikna með því
frá upphafi að „hún“ og
„hann“ séu sæmilega á vegi
stödd í efnalegum skilningi.
HIJN:
5 ára: brúðu.
10 ára: hatt eins og hún
Gerða á.
15 ára: danskjól.
20 ára: herra sem á bil —
má vera notaður. (Hvor?!).
25 ára: herra með bíl —
módel næsta árs.
30 ára: meiri heimilispen-
inga.
35 ára: megrunarkúr, án þess
TónlistarbJað-
ið, 2. tbl. 1. ár-
gangs, er ný-
komið út og
hefur borizt
Þjóðviljan-
um. Á forsíðu er mynd ,af Hljóip-
skálanum og lúðrasveitarmönn-
um að æfingu framan við hann.
Gunnar Egilsson skrifar ÚrRúss-
landsreisu. Þá er nafnlaus grein:
Gluggað í gamla dagbók. Þá er
viðtal við Gunnar Ormslev heim-
kominn. Síðan er þátturinn ad
lib, af ýmsu tagi. Jón Þórarins-
son ritar greinina: Hvemig er
sinfóníuhljómsveit skipuð? Boðn-
ir eru velkomnir 2 þýzkir hljóð-
færaleikarar í Sinfóníusveitina.
Svavar Gests skrifar í dúr og
moll. Grein er um K. K, sextett-
inn. Gunnar Egilsson skrifar um
Aðbúnað sinfóníuhljómsveitar-
innar. Sagt er frá aðalfundi FIM,
og margt fleira er í blaðinu sem
er skemmtilegt að frágangi og
hið eigulegasta. Útgefandi er Fé-
lag íslenzkra hljóðfæj-aleikara.
Valtýr Stefánsson
birtir gamalt við-
tal við Tómas
Guðmundsson I
nýju hefti Stefnis,
og segir Mogginn
s.I. þriðjudag að viðtalið „sýni,
hvilikur meistari Valtýr er í við-
tölum“. Viðtalíð hefst á því að
Valtýr kveður Tómas hafa lieim-
sótt sig „aldrei þessu vant“, og
segir síðan: „Tómas talaði um
alla heima og geima, en ég
skaut inn í orði og orði eins og
blaðamanni ber. Ekki svo að
skilja, að ég ætlaði að skrifa
neitt af því sem hann sagði. EN
ÞEGAR EG VAKNAÐINOKKRU
EFTIR AÐ HANN VAR FARINN
(Ieturbreyting vor), þá rifjaðist
eitt og ánnað upp fyrir mér. . .“
Valtýr hefur þá sofnað meðan
Tómas talaði, og er ekki ofsög-
um sagt af meistaraskap manns-
ins „í viðtölum“.
Langar að fá íslenzk frímerki
fyrir bandarísk
Það hefur skrifað okkur maður
í New York og beðið okkur að
nefna nafn sitt. Hann er frí-
merkj-asafnari, en selur þó
hvorki né kaupir frimerki. Hann
hefur mikinn áhuga á að eignast
íslenzk frímerki og býður á móti
góða „seríu“ bandarískra fri-
merkja. Við vonum að einhver
frímerkjamaður vilji sinna ósk
hans, og hér er nafn mannsins
og heimilisfang:
Mr. H. C. Blanksten
175 West 93rd Street
New York 25, N. Y. — U. S. A.
■ XX X
HfiNKIH
vd fozt msm
að svelta. ■
40 ára: að börnin fengju
hærri einkunnir.
45 ára: að þetta endi ekki
með gjaldþroti.
50 ára: að hún Stína fái góð-
an mann.
55 ára: hárlitunarvökva sem
eitthvert gagn er í.
60 ára: að maður mætti nú
bara byrja á öllu að nýju.
HANN:
5 ára: rugguhest.
10 ára: reiðhjól með hand-
bremsu.
15 ára: meiri peninga.
20 ára: ökuskírteini.
25 ára: launahækkun.
30 ára: eigin bíl — má vera
notaður.
35 ára: betri bíl — og aðeins
flunkunýjan.
40 ára: sjálfstæða vinnu.
45 ára: 50 þúsund kr. á einni
viku.
50 ára: góðan lögfræðing við
gjaldþrotaskiptin.
55-ára: reiðhjól — má vei'a
notað.
60 ára: að maður mætti nú
bara byrja á öllu að nýju.
Stúlkumar á skrifstofunni
höfðu öðru hvoru brotið upp
á því við piparsveininn, sem
vann þar líka, að hann ætti
nú að gifta sig; en hann hafði
ævinlega þvertekið fyrir það.
Svo kom hann einn morgun
til vinnunnar, rauðeygður og
syfjulegur — og sagði:
— Eg óskaði þess í nótt að
ég væri giftur.
— Aha, sögðu stúlkurnar í
kór.
— Jú, ef ég væri giftur, þá
ætti konan mín saumavél. Og
ef hún ætti saumavél, þá ætti
hún líka olíu til að smyrja
hana. Og ef hún ætti ölíu, þá
hefði ég tekið hana og borið
á hjörurnar útihurðinni sem
hélt fyrir mér vöku í alla
nótt með bölvuðu ekkisen
marrinu.......
Happdrætti Fjáreigendafélags
Reykjavíkur
Dregið hefur verið hjá borgar-
fógeta í happdrætti Fjáreigenda-
félags Reykjavíkur og hlutu eft-
irfarandi númer vinning:
2272: Reiðhestur; 3935: tvö lömb;
2448: tvö lörnb; 5375: ein ær. Á
eftirtalin númer féllu samskonar
vinningar; eitt lamb á hvert:
4499; 2683; 4895; 6269; 3405; 5858;
1503; 3615; 1627; 5067; 1879; 6916;
3678; 1852; 312; 6848.
Upplýsingar um vinningana gef-
ur Ingimundur Gestsson í síma
1217.
Farsóttir í Reykjavík
vikuna 21.—27. okt. 1956, sam-
kvæmt skýrslum 19 (19) starf-
andi lækna.
Ilálsbólga ............. 98 (51)
Kvefsótt .............. 166 (87)
Iðrakvef ............... 26 (20)
Influensa ............... 4 ( 0)
Kveflungnabólga ......... 6 ( 0)
Skarlatssótt ........... 1 ( 4)
Munnangur ................ 3(2)
Hlaupabóla ........... 1 ( 5,)'
Mengiserting .............. 2(0)
Mænusótt, án lömunar 1(0)
(Frá skrifstofu borgarlæknis)
Farsóttir í Reykjavík
vikuna 28. 10.—3. 11. 1956, sam-
kvæmt skýrslum 14 (19) starf-
andi lækna.
Hálsbólga ............ 52 ( 98)
Kvefsótt ............. 80 (166)
Iðrakvef ................ 8 ( 26)
Kveflungnabólga ........ 3 ( 6)'
Skarlatssótt ............. 1(1)
Mænusótt, án lömunar 1(1)
(Frá skrifstofu borgarlæknis)