Þjóðviljinn - 16.11.1956, Qupperneq 3
Föstudagur 16. nóvember 1956 — ÞJÓÐVILJINN — (3
l.nn lofar Gunnar sorpeyð-
ingarstöð - fyrir kosningar!
Það var allt Framsókn að kenna!!!
Ríkissjóður styrk-
ir Ungverjalands-
söfnunina
Fjárveitinganefnd Alþingis
hefur einróma ákveðið að
Borgarstjóranum tókst að stilla
sig um allar játningar varðandi
það að sorpeyðingamálin hefðu
verið í ólestri undir sinni stjórn
og horium tókst einnig fullkom-
lega að forðast að nefna nokkur
ártöl eða dagsetningar í sam-
bandi við sorpeyðingarstöðina.
Dæmi um hvernig honum tókst
að forðast að brenna sig á ár-
tölum er t.d. þessi setning: „Um
það leyti sem dr. Jón Siguðsson
tók við starfi. .“ (Og það bar
til um þessar mundir). Var ræða
borgarstjórans hin hátíðlegasta.
Þjóðviljinn hefur oftar en
einu sinni skýrt allýtarlega frá
hvernig sorpeyðingarstöð þessi
héfur verið fyrirhuguð, en af
eðlilegum ástæðum má ætla að
lesendur hafi gleymt því á um-
liðnum árum. Stöðin er smíðuð
samkvæmt danskri fyrirmynd —
frá Danoverksmiðjunum dönsku.
Taka á pappa og pappír úr rusl-
inu og vinna úr því pappa.
Málmar verða einnig hreinsaðir
úr því með segulmagni. Það sem
þá er eftir, þ.e. meginhluta sorps-
ins á svo að láta í sívalninga er
snúast án afláts, unz þeir skila
sorpinu út eftir 3—4 sólarhringa
sem áburðarefni. Hefur bærinn
fulla þörf fyrir áburð, bæði í
garðlönd sín, skrúðgarða svo og
hrjóstur bæjarlandsins
Danska verksmiðjan hefur
leyft að vélar sorpeyðingarstöðv-
arinnar verði smíðaðar í Héðni,
undanförnum árum verið full-
trúar fyrrverandi ríkisstjórnar
sem neituðu Reykjavíkurbæ um
fjárfestingarleyfi, en ' strax og
viðskiptamálaráðherra hinnar
nýju ríkisstjórnar og fulltrúar
í innflutningsnefnd hefðu verið
settir inn í málið hefði leyfið
fengizt!
Borgarstjóri stóð aftur upp
með sakleysissvip og kvaðst ekki
hafa vitað þetta um viðskipta-
málaráðherra, en sjálfsagt væri
að þakka. Og bætti svo við að
það hefði alltaf verið fulltrúi
Framsóknarflokksins sem hefði
neitað um leyfi fyrir sorpeyðing-
arstöðinni!
Ný verzlun Kí í NrSákshöfn
Kaupfélag Árnesinga opnaði unarhúsið, sem reist er í hinni
s.l. þriðjudag myndarlega verzl-
un í nýju verzlunarhúsi í Þor-
lákshöfn. Er þetta fyrsta verzl-
Verður beðið eftir slysi áður en
Miklabrautm verður lýst?
Ingi R. Helgason ræddi Miklubrautina á bæjarstjórn-
arfundi í gær. Einkum lagði hann áherzlu á að sett yrðu
viö hana götuljós, þar sem gatan er nú myrk — og hefur
alla tíð verið — austan Hlíðahverfisins.
Ingi kvað bæjaryfirvöldunum'
mikinn vanda á höndum með
Miklubrautina hvað lagningu
götunnar snerti, en ekki þýddi
að halda að sér höndum, held-
ur rannsaka til hlýtar hvernig
hún yrði bezt gerð að þeirri
miklu umferðargötu sem henni
hefði verið ætlað að vera.
«>-
Kviknar í báti
Neskaupstað. Frá frétta-
ritara Þjóðviljans.
Um kl 6 í gærkvöld var
slökkviliðið kvatt að Dráttar-
braut Neskaupstaðar. Hafði
kviknað í lúkar vélbátsins Sæ-
nýju Þorlákshöfn, en á undan-
förnum árum hafa risið þar
miklar vöruskemmur, fisk-
vinnsluhús og fjöldi íbúðar-
húsa. Er íbúatala Þorlákshafn-
ar nú milli 90—100 en að jafn-
aði eru þar starfandi 70—100
aðkomumenn, við byggingar og
hafnargerð á sumrin og við
fiskvinnslu um vetur.
Hið nýja verzlunarhús KÁ
er 130 fermetrar að stærð og
er hið rúmbezta í alla staði.
Þarna eru ekki aðeins matvöru-
deildir, heldur og vefnaðarvara,
búsáhöld, glervörur, skór og
verkfæri. Verzlunarstjóri er
Þonnóður Jónsson.
Ungverjalands-
söfnunin nemur
265 þús. kr.
Rauða Krossi fslands hafa
borizt tilkynningar um peninga-
gjafir til Ungverjalandssöfnun-
arinnar víðsvegar af landinu og
mun því veita viðtöku gjöfum,
sem enn kunna að berast, enda
þótt söfnuninni hafi lokið í gær.
1 gær bárust m.a. 6032 krón-.
ur frá Kvenfélagi Árneshrepps
í Strandasýslu, 5 þús. kr. frá
Landssambandi vörubílstjóra,
6450 krónur sem söfnuðust á
stúdentafundi á Selfossi ,og
4800 kr. frá skipverjum á
Hamrafelli. Nemur söfnuni nú
um 265 þús. kr. Rauði kross-
inn flytur öllum þeim mörgu er
lagt hafa fram fé í söfnunina
beztu þakkir.
Hlutaveltunefnd Kvennadeildar
Slysavarnafélagsins í Reykjavík,
þakkar bæjarbúum hjartanlega
fyrir góðar gjafir og .aðra fyrir-
greiðslu í sambandi við hluta-
veltuna. Nefndin.
íhaldið samþykkir að loka
einum saurlœkja sinna
Samúðardansherrann af Hellu, Gunnar Thoroddsen,
setti upp landsföðurssvipinn virðulega á bæjarstjórnar-
fundi í gær og lofaði bæjarbúum því enn einu sinni há-
tíðlega að sorpeyðingarstöð sú sem verið hefur á döf-
inni á annan áratug skuli nú loks komast upp, — rétt
fyrir næstu kosningar!
leggja til, að inn á fjárlög
næsta árs verði tekin 250 þús.
kr. framlag úr ríkissjóði í
Rauðakross-söfnunina til stuðn-
ings við Ungverja.
Fjármálaráðherra mun inna
greiðsluna af hendi nú þegar.
fhaldið geíst upp fyrir lögreglunni
Bæjarstjórn samþykkir nokkra kaup-
hækkun fyrir lögreglumenn
fhaldið hefur allt þetta ár átt í basli með lögreglu-
þjónana í bænum sem hafa krafizt bættra kjara.
Líklegt má telja að Ihaldið manni sig einhverntíma
á næstunni upp í það að nema úr ásýnd höfuðborgar-
innar saurlækinn frá sambyggingunni við Kaplaskjóls-
veg og láti í þess stað gera lokræsi að hætti siðaðra
•manna.
samkvæmt teikningum sínum.
Verð vélanna verður tæpar 3
milljónir króna. Þar við bætist
byggingarkostnaður og er áætl-
að að uppkomin kosti stöðin
hálfa fimmtu milljón kr. Sorp-
magn í bænum er nú um 20 þús.
lestir ó ári. Af því mun þriðji
hlutinn vinnsluhæfur til áburð-
ar, sem að sjálfsögðu kemur til
tekna, ennfremur málmar úr
ruslinu, svo og pappi sem vinn.a
á. Fjóra starfsmenn mun þurfa
í stöðinni. Með núverandi fyrir-
komulagi á flutningi ruslsins í
fjöruna er kostnaður við það
300 þús. kr á ári, að ótöldum
flutningskostnaði, sem borgar-
stjóri nefndi ekki hve mikill sé.
Borgarstjóri kv.að smíði vél-
anna vera byrjað fyrir skömmu
og loks um síðustu mánaðamót
hefði fengizt fjárfestingarleyfi
fyrir framkvæmdunum og myndi
næstu daga byrjað á fram-
kvæmdum þar sem stöðin á að
standa, í Ártúnshöfða, vestan
Krossmýrarvegar. Að síðustu
þakkaði borgarstjórinn flokks-
mönnum sínum hátíðlega áhuga
og dugnað við undirbúning
málsins.
Þá kvaddi Alfreð Gíslason sér
hljóðs og fagnaði þessari virðu-
legu ræðu borgarstjórans. Kvaðst
hann hafa tekið eftir því að
borgarstjóri kvartaði undan því
að synjað hefði verið um fjór-
festingarleyfi hvað eftir annað,
þar til alveg nýlega. Hefði það
yantað í þessa ræðu borgarstjór-
ans að geta þess að það hefðu á
En hvað sem gert yrði í því efni
þyrfti að lýsa götuna. Kvaðst
Ingi vonast til þess að lýsingu
yrði komið í lag, enda þótt
gatan yrði ekki fullgerð, ein-
ungis til að forða slysum. Það
er engin ástæða til að bíða
með það eftir því að þau gerist,
sagði hann.
Tillaga hans var eftirfarandi:
Bæjarstjórn felur borgarstjóra
að hraða svo nauðsynlegum at-
hugunum og undirbúningi varð-
andi áframhald malbikunar á
Miklubraut, eða aðra endanlega
gerð götunnar, að framkvæmd-
ir geti hafizt á komandi vori,
og leggur áherzlu á að stefnt
verði að því að fullgera þessa
miklu umferðargötu eins fljótt
og nokkur kostur er“.
Borgarstjóri kvað þetta þurfa
að ræðast við undirbúning fjár-
hagsáætlunar. — Tillagan fékk
„ekki nægan stuðning".
fara, sem þar er nú vegna vél-
arskipta. Slökkviliðinu tókst að
ráða * niðurlögum eldsins á
skömmum tíma. Urðu litlar
skemmdir á bátnum. Óvíst er um
eldsupptök.
Hefur frumvarp að samþykkt
um laun lögreglumanna verið
að velkjast í höndum þess mán-
uð eftir mánuð og hvað eftir
annað verið frestað afgreiðslu.
Á bæjarstjórnarfundi í gær var
það loks tekið til afgreiðslu og
samþykkt ásamt eftirfarandi:
„Bæjarstjórnin setur nýja
launasamþykkt og hækkar laun
fastráðinna lögreglumanna með
þeirri forsendu, að leitað verði
viðurkenningar Tryggingar-
stofnunar ríkisins á Eftirlauna-
sjóði Reykjavíkur, og lögreglu-
mennirnir greiði í þann sjóð
ákveðinn hluta af launum sín-
um og persónuuppbót, á sama
hátt og tíðkast um starfsmenn
ríkisins (4% af útborguðum
launum). Felur bæjarstjórn
bæjarráði að ganga frá skipun
þessa máls í samráði við Lög-
reglufélag Reykjavíkur og
Try ggingars tof nunina' ‘.
Jafnframt samþykkti bæjar-
stjómin að greiða 6% áhættu-
þóknun á kaup þeirra starfs-
manna, „sem að dómi tveggja
manna er Hæstiréttur verður
beðinn að tilnefna, vinna störf
sem jafnmikil áhætta er sam-
fara og starfi lögreglumanna“.
Ingi R. Helgason gerði í-
haldslæk þenna að umræðuefní
á bæjarstjórnarfundi í gær og
flutti tillögu um að koma þessu
í lag. Borgarstjóri varð ósköp
feimnislegur á svipinn, gekk að
eyra Geirs Hallgrímssonar og
mælti við hann í hljóði. Spratt
Geir þá á fætur og kvað heil-
brigðisnefnd hafa hvað eftir
annað beint þeirri áskorun til
bæjarverkfræðings að koma
þessu í lag. Kvaðst hann óska
þess að tillagan væri stíluð til
bæjarverkfræðings (en ekki
borgarstjóra eins og Ingi hafði
gert) því það væri bæjarverk-
fræðingur sem ætti að sjá um
þetta.
Þá barði Guðmundur H.
Guðmundsson hart og fast í
borðið. Var hann snakillur í
garð Inga fyrir að hafa hreyft
þessu máli og gerzt forsvars-
maður Mannvirkis h.f. er
byggði fyrrnefnt stórhýsi. Kvað
hann bæjarverkfræðing hafa
verið á móti því að leyfa lóð-
ina, en bæjarstjórn hefði þó
veitt hana gegn loforði Mann-
virkis h.f. um að leggja sjálft
lokræsi. Um það hefði vcrið
svikizt, — og varð ekki an að
af ræðu Guðmundar ráðið en
að hann teldi þetta hæjarstj' rn-
Framhald á 11. siðu
Skemmtikvöld ÆFR
Annað kvöld efnir Æskulýðsfylkingin í
Reykjavík til skemmtunar fyrir félags-
menn og gesti í Tjamargötu 20. Skemmti-
atriði verða mörg. Kynnir verður Jón
Norðdahl og hinir vinsælu Róbert og
Svavar leika fyrir dansinum.
^rsrrrsrrsrrvrr'rrrsrrrNrrrrvrrrvrrvrrrsrr'rrrvrrsrrsrrsrv
srsrrrrrrrvrrrvrrrvrrvrrsS