Þjóðviljinn - 16.11.1956, Blaðsíða 5
Föstudagur 16. nóvember 1956 — ÞJQÐVILJINN — (5
Æfintýrið í Egyptalandi lellir Bretland og
Frakkland endanlega nr tölu stórvelda
Samstarf Vesturveldanna kemst aldrei í samt lag aftur -- Þegjandi
samkomulagi Bandaríkjamanna og Sovétríkjanna spáð í Washington
Fréttamönnum í höíuðborgum beggja vegna
Atlanzhafsins ber saman um að það komi æ skýr-
ar í Ijós með hverjum degi sem líður, hversu af-
’drifarík árás Bretlands og Frakklands á Egyptaland
ætli að verða fyrir framvindu heimsviðburðanna.
Þeir sem gagnkunnugastir eru á æðstu stöðum í
Washington fullyrða að atburðir þessir séu í þann
veginn að gerbreyta afstöðu Bandaríkjastjórnar,
bæði til bandamanna sinna í Vestur-Evrópu og höf-
'uðandstæðingsins, Sovéríkjanna.
Eins og áður hefur verið
skýrt frá hér í blaðinu hefur
formaður utanríkismálanefndar
öldungadeildar Bandaríkja-
þings, Walter George, .fellt
þann dóm að með árásinni á
Egyptaland haf i Bretar og
Frakkar greitt Atlanzhafs-
bandalaginu rothögg.
Fréttamenn í Washington
taka ekM eins djúpt í árinni
og þessi tilvoraandi fulltrúi
Eisenhowers i yfirstjórn A-
bandalagsins í París, en lieim
ber saman um að samstarf
Vestinrveldanna liafi orðið
fyrir óbætanlegu áfalli.
Þetta viðhorf kemur glöggt
fram í skrifum kunnustu frétta
manna tveggja mikilmetnustu
blaða Bandaríkjanna í Wash-
ington.
A ýmsu von
Marguerite Higgins segir í
New York Herald Tribiuie:
„Úrslitakostirnir sem Bret-
land og Frakkland sendu Eg-
yptum hafa komið af stað
keðjuverkun, sem hver svo
sem endirinn verður hlýtur að
raska um alla framtíð því
valdajafnvægi sem ríkt hefur i
heiminum síðan heimsstyrjöld-
inni síðari lauk.
Ákvörðun Bretlands og
Frakklands að ganga í berhögg
við vilja Bandarikjastjórnar
þýðir auðvitað ekki að „banda-
lagið, mikla“ sé úr sögunni, en
það getur aldrei framar kom-
ist í samt lag aftur.
Ektó svo að skilja að menn
búist tóð því að eftir þessa síð-
ustu atburði falli allt í ljíifa
löð með Bandaríkjunum og
Sovétríkjunum, en framvegis
verða menn að vera viðbúnir
enn kymlegri atburðuin en þeim
sem gerðust á dögunum, þegar
Bandaríkin og Sovétríkin stóðu
hlið við hlið í Öryggisráðinu
gagnvart neitunarvaldi Bret-
lands ©g Frakklamds.“
Sjálísblekking
1 New York Times ritar
JameS Reston, aðalfréttaritari
blaðsins í Washington, á svip-
aða lund. Hann kemst svo að
orði að dapurleg atburðarás
síðustu vikna hafi orðið til
þess að Vesturveldin verði nú
ekki einungis að taka afstöðu
sína til Sovétríkjanna heldur
einnig hvert til annars til end-
urskoðunar.
í Washington fá menn enn
ekki skilið, hvað kom Bret-
landi og Frakklandi til að
grípa til vopna, segir Reston
ennfremur. Jafnframt hefur
Bandaríkjastjórn áhyggjur af
vaxandi áhrifum Sovétríkjanna
á Súezsvæðinu og um allt hið
olíuauðuga flæmi við Miðjarð-
arhafsbotn. Reiðin yfir aðför-
um Sovétríkjanna í Ungverja-
landi hefur ekki megnað að
eyða heizkjunni í garð Bret-
lands og Frakklands.
Þessir síðustu atburðir hafa,
segir Reston, eytt að minnsta
kosti einni sjálfsblekkingu,
þeirri að jafna megi með gerð-
um hlut ágreining Vesturveld-
anna vestan og austan Atlanz-
hafsins um hagsmuni Breta og
Frakka á gömlu nýlendusvæð-
unum. Bandaríkjastjórn neitar
að vera hieð þegar þannig erfar-
ið að, sé henni ekki boðið að
vera með þegar lagt er upp
hefur hún enga löngun til að
taka þátt í nauðlendingunni.
Bandaríkjastjórn er þeirrar
skoðunar að hér eftir verði að
taka tiílit til þess í samstarfi
Vesturveldanna að í sumum
málum og sumum hlutum
heimsins fari hagsmunir henn-
ar og hagsmunir stjóraanna í
London og París ekki saman.
Séð frá London
Annar af kunnustu fréttarit-
urum New York Times, Drew
Middléton í London, leggur
svipað mat á afleiðingar at-
burða síðustu vikna og starfs-
bróðir hans í Washington:
„Hollusta Bretlands við
bandalagið við Bandaríkin
hefur beðið mildnn hnekki
við atburði síðustu þriggja
mánaða,“ segir Middleton.
„Hvað syo sem forustumenn
Bandaríkjanna Bretlands og
Frakklands gera til að reyna
að koma aftur á einingu og
trausti milli ríkjanna þriggja,
er það undir hælinn lagt að
Bretar geti framar treyst eins
skilyrðislaust á samúð og að-
stoð Bandaríkjanna og þeir
hafa gert síðasta áratuginn.
Þetta segja embættismenn og
stjómmálamenn hér meira af
hryggð en réiði.“
^ Sovétríkin hafa náð
öruggri fótfestu
Fréttaritari danska ríkisút-
varpsins í Bandaríkjunum,
Christian Winther, hefur gert
hlustendum eftirfarandi grein
fyrir viðhorfi Bandaríkja-
manna til síðustu heimsvið-
burða:
I Wasliington viðurkenna
menn að Sovétríkin eru búin
að ná öruggri fótfestu í lönd-
unum við Miðjarðarhafsbotn og
að þau verða ekki hrakin
þaðan nema með þriðju heims-
styrjöldinni. Bandaríkin verða
héðan í frá að fylgja stefnu
sem gerir þeim fært að varð-
veita áhrif sín í löndum Araba
en jafnframt koma fram við
Sovétríkin eins og meðeiganda.
heim allan mikið umhugsunar-
efni að þessi tvö ríki í samein-
ingu hafa ekki einu sinni getað
komið jafn vanmegna ríki og
lEgyptalandi á kné.
★ Þegjandi sam-
komulag
Annað höfuðatriði er þetta:
Viðsjárnar hafa ekki bundið
endi á þá tilhneigingu, sem
gætt hefur bæði í Washington
og Moskva, að Bandaríkin og
Sovætríkin komist sín á milli að
einhverskonar þegjandi sam-
komulagi um að koma á nokk-
urskonar heimspólitísku yfir-
Fundur Öryggisráðsins um árásina á Egyptaland, par
sem Bandaríkin og Sovétríkin stóðu saman og Bretland
og Frakkland svöruðu með pví að beita neitunarvaldi til
að hindra að ályktunartillaga bandaríska fulltrúans nœði
fram að ganga.
m ■r_ r
•Jt Alsír tapað Frökkum
Frakkar verða nú að greiða
fyrir mistök sin með því að láta
Alsír af hendi. Framtíð þess er
nú orðin lykilvandamál, sem
leysa verður á næstu mánuðum,
og ekki kemur nema ein lausn
til greina.
Þrátt fyrir tal um að endur-
nýja verði gagnkvæmt traust
milU stjórnanna í Washington,
London og París, finna menn á
sér að ekki sé hægt að búast
við að vináttan komist í sama
horf. Sambúð Bandaríkjanna og
Vestur-EvTÓpu getur ineð engu
móti konúzt í saint lag.
^ Bretland ekki lengur
stórveldi
Þegar raunsæismennirnir í
bandaríska utanríkisráðuneyt-
inu leitast við að gera upp
reikningana í alþjóðamálum, nú
eftir að bráðasta hættan virðist
afstaðin í Egyptalandi og Ung-
verjalandi, er það helzta niður-
staða þeirra að sannast hafi að
hvorki Bretland né Frakkland
séu lengur stórveldi. Allir hafa
vitað síðan í stríðslok að þann-
ig var komið fyrir Frakklandi,
en það hefur komið á 'óvart að
sama máli gegnir um Bretland.
Það mun vera mönnum um
valdi, sem haldi bæði meðal-
stónun og smáum óróaseggjum
í skefjum. Síðan Eisenhoweer
og Krúsjoff hittust í Genf í
fyrra hafa bæði Bandaríkin og
Sovétríkin unnið að því smátt
og smátt að ryðja úr vegi tálm-
unum fyrir slíku gagnkvæmu
samkomulagi. Nú eru forseta-
kosningarnar afstaðnar og
næstu þrjú ár munu þeir sem
ráða bandarískri utanríkis-
stefnu hafa miklu frjálsari
hendur en hingað tii við að
leita raunhæfra lausna á deilu-
málunum í heiminum.
Hættuástandið síðasta hálfan
mánuðinn hefur blásið nýju lífi
í viðleitnina til að koma á var-
anlegu samkomulagi milli
Washington og Moskva. I
Washington viðurkenna menn
nú að Sovétríkin séu búin að
ná fótfestu við Miðjarðarhafs-
botn með aðstöðu sinni í Eg-
yptalandi. Það myndi kosta
þriðju heimsstyrjöldina ef reynt
væri að hrekja Sovétríkin úr
þessu nýja virki í arabaríkjun-
um.
'Jz Hvorugt lætur draga
sig út í stríð
Hvorki Sovétríkin né Banda-
ríkin munu láta máttarminni
bandamönnum sínum líðast það
að draga sig út í þriðju heims-
styrjöldina. 1 Washington gera
menn sér ljóst að ef hættu-
ástandið dregst á langinn, og
ef Bandaríkin ganga lengra í
stuðningi við Bretland »og
Frakkland en að hjálpa þeim
að hjarga sínu á þurrt, myndi
það verða til þess að reka ar-
abaríkin, og að öllum líkindum
enn fleiri ríki í Asíu, fyrir fullt
og allt yfir í herbúðir Sovét-
ríkjanna. Við því mega Banda-
ríkin ekki.
Þau verða hér eftir að fylgja
stefnu sem gerir þeim fært að
halda áhrifum, og lielzt úrslita-
áhrifum, í arabaríkjunum Oig
öðrum löndum Asíu, en þau
verða að sætta sig við að Soy-
étríkin hafi þar- einnig áhrifa-
aðstöðu. Þessu verður ekki
komið í kring nema með ráðum
sem ganga munu nærri Bret-
landi, og þó einkum Frakk-
landi.
Þeir aðilar sem þetta er haft
eftir álíta að Bretar séu nógu
skynsamir til að sjá að hags-
munir þeirra krefjast þess að
þeir reyni nú að bjarga því
sem bjargað verður af vináttu-
tengslum sínum við arabisk
ríki. Frakkar verða að sætta
sig við að láta Alsír af hendi.
Framtíð þess er orðin eitt þýð-
ingarmesta viðfangsefni heims-
málanna.
^ Kuldi í garð
bandamanna
Loks er þriðja atriðið. Hvað
sem líður tali um að forn vin-
átta milli Washington, London
og París verði endurnýjuð og
að alþjóðlegt samstarf Vestur-
veldanna verði að fá nýja mynd
og nýtt inntak, þarf enginn að
ætla að hægt verði að byrja
aftur þar sem frá var horfið.
Ef til vill verða það afdrifarík-
ustu afleiðingar hættuástands-
ins, þégar til lengdar lætur, að
utanríkisstefna Bandaríkjanna
gerist hörkulegri og lausari við
óskadrauma. Þetta mun koma
fram í mannaskiptunum sem nú
standa fyrir dyrum í forastu
handarískra utanríkismála.
Bretlandi og Frakklandi verð-
ur sagt, að nú verði þau að
finna lausn á útistöðunum seni
þau eiga í víðsvegar um Asíu
og Afriku og við Miðjarðar-
hafsbotn.
Kuldalegt afsvar Bandaríkja-
stjórnar við uppástungu Edens
og Mollets, uin að þeir flygju
hingað vestur til að koma því í
samt lag sem gengið hafði úr
skorðum, sýnir livað í vændum
er. Þeir sem ráða utanríkis-
stefnu Bandaríkjanna munu:
telja sig hafa frjálsari hendur
hér eftir en lúngað til til að
leita lausnar á viðkvæmum
deilumálum á alþjóðavettvangi,
lausna sem ekki munu falla
stjórnum Bretlands og Frakk-
Framhald á 11. síðu