Þjóðviljinn - 08.01.1957, Síða 1
Inni í hlaðinu:
Jónas Árnason:
AÐ GRÆÐA 4 SLYSUM
— 7. síða.
Oílenhauer viil aukin tengsl
við austurveg •— 5. síða-
Stjórn Jemens kærir árás af
hálfu Breta fyrir SÞ
SkriSdrekasveitir og herflugvélar frá
Aden hafa ráðizt á minnsta arabarikið
Stjómin í arabaríkinu Jemen tilkynnti í gær, að
brezkur flugher og brezkar skriðdrekasveitir frá Aden
heföu ráöizt á landið.
Segist stjómin í Jemen hafa
gert ráðstafanir til að kæra
þessar aðfarir Breta fyrir SÞ.
Loftárásir
Aden er brezk nýlenda á suð-
vesturhorni Arabíuskaga. Je-
men liggur milii Aden og Saudi
Arabíu.
Sendiráð Jemens í Bonn
skýrði frá því, að brezkar skrið-
drekasveitir frá Aden hafi farið
inn í Jemen og tekið á sitt vald
töluvert svæði næst landamær-
unum. Jafnframt hefðu herflug-
vélar Breta varpað sprengjum
og skotið af vélbyssum á þorp
í Jemen og búðir hirðingja.
Sendiherra Jemens í Kairó
ræddi í gær við Nasser Egypta-
landsforseta um hernaðarað-
j gerðir Breta gegn Jemen.
Talsmaður brezka nýlendu-
málaráðuneytisins í London
kvað það rétt vera, að brezkar
flugvélar og skriðdrekasveitir í
Aden hefðu látið til sín taka.
Hinsvegar neitaði hann að ráð-’
izt hefði veríð á Jemen, allarl
hernaðaraðgerðir hefðu verið
innan landamæra Aden og beint
gegn vopnuðum flokkum frá
Jemen sem farið hefðu yfir
landamærin.
Skærur hafa verið tíðar á
landamærum Aden og Jemen.
Gera bæði Bretar og Jemen-
stjórn tilkall til eyðimerkur-
svæða, þar sem álitið er að olía
kunni að vera í jörðu. Jemen
er minnsta og frumstæðasta
arabaríkið.
Boðskap Eisenhow-
ers er douflega tekið
Fyrirætlanir Eisenhowers Bandaríkjaforseta um banda-
rískar aögerðir í málum landanna viö MiÖjarðarhafs-
botn fá heldur daufar undirtektir.
Sju Enlæ
í Moskva
Sjú Enlæ, forsætis- og utan-
ríkisráðherra Kína, kom í gær
til Moskva við þriðja mann í
opinbera heimsókn. Voroshiloff
forseti, Búlganín forsætisráð-
herra og aðrir forustumenn
Sovétríkjanna tóku á móti hon-
um á flugvellinum.
Sjú komst svo að orði, að nú
værí ljóst að Bandaríkin væru
að reyna að ná þeirri aðstöðu í
löndunum við Miðjarðarhafs-
botn sem Bretar og Frakkar
hefðu misst. Þær fyrirætlanir
mættu andstöðu allra þjóða,
sem berðust gegn heimsvalda-
stefnunni.
Hussein, konungur í Jórdan,
ræddi í gær við bandariska
sendiherrann í Amman. Að við-
ræðunum loknum tilkynnti
blaðafulltrúi konungs, að hann
hefði skýrt sendiherranum frá
því, að arabaþjóðimar myndu
fagna því ef þeim væri veitt er-
lend aðstoð til að efla atvinnulíf
sitt, en slíkri aðstoð mættu ekki
fylgja nein skilyrði sem gætu
skert fullveldi þeirra og ein-
ingu.
Egypzk blöð segja, að Eisen-
hower vaði reyk þegar hann
haldi því fram að löndin við
Miðjarðarhafsbotn séu tóm, sem
eitthvert stórveldi hljóti að
fylla með áhrifum sínum. Eina
leiðin til að efla frið við Mið-
jarðarhafsbotn sé að stuðla að
því að þar myndist samtök ríkja
sem gæti hlutleysis í stórvelda-
átökum.
Indversk blöð segja, að boð-
skapur Eisenhowers hafi verið
skárri en búizt hafí verið við, en
þó sé hann ekki heillavænlegur.
Hindustan Standard kemst svo
að orði, að prófsteinninn á allar
áætlanir varðandi löndin við
Miðjarðarhafsbotn sé, hvort þær
uppfylli óskir fólksins um raun-
verulegt sjálfstæði og bætt lífs-
kjör. Áætlun Eisenhowers stand-
ist ekki það próf.
Blöð í ísrael eru uggandi um
að Bandarikjastjórn kunni að
leitast við að vinna hylli araba-
ríkjanna á kostnað ísraels. Da-
var farast svo orð, að áætlun
Eisenhowers magni kalda stríðið
í löndunum við Miðjarðarhafs-
botn.
Bretar afundnir
Brezku borgarablöðin átelja
Eisenhower fyrir að hafa haldið
að sér höndum þangað til allt
sé komið í óefni fyrir Vestur-
veldunum við Miðjarðarhafs-
botn. Times segir, að margt hefði
farið öðruvísi hefði Eisenhower
viljað fara að ráðum Edens fyr-
ir ári síðan. Margt sé vel um
áætlun Eisenhowers, en á henni
séu líka gallar og víða sé hún
óljós.
Daily Telegrapli segir, að það
sé ekki vonum fyrr að augu
Bandaríkjastj. opnist. Financial
Times fágnar því að Bandarík-
in taki nú loks ábyrga afstöðu,
en ræða Eisenhowers geti ekki
verið nema fyrsta skref í fram-
kvæmd stefnu serh enn sé óljós.
New Chronicle kemst svo að
orði, að allt sé tapað ef stjórnir
Vesturveldanna geri sér í hugar-
Itind að ræða Eisenhowers hafi
fyllt tómið i löndunum við Miðj-
arðarhafsbotn.
Dulles vitnar
í gær hóf utanríkismálanefnd
Framhald á 5. síðu
r >1
Útgerðarmenn í Grindavík neita
að gera nt upp á sömu kjör og
aðriritgerðarmenn á Suðnrnesjum
Sjómannaverklall haíið — landverkamenn
haía boðað samúðarverkfall frá og með
14. þessa mánaðar
Tilraunir sáttasemjara til þess að koma á samningum
milli útgerðarmanna og sjómanna í Grindavík báru ekki
árangur.
Það voru útgerðarmenn sem sögðu upp samningunum
á sínum tíma og eru þeir ófáanlegir til þess að semja
upp á sömu 'kjör og eru í gildi í öðrum Suðurnesja-
verstöðvum. Sjómenn í Grindavík erti einhuga um að
krefjast áfram sömu kjara í aðalatriðum og gilda í
hinum verstöðvunum á Suðurnesjum.
Verkfall sjómanna er því hafið í Grindavík og verka-
menn í landi hafa boðað samúðarvinnustöðvun með sjó-
mönnum, er hefst 14. þ.m., hafi samningar við sjómemi-
ina ekki tekizt fyrir þann tíma.
Stúlka skofin fil Ima í
Hveragerði á sunnudag
Vegandinn reyndi á si. hausti að
svipta sjálfan sig lífi
Um kl. 2 s.l. sunnudag gerSist sá hörmulegi atburður
í HveragerSi aS ungur maSur skaut unga stúlku til bana
í GarSyrkjuskólanum.
Samkvæmt upplýsingum frá
sýslumanninum á Selfossi eru
aðalatriði málsins þessi: Um kl.
2 á sunnudaginn var ráðskona
Garðyrkjuskólans stödd, ásamt
pilti og stúlku, inni í eldhúsi
skólans. Kom þá starfsmaður
skólans inn í eldhúsið, gekk að
stúlkunni með riffil í hendi og
hleypti af honum í brjóst henn-
ar. Stú'kan lézt litlu síðai'.
Stúlkan, Concordía Jónatans-
dóttir, til heimilis að Efstasundi
71 i Reykjavík, var 19 ára göm-
ul. Hún var nemandi í Garð-
yrkjuskólanum.
Maðurinn sem skaut hana
heitir Sigurbjörn Þorvaldsson.
ættaður af Vestfjörðum, 25 árp
að aldri, og hefur hann veri'
vinnumaður Garðyrkjuskólans 7
vetur.
Sýslumaðurinn á Selfossi var
kvaddur á vettvang og fór hanri
með piltinn í varðhald hér í.
Reykjavík. Yfirheyrslur yfir
honum fóru fram i gær. Hann
kannaðist hiklaust við^að hafa
orðið stúlkunni að bana, en neit-
aði því að hafa ákveðið þamv
verknað fyrirfram, he'clur hefði
þetta komið yf ir sig' á stundinni.
Piltur þessi mun hafa neytt
áfengis a. m. k. 3 daga áður en
þessi hörmulegi atburður gerðist
og hafa verið töluvert vín-
hneigður og þá ásótt hann böl-
sýni og kvað hann hafa gert til-
raun til þess á s.l. hausti að
ráða sjálfan sig af dögum. Við
yfirheyrsluna kom hann stillj-
lega og æðrulaust fram. — Geð-
heilbrigði hans verður rann-
sökuð af læknum.
Yfirheyrslur yfir heimilisfólki
Garðyrkjuskólans rnunu fara
fram í dag.
Sovétríkin veita /Þjóðverjum
Idn í gulli og gjaldeyri
Sovétstjórnin hefur ákveðið að veita Austur-Þýzkalandi
340 milljón rúblna lán í gulli og frjálsum gjaldeyri.
Frá þessu var skýrt í Moskva
í gær að loknum viðræðum full-
trúa sovétstjórnarinnar og aust-
urþýzku stjómarinnar.
Til vélakaupa
Lánið í guli og erlendum
gjaldeyri er til langs tíma. Sagði
austurþýzka útvarpið í gær, að
það myndi gera fært að efla iðn-
að Austur-Þýzkalands með kaup-
um á vélum og tækjum í Vest-
ur-Evrópu.
Auk þessa iáns veita Sovét-
ríkin Austur-Þýzkalandi annað
lán til kaupa á hráefnum í Sov-
étríkjunum. Það lán er einnig
til langs tíma. Er skýrt frá því
að vörusala frá Sovétríkjunum
til Austur-Þýzkalands muni auk-
ast um 30% við lánveitinguna.
Sainið um stöðu sovéthers
í tilkynningunni um viðræð-
urnar í Moskva segir, að einnig
hafi verið samið um ýrnis at-
riði varðandi sovézku hersveit-
irnar, sem dvelji um tíma í
Austur-Þýzkalandi. Þar á meðal
sé kostnaður af hersetunni,
réttarstaða hersins og dvalar-
staðir.
Sameining og afvopnun
f yfjrlýsingu frá stjórnum Sov-
étríkjanna og Austur-Þýzka-
lands um sameiningu Þýzka-
lands og afvopnunarmál segir,
að það sem hindri sameiningu
Þýzkalands sé endurvakin hem-
aðarstefna í Vestur-Þýzkalandi
og aðild þess að A-bandaiaginu.
Væru þær tálmanir úr sögunni
myndu skapast ný skilyrði ti.l að
sameina Þýzkaland.
Stjórnimar segja, að það sé
álit þeirra, að heppilegt sé að
hefja afvopnun með því að
fækkað verði smátt og smátt t
erlendum herjum sem i Þýzka-
landi dveljast.
* -•«=. *>•
Myndin er af Friðriki Ólafssyni,
tekin á Hastings-mótinu; og er
auðséð að hann lætur ekki ljós-
myndarann trufla sig við taflið-