Þjóðviljinn - 12.03.1957, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 12.03.1957, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 12. marz 1957 — ÞJÓÐVILJINN — (ö RITSTJÖRI: FRtMANN HELGASON V- Góður árangur á sundmóti ÍH Mótið hófst með því að for- maður ÍR ávarpaði gesti og bauð þá velkomna til mótsins. Hann sagði, að einmitt í ár væru liðin 48 ár síðan fyrsti ÍR-ingurinn tók þátt í sund- keppni og að þessi sundmaður væri einmitt hér staddur. Bað hann forséta ISÍ, en sá var maðurinn, að koma til sín að hljóðnemanum og þakkaði hann Ben. G. Wáge fyrir það sem hann hefur gert fyrir sundið og íþróttirnar og sitt gamla fé- lag ÍR. Hylltu áhorfendur Benedikt með ferföldu húrra- hrópi. Fyrsta keppni kvöldsins var 100 m baksund og bætti Guð- mundur Gíslason metið á vega- lengdinni um tvær sek., en hann átti sjálfur eldra metið. Verðui' gaman að fylgjast með þessum unga manni, sem bætir árangur sinn á hverju móti, og það ekki með neinum smámun- um. Árangur Ölafs Guðmunds- sonar var líka mjög góður og mun hann sjaldan hafa syntj vegalengdina á betri tíma. í 100 m skriðsundinu var Pét- ur öruggur sigurvegari, en tími hans var ekki sérlega góður. Gylfi Guðmundsson var í öðru sæti og í þriðja sæti var Guð- mundur Sigurðsson frá Kefla- vík. Hann hélt í við keppinauta sina 125 m en þessi frammi- staða hans bendir til þess að með meiri þjálfun geti hann veitt áður en langt um líður, hai’ða képpni beztu mönnum á þessari vegalengd. 200 m sundið var mjög skemmtilegt og af sjö kepþend- nm syntu 5 undir 3 mín, Sig. Sigurðsson vann, en keppnin milli hans og Torfa Tómasson- ar var mjög tvísýn og ekki skildi þá nema 1/10 úr sek. við markið. Einar Kristjánsson, sem emx er drengur, er mjög gott efni í bringusundmann og vai’ð þi-iðji í þessari keppni. Ungur smávaxinn maður úr Keflavík vakti á sér athygli í sundi þessu en hann heitir Höi’ður Finnsson og synti á 2,59,9, og fimmti maðux'inn sem synti undir 3 mín. var Magn- ús Guðmundsson úr Keflavík. Eitt glæsilegasta afrekið á mótinu var 400 m skriðsund Helga Sigurðssonar. Hann bætti tímann um hvorki meira né minna um nær 6 sek. Pét- ur Kristjánsson og Magnús Guðmundsson úr Ægi réðu ekki Við hinn mikla hraða sem Helgi byi’jaði með, og þessi vega- lengd er líka of löng fyrir Pét- ur. I eina boðsundinu á mótinu var sett glæsilegt fslandsmet, en það var í 3x100 m þi’ísundi og var sveit afmælisbarnsins þar að verki. Guðmundur Gísla- son synti fyrsta sprettinn fyrir SR og gaf mikið forskot og synti á sama tíma og hann gei’ði í fyrsta sundinu. Hann var þó búinn að synda 100 m ski’iðsund og setja ágætt Öl’engjamet á 50 m flugsundi, svo sjá má að Guðmundur er í mjög góðri þjálfun, enda ann- ars fullmikið að láta hann keppa svo oft á sama móti. Næstur Guðmundi synti Ólafur bringuáundið, en Þorgeir Ólafs- son úr Áxmanni vann svolítið upp forskotið, en það var sveit Áimanns sem veitti harðasta keppnina. Gylfi tók siðan við og synti skriðsundið og fyrir Ármann synti Pétur, og gerði það snilldarlega, ekki sizt þegar tekið er tillit til þess, að hann var rétt áður búinn að synda 400 m Gylfi neytti allrar orku, en Pétur dró heldur á; bilið var þó of mikið til þess að mögulegt væri að sigra. Tími Sveitar ÍR var líka glæsilegt met sem var betra en lands- metið, bæði landssveitar og eins félagssveitar, en það.yar sett í Abo 1949, og var það 3,33,6, félagsmetið var 3,40,0. Árang- ur sveitar Ánnanns var einnig undir félagsmetinu gamla. Sigurvegaramir í 100 m og 400 m skriðsundi fengu litla bikara sem Ólafur Logi Jónas- son gaf. Keppnin milli þeirra Ágústu Þoi’steinsdóttur og Sigríðar Sig- urbjörnsdóttur í 50 m bringu- sundi var mjög tvísýn og skemmtileg, og fór hún svo að Sigríður var sjónarmun á und- an en báðar höfðu sama tíma. Þessar stúlkur era í mjög góði’i þjálfun. Þær léku það að synda næstum báðar leiðir í kafi. — Ágústa synti 100 m skriðsund á mettíma. ÍIRSLIT: 1 (Mí m baksimd: 1. Guðm. Gíslason IR 1,11,6 2. Ólafur Guðmundss. ÍR 1,15,6 3. Sig. Fiáði'iksson ÍBK 1,20,0 100 m skriðsund: 1. Pétur Kristjánsson Á 1,01,5 2. Gylfi Guðmundsson ÍR 1,02,7 3. Guðm. Sigurðsson IBK 1,05,0 100 m skriðsund kvenna : 1. Ágústa Þorsteinpd. Á 1,09,3 2. Mai’gi’ét Ölafsdóttir Á 1,29,2 200 m bringusund karla: 1. Sigui’ður Sigui’ðss. ÍA 2,53,0 2. Tox-fi Tómasson Æ 2,53,1 3. Einar Kristjánsson Á 2,58,3 400 m skriðsund: 1. Helgi Sigurðsson Æ 4,49,5 2. Pétur Kristjánsson Á 5,28,4 3. Magnús Guðmundss. Æ 5,33,0 Gunnar Nielsen gerist knatt- spyrnumaður Samkvæmt nýjustu fréttum frá Danmörku, lítur ekki svo út að við fáum að sjá hinn fræga og ágæta hlaupara Gunn- ar Nielsen meðal danska lands- liðsins í frjálsum íþróttimi í sumar. Þar segir pð- hann hafi nú áfonnað að hætta keppni í hlaupum, og gei’ast knatt- spymumaður. Félag það sem hann gengur í er Akademisk Boldklub. Hann ætti að hafa úthald. 100 m skriðsund drengja: 1. Guðm. Gíslason IR 1,04,3 2. Sólon Sigurðsson Á 1,11,8 3. Sigurjón Hanness. SH 1,12,6 50 m flugsund drengja: 1. Guðmundur Gíslason IR 33,0 2. Birgir Jónsson Á 38,5 3. Tómas Zoega Á 40,2 50 m bringusund drengja: 1.. Einar Kristinsson Á 36,2 2.-3. Hörður Finnsson IBK 37,6 2.-3. Birgir Dagbjartss. SH 37,6 3x100 m þrís.und: 1. Sveit ÍR 3,36,2 2. Sveit Ármanns 3,39,3 3. Sveit ÍBK 3,46,0 Mót þetta var einnig stiga- mót og skiptu félögin stigunum þannig á milli sín: Ármann 38, ÍR 31, Ægir 16, ÍBK 9V2, ÍA 5 og SH-41/o. -<*> Valbjörn Þorláksscm. Fjögur íslandsmet sett é innan- hússmóti ÍR í frjálsum íþróttum Vilhjálmui: Einanssou setti nýtt met í þrístökki, langstökki og hástökki án atcennu, en Valibjöm Þosiláksson í stangazstökki Áður en keppnin hófst ávarp- aði Jakob Hafstein áhorfendur og keppendur og gat þess að nú væri í fyrsta ' sinn keppt innanhúss í stangarstökki á op- inbera móti. Það hefur alltaf verið áhugamál okkar ÍR-inga að leggja sem mest af mörkum til eflingar frjálsum íþróttum i landinu. Félagið hefur fengið frægan þýzkan þjálfara og við vonum að það verði félagi okk- ar til góðs og ekki síður öðrum íþróttamönnum landsins. Við höfum óskað eftir samvinnu við FRl til hagræðis fyrir frjálsíþróttamenn yfirleitt. Keppnin í þrístökki og stang- arstökki fór fram samtímis. í fyrsta stökki stökk Vilhjálmur undir Islandsmetinu, nema eitt sem hann gerði ógilt. íslands- metið var 9,82, en stökk Vil- hjálms voru: 9,53, — 9,83, — 9,84, — 9,92 — ógilt, 9,86. Dan- íel átti nokkuð góð stökk, voru þrjú þeirra um og yfir níu og hálfan metra. I langstökkinu, sem líka var án atrennu, hafði Vilhjálmur. forustuna í keppninni og ekki vantaði nema 2 sm að liann næði meti sínu sem er 3,26, og var það vel gert eftir að hafa keppt í þristökkinu. Vilhjálmur byrjaði á 3,11 og átti eitt stökk lakara (3,09). Stígur Hex’lufs- son KR stökk í fyrsta og síð- asta stökki sínu 3,11, og nægði það honum til að verða annar í keppninni. Guðmundur Valdi- marsson frá Héraðssambandi Strandamanna varð þriðji, og hann varð einnig í sama sæti í þrístökkinu. Imxanhússmetið J, stangar- stökfó bætt um 20 sm Stangarstökkskeppnin var mjög skemmtileg, Fjórir kepp- endanna fóra yfir 3,60 en þá heltust úr lestinni Brynjar Jensson og Valgai’ður Sigurðs- son, sem er nýr ÍR-ing-ur sem lofar góðu sem stangarstökkv- ari. Brynjar stökk 10 sm hærra en hann hefur áður gert inni. Heiðar Georgsson og Valbjörn fóru yfir 3,91 sem er betra en Vilhjálmur Einarsson Islandsmetið í innanhússstang- arstökki. Hærra fór Heiðar ekki en hann stökk 30 sm hærra en hann hafði áður gert inni. Val- björn hélt áfram, yfir 4,00 m og 4,10, og munaði ekki miklu að hann færi yfir 4,20. — Við framkvæmd stangarstökksins er komið fyrir lágum pöllum sem mynda um 20 m langa ati’ennu- bi’aut, og gróp fyrir stöng- ina komið fyrir á enda pall- brautarinnai’. Þennan árang- ur stangarstökkvaranna veiJSnr að telja mjög glæsilegan. Glæsiíygt met Vilhjálms í hástökfó Það var mikil. eftirvænting í sambandi við hástökkið án at- rennu. Mundi Vilhjálmi takast að bæta met sitt, 1,58, eftir að hafa keppt bæði í langstökki og þi’ístökki? Hæðin er komin upp í 1,55 og þar fellir hann S fyrstu tilraun, svo það lítur ekki vel út. í næstu tilraun fer hann yfir. Það er hækkað upp á I, 60, og enn fellir hann, en ’í annarri tilraun tókst allt veE„ og Islandsmetið er bætt um 2 sm. Það er hækkað upp í 1,65. ,,Ef hann stekkur þetta getur hann alveg éins sett heimsmt/* sagði sessunautur minn sernx veit hvað hann segir. Vilhjálm» ur einbeitir sér, og fólkið I salnum er hljótt og vill í hu z- anum lyfta undir „uppáhaldið’* sitt. Og hvað skeður, Vilhjál a- ur fer yfir í fyrstu tilraun! og hví skyldi hann ekki geta seft heimsmet, það eru „aðeins 8 sm í það“ ? Þetta sýndi hvílikur af- reksmaður Vilhjálmur er, að vinna þetta afrek eftir að hafa keppt í tveim greinum sama kvöldið með toppárangri. Armann J. Lárusson koxn á óvart í kúluvarpi 1 kúluvarpinu voru aðeir - þrír keppendur. Guðmundur Hernxannsson vann með nokkr- um yfii’burðum, en það eei ~ kom mest á óvart var Árman i J. Lárusson sem varpaði kú - unni 14,26 m. Er vafalaust mik- ið kúluvarparaefni í Áimanr: ef hann fengi tilsögn, en e.t kastlagi hans má ráða að han: er byrjandi eða heíur ekki no •• ið nægrar kennslu. Hann hefi r einmitt margt af því sem góði r kúluvax’pari þai’f að hafa. Þrið. maður var Guðjón Guðmund -- son úr KR og kom hann einní v nokkuð á óvart með því as varpa kúlunni 14,12 m, þvi kúluvarp hefur ekki verið fér— grein hans. Óvænt úrslit í hástökki með atrennu Þegar hástökkskeppnin hófta Framhald á 10. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.