Þjóðviljinn - 12.03.1957, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 12.03.1957, Blaðsíða 10
10) — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 12. marz 1957 Pétur Hraunijörð Framhald af 6. síðu. flest í Reykjavík, af níu börn- um sém þau eignuðust. Eftir að Pétur fluttist til Reykja- víkur hefur hann unnið lát- laust almenna verkamanna- vinnu, var í Dagsbrún, mjög áhugasamur og skilningsgóð- ur félagi, enda skildi hann hvar skórinn kreppir, þar sem þau hjón hafa lengst af lifað við kröpp kjör, mikla ómegð, og þurft mikið á sig að leggja. Þess er vert að geta í þessu sambandi, að Pétur taldi verkamannafélagið Dagsbrún sérstakt kjörbarn, sem á allan hátt væri skylt að standa saman um. Fljótlega komst^ hann því í trúnaðarráð fé- lagsins, og var í hinni fyrstu nefnd, sem undirbjó stofnun byggingafélagsins, er síðar reisti hina fyrstu verkamarma- bústaði hér í bæ. Síkviku.r áhugi hans fyrir félagsriálum alþýðunnar, var þess va’.dairdi að hann hvatti félaga sína bæði á vinnustað og í vina- hópi. Pétur Hraunfjörð Honum var ljóst að hamingja mannkynsins var fyrst og fremst undir því komin að vinna saman að hinum ýmsu flóknu þróunarmálum, og með því að stuðla að réttlæti og jöfnuði þegnanna. Hinn van- burða ber að styðja; var hann og barngóður með afbrigðum. I sálfræðilegum efnum hallað- ist hann fyrst og fremst að spíritismanum, hvað viðkom skilningi á viðhorfi til and- lega lífsins, enda kynnti hann sér þetta æðimikið. Bókelskur og sílesandi, aukandi fróðleik sinn og þroska. Það var ánægjulegt að tala við Pétur um marga hluti, svo var hann reifur, fróður og hjartahlýr. 1 eðli sínu var Pét- ur trúhneigður, og elskur að ljóðum, orti fjölda ljóða og vísna, sem flest bera vitni um trúhneigð og mannvináttu. Vér söknum Péturs sem hins trausta, velviljaða og harð- greinda alþýðumanns. Minn- ingin um hann er því björt og góð, — og mun lengi vara. Vér samhryggjumst fólki hans, og óskum að hin ljúfa minning um hann verði því til styrktar og hjálpar í áfram- haldandi starfi og lífi, og að hans bezti óskadraumur megi rætast. Har. S. Norðdahl. í þróttir '•’ramhald af 9. síðu. gerðu allir ráð fyrir að keppnin mundi standa milli Ingvars Hallsteinssonar og Sigurðar Lárussonar. En það óvænta skeði að Ingvar féll úr keppn- inni fyrstur og Sigurður felldi | það snemma að hann varð hugsaði Þriðji, en Guðjón Guðmundsson mikið um alvarleg efni, stjórn- mál, sálfræði, félagsmál og fékkst æðimikið við skáldskap. ð*-------------------------- Stúdentamótið Framhald af 7. síðu. af fullum krafti. Fram til skamms tíma hefur verið unnið að því að tryggja fjárhagsleg- an grundvöll mótsins. Alþingi Veitti 40 þús. króna styrk á nýafgreiddum fjárlögum, en áður hafði bæjarstjórn Reykja- víkur samþykkt 20 þús. kr. framlag til mótsins. Kostnaður íslenzkra aðila, þ. e. Skáksambands fslands og Stúdentaráðs Háskóla íslands, er áætlaður rúmar 100 þús. kr. Stærsti kostnaðarliðurinn staf- ar af þeirri skuldbindingu ís- lendinga að greiða 2/3 far- gjalds fjögurra keppenda frá hverju landi frá Kaupmanna- höfn til Reykjavíkur og til baka, og er miðað við fargjald á 2. farrými á Guilfossi. Ekki er unnt að skýra nánar frá öðru undirbúningsstarfi; það er svo umfangsmikið að nauðsyn- legt verður að ráða fastan starfsmann eða framkvæmda- stjóra mótsins, þegar líður að vori. Líklegt má þó telja, að skákkeppnin fari fram í í- þróttahúsi KR við Kaplaskjóls- veg, en þar er einn stærsti fá- anlegur salur í bænum, og er- lendu skákmönnunum verði1 séð fyrir gistingu í einhverjum bæjarskólanna. Ekki hefur enn verið gengið frá neinum samningum um þetta. En frá þessu öllu mun nánar skýrt síðar. í. H. J. og Heiðar Georgsson urðu að keppa um fyrsta sætið með aukastökkurn; þeir fóru allir þrír yfir’ 1,75 m. Mótið í heild var skemmti- legt og gekk vel. Það bitnaði svolítið á hástökkvurunum með atrennu hve þröngt var, þeir urðu að bið? svolítið. tíP^LIT: Langstökk án atrennu: 1. Vilhjálmur Einarss. ÍR 3,24 2. Stígur Herlufsson KR 3,11 3. Guðm. Valdimarss. HSS 3,06 Þrístökk án atrennu: 1. Vilhjálmur Einarss. IR 9,92 2. Daníel Halldórsson IR 9,57 3. Guðm. Valdimarss. HSS 9,09 Stangarstökk: 1. Valbjörn Þorláksson ÍR 4,10 2. Heiðar Georgsson IR 3,91 3. Brynjar Jensson IR 3,60 Hástökk án átrennu: 1. Vilhjálmur Einarss. ÍR 1,65 2. Valbjörn Þorláksson IR 1,50 3. Stígur Herlufsson KR 1,45 Kúluvarp: 1. Guðm. Hermannss. KR 14,81 2. Árm. J. Láruss. UMFP 14.24 3. Guðjón Guðmundss. K : 14,12 Hástökk með atrennu: 1. Heiðar Georgsson IR 1 75 2. Guðjón Guðmundss. KR 1.75 3. Sigurður Lárusson Á 1,75 Vilhjálmur Einarsson fékk flest stig úr atrennulau-u stökkunum og hlaut fyrir þeð farandbikar sem Pfaff gaf á sínum tíma. HLJÖMSVEITASTJÖRAR Hljómsveit óskast í Breiðíirðingabúð frá næstu mánaðamótum Sendið umsóknir ásamt upplýsingum um hljóðfæra- skipan og nöfn meðlima til félagsins, pósthólf 1338 fyrir n.k. þriðjudagskvöld. STJÓRN FÉLAGS ÍSL. HLJÓMLISTARMANNA Vantar húsnæði Einhleypur, reglusamur húsasmiður óskar eftir stofu með samliggjandi, litlu herbergi og geymslu- plássi einhversstaðar í húsinu. Gjörið svo vel að hringja. í síma 80410 milli kl. 7 og 8 á kvöldin. ÞYZKAR PIPUR filterhreinsara Söluturninn við Arrmrhöl Innflutningsskrifstofan hefur hinn 14. f.m. sett reglur um verðlagningu sem að áliti þeirra, sem við verzlun fást, eru fjarri því að vera í samræmi við kostnað við innkaup vara og dreifingu þeirra. Samkvæmt gildandi lögum ber að miða allar verðlagsákvarðanir við þörf fyrirtækja sem hafa vel skipulagðan og hagkvæman rekstur, en það á- kvæði hefur verið þverbrotið með hinum nýju reglum. Óhjákvæmileg afleiðing verðlagsákvæðanna er stórfelídur taprekstur verzlana, sem svo leiðir af sér minnkandi vöruúrval og í ýmsum greinum vöruskort. Af hinum nýju verðlagsreglum hlýtur ennfremur að leiða versnandi verzlunarkjör fyrir almenning, þar sem öll verzlunarstarfsemi og þjónusta í þess- um efnum lamast. Horfur eru á, að verðlagsákvæðin komi harðlega niður á hinum fjölmenna hópi launþega í landinu sem fæst við verzlun og vörudreifingu. Vegna þeas, að innflutningur og viðskipti að öðru leyti munu fyrirsjáanlega dragast saman, hljóta ríkissjóður og útflutningssjóður að missa af tekjum, sem gert hefur verið ráð fyrir. Það er harmað, að horfið skuli frá þeirri stefnu að auka frjálsræði í viðskiptum og láta eðlilega samkeppni fyrirtækja innbyrðis um hagkvæm iim- kaup og þjónustu við almenning ráða úrslitum um vöruverð. Það öryggi um verðlag, sem auk þessa hefur verið talið felast í tilveru samvinnuverzlana og einstaklingsreksturs hlið við hlið, er nú einskis metið af yfirvöldunum, en ströng höft tekin upp að nýju. Undirrituð samtök krefjast þess, að horfið verði frá núverandi stefnu í verzlunarmálum, og teknir upp frjálslegir verzlunarhættir, en að öðrum lcostí, að gildandi reglum sé breytt í það horf, að tekið sé fullt tillit til raunverulegs kostnaðar við innkaup og dreifingu vara í landinu. Samband smásöluverzlana Verzlunarráð íslands Kaupið vísitölubré Tryggið fjármuni yðar og kaupið hin skattfrjálsu vísitöiubréf veðdeildarinnar. Bréfin eru til sölu í bönkum, sparisjóðum og hjá verðbréfasölum. Landsbanki Islands

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.