Þjóðviljinn - 05.05.1957, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 05.05.1957, Blaðsíða 12
tSantgöngtimál Bústaða og smáíbúðahverfis rædd I bæjarstjórn Ekki von um auknar stræti svagnaferSir fyr en einhverntíma með haustinu Hve lengi eiga menn aS biSa á ber- svœSi á Miklubraut og Háaleitisvegi? „Bæjai’stj.órn samþykkir að beina því til forstjóra atrætisvagnanna að gera ráðstafanir til að fjölga ferðum í Bústaða- og smáíbúðahverfi, þannig að betur verði séð fyrir samgönguþörf íbúamia en nú er. Jafnfi’amt veröi gerðar ráðstafanir lil að koma þar upp þegar á þessu sumri nauðsynlegum. skýlum á viðkomustööum vagnanna og þó einkum á vegamótrun Miklubrautai’ og Háaleitis- vegar.“ Framanskráða tillögu flutti á þessari leið. Verst væri þetta Guðmundur Vigfússon á síðasta r.'bæjarstjórnarfundi. Benti hann á að þótt víða væri mörgu á- bótavant um strætisvagnaferðir til og frá úthverfunum, þá 'Væru ferðirnar í þessi hverfi einna mest ófullnægjandi. í iBústaðahverfinu hefðu verið byggðar um 200 íbúðir, síðan 500—600 hús í smáíbúðahverf- inu, þar við bættust nokkuð á annað hundrað íbúðir j raðhús- um. 1 þenna fjölmenna bæjar- hluta eru strætisvagnaferðir ekki örari en á hálftíma fresti,, auk hraðferðar, sem kemur við á miklu færri stöðum en hinn vagninn. Þá benti Guðmundur á að etrætisvagnaskýli væru engin þó á mótum Miklubrautar og Á leið til Tiflis Frá sendinefndinni sem fór ný- lega héðan til Sovétríkjanna í boði Voks kom svohljóðandi skeyti í gær: Erum á leið til Tiflis. Vellíðan. Kærar kveðjur. — Adolf. Skeytið er sent frá Moskva og mun því hafa verið sent er nefndin var á förum þaðan. Tifl- is er, sem kunnugt er, höfuð- borg Grúsíu, suður í Kákasus. Háaleitisvegar, þar væri bið- stöðin á íilgeru bersvæði og fólk gæti ekki einu sinni leitað afdreps í (iveðrum í skjóli af húsum í grenndinni. Þar þyrfti því mjög nuuðsynlega að koma skýli fljótlega. Borgarstjóri svaraði því að sótt hefði verið um leyfi fyrir 4 nýjum vögnum, ef það feng- ist kæmu þeir í haust, og fyrr bjóst hann ekki við ncinum úr- bótum. Lagði borgarstjóri til að vísa þvi til forstjóra stræt- isvagnanna og bæjarráðs livort fjölga þyrfti ferðum i þeiman bæjarhluta. Samþykkti íhaldið það með sínum 8 atkvæðum gegn 5 atkv. þlöÐVlLflN Sunnudagur 5. maí 1957 — 22. árgangur 100. tölubla#1 Kunnur, bandarískur kjarnorkuvís- indamaður flytur hér fyrirlestra í morgun kom hingaö til lands í boói íslenzk-ameríska íélagsins heimskunnur bandarískur kjamorkuvísinda- maður, dr. Dunning prófessor. Síödegis í gær flutti hann íyrirlestur í 1. kennslustofu háskólans um friðsamlega hagnýtingu kjamoi kunnar og í dag kl. 3 flytui hann annaö erindi um sama efni. Dr. Dunning er prófessor við Columbia-háskólann í New York og munu fyrirlestrar hans hér fjalla um kjamorkuvísindi. Hann er forstöðumaður verk- fræðingadeildar Columbiahá- skóla og hefur gegnt mörgum mikilvægum störfum í sam- bandi við þróun kjamorkuvís- indanna. Hann átti m.a. sæti í stjórn kjarnorkurannsóknar- stöðvarinnar í Oak Ridge og ... ■ ■ . r Fyrsta maí var það eltt aðal- verkefui hægri kratanna að hjálpa lhaldinu af fremsta meKni til að bæla reykvíska al- þýðu í húsum inni á degi verkalýðsins. Árangurimi varð sá elnn að Ioka innl fána nokkurra félaga, þar sem hægrikrötunum hefur tekizt að* koma Ihaldinu í stjórn, en ’ fólkið í félögunum hafði áköll j hægrikratanna að engu. Um tíma voru íhaldið og hægri! kratarnir að hugsa mn að liafa sína eigin göngu I. maí, — . sem bæjarhúar skýrðu þegar boðgöngu Ihaidsins — en það þótti voniaust fyrirtækl þegar á átti að lierða, En forustu- niönnum Ihalds og hægri krata þótti þó helviti hart að geta ekki liaft sína göngu og ákváðu að hún skyldi farin hvað sem tautaði. Svo sendu þeír nokkra krakka með pappaspjöld og eina blikkdós. Strákagreyin voru síðan send- ir til að ganga kringum Iðnó þegar verkalýðssamtökin voru , þar og vakiu þessi boðganga Ihaldsins og hægri kratanna Þjóðviljann vantar röska unglinga til blaðburðar í: Kvisthaga Nýbýlaveg Skúíagötu verðslaildaðan lilátur. — Á pappaspjöldin hafði íhaldið skrifað: aieira frí í skólum! Niður með Kron! Niður með SfS! Hér fyrir ofan sjáið þiö boð- göngu fhaidsins og luegrikrat- anna í Beykjavik 1. maí. Strætisvagnar Kópavogs íá tvo nýja vagna Kópavogsbær, sem tók fyrirvaralaust við rekstri stræt- isvagna þar í marzbyrjun, og hefur því cröið að fá leigu- vagna, fékk 1. maí 2 nýja Volvovagna og hefur hafið reksturinn meö þeim. í sambandi við þetta hafa orðið nokkrar breytingar á ferðum vagniannja. Aíusturbæjarbíllinn byrjar ferðir kl. 6.40 að morgni og fer þá inn Nýbýlaveg. Fyrsta ferð úr Lækjargötu er kl. 7.15. Vesturbæjarbíllinn fer frá Foss- vogsbúð kl. 6.50 að morgni en fyrsta ferð hans úr Lækjargötu er kl. 7.20. Á laugardags- og sunnudags- kvöldum fer vagn aukaferð frá en von er á þriðja vagninum í sumar. Kaup á þessum vögnum, sem kosta um hálfa aðra milljón króna, er mikið átak fyrir bæjar- félagið. En Kópavogsbúar hafa áður gert stærri átök, hlutfalls- lega, til framfara í byggð sinni, og ekki hlotið skaða eða vanza af. Kópavogskaupstaður neyddist til að taka við rekstri strætis- vagna um byggðina fyrirvara- Lækjargötu kl. 0.30 og ekur þá laust í byrjun marzmánaðar s.l., hringferð um Kópavog. vegna þess að sérleyfishafinn, í tilkynningu til Kópavogsbúa sem áður var, neitaði að halda um þetta segir m. a. svo: rekstrinum áfram, þegar hann „Strætisvagnar Kópavogs hefja þóttist sjá fram á, að honum yrði nú rekstur með tveimur nýjum ekki veitt sérleyfi til næstu 5 vögnum af einni stærstu og full-1 ára. Síðan hefur bærinn orðið að komnustu gerð, sem völ er á,1 Frahald á 10. síðu. vísindarannsóknardeild Banda- ríkjanna. Dr. Dunning er frægur fyrir- lesari og hefur ferðazt viða um Evrópu. Er dr. Dunning fyrsti fyrirlesarinn sem kemur hingað og flytur hér fyrirlestra að til- hlutan íslenzk-ameríska félags- ins, en það er ætlun félags- stjórnarinnar að fá hingað á næstunni fleiri kunna mennta- og vísindamenn frá Bandaríkj- unum. Með 1500 kolafconn í skjalatöskunjai Árdegis í gær ræddu blaða- menn við dr. Dunning. Vék bann þá m.a. að hinum gífur- legu möguleikum í sambandi við hagnýtingu kjarnorkunnar til friðsamlegra þarfa, á henni yi’ði að byggja í framtíðinni þar eð senn gengi á birgðir annarra orkugjafa í heiminum, einkum kola og olíu. Sagði dr. Dunning að taíið væri að í úi’- aníum sem til væri í heiminum fælist 25 sinnum meiri orka en í öllum öðrum orkugjöfum samanlögðum. Dró pi'ófessoi'inn upp úr tösku sinni málmtening á stæi’ð við stóran sykurmola, sem hann sagði að væri úran- íum er jafngilti sem aflgjafi 1500 lestum af kolum! Dr. Dunning kvað það sann- færingu sína að kjai’norkan ætti eftir að vei’ða til mikillar blessunar í friðsamlogu starfi, liann kvaðst ekki trúa því að nokkur viti borinn maður vildi leggja út í kjarnorkustyrjöld, slíkt væri algert brjálæði. sími 7500. Bjarni Benediktsson kynnir sínar Aftur og aftur gefst almenn- ingi tækifæri til að sjá hvað felst á bak við . lýðræðisgrímu Sjálfstæðisflokksins; m. a hef- ur það komið einkar skýrt fram í afstöðu Morgunblaðsjns til at- burðanna í Jórdan. Þar hafa konungur landsins og miðaldahöfðingjar afnumið öll lýðréttindi, bannað alla stjómmálaflokka, bannað öll verklýðsfélög, fangelsað menn í þúsundatali án dóms og laga, þar á meðal mikinn hluta þingsins; — og Morgunblaðið segir: „að Ilussein konungur hafi brugðizt skjótt við vandanum og sýnt óvenjulegt liugrekki ... Víst er að virðing konungs hafi aukizt til muna við þessar ðeil- ur og eigi hann nú meiri vin- sældum að fagna (!) meðal þjóðar sinnar en nokkru sinni fyrr. . (sé) rómað liversu vel hann liafi staðið í stöðu sinni.“ Ofbeidísverkin og fasisminn í Jórdan hlutu ýtrasta stuðning frá „fremsta lýðræðisríki heims“, Bandai’íkjunum; þau sendu heilan flota af herskip- um til austanverðs Miðjarðar- hafs og sögðust hafa kjarnorku- sprengjur og fallhlífarsveitir til taks ef fasismipn sigraði ekki í Jórdan: — og Morgunblaðið segir: „Hafa tíðindi þessi vakið mik- inn fögnuð í Amnxan.“ Um svipað leyti komu mút- urnar; Bandaríkin buðu Jórd- anskonungi milljónatugi í verð- laun fyrir að banna stjórnmála- samtök og verkaiýðsfélög; — og Morgunblaðið segir: „(er) aðstoðin boðin senx við- urkenniijg fyrir þá liugdii-fsku sem Hussein konungur og þjóð lians hafa sýnt.“ Þannig iítur Bjarni Bene- diktsson á atburðina í Jórdan; og það sem er hugdjarft og virðulegt og gott og rétt í Jói'dan er að sjálfsögðu þeim mun betra hér á íslandi Það er greinilegt að Bjarni Bene- diktsson teldi „virðingu sína aukast til muna“ ef hann hefði aðstöðu til að fangelsa and- stæðinga sína, banna stjóm- málaflokka ög verklýðsfélög, láta Bandai'íkin ógna með kjarn orkusprengjum og þiggja loks að launum milljónir í banda- rískum dollurum fyrir „hug- dirfskuna". Syngur sex kvöld Karlakór Reykjavíkur byrjar að syngja fyrir styrktarfélaga sína annað kvöld í Gamla bíó og ætlar að syngja fyrir þá hvert kvöld vikunnar. Dr. Páll ísólfsson stjórnar krónum nú vegna veikinda Sig- urðar Þórðarsonar, en Sigurður hefur verið stjómandi kórsins frá upphafi, eða síðan 1926. Á söngskránni eru 12 lög eftir innlenda og erlenda höfunda. Þrír einsöngvarar verða með kórnum: Þuríður Pálsdóttir. Þox’- steinn Hannesson og Guðmundur Guðnason, tenór. Þá munu þau Þurfður og Þorsteinn syngja þx'já dúetta eftir Mendeisohn í hléinu. Adénauer fær svar Framhald af 1. síðu. staddur hjá Adenauer þegar honum barst bréfið. Taiið er að það sé svar við viðbrögðum vest- urþýzku stjómarinnar við yfir- lýsingu Búlganíns, forsætisráð- herra Sovétríkjanna, um að kjarnorkustyrjöld á þýzkri gruixd \ myndi gera Þýzkaland að einum samfelldum kirkjugarði.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.