Þjóðviljinn - 28.03.1958, Síða 3
Föstudagur 28. marz 1958 — ÞJÓÐVILJINN — (8
FDJ er í Alþjóðasambandi lýð-
ræðissinnaðrar æsku, og er jafn-
framt þátttakandi í Alþjóðasam-
bandi stúdenta. Við höfum tíð
sendinefndaskipti og ágæta sam-
vinnu við öll lýðræðisleg æsku-
lýðssamtök bæði í sósíalískum
og kapítalískum löndum. Fyi-ir
unga sósíalista kemur ekki ann-
að til mála en að efla friðsam-
samleg samskipti allra þjóða.
FDJ sendinefndin sem nú dvelur
á íslandi í boði ÆF er ekki sú
fyrsta sem fer til kapitalískra
landa. Fyrir nokkrum vikum
var til dæmis sendinefnd frá
okkur í Indlandi. Samvinna okk-
ar við æskulýðssamtök í sósíal-
ísku löndunum er sérstaklega
náin.
Austur-Þjóðverjarnir á tali við liafnarverkamenn
(Ljósm. Þjóðviljans)
Spjallað við austurþýzka æskulýðs-
íulltrúa eftir 14 daga dvöl á Islandi
Undanfamar tvær vikur hafa tveir starfsmenn austur-
þýzku æskulýðssamtakanna, Freie Deutsche Jugend
(FDJ) verið hér í heimsókn í boöi Æskulýðsfylkingarinn-
ar. Á þessum tíma hafa þeir skoðað sig um í Reykjavík
og nágrenni, kynnt sér þjóðlífið í heild og þá sérstaklega
málefni æskunnar. Þessir ungu menn eru Peter Wilken,
prentari frá Rostock og Hans Dieterich, skipasmiður frá
Wismar.
Æskulýðssíðan notaði tækifærið og átti við þá eftirfar-
andi samtal. Þeir félagar halda heimleiðis í fyiTamálið.
Við snúum okkur strax að
æskulýðsmálunum, og spyrjum
hvað þeir telji helztu kosti þess
að leyfð séu aðeins ein æsku-
lýðssamtök í landi þeirra. Mörg-
um hér á landi finnst þetta tor-
skilið, vegna þess að við erum
vanir því að hafa mörg félög,
sem vinna að hinum ólíkustu á-
hugamálum.
Þeir svara spurningunni ræki-
lega á eftirfarandi hátt:
— Það er harmsaga þj'zkr-
ar æsku að hún var tvístruð í
mörgum félagssamtökum og gat
þess vegna ekki barizt gegn
hernaðarstefnunni og útþenslu-
stefnunni, sem leiddu til tveggja
heimsstyrjalda. í þessum styrj-
öldum létu milljónir æskufólks
lífið fyrir hagsmuni iðnkónga,
einokunarherra og stórjarðeig-
enda.
Verkalýðsforingi okkar Ernst
Thálmann kenndi þýzkum
verkalýð og æskunni að byggja
upp Þýzkaland sósíalismans í
krafti einingarinnar.
Æskulýðssamtök okkar (FDJ)
eru sósíalistísk einingarsamtök,
og meðlimir geta allir orðið, sem
af einlægni og í verki vinna að
uppbyggingu sósialismans og
friðsamlegri og lýðræðislegri
sameiningu Þýzkalands. Það
skiptir engu máli hvað flokki
landsins þeir tilheyra eða hvaða
trúarbrögð þeir játa.
Það var vegna þessa að Aden-
auer í nafni hemaðarsinna bann-
aði FDJ í Vestur-Þýzkalandi, en
þar voru samtökin einnig . starf-
andi. En viljann til baráttunnar
gegn hernaðarstefnunni í Vest-
ur-Þýzkalandi og fyrir friðsam-
legri sameiningu lands okkar er
ekki hægt að banna. Þessi vilji
er fyrir hendi meðal æskunnar í
V.-Þýzkalandi og kemur nú vel
í ljós í hreyfingunni sem berst
fyrir svæði án kjarnavopna í
Mið-Evrópu.
FDJ í Austur-Þýzkalandi telur
það höfuðverkefni sitt, að
styrkja flokk verkalýðsins og
ríkisstjórn alþýðulýðveldisins
Vegna skiptingar landsins urð-
um við að yfirvinna marga örð-
ugleika. Við höfum byggt upp
afkastamikinn iðnað og landbún-
að og Austur-Þýzkaland er þeg-
ar orðið fjórða mesta iðnaðar-
land í Evrópu. Meir en 90%
iðnaðarins eru í öruggri eigu
verkamanna og bænda og er
stjórnað af þeim. Miklir og víð-
tækir verzlunarsamningar, sem
hin þjóðnýttu iðnfyrirtæki okk-
ar gera við bæði vestræn og
austræn lönd á kaupstefnunni í
Leipzig, eru sönnun þess að af-
rek okkar eru viðurkennd.
— Unga fólkjð í A.-Þýzka-
landi lilýtur þó líka að hafa á-
huga á menntun, skemmtunum
og íþróttum. Hvað gerir FDJ
fyrir það í þessum efnum?
— Að sjálfsögðu tökum við
tillit til allra þessara áhuga-
mála í starfi okkar. Við höfum
líka mikinn stuðning frá ríkinu
til að gefa æskunni kost á að
njóta réttar síns til vinnu,
menntunar og skemmtana.
— Á hvað leggur FDJ nú
höfuðáherzlu í starfi sínu?
— Auk þess sem áður hefur
verið nefnt, eru starfræktir les-
hringir og fyrirlestrar á veg-
um hreyfingarinnar til upp
{ræðslu í pólitískum fræðum.
Rostock eru t. d. 200 leshring-
ir um þessar mundir að stúdera
hinn vísindalega sósíalisma
Æskufólk les líka og hlustar
gjarnan á hina gömlu þýzku
meistara Goethe, Schiller, Beet-
hoven og Heine, og nýtur til
þess stuðnings FDJ.
— Við höfum heyrt að haldin
sé „Eystrasaltsvika“ í A-Þýzka-
landi. Getið þið frætt okkur. eitt-
hvað um það?
— Þessi Eystrasaltsvika fer
fram fyrri hluta júlí að tilhlut-
an ALÆ. FDJ er g'estgjafinn og
býður löndunum 'sem 'lfggja'' að
Eystrasalti. Tiigangurinn með
mótinu er að efla samstarf frið-
elskandi æsku gegn hernaðar-
stefnu Atlanzhafsbandalagsins.
Allskonar menningar- og
skemmtiatriði verða á mótinu
sem haldið er á fögrum stað á
baðströndinni.
FDJ býður hópi íslenzks æsku-
fólks að taka þátt í þessu móti.
— Þar sem talsvert er smíðað
af skiþum fyrir íslendinga í A-
Þýzkalandi, vildum við gjarn-
an heyra eitthvað um þróun
skipasmíða hjá ykkur.
— Eftir stríðið hófst uppbygg-
ing skipasmíðaiðnaðarins í hér-
aðinu Rostock. Þessi gömlu, van-
þróuðu landbúnaðarhéruð voru
gerð að háþróuðu iðnaðarsvæði
Árið 1945 voru aðeins þrjár litl-
ar skipasmíðastöðvar á þessu
svæði, þar sem þrjú þúsund
verkamenn unnu. í dag eru þar
fimm stórar nýtízku skipasmíða-
stöðvar, þar sem 30.000 vel fag-
menntaðir verkamenn vinna, Ein
hin stærsta þeirra er Warnow-
skipasmíðastöðin í Warnemiinde
þar sem 10.000 lesta skip eru
smíðuð. Allar tegundir skipa eru
smíðaðar í skipasmíðastöðvum
okkar og er mikið af þeim selt
til annarra landa,
— Hvað er að segja um þessa
14 d'ága dvöl ykkar á íslandi?
— Land ykkar með þessa ó-
viðjafnanlegu náttúrufegurð er
í stuttu máli dásamlegt land.
Við höfum séð mikið og
kynnzt mörgu fólki úr öllum
þjóðféiagsstéttum, sérstaklega
æskufólki og verkafólki, sem við
áttum fjörugar og skemmtilegar
samræður við. Að okkar áliti
eru íslendingar mjög menntuð
og gáfuð þjóð, er hefur gott lag
á því að taka tæknina í þjón-
ustu sína.. Það er líka athyglis-
vert hversu almenningur er fróð-
ur um sögulega og menningar-
leg'a þróun landsins. Gestrisnin
sem við höfum notið hjá íslenzk-
um fjölskyldum er óviðjafnan-
leg. Við viljum nota tækifærið
til að þakka gestgjöfum okkar
fyrir þessar hjartanlegu móttök-
ur, sem okkur er ánægja að
geta sagt frá í heimalandi oklc-
ar. Við erum þegar famir að
lilakka til að hitta hóp ungra
íslendinga á Eystrasaltsmótinu í
sumar.
Sumaráætlun Flugfélags fslands:
Daglegar ferðir í sumar til Bretlands-
eyja og Kaupmannahafnar
Millilandaferðir verða 10 á ^iku í stað 9 í fyrra
— Sólfaxi verður í Grænlandsílugi
Sumaxáætlun Flugfélags fslands gengur í gildi í á-
föngum og að fullu 29. júní n.k.
Þá verða daglegar ferðir héðan til Kaupmannahafnar
og 2 á laugardögum, og þá einnig daglegar ferðir frá
Kaupmannahöfn. Til Bretlandseyja verða einnig dag-
legar ferðir og 3 á viku til Osló í stað 2ja í fyrra.
Sveinn Sæmundsson, blaða-
fulltrúi .Flugfélagsins skýrði
fréttamönnum frá eftirfarandi
í gær:
Frá 6. apríl Verða 5 ferðir
vikulega frá Reykjavik og
heim aftur. Frá 4. maí verða 6
Fjöldi ungs fólks gegnir á-
byrgðarmiklum stöðum í jijóð- 1 vikulegar ferðii. Fiá 1. júní
félaginu. Mjög margt' ungt fólk á jverða da^legar ffrðir' Fr/ f5'
sæti bæði á héraðsþingum og þjóð
þingi. Verksmiðjustjórinn í War-
now-skipasmíðgstöðinni i Warne-
miinde, þar bem 8000 menn
vinna, og skjpstjórinn á togar-
anum „Ilenningsdorf", sem hér
kom fyrir nokkrum dögum, eru
t. d. báðir kornungir menn.
Sextíu prósent stúdenta við
háskóla og iðnfræðiskóla eru úf
verkamanna- og bændastétt. í
Berlín og öðrum borgum erú
æskulýðsleikhús. Með „Lögurri
til stuðnings æskunni“ er æsk-
unni í borgum og þorpum trýggð
félagsheimili þar sem hún getur
unnið að áhugamálum sínum.
Auk þess eru til mörg og
margskonar íþróttafélög, sem
starfa sérstaklega að íþrótta-
málum.
júní verða átta vikulegar ferðir.
Frá 16. júní verða 9 vikulegar
ferðir og frá 29. júní verða
tíií vikulegar ferðir frá Reykja-
vík og heim aftur.
Reylí.jarnk — Kaupmaiuiahöfn,
8 ferðir á viku
Eftir að sumaráætlun milli-
iandaflugsins hefur að fullu
gengið í gildi, hinn 29. júní,
verða dagiegar ferðir frá
Reykjavík til Kaupmannahafn-
ar kl. 8 hvem morgun. Þar að
auki fer flugvél frá Reykjavik
til Kaupmannahafnar kl. 10
hvern laugardagsmorgun, svo
tvær ferðir eru frá Kaupmanna-
höfn til Reykjavikur hvem
sunnudag.
5 til Glasgow — 2 tíl London
Til Stóra-Bretlands verður
flogið hvern dag vikunnar. Þar
af em fimm ferðir til Glasgow
og tvær til London.
Til Osló verða þriár ferðir
vikulega í stað tveggja i fyrra-
sumar. Til Hamborgar verða
einnig þrjár vikulegar ferðir.
Sú breyting verður á Lund-
únaferðum frá þvi í fyrra, að
nú verða báðir leiðir flognar
án viðkomu í Glasgow.
Hinsvegar verður seinni laug-
ardagsferðin til Kaupmanna-
hafnar farin með viðkomu
í Glasgow og er það gert með
tiiliti til mikillar eftirspumar
eftir fari milli þessara borga,
en mörg sæti eru þegar pöntuð
á þeirri leið á komandi sumri.
Pantið far í tíma
Félagið vill vekja athygli
væntanlegra flugfarþega á því
að tryggja sér far í tíma, og
á það einkanlega við þá, sem
ætla að ferðast milli landa á
mesta annatíma millilandaflugs-
ins í júlí og ágúst.
Sólfaxi verður í Grænlands-
flugi allmikið í sumar fyrir
ýmsa aðila sem þar hafa fram-
kvæmdir með höndum.
Verkaskipting starfsmanna
Með tilliti til síaukinnar
starfsemi Flugfélags íslands,
hafa í vor verið gerðar eða eru
fyrirhugaðar nokkrar breyting-
ar á störfum einstakra starfs-
manna hjá félaginu.
Sigurður Matthíasson, sem
undanfarin ár hefur verið yfir-
maður millilandaflugs félagsins,
lætur nú af því starfi og verð-
ur fulltrúi forstjóra Flugfélags
Islands.
Birgir Þórliallsson, sem s.l.
sex ár hefur verið fulltrúi F,I.
í Kauomannahöfn, flyzt nú
he;m til Reykjavikur, þar sem
hann verður yfirmaður milli-
landaflugdeildar félagsins.
Birgir Þorgilsson, sem lengi
hefur starfað hjá Flugfélaginu
og verið hefur fullti’úi þess í
Hamhorg frá því félagið hóf
þangað flug fvrir tæpum þrem
árum, flyzt nú til Kauomanna-
hafnar og verður vfirmaður
skrifstofunnar og fulltrúi F.í.
þar.
Hákon Daníelsson, sem um
árabil starfaði hjá Flugfélagi
íslands og síðar hiá Loftleið-
nm í New York, hefur að nýju
ráðist til starfa hjá félaginu
og er nú fulltrúi þess og vfir-
maður skrifstofunnar í Ham-
borg. j