Þjóðviljinn - 30.05.1958, Side 9

Þjóðviljinn - 30.05.1958, Side 9
Föstudagur 30. mai 1958 ÞJÓDVILJINN — (9 % ÍÞRÖTTIR BrrSTJÓKh FMUAHn BSlCAWe Góður árangur í nokkrum greinum á E.Ö.P.-mótinu Hið svokallaða EÓP-mót, sem kennt er við okkar ágæta Er- lend Ó. Pétursson og ævinlega er haldið í nánd við afmæii hans, fór fram s.l. miðvikudags- kvöld. Setti Einar Sæmundsen mótið jneð stuttri ræðu og bar kveðju írá afmælisbaminu, sem var fjarverandi vegna lasleika. Veður var mjög kalt og varð árangur því ekki eins góður og gera hefði mátt ráð fyrir. Þó náðist nokkuð góður árangur í nokkrum greinum. Gunnaj- Húseby varpaði kúl- unni 15,57 m sem er góður ár- angur. Friðrik var næstur með 14,31. í kringlukastinu var keppnin mjög jöfn og árangur nokkuð góður. Friðrik Guðmundsson vann þá keppni, en Haligrímur var ekki langt frá honum eða 18 sm., og svo kom Þorsteinn Löve um hálfum metra aftar. Vilhjáimur Einarsson stökk röska 7 m í langstökki. Einar Frímannsson var í öðru sæti með 6,71 m. Það verður ekki annað sagt en að Svavar Markússon hafi byrj- að vel í 800 m. lilaupinu, því að tími hans 1,51,1 í þessu veðri var góður. Kristleifur Guð- björnsson náði einnig góðum ár- angri með því að ná öðru sæti og vinna Sigurð Guðnason. Á Kj-istleifur vafalaust eftir að lát^ mikið til sín heyra á kom- andi sumri. pað byrjaði ekki vel fyrir há- stökkvurunum í keppni þessari. Jón Pétursson virtist fremur ó öruggur en það var eins og hann sækti sig er á keppnina leið og svo fór að hann náði 1,85. Hann reyndi síðan við 1,91 m og mun- aði ekki miklu að hann færj yf- jr. Ef til vill hefur kuldinn átt sinn þátt í þessu. Heiðar Georgs- son náði öðru sæti, stökk 1,80, og lofar það góðu um að hann geri betur í sumar. Sigurður Lárusson virðist ekki enn vera fyllilega búinn að ná valdi yfir hinu nýja stökklagi sínu. Árangur Hilmars í 200 m hlaupi var nokuð góður, þegar tekið er tillit til þess að hann virtist ekki taka sérlega nærri sér í síðari hluta hlaupsins, í 800 m hlaupi drengjanna vöktu þeir Grétar Þorsteinsson og Helgi Hólm athygli i 800 m hlaupinu. Eru þar, að þvi er bezt verður sóð, góð efm á ferðinni, þótt árangur að þessu sinni hafi ekki verið sérlega góður. Hoðhlaupið var mjög spenn- flndi og tvísýnt alla leiðina. Voi-u það sveitir ÍR og KR sem börð- . ust um sigurinn og svo í'ór að þaer fengu sama tíma. í 100 m hlaupinu tóku aðeins þátt þeir sem ekki náðu 11.4 sek.,eða betri tíma á árinu 1957, en það hlaup vann Björgvin Hólm. Mótið gekk allvel, en sá mis- brestur varð á kynningu á því „_sern fram fór, að þeir sem voru í stúku heyrðu lítið sem.'ekkert af því sem sa’gt var, þar sem hátalarinn þar vjrtist óvirkur. Er þetta ábending fyrir völlinn að fylgzt sé rrieð því að þessi tæki og' ágæta þjónusta komi að tilætluðum notum. Úrslit í einstökum greinum: 100 m hlaup: Björgvin Hólm ÍR 11,6 Hörður Lárusson KR 11,7 Ólafur Gunnsteinss. IJMFÖ 11,8 Sigurður Sigurðsson USAH 11,8 200 m hlaup: Hilmar Þórbjörnsson A 22,5 Valbjörn Þorláksson ÍR 23,2 Trausti Ólafsson Á 24,3 400 m hlaup: Daníel Halldórsson ÍR 52J.8 Sigurður Þói'ðarson KR 56,1 Ólafur Adolfsson KR 59,2 800 m hlaup: Svavar Markússon KR 3.56,1 Kristleifur Guðbjömss. KR 1,58,4 Sigurður Guðnason ÍR 1,59,9 110 m gruulahlaup: Pétur Rögnvaldsson KR 15,0 Björgvin Hólm 15,4 Sigurður Björnsson KR 16,1 Hástökk; Jón Péturssón KR 3,85 Heiðar Georgsson ÍR 3,80 Sigurður Lárusson Á 1,70 Langstökk: Vilhjálmur Einarsson ÍR 7,02 Einar Frimannsson KR 6,71 Helgi Björnsson ÍR 6,58 Kúluvarp: Gunnar Huseby KR 15.57 Friðrik Guðmundsson KR 14,31 Hallgrímur Jónsson Á 13,98 Kringlukast: Friðrik Guðmundsson KR 48,54 Hallgrímur Jónsson Á 48,36 Þorsteinn Löve ÍR 47,89 Sleggjukast: Þórður Sigurðsson KR 51,40 Einar Ingimundarson ÍBK 47,70 Friðrik Guðmundsson 47,23 Stangarstiikk: Valbjörn Þorláksson 4,15 Heiðar Georgsson 4,01 Valgarður Sigurðsson ÍR 3,80 1000 m boðldaup: Sveit ÍR 2,06,4 Sveit KR 2,06,4 Ungiingasveit KR 2,21,8 60 m hlaup sveina: Kristján Eyjólfsson ÍR 8,0 Gústav Óskarsson KR 8,3 Trausti Guðjónsson KR 8,7 Hástpkk sveina: Þorvaldur Jónsson KR • 1,55 Kristján Eyjólfsson ÍR 1,50 Trausti Guðjónsson KR. 1,40 Elías Sveinbjöinsson KR 1,40 800 m hl. drengja: Grétar Þoi-steinsson Á 2,12,1 Helgi Hólm ÍR 2,12,6 Bjarni Ingimundarson KR 2,25,4 Bómarar og Iímiveroir í vikunni Leikir 31. mai: Háskólavöllur kl. 14. 2. flokkur KR - Víkingur. D. Sigurður Ólafsson. Lv. Sigm. Eiriksson, Gunnar Vagnsson. Kl. 15. 2. fl. Fram—Valur. D. Hreiðar Ársælsson. Lv. Jón Baldvinsson, Haraldur Bald- vinsson. 31. mai. Melavöllur: Bæjakeppni: Rvík—Akranes. D. Hannes Sigurðsson. Lv. Ingi Ey- vinds, Halldór Sigurðsson. KR-völlur: Kl. 14. 4. fl. A. KR—Valui'. D. Árni Þorgrímsson, 15. 4 fl. A. Vik.—Fram. D. Elías Hergeirsson. Kl. 14. 4. fl. B Fram B—KR D. Friðbj. Guðmundsson. 15. 4. fl. B, Fram C—Valur. D. Björn Árnason. Framvöllur: Kl. 14. 5. fi. A." Válur —Vík. D. Skúli Magnússoh. Kl. 15, 5. fl. Fram—KR. D. Guð- múndur Axelsson. Kl. 16, 5. fl. B. Valur-—Fram. D. Öskar A. Lárusson. Háskólavöliur: Kl. 9.30. 3. fl. A. Valur—Fram. D. Frímann Gunnlaugsson, KI. 10.30.3. fl. A. KR—Vikingur. D, Haraldur Baldvinsson, Leikir 1 júní: Valsvöllur: Kl. 9.30 3. fl. B. Fram—Valur. -D. Daníel Benjamínsson. Kl.. 10.30, 2. fl. B, Fram—KR. D. Árni Njálsson. Spurning vikummr: í leik sem íram fór- á Húsavík voru' tveir leikmenn að ræða saman en verða svo ósammála, sem. Ieiðir til þess að annar slær andstæðing sinn í rof. Hvað verður • dómarinn „flð gera? Dómarar ath: Aðgöngumiðar að Bæjakeppni Reykjavík— Akranes verða að sækjast fyrir kl. 20 í kvöld (föstudag 30. maí)' eftir það vérða þeir seldir öðr- um, (Reglugerð ÍBK urn boðs- miða)'. K. D. R. Reykjavíkurliðin sem keppa við Hafnarfjörð og Akranes á morgun Úrválslið (B-lið) Knattspyrnu- ráðs Reykjavíkur sem leikur við íþróttabandalag Hafnarfjarðar í tilefni af 50 ára afrnæli Hafnar- fjarðar. Leikurinn fer fram í Hafnai-firði laugardaginn 31. mai kl. 3.30 ríðd. Björgvin Hermannsson Val' Hreiðar Ársælssoft KR Árni Njálsson Val Páll Aronsson Val Hörður Felixson KR Helgi Jónsson KR Karl Bergmann Fram Sveinn Jónsson KR Óskar Sigurðsson KR Gi’étar Sigurðsson Fram Elleri Schram KR. Varamenn: Alexander G'Oðjónsson Þrótti Gunnar LeóssÖn Frarh ' Halldór Lúðvíksson Fram Guðjón Jónsson Fram Björgvin Ámason Fram Fyrirliði er Árni Njálsson. Úrvalslið Knattspyrnuráðs Reykjavíkur í bæjakeppninni við Akranes laugardaginn 31. maí á Melavelli kl. 5,30 e. h. ' Heimir Guðjónsson KR Rúnar Guðmannsson Fram Ólafur Gíslason KR Garðar Árnason KR Halldór Halldórsson Val Hinrik Lárusson Fram Dagbjartur Grímsson Fram Guðmundur Óskarsson Fram Þórólfur Beck KR Gunnar Guðmannsson KR ■’kúii Nilsea BVanf, Varamenn: Geir Kristjánsson Fram Guðmundur Guðmundsson Fram Bergsteinn Karlsson Víking Björgvin Daníelsson Val Ragnar Jóhannsson Fram. Fyrirliði er Gunnar Guðmanns- son. ;<Frá K.R.R.) TONLEIKAR Svar við spurningu síðustu viku: Óbein aukaspyma (Kn.sp.lög 13. gr.) Svar við spursmáii siðustu viku. * Hornflagg 1,6 rnetri. Það var kvartett Bjöms Ól- afssonar, sem að þessu sinni annaðist tónleika Tónlistarfé- lagsins, ásamt klarínettuleikar- anum Agli Jónssyni, en tónleik- arnir fóru fram í Austurbæjar- bíói 21. þ. m. og voru endur- teknir hinn 22. Þeir fjórmenningar Björn Ól- afsson, Jósef Felzmann, Jón Sen og Einar Vigfússon hófu tónleikana með því að leika 2. strengjakvartett Beethovens (G-dúr, op. 18), sem sumir telja, að hafi verið fullgerður fyrstur þeirra allra. Þetta er létt og bjarí verk, og það var hér flutt á fágaðan og stílhrein- an hátt, svo að ánægjulegt var á að hlýða. Næsta atriði var klarínettu- kvintett Mozarts, þar sem Egill Jónsson fór með aðalhluverkið, en áður nþfndir fjörir lista- merin með strengjahlutverkin. Egill hefur áður flutt þetta verk einmitt á hinum -sama stað ásamt Birni Ólafssyni og áðurnefndum félögum hans, og lauk undirritaður þá verðugu lofsorði á flutninginn. Skal þvi hér látið nægja að lýsa yfir því, að það, sem þá var sagt, á eigi síður við að þessu sinni. Síðasta atriðið var svo 7. ■ strengjakvartett Beethovens (F-dúr, op. 59). Þetta er flll- miklu veigameira verk en kvartettinn í G-dúr, sem fyrr var fluttur, og hér gafst þeim fjórum sérstakt tækifæri til að sýna, hvers þeir væru megnug- ir, enda náðu þeir sumsstað- ar mikilli hæð vandaðs ,.kamm- ermúsik“-flutnings, eins og t. d. í hinum furðulega ,,scherzo“- þætti og hinum undurfagra hæga þætti, þar sem saman fór framúrskarandi samleikur og lifandi túlkun. Hér voru auð- heyrilega að verki tónlistar- menn, sem bera virðingu fyrir verkefnum sínum, leggja fyilstu rækt við þau og láta sér ekki rninna nægja en það bezta, sem þeim er auðið að leggja fram. Beztu þökk fyrir ánægjulega tónleika. B. F. Rexoil brennarinn Fyriiliggjandi í öllum stærðum irá 0.75 gl.—16 gl. Allar stærðir til afgreiðslu strax í dag. Farið að dæmi fjöldans — Veljið R E X 0 I L Olíuverzlimíslands h.í. BP Símar: 24220, 24236. 1

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.