Þjóðviljinn - 01.07.1958, Qupperneq 1
1
H.C. Hansen er
lagður af stað
OH.C. Hansen, forsætísráð-
herra Danmerkur, leggur af
stað til Færeyja í kvöld. Það-
an fer hann til Grænlands
með viðkomu í Reykjavik.
.^Fullkoitiiii samstaða a llrar þjóðarlnnar inun færa okkur $igurff
Reglugerðin um 12 mílna f iskveiði-
landhelgi hefur fengið lagagildi
ReglugerÖin um stækkun fiskveiðilandhelginnar í 12 mílur var í gær undinituö
af Lúðvík Jósepssyni sjávarútvegsmálaráðherra og birt 1 Stjómartíðindum, sem gefin
voru út 1 gær. Hún hefur því hlotiö lagagildi, og kemur til framkvæmda eftir tvo
mánuöi, 1. september í haust.
í ræöu sem sjávarútvegsmálaráöherra flutti í ríkisútvarpiö í gær um landlielgis-
máliö komst hann m.a. svo aö orði: „Sú stœkkun fiskveiðUandhelginnar, sem hin
nýja reglug.erð ákveður, er öllum íslendingum mikið gleðiefni. Við vitum að hér er
lögformlega verið að auka við landsréttindi okkar, verið að tryggja okkur lögsögu og
full yfirráð yfir svæði sem við höfum talið okkur, en pó ekki fengið að njóta einir.
Stœkkun fiskveiöilandhélginnar hefur því svipuð áhrif á okkur og pað myndi hafa á
pjóð, að endurheimta til heimalands landshluta, sem lengi hefur verið prœtuepli eða
undir erlendum yfirráðum“.
á því svæði sem nú bætist við um landsins er raunverulega
Ræða Lúðvíks Jósepssonar,
þar sem gerð er grein fyrir
reglugerðinni nýju og rökum
íslendinga í iandhelgismálinu, er
í heild á þessa leið:
„í dag, 30. júní, var í sjávar-
úvegsmálaráðuneytinu undirrit-
uð og útgefin ný reglugerð um
fiskveiðilandhelgi íslands.
Reglugerðin er sett samkvæmt
iögum nr. 44 frá 1948 um vís-
indalegá friðun fiskimiða land-
grunnsins.
Aðalefni reglugerðarinnar er
þetta:
1. Fiskveiðilandhelgi íslands
skal vera 12 sjómilur út frá
grunnlínum.
2. Grunnlínur eru óbreyttar
frá því sem verið hefur.
3. Innan fiskveiðilandheiginn
ar eru allar veiðar erlendra
skipa bannaðar.
4. Sérstakiega er tekið fram,
að íslenzkum skipum, sem veiða
með botnvörpu, flotvörpu eða
dragnót, skuli heimilt að veiða
fiskveiðilandhelgina.
Nánari reglur um heimild
þessa skulu þó settar fyrir gild-
istökudag reglugerðarinnar og
tilgreina þar nánar veiðisvæði
og veiðitíma.
5. Reglugerðin skai öðiast gildi
1. september n.k.
Rök íslendinga
Fyrir röskum mánuði síðan
tók rikisstjórnin ákvörðun um
þessa stækkun fiskveiðilandhelg-
innar. Sú ákvörðun var opinber-
lega tilkynnt og það jafnframt
að lögformleg birting á hinni
nýju reglugerð yrði 30. júní.
Miklar umræður hafa orðið
um þessa ákvörðun okkar, bæði
innanlands og erlendis.
Sjónarmið okkar íslendinga
hafa komið skýrt fram og rök-
stuðningur okkar fyrir stækkun
fiskveiðilandhelginnar. Rök okk-
ar í stuttu máli eru þessit
1. Landgrunnið út frá strönd-
hluti af landinu sjálfu. Það er
glögglega afmarkað frá land-
grunni annarra landa. Alþingi
hefur með lögum lýst yfir full-
komnum yfirráðarétti Islendiriga
á öllu landgrunninu.
Sú stækkun fiskveiðilandhelg-
innar, sem nú er ákveðin nær
aðeins til hluta af landgrunns-
svæðinu. Aðrar þjóðir hafa tekið
sér einkaafnot á öllum föstum
verðmætum sem unnin verða úr
hafsbotni landgrunnssvæðisins,
ekki aðeins 12 mílur út frá
ströndum, heldur margfalt
lengra á haf út.
Við teljum nytjafiskana, sem
lifa á landgrunninu við Island
hliðstæð verðmæti, sem okkur
beri forgangsréttur til.
Framhald á 10. síðu.
Lúðvík Jósepsson undirritar reglugerðina um stæklíun íisk'«
veiðilandhelginnar í 12 m.ilur. Við hlið hans stendur Gunn«
iaugur Briem ráðuneytisstjóri, er einnig undirritaði reglugerðinai
Reglugerðin um 12 mílna fiskveiðilandhelgi
tnfiotrjonou*
rlX'
RtYKJAVIH
Grunnn'nustoðir
Grunntinur
F'skvtiditokmörh
S/emmlirftdtIIt Viio-Of 4ft»emC/titiilsiolvi>/>ei
Þetta kort a£ landhelgislínunni nýju er birt í Stjórnartíðindum, sem út komu í gær. Á því má
sjá grunnljinustaði, grunnlínur, núgildandi fiskveiðitakmörk og 12 mílna takmðrkin sem taka
gildii 1. september í haust.
Blaöamenn áttu í gær tal viö Lúövík Jósepsson sjáv-
arútvegsmálaráöheiTa og Gunnlaug Briem ráöuneytis-
stjóra og aflientu þeir blaöamönnum eintak af Stjórn-
artíðindum meö hinni nýju reglugerö. ^
Reglugerðin ný'ja er orðrétt |
samhljóða þeirri gerð sem birt
var hér í blaðinu 28. maí sl.
að undanskildum tveimur
formsbreytingum. Tekið var i
fram í reglugerðinni sjálfri að
reglur um togveiðar á nýja
svæðinu skuli settar fyrir 1.
september, og þess er ekki get-
ið sérstaklega í hinni nýju
reglugerð að íslenzk sjó'kort
skuli lögð til grundvallar. Að
öðru leyti er orðalag algerlega
hið sama. Fer reglugerðin nýja
hér á eftir í heild:
„Reglugerð um fiskveiðiland-
helgi íslands.
1. gr.
Fiskveiðilandhelgi íslands
skál afmörkuð 12 sjómílum ut-
an við grunnlínu, sem dregin
er milli eftirtalinna staða:
n.br. v.lg.
1. Hom 66°27'4 22°24'5
2. Iraboði 66"19'8 22Q06'5
3. Dranga-
sker 66°14'3 21°48'áí
4. Selsker 66c07'5 21°31'2I
5. Ásbúðarif 66°08'1 20°11'21
6. Siglunes 66°11'9 18°50'ÍU
7. Flatey 66°10'3 17°50'5i
8. Lágey 66°17'8 17°07'Q1
9. Rauði- ’ i
núpur 66°30'7 16°32'3Í
10. Rifstangi 66°32'3 16°11'9(
11. Hraunhafnar- i|
tangi 66°32'3 16°01'ð!
12. Langanes 66°22'6 14°32'Q(
13. Skálató- 1 f
arsker 65°59'7 14°37'S[
14. Bjarnarey 65°47'1 14°18'3I
15. Almenn- > i
ingsfles 65°33'1 13°40'<3
16. Glett- 11
inganes 65°30'6 13°36'4
17. Norðfjarð i
arhorn 65°10'O 13°31'(K
18. Gerpir 65°04'7 13°29'8!
19. Hólmur 64°58'9 13°30'.,J1
20. Setusker 64°57'7 I3°31'ð
21. Þursa- sl
sker 64°54'1 13° 360
Framhald á 1, síðUj j