Þjóðviljinn - 17.07.1958, Blaðsíða 10
JO) ■— ÞJÓÐVILJINN — Fimmtndagur 17. júlí 1958
KOMNIR
L
I _______
Stakir jakkar
Stakar buxur
Ensk úrvalseíni
* Nýtízku snið
Fallegar lita-
samsetningar
Það er yðar
að velja.
SUMARJAKIÍARNIR
Vesturgötu 17
Laugavegi 39
ERLEND
Framhald af 6. síðu
um í Egyþtalandi, Sýrlandi og
Irak og krefst yfirráða yfir
auðlindum landa sinna úr
höndum útlendinga. Stjórnir
Bretlands og Bandaríkjanna
láta eins og fom og máttug
sameiningarhugsjón sé eitthvað
sem Nasser hafi fundið upp
þeim til hrellingar. Bandarísk-
ur diplómat, sem lengi hefur
starfað í Asíulöndum, sagði
nýlega, þegar tal barst að erf-
iðleikunum sem utanríkisstefna
Bandaríkjanna á í þar um slóð-
ir: „Við stöndum öfugu meg-
in í byltingu og það er ekkert
áhiaupaverk“,
Stjórnarbyltingin í Irak sýnir
hvílíkt hrófatildur Bagdad-
bandalagið, óskabarn Duilesar,
er. Einmitt í Bagdad komu
Bandaríkjamenn og Bretar upp
umfangsmikilli stofnun innan
vébanda bandalagsins til þess
að fylgjast með undirróðri
geg'n stjómum bandalagsríkj-
anna og kæfa allar uppreisnar-
tilraunir í fæðingunni. Á mánu-
daginn vöknuðu njósnasér-
fræðingarnir svo við það að
TÍÐiNDl
sigursæl bylting hafði verið
gerð einmitt í Bagdad án þess
að þeir hefðu haft minnstu
hugmynd um hvað var á seyði.
Þá þrjá áratugi sem Nuri el
Said hefur stjórnað Irak hef-
ur stjórn hans aldrei verið full-
trúi annars en fámennrar
valdaklíku, sem gat hangið
við völd meðan herinn var
henni trúr, en ekki degi leng-
ur. Árum saman hafa böðlar
Nuris verið önnum kafnir við
að kvista niður sérhvern vísi
að verkalýðshreyfingu og
stjómmálastarfsemi meðal al-
mennings. Nú hefur langkúg-
uð þjóðin hefnt sín greypilega
á forsætisráðherranum og nán-
ustu samstarfsmönnum hans.
Við þann atburð fer hrollur
um einvalda næriiggjandi
ríkja, Irankeisara, olíukonung-
inn í Saudi Arabíumg olíufurst-
ana í Kuweit, Bahrein og Quat-
ar. Bandarískú landgöngulið-
arnir í Líbanon eiga að stappa
í þá stáiinu. Sjötti flotinn er
öfiugur, en hann mun hrökkva
skammt til að snúa við sögu-
þróuninni í Vestur-Asíu.
M.T.Ó.
f>órður
sjóari
En það var óhugsandi að hamingjan yrði þeim alltaf
jafn hliðholl. Að lokuin sá Field, að það yrði að fá
meiri inátarbirgðir og liann sendi Kiwi og Abdoel að
skipinu til að ná í allan dósamát um borð. En nú
hafði veðrið breytzt skyndilega og sjórinn varð úfn-
ari með hverri stundu sem leið. Þeim tókst þó vel
í fyrstu tilraun, en síðan sneri hamingjan við þeiin
bakinu. Er þeir leituðu vars og voru komnir upp að
ströndinni þá þreif heljarmikil alda bátinn og hann
brotnaði í spón við einn klettinn. Áhöfninni tókst við
illan leik að komast á þurrt, en eina leiðin til undan-
komu var nú úr sögunni og þeir sáu fram á annað
verra — að þeir yrðu hungurmorða.
Nasser aðvarar
Framhald af 1. siðu
fyrir Miðjarðarhafsbotni í voða,
svívirðir sáttmála SÞ og er ógn-
un við öll arabaríki sem neita
að beygja sig fyrir heimsvalda-
stefnunni. Ljóst er að Banda-
ríkjastjórn hefur notað þær
sjö vikur, sem. liðáar eru síðaii
uppreisnin hófst í Líbanon, tii
að undirbúa hernám landsins
og ógnanir í gerð óháðra ríkja“.
Sífellt berast fregnir um ,að
erlent herlið sé flutt með flug-
vélum til Jórdans í því skyni
að það taki þátt í innrás í Irak.
í gær tilkynnti blaðafulltrúi.
Eisenhowers Bandarikjafors.eta
að það væri ekki rétt að banda-
rískt herlið hefði verið sent til
Jórdans.
Fréttamenn höfðu eftir góðum
heimildum í Ankara að þjóð-
höfðingjar Tyrklands, Irans og
Pakistans, sem þar hafa setið
á fundi, hafi ráðið Hussein Jór-
danskpmiþgL ,tjl að biðja um
brezkt og bandarískt herlið.
Hussein ræddi í gær við
sendiherra Bandarikjarma, Bret-
lands og Tyrklands í Amman,
Fyrsta skeytið frá
Framhald af 1. síðu
an úr landi.
Bagdadútvarpið skýrði frá því
að 14.000 manna herlið frá Irak
sem sent hafði verið til Jórdans
Hussein konungi þar til halds
og trausts, sé komið innfyrir
landamæri Iraks að boði iýð-
veidisstjórnarinnar með öil
vopn sín. Þá sagði útvarpið að
járnbrautarsamgöngur í Irak
væru aftur komnar í eðlilegt
horf.
Fréttastofa araba í Kairó
sagði í gær að það hefðu verið
Bretar sjálfir sem kveiktu í
sendiráði sínu í Bagdad, þegar
þeir voru að brenna stóra stafla
af leyndarskjölum, svo að þau
kæmust ekki í hendur uppreisn-.
armanna.
K\UGARDAGUR:
3. LANDSMÓT
Landssambands hestamanna verður háð við
Skógarhóla, Þingvallasveit dagana 19. og 20. júlí
1958
DAGSKRA:
SUNNUDAGUR;
1. Kl 10.00
2. K!. 10.15
3. Ki. 13.00
4. Kl. 17.00
5. K1 20.00
6. Ki. 22.00
Mótið sett: Steinþór Gestsson, Hæli, form. L. H.
Sýning stóðhesta Hestar sýndir í skráningarröð.
Sýndar stóðhryssur. Dómum lýst og verðlaun
afhent.
Gæðingar í dómhring. Hestar sýndir, dómum
lýst og verðlaun afhent.
Kappreiðar, undanrásir. Skeið, 300 m hlaup og
400 metra hlaup.
Dansað í Þingvallarétt. (Ókeypis fyrir sýning-
argesti).
Ferðir írá
Bifreiðastöð íslands.
1. K). 9.30 Hópferð inn á sýningarsvæðið. Hestamannafé-
lögin með fána í .fararbroddi. Kl. 10 Bæn, sr.
Gunnar Jóhannesson.
Ræða: Forsætis- og landbúnaðarráðherra. Áð
því loknu heldur hópreið áfram um sýningar-
svæðið.
Kynbótahryssur sýndar og þeim lýst, eftir því
sem tími vmnst til.
Ræða: Gunnar Bjarnason, form. dómnefndar.
Stóðhestar sýndir, dómum lýst og verðlaun
afhent.
Gæðingasýning. Hestum lýst og dómum.
Úrslit í kappreiðum.
Að þvi loknu dregið í happdrætti og vinningar afhentir.
Dansaö ef veður leyfir og aðrar aðstæður leyfa.
2. Kl. 10.15
3. Kl. 11.15
4. Kl. 13.30
5. Kl. 17.30
6. K1 18.00
FRAMKVÆMDANEFNDIN