Þjóðviljinn - 17.07.1958, Blaðsíða 3
!WP
W.U«,U, „:WM
Fimmtudagur 17. júlí 1958 — ÞJÓÐVILJINN — (3
Suiinlcnzkir síldarsaltendtir vilja fá
allt að 80% útflutningsiippbætíir
„ef von ætti að verða um söltun suðurlandssíldar"
Félag síldarsaltenda á Suðvesturlandi hélt aðalfund
sinn nýlega. Samþykkti aðalfundurinn kröfu til ríkis-
stjórnarmnar um að hækka verðbætur á suðurlandssíld,
ef grundvöllur eigi að vera fyrir söltun. Vilja sunnlenzk-
?r síldarsaltendur fá 80% útflutningsbætur á síldina.
Formaður félagsins Jón Árna-
son frá Akranesi flutti skýrslu
um 'starfsemina á s.J. ári. 'Gat
hann þess að á sl. ári hefði ver-
ið samið um sölu á 85 þús. tunn-
um suðurJandssíldar, og hefði
það magn síðan 'aukizt vegna
þess hve norðurlandssíldin varð
lítil, og ekki næg upp í samn-
ihga. Hins vegar hefði rekneta-
yeiðin brugðizt, heildarsöltun
hefði ekki orðið nema 50 þús.
tunnur í stað 116 árið áður, og
hefði því afkoma síldarsaltenda
orðið mjög slæm.
Þá gat formaður þess að nú
væri búið að semja um sölu á 70
þús. tunnum'. suðurlandssíldar til
Sovétríkjanna og Póllands og 15
þús. til Austur-Þýzkalands. Auk
þess maetti láta suðurlandssíJd
ef norðurlandssíld vantaði í
samninga, og hugsanlegt væri
'að selja meira enn.
Krefjast meiri uppbóta
til
og
¦ Þá hvatti hann félagsmenn
að eignast nægar tunnur
vanda vöruna.
. . Þá ¦ ræddi formaður afkomu-
horfur síldarsaltenda, og segir
svo í frétt frá F.S.S.: „Niðurstöð-
.ur félagsstjórnarinnar hefðu orð-
:ið þær, að útflutaingsuppbætur
á suðurlandssíld, sem Alþingi
hefði ákveðið með lögum um
útflutningssjóð o.fl., væru al-
gerlegra óviðunandi. Kvað Jón
Árnason útflutningsbætur á Suð-
urlandssíld þurfa að vera a.m.
k. hinar sömu og á> bolfiskaf-
mrdir, aðra en sild, eða 80%, ef
von ætti að vera uim söltun suð-
urlandssíldar á þessu ári".
Svo' virðist sem við umræður
fundarins hafi birt eitthvað lít-
iisháttar yfir afkomuvonum síld-
arsaltenda, því samþykkt fund-
arins er mun vægari, hún er
svohljóðandi;
. „Aðalfundur F.S.S. haldinn 3.
júlí 1958, samþykkir að fela
stjórn félagsins að vinna að því
við rikisstjórnina, að verðbætur
Framhaldsstofn-
fundur Sjálfs-
bjargar í kvöld
Framhaldsstofnfundur Sjálfs-
bjargar, — félags fatlaðra í
Reykjavjík, ('síðasti áfangi)
verSur haldinn í KB-húsinu
við Kaplaskjólsveg fimmtudag-
inn 17. jólí n.k. kl. 8.30 e.h.
Á síðasta fundi bættust nær
50 nýir félagsmenn í hópinn.
Æskilegt væri að fleira fatlað
fólk, er áhuga hefur fyrir sam-
eiginlegum hagsmuna- og menn
ángarmálum fatlaðra, gerist
stofnendur Sjálfsbjargar.
Ef þig vantar farartæki þá
gerðu svp yel að hringja í síma
19246,34206 eða 18808 fyrir
- W. 7 á fimmtudaginn.
á útflutta suðurlandssíld verði
hækkaðar frá því sem nú er á-
kveðið. Það er áiit fundarins að
ekki sé að öðrum kosti fyrir
hendi grundvöllur fyrir söltun
suðurlandssíldar á þessu ári".
Vilja fá þróarstyrk
Gunnar Flóventsson, skrif-
stofustjóri síldarútvegsnefndar
tók næstur til máls, en hann
sat fundinn að bejðni F.S.S, All-
miklar umræður urðu á fund-
inum um möguleika á nýjung-
um í meðferð og verkun salt-
síldar, í því skyni að lækka
reksturskostnað við síldarsöltun
og að auka vörugæði.
Fundurinn gerði svohljóðandi
samþykkt:
„Aðalfundurinn samþykkir að
fela stjórninni að beita sér fyr-
ir því að gerðar verði tilraunir
1 með söltun sildar i pæk-
ilþró. Leitað verði styrks hjá
Síldarútvegsnefnd 'og Fiskimála-
sjóði í sambandi við þessar til-
raunir".
Vilja fá sæti i
Sildarútvegsnefnd
„Aðalfundur F.S.S. haldinn 3.
júlí 1958, samþykkir að skora á
Alþingi og ríkisstjórn að breyta
lögum um síldarútvegsnefnd
þannig >aö nefndin verði skipuð
7 mönnum í stað 5 eins og nú
er, og tilnefni F.S.S. 1 mann í
nefndina og Félag síldarsaltenda
á Norðurlandi 1 mann. Að öðru
leyti verði val manna i nefnd-
ina óbreytt".
Undirbúa samlagsstofnun
„Aðalfundur F.S.S., . haldinn
3. júlí 1958, samþykkir að fela
stjórn;.., félagsins að vinna að
rannsókn um möguleika að
stofnun samlags til sölu á salt-
síld,. semf framleidd er á félags-
svæðinu. Stjórnin skili áliti á
næsta aðalfundi".
Agæt síldveiði á austursvæðinu
Vilja selja meira til
Austur-Þýzkalands
Samþykkt var eftirfarandi:
„Aðalfundur F.S.S. beinir því
til Síldarútvegsnefndar, að hún
beiti sér nú þegar fyrir söJu á
verulegu magni suðurlandssíldar
til Austur-Þýzkalands af fram-
leiðslu komandi vertíðar".
Stjdrnarkosning
I stjórn félagsins voru kosnir
þessir menn;
Jón Árnason, Akranesi, for-
maður; ÓJafur Jónsson, Sand-
gerði, varaformaður. Meðstjórn-
endur: Guðsteinn Einarsson,
Grindavík; Bergsteinn Bjarna-
son, Hafnarfirði, og Margeir
Jónsson, Keflavík.
Kosnir voru fimm menn í vara-
stjórn og 11 menn í fulltrúaráð,
en stjórn og varastjórn skipa
einnig fulltrúaráðið. Fundar-
stjóri var Ingimar 'Einarsson.
Loks má geta þess, að féJags-
svæð F.S.S. nær yfir svæðið frá
Vestmannaeyjum vestur um
SuðurJand, Faxaflóa, Breiðafjörð
og Vestfirði að Horni.
Framhald af 12. síðu.
Austfjörðum.
Til Seyðisf jarðar komu í gær
morgun 20 skip með 5000-6000
mál, en daginn þar áður bárust
1300 mál þangað í bræðslu, 400
tunnur voru saltaðar og 380
frystar.
Síðdegis í gær komu til Seyð-
isfjarðar þessi skip: Sigrún AK
432 mál og tunnur, Sigurfari
SH 508, Ágúst Guðmundsson
450, Sidon 50, Húni 50, Jökull
500, Sigurfari VE 124, Stefán
Þór 500, Pétur Jónsson 500,
Álftanes 400, Fjalar 450, Hrafn
Sveinbjarnarson 500, Gissur
Hvíti 400, Sæborg 500, Geir
350, Stígandi 600, Kap 500, 01-
afur Magnússon 300, Straum-
nes 300, ennfremur Guðbjörg
VE og Völusteinn, eða síðdegis
um 8 þús. mál. — I gær var
saltað á Seyðisfirði í 300 tunn-
ur.-
Bræðsla hafin Vopnafirðí.
Síldarbræðslan á Vopnafirði
tók móti fyrstu síldinni í fyrri-
nótt. Þar hafa landað Bjarmi
150 tn. og 48 mál, Andri BA
100 tn. 184 mál, Hólmkell 150
tn., Reynir AK 500 mál, Hálf-
dán 499, Öðlingur VE 300, Sæ-
valdur 250, Magnús Marteins-
son 244, Faxi 88.
Éskifjörður.
Til Eskifjarðar komu Jón
Kjartansson með 650 mál og
tunnur. Voru 500 tunnur salt-
aðar á Eskifirði en 150 sendar
í bræðslu í Neskaupstað.
Síld í Reyðarfirði.
Síldina fékk Jón Kjartansson
mjög sunnarlega og syðsta
kastið suður af Skrúð. Á leið-
inni inn Reyðarf jörð varð hann
var síldar fyrir innan Seley.
Stöðvarfjörður.
Fyrsta síldin hefur borizt til
Stöðvarf jarðar, landaði Kamba-
röst þar 200 tunnum. Trillubát-
ur fékk þar 3 tunnur af síld í
lagnet.
Fáskrúðsfjörður.
Fyrsta síldin hefur einnig
borizt til Fáskrúðsfjarðar, þar
landaði Búðarfell 350 tunnum í
fyrradag og Stefán Árnason
150 tunnum í gær.
Sumargjöf stofnar nýjan leikskóla í
húsakynnum Óháða safnaðarins
Heitir Austurborg og tók til starfa, 8. þ.m.
Nýjum leikskóla, fyrir börn á aldrinum 2-6 ára, hefur
verið komi'ö á fót í Kirkjubæ, félagsheimili Óháða safn-
aöarins í Reykjavík. Leikskólinn ber nafnið Austurborg
og er þetta 9. barnaheimiliS sem Sumargjöf stofnar.
Fréttamenn sátu fund með Sumargjöf er nú með stóra
meðlimum úr stjórn Sumar- byggingu í smíðum við Forn-
gjafar og Óháða safnaðarins í haga sem mun koma í staðinn
gær og var þar skýrt svo frá, fyrir Tjarnarborg.
að Sumargjöf hefði farið þess | Leikskólastarfsemi fer alltaf
á leit við Óháða söfnuðinn að vaxandi hér í Reykjavík og
fá leigt húsnæði fyrir leikskóla nýbyggðu hverfin vilja öll fá
í félagsheimilinu. Var tekið . leikskóla, en sú starfsemi hef-
vel í þá beiðni og tók leik- ur öll hvílt á herðum Sumar-
skólinn til starfa 8. þ.m. eftir, gjafar, og mun félagið reyna
að athuga um leigu eða bygg-
ingu leikskóla eða dagheimila
í þeim hverfum bæjarins þar
sem þörf er á.
Stærri golfvöllur
Iðja fœr lífeyrissióð — en
atvinnurekendum selt sjálfdæmi um reglu-
gerð hans - Raunverulega samið til 2ja ára
í hinum nýju samningum Iðju, sem frá var skýrt á
Iöjufundinum í gærkvöldi eru jákvæð atriði sem ber að
fágria, eins og lífeyrissjóönum, en önnur forkastanleg
eins og að gefa atvinnurekendum sjálfdæmi um lífeyr-
issjóðmn og yfirráð hans og að semja raunverulega til
tveggja ára!
Það atriði sem sérstáklega
ber að fagna er að lífeyrissjóð-
ur tekur'til starfa 1. jan. n.k.
og borga atvinnurekendur 6%
í hann en Iðjufélagar þeir sem
unnið hafa 4 mánuði eða leng-
ur á sama vinnustað, greiða
4%.
Sá stóri böggull fylgir hins-
vegar skammrifi að atvinnu-
rekendum er tryggður meiri-
hluti í sjóðsstjórninni, þeir til-
nefna 3 menn en Iðja 2. Er
þetta mjög varhugavert
dæmi.
að lóð hafði verið girt og löguð
og gengið hafði verið frá leigu-
skilmálum.
Salarkynni leikskólans eru
hin vistlegustú og fyrir utan
skólann er komið fyrir leik-
tækjum á rúmgóðri og hentugri
lóð. Skólinn mun taka að fúllu
til starfa í haust og þá verða
tvær deildir, í staðinn
Bæjarráð samþykkti á fundi
sínum 15. þ.m. að verða við
fyrir þeim tilmælum Golfklúbbs
eina nú, og munu um 30 börn Reykjavíkur að hið nýja land
geta verið í morgundeild og um er hann fær til ráðstöfunar
35 í eftirmiðdagsdeild. [upp af Grafarholti verði 65 ha
Núverandi forstöðukona í stað 40, er áður hafði verið
barnaheimilisins er Hjördís ákveðið. Er þessi stækkun rök-
Jónsdóttir, en { haust mun taka studd með því að á minna
við forstöðu 'af ¦hénhi Dóra svæði sé ekki unnt að koma
Jónsdóttir. jfyrir 18 holu golfvelli.
Eina frágengna atriðið.
Ákvæðið um meirihluta at-
vinnurekenda í sjóðsstjórninni
er eina atriðið sem gengið hef-
ur verið frá í reglugerð sjóðs-
ins!
Þegar Iðja hefur þannig
skrifað undir samninga án þess
að reglugerðin væri sett geta
atvinnurekendur ráðið henni í
krafti meirihluta síns í sjóðs-
stjórninni. Er það ótækt að
selja atvinnurekendum þannig
sjálfdæmi um alla reglugerð
sjóðsins.
5% kauphækkun.
Kaup Iðjufólks hækkar um
5% og gildir sú hækkun frá
1. júlí. En um næstu áramót
lækkar útborgað kaup að sjálf-
sögðu vegna lífeyrissjóðs-
greiðslna.
Mjög jákvætt atriði er" í
samningunum en það er veru-
leg kauphækkun til kvenna sem
unnið hafa 4 ár eða lengur í
iðnaðinum.
Samið til tveggja ára!
Samningurinn gildir frá 1.
júlí til 31. desember 1959 eða
í eitt og hálft ár, en raunveru-
lega er þetta samningur til
tveggja ára því sé honum ekki
sagt upp með fyrirvara fram-
lengist hann af sjálfu sér um
6 mánuði, en áramót eru versti
tími fyrir Iðjufólk til uppsagn-
ar og ólíklegt að sá uppsagn-
artími verði notaður.
Eins og útlit er nú verður
að telja það fullkomið ábyrgð-
arleysi að semja þannig raun-
for- j verulega til tveggja ára, Að
vísu kvað formaður Iðju at-
vinnurekendur hafa heitið því,
að ef kaup annarra félaga
hækkaði á samningstímabilinu
„verði það séð við Iðju".
Samningurinn var samþykkt-
ur með 71 atkv. gegn 19, en á-
kvæðin um sjálfdæmi atvinnú-
rekenda yfir lífeyrissjóðnum
og samningstíminn vöktu mikla
gremju og reiði.
Övenjuleg vinnubrögð.
Björn Bjarnason gagnrýndi á
fundinum málsmeðferð stjórn-
arinnar. 28. apríl sl. samþykkti
félagsfundur að segja upp
samningum, en síðan hefur
enginn félagsfundur verið hald-
inn og stjórnin aldrei leitað
eftir þvi við félagsmenn hverj-
ar kröfur þeir vildu helzt að
væru fram bornar. Hinsvegar
tilnefndi stjórnin samninga-
nefnd og það var fyrst í gær,
eftir að hún var búin að sam-
þykkja samningana og skuld-
binda sig til þess að. mæla með
þeim, að félagsmenn fengu
nokkuð um þá að segja. Eru
þetta mjög óvenjuleg og óaf-
sakanleg vinnubrögð í verka-
.lýðsfélagi.