Þjóðviljinn - 24.09.1958, Page 9
47 — ÓSKASTUNDIN
SKÓLINN
Nú fer skólinn að byrja
fyrir alvöru, eða þann
1. október. f september
eru það aðeins litlu börn-
in 7, 8 og 9 ára, sem
sækja skóla.
í>ótt skólinn sé byrjað-
ur í alvöru, vilja stund-
um verða slæmar heimt-
ur, eins og sjá má á
þessari mynd, sem tek-
B Y R J A R
in var þegar in'fluenzu-
faraldurinn gekk í fyrra.
Að vísu er myndin ekki
úr skóla hér heldur frá
Noregi, en ástandið var
ekki betra hér — um
sama leyti. — Ekki þarf
influenzu til þess að hægt
verði að taka svona mynd
í sumum bekkjum hér i
bæ í vetur. Aðeins
venjulegt vetrarveður,
því sum börn eiga svo
langt að sækja skóla,
að þau yngstu treysta
sér ekki í slíka langferð,
ef eitthvað er að veðri.
Það er enginn smáspotti
fyrir sjö ára mann að
sækja Austurbæjarskóla
alla Ieið ur Blesugróf.
Einhver kennarinn ósk-
aði hklega að skipta um
skóla, ef hann flytti
þangað inn eftir.
Miðvikudagur 24. september — 4. árgangur — 30. tölublað.
Ritstjóri: Vilborg Daobjartsdóttir — Útgefándi: ÞjóSviljinn
Litla skáld
Ég ætla að heilsa heim frá þéí
Hlíðinni minni vænu;
hún er nú að' saunia sér
sumarklæðin. grænu.
Niðri um eng.jar, uppi um lilíð
yrkja á hörpur skærar
sumarljóðin létt og blíð
lindir silfurtærar.
á grœnni grein
bitla skáld á grænni greiu,
gott er þi&" að finna;
söm eru lögin sæt og hrein,
sumarkvæða þinna.
Þær verð ég að faðma fyrst
fyrir margt eiílt gaman;
við höfum sungið, við höfnm kysst,
við Iiöfum dansað saman.
Þar mun líka lifna á ný
litur bleikra kinna
hinum bláu augum í
æskusystra mimia.
KROSSGÁTAN
Lárétt:
1 hátíðisdagurinn
6 gosdrykkur 7
guð 9 sætindin 13
keyrði 14 lögur 15
sunna 17 svalir.
Lóðrétt:
1 borg í Gyðinga-
landi 2 hljómar 3
samhljóðar 4 sér-
hljóðar 5 ónefnd-
j ur 8 æðstur guðanna 9
j irtálát 10 árminni 11
hluta 12 sérhljóði og
samhljóði 16 tónn.
Kæra Óskastund!
Ég sendi þér þessa
krossgátu. Vertu blessuð
og sæl
Björn Ámason, 11 ára,
Reykjavík.
Við þínii létta unaðsóð
er svo Ijúft að dreyma;
það eru sömu sumarljóð,
sem ég vandist heima.
Eg- ætla að íiða Iangt í dag
laus úr öllum böndum,
meðan þú syngur sumarlag
Sjálands fögrru ströndum.
Láttu hljóma liátt og skært
hreina, mjúka strengi —
svo mig dreymi, dreymi vært.
dreymi rótt og Iengi.
Vilji einhver vínur kær
vísur mínar heyra,
syng ég eins og sunnanblær
sumarljóð í eyra.
Sjái ég unga silkililín
sitja fölva og hljóða,
kannist hún við kvæðin mín
kyssi ég hana rjóða.
Syngdu, vinur, syngdu skært,
syngdu á þýða strengi,
svo mig dreymi, dreymi vært,
dreymi rótt og lengi.
Miðvikudagur 24. september 1958 — ÞJÓÐVILJINN — (S
# ÍÞRÓTTIR
HTSTJCrji ntUíAMH HlLGASœ
Haustmótið í knattspyrnu
KH sigraði Val 1:0
Haustmót knattspyrnufélag-
anna í Reykjavik hélt áfram á
sunnudaginn og léku fyrst KR
og Valur. KR náði í fyrri hálf-
leik oft góðum leik, þar sem
knattspyrna var í hávegum
höfð. Var það hreinasta óheppni
eða klaufaskapur upp við mark-
;ð að nota ekki þau tækifæri sem
buðust á fyrsta stundarfjórðungi
leiteins, en þaðl voitj. minnst
þrír svokallaðir opnir möguleik-
ar að skora. Allt var þetta þó
misnotað, og hinn góði leikur
gaf ekki í mörkum það sem
hann verðskuldaði. Lá yfii'leitt
meira á Val þennan hálfleik.
Þó átti Valur við og við áhlaup,
en þau voru illa uppbyggð og
losaraleg og það var eins og
Valsmenn ættu afar erfitt með að
sameinast um neitt sem kallast
má góð knattspyi-na. Hreyfan-
leiki þeirra var lítill til þátttöku
í samleik sem átti að skapa sam-
felldan leik. Þeir þöfðu ekki
skilning á því að hi'eyfa sig á
þann stað sem bezt var að taka
á móti knettinum eða vera
mest til hjálpar við þann sem
hefur knöttinn. Að þessu leyti
stóð KR Val mun framar. Dugn-
aður einstaklinga Vals var ef til
vill ekkert minni en KR-inga,
en þeir hafa ekki enn lært þá
list að finna samleikinn í knatt-
spyrnunni og á meðan er liðið
illa á vegi statt. Lið Vals er
allt skipað ungum mönnum og
á þeim aldri að þeir geta lært,
og fyrir þá er ekkert annað að
gera en að lesa upp og læra
betur. Ætti það ekki að vera
erfitt fyrir menn á þessum aldri,
nema ef þeir eru sannfærðir um
að þeir kunni svo mikið að þeir
geti ekki lært meira, þá er það
tilgangslaust. Því miður er það
alitof algengt að menn á þeirra
aldri kunna svo mikið, að það er
ekki hægt að kenna þeim meira,
og að hlusta á eldri menn sem,
hafa lagt knattspyrnuskóna á
hilluna, er þeim tæpast samboð-
ið, þeir leika í meistaraflokki,
en þeir gömlu geta ekki neitt!
Það er lika algengt að heyra
að þeir’ sem gagnrýna kriatt-
spyxnumenn h'ér hafi ekkerit
vit á því sem þeir eru að skrifa
um, og þeir eru ekki teknir alv-
arlega nema þegar þeir hæla
tliði eða einstaklingum. Þegpr
þeir finna að, þá hafa þeir ekk-
ert vit á þessu!
Þetta er afar óheppilegt fyrir
unga manninn og knattspyrn-
una í heild og er i sannleika
flótti frá staðreyndum, afar leið
tilraun en árangursrík til þess
að ofmeta sjálfan sig og forð-
ast sjálfsgagnrýni sem öllum
Afgreiðslumaður
Samband ísl. samvinnufélaga óskar að ráða
afgreiðslumann sem fyrst að verzlun í Reykjavík.
Upplýsingar (ekki í síma) í starfsmannahaldi SÍS,
Sambandshúsinu við Sölvhólsgötu, III. hæð.
og ekki sízt ungum mönnum tíma til að hugsa og horfa. Dómari var Bjai-ni Jenssori og
er nauðsynlegt að hafa. Hörður Felixson var stex-kastimun það vera fyrsti leikur hans
Lið Vals var nærri það sama maður öftustu varnarinnar.í meistaraflokki. Slapp hann
og á móti Þrótti og lék í svipuð- Bjarni bróðir hans er stöðugtnokkuð sæmilega frá því, en
um „dúr“. Matthías Hjartarson vaxandi maður í bakvarðarstöðu.sleppti fullmiklu.
lék nú miðherja í stað Björg-
vins sem var lasinn. Hann á<*>------------------------------------------------------—-----------
margt gott til, en er heldur laus
og vantar þá yfirvegun sem
góður leiðtogi framlinunnar þai'f
að hafa. Gunnar Gunnarsson er
alltof órór og tilgangslaus í
hlaupum sínum langs og þvers,
og Jiýliðinn Bex’gsteinn virðist
ekki skemmta sér í þessu en á
ýmislegt gott til. Gunnlaugur er
of þunglamalegur, mitt í ákafa
sínum og dugnaði og skortir
leikni til þess að verða jákvæð-
ur. Hjálmar sýndi framför frá
leiknum við Þrótt og lofar nokk-
uð góðu. Bjöi’gvin í markinu
varði oft vel, en markið sem
Valur fékk átti hann að vei’ja.
I KR-liðinu var framlínan oft
vel leikandi. í síðari hálfleik
náði liðið í heild ekki eins góð-
um leik, en þó náði Valur ekki
undirtökum þó þeir ættu meiri
sókn en áður. KR skoraði seint
í fyi’ri hálfleik þetta eina mark.
Þeir Ifengu líkal dæmda víta-
spyrnu á Val sem var strangt
dæmt, en Gunnar Guðmannsson
skaut framhjá. Valur fékk líka
dæmda vítaspyrnu ó KR (einnig
strangt dæmt), en Gunnar Gunn-
arsson skaut svo nærri Heimi
að hann varði. Voru þá aðeins
2 mín. til leiksloka.
Gunnar Guðmannsson var oft
skemirftilega' hreyfanlegur og
raunar öll framlína KR-inga.
Sverrir Jónsson lék í stað Helga
sem framvörður, en hann nýtur
sín þar ekki eins og í stöðu inn-
herja, og var þó oft góður. Garð-
ar hefur skemmtilega yfirsýn og
þar af leiðandi gerir hann oftar
rétt en þeir sem ekki gefa sér
Auglýsing um sveinspróf
Sveinspróf í þeim iðngreinum sem löggiltar eru
fari fram í október/nóvemþer 1958.
Meisturum og iðnfyrirtækjum ber að senda for-
manni viðkomandi prófnefndar umsóknir um próf-
töku nemenda sinna ásamt venjulegum gögnum og
prófgjaldi fyrir 1. október n.k. Skrifstofa iðn-
fræðsluráðs lætur í té upplýsingar um formenn
prófnefnda.
Reykjavík 23. september 1958 — Iðnfræðsluráð