Þjóðviljinn - 14.10.1958, Qupperneq 3
Þriðjudagur 14. október 1958 — ÞJÓÐVILJINN — (3
Emi! Jónsson, Bemharð Stefánsson og
Einar Olgeirsson forsetar Alþingis
"r- • '4 ‘
Fjárlög og nokkur önnur þingskjöl Iög3 fram
Einn listi hernámsandstæðinga
við Stúdentaráðskosningarnar
Félag róttækra stúdenta og Þjóðvarnaríélag
stúdenta bera fram sameiginlegan lista
Á fundum sameinaðs þings og þingdeilda í gær voru
kosnir forsetar þingsins og skrifarar. Forseti sameinaðs
þings var kjörinn Emil Jónsson, forseti efri deildar Bern-
liarð Stefánsson og forseti neðri deildar Einar Olgeirsson.
Kosningar í sameinuðu þingi
íóru þannig:
Forseti: Emil .Tónsson, hlaut
28 atkvæði, Jón Pálmason hlaut
15.
1. varaforseti: Gunnar Jólianns-
son, hlaut 29 atkvæði, auðir
seðlar 16.
2. varaforseti; Karl Kristjáns-
son, hlaut 28 atkvæði, auðir
Seðlar 18
Skrifarar sameinaðs þings:
Skúli Guðmundsson og Friðjón
Þórðarson.
Einar Olgeirsson
forseti neðri deildar Alþingis
í neðri deild fóru kosningar
þannig:
Forseti Einar Olgeirsson, hlaut
18. atkvæði, Jón Sigurðsson
hlaut 11.
1. varaforseti: Halldór Ás-
grímssson, hlaut 19 atkvæði, 12
seðlar voru auðir.
2. Varaforseti Áki Jakobsson,
hlaut 18 atkvæði, 13 seðlar auð-
ir
Skrifarar neðri deildar: Páll
Þorsteinsson og Magnús Jónsson.
í efri deild fórur kosninga
þannig:
Forseti: Bernharð Síiefánsson,
hlaut 11 atkvæði, Sigurður
Bjarnason hlaut 5 atkvæði.
1. varaforseti: Friðjón Skarp-
héðinsson, hlaut 10 atkvæði, auð-
ir seðlar 6.
2. varaforseti: Alfreð Gíslason,
hlaut 11 atkvæði, auðir seðl-
ar 5.
Skrifarar efri deildar: Karl
Kristjánsson og Sigurður Ó.
Ólafsson.
Efri deild veitti sér þau af-
brigði frá þingsköpum að ekki
skyldi hlutað um sæti þing-
manna. Neðri deild fór hins veg-
ar að lögum og drógu þingmenn
sér ný sæti, Hófust flutningar
miklir innan þingsalarins og er
helzt fréttnæmt af þeim að Ól-
afur Thórs og Bjarni Benedikts-
son drógu sig saman og sitja nú
hlið við hlið, og Benedikt Grön-
lal dró töluna og sætið þrettán.
Frumvarp tU fjárlaga 1959 og
nokkur fleiri þingmál voru lögð
j fyrir þingið í gær, verður skýrt
! frá efni þeirra siðar.
Afli bæiartogaranna 7. ágúst til 8. október:
7363 fonn ísfiskur - 797 tonn
saltfiskur - seld 373 tonn
Undanfarna tvo mánuði hafa
togarar Bæjarútgerðar Reykja-
víkur stundað veiðar á f jarlæg-
um miðum, mest á Nýfundna-
landsmiðum, en nokkuð hafa
veiðar verið stundaðar við
Vestur-Grænland.
Á Nýfundnalandsmiðum hef-
ur svo að segja eingöngu veiðzt
karfi, sem allur hefur verið
lagður á land hér í Reykjavík
til vinnslu í frystihúsum bæj-
arins.
Við Vestur-Grænland hafa
aðallega verið stundaðar salt-
fiskveiðar, og hefur saltfiskur-
inn allur verið lagður upp í
Fiskverkunarstöð Bæjarútgerð-
ar Reykjavíkur, þar sem hann
hefur verið verkaður og seldur
til Jamaica.
Afli togaranna er sem hér
segir, Iandað í frystíhús
I Reykjavík
Ingólfur Amarson 1370 tonn
.Skúli Magnússon 1105 —
Hallveig Fróðadóttir 1535 —
Þorsteinn Ingólfsson 1263 —
Pétur Halldórsson 1358 —
Þormóður Goði 746 —
Samtals 7377 tonn
Saltfiskur í fiskverkunarstöð
Bæjarútgerðar Reykjavíkur
Jón Þorláksson 276 tonn
Þorkell máni 323 tonn
Þormóður goði 198 —
Selt erlendis
Jón Þorláksson 147 tonn
90.710 þýzk mörk.
Þorkell máni 226 tonn fyrir
192.000 þýzk mörk.
Samtals 373 tonn fyrir
282.710 þýzk mörk.
Þannig hafa því togarar Bæj-
arútgerðar Reykjavíkur landað
frá 7. ágúst til 8. október 7367
tonnum af íefiski, mest megnis
karfa, til vinnslu í frystihúsum
í Reykjavik, og lagt á land 797
tonn af ealtfiski til verkunar
í fiskverkunarstöð Bæjarút-
gerðar Reykjavikur. Einnig far-
ið tvær söluferðir til Cuxhaven
og selt 373 tonn fyrir 282.710
þýzk mörk.
(Frá IBæjarútgerð Rvk),
Kosningar til Stúdentaráðs Háskóla íslands fara fram
n. k. laugardag. Félag róttækra stúdenta og Þjóðvarn-
arfélag stúdenta bera fram sameiginlegan lista: Lista
hernámsandstæðinga.
7. Þorvarður Brynjólfsson,
stud. med.
8. Haraldur Henrysson,
stud. jur.
9. Hallveig Thorlacius,
stud. philol.
10. Guðmundur I. Eyjólfsson„3/-
stud. med.
11. Jón Hallsson,
stud. philol.
12. Ingiberg J. Hannesson,
stud. theol.
13. Örn Erlendsson,
stud. jur.
14. Þorgeir Þorgeirsson,
stud. med.
15. Árni Björnsson,
stud. mag.
16. Geir Magnússon,
stud. oecon.
17. Guðmundur Guðmundsson^
stud. med.
18. Jóhann Gunnarsson,
stud. philol.
Umboðsmaður listans er**>
Kristmann Eiðsson stud. jur.
Siglyfjarðarskarð
lokai og opnað
Siglufirði. Frá fréttaritara
Þjóðviljans.
Vegurinn yfir Sigluf jarðar-
skarð lokaðist á laugardaginn
var vegna snjóa; en snjór er nú
niður að sjó í Siglufirði.
Byrjað var að ryðja veginn á
sunnudaginn og í gær var hann
orðinn sæmilega fær öllum
kraftmiklum biium.
Samviima íbalds og krata á Skagastr.
Félag róttækra stúdenta
óskaði fyrir nokkru viðræðna
við hin vinstri félögin um sam-
eiginlegt' framboð gegn Vöku-
íhaldinu. Kom þegar fram á-
hugi á þessu máli hjá Þjóð-
varnarfélagi stúdenta og Fé-
(lagi frjálslyndra stúdenta, en
kratar kusu að gerast enn einu
sinni skósveinar íhaldsins og
neituðu allri samvinnu við í-
haldsandstæðinga. Gáfust þá
framsóknarmenn líka upp við
samvinnu-hugsjónina. Þegar
ar svo var komið, ákváðu þau
félög, sem ávallt hafa tekið
eindregnasta afstöðu gegn er-
lendri hersetu, Félag róttækra
stúdenta og Þjóðvamarfélag
stúdenta, að bera fram sam-
eiginlegan lista, lista hernáms-
andstæðinga. Listinn er þannig
skipaður:
1. Finnur T. Hjörleifsson,
stud. mag.
2. Guðmundur Steinsson,
stud. med.
3. Ragnar Arnalds,
stud. mag.
4. Hugrún Gunnarsdóttir,
stud. mag.
5. Loftur Magnússon,
stud. med.
6. Sveinbjörn Björnsson,
stud. polyt.
Emil Jónsson
forseti sameinaðs Alþingis
Bernharð Stefánsson
forseti efri deildar Alþingis
Margir Albýðuílokksmenn íengust ekki til
að kjósa vegna þessarar samvinnu
KosiÖ var til Alþýöusambandsþings í verkalýösfélagi
Skagastrandar um helgina. Formaöur Alþýöuflokks-
félagsins lézt fylgjandi vinstri samvinnu en kvaöst
þurfa að tala viö „sína menn“. Samdi svo við íhaldið
og kvaðst ekki hafa fengið vinstri samvinnu. En kjör-
dagana voru margir Alþýöuflokksmenn svo reiöir yfir
samvinnunni viö íhaldiö aö þeir sátu heima og kusu
ekki!
Framsóknarmenn og Alþýðu-
bandalagsmenn óskuðu eftir
vinstri samvinnu við Alþýðu-
sambandskosningarnar á Skaga-
strönd nú, eins og var haustið
1956. Björgvin Brynjólfsson, for-
maður Alþýðuflokksfélags Skaga-
strandar kvaðst „persónulega"
vera því fylgjandi, en þurfa að
tala við „sína menn“ áður.
Það drógst lengi að fá nokkurt
svar frá Björgvin um þetta, en
loks þegar það kom var það
um að „þeir hefðu ekki viljað
það“, og hafði hann þá samið
við íhaldið.
Aðalumboðsmenn Björgvins á
kjörstað voru þeir Þórður Kr.
Jónsson, stjórnarmaður í Sjálf-
stæðisflokksfélag'i sýslunnar og
Ingvar Jónsson Skála, formaður
Sjálfstæðisfl.félagsins á Skaga-
strönd.
Skagstrendingar þurfa því ekki
að ganga gruflandi að því hverj-
ir voru þeir menn sem Björgvin
talaði við.
Listi íhaldsins og Björgvins
fékk 80 atkvæði en listi vinstri
manna 31. Á kjörskrá voru 180,
en aðeins 112 greiddu atkvæði.
Aðalmenn voru kosnir Kristó-
fer Ámason og Björgvin Brynj-
ólfsson. Varafulltrúar eru Ingv-
ar Jónsson og Björgvin Jónsson,
Liðin eru nú tuttugu ár frá
því Virkir dagar komu út hjá
Isafold. Sú útgáfa seldist fljótt
því Sæmundur skipstjóri var
víða kunnur og hafði frá mörgu
fróðlegu að segja.
Þessari nýju útgáfu, sem er
réttar 600 blaðsíður í einu
bindi, fylgir tímatal og nafna-
skrá. Ennfremur er útgáfan
myndskreytt af Halldóri Pét-
Anárés Runólfs-
sqei Eátinn
Amlrés Runólfsson, faðir
Kristins E. Andréssorar og
þeirra bræðra, lézt á heimili
sonar síiis, Kris'jáns, að Vörðu-
stíg 7 í Hafnarfirði, aðfaranótt
s.I. sunnudags.
Andrés var fæddur á Helgu-
stöðum í Reyðarfirði og var nær
82ja ára er hann lézt. Hann
flutti til Hafnarfjarðar um 1910
og dvaldi þar til 1929 að hann
flutti norður að Drangsnesi og
átti þar heima þar til hann
flutti til Hafnarfjarðar aftur
fyrir tveim árum.
urssyni. Þá skrifar Hagalín
einnig eftirmála: Söguna af
Virkum dögum, þar sem harrn
segir Itá fyrstu kynnum sin-
um af Sæmundi og af því að
þessi útgáfa sé einnig til að
minnast Sæmundar skipstjóra,
sem nú er nýlátinn, jafnframt
þvi að Vera gefin út í tilefni
af sextugsafmæli höfundarins.
Virkir dagar í nýrri útgófu
Ævisaga Sæmundar Sæmundssonar skip-
sijóra. skráð al Guðmundi G. Hagalín
Norðri hefur gefið út, í nýrri útgáfu, Virka daga, sögur
Sæmundar Sæmundssonar skipstjóra, skráða af Guðmimdi G.
Hagalín, en hann er nýorðinn sextugur.