Þjóðviljinn - 26.10.1958, Side 5

Þjóðviljinn - 26.10.1958, Side 5
Sunnudagur 26. október 1958 — ÞJÖÐVILJINN (5 Lengl Hiir i gömlum glæðum óviiiáffttt Bretcs ©g Þjóðvevja Elisahef Bretadrotfning heimsœkir ekki Yesfur-Þýzkaland fyrst um sinn Viötökur þær sem forseti Vesttur-Þýzkalands, Theo- dor Heuss, fékk í Bretlandi hafa fært mönnum heim sanninn um að enn er langt frá því að forn fjand- Skapur sé glevmdur og grafinn. Eins og áður hefur verið Bkýrt frá var því veitt sérstök eftirtekt hve fálega íbúar Lundúna tóku hinum þýzka þjóöhcfðingja þegar hann ók um götur borgarinnar í fylgd með Elísabetu Englar.dsdrottn- ingu, gestgjafa sinum. Elísabet II. Þá var einnig eftir því tek- ið að margir gestir í veizlu þeirri sem borgarstjóri Lund- úna hélt Heuss létu hjá líða að drekka skálarnar, báru að vísu glösin að vörum sér, en dreyptu ekki á. Slík framkoma ein- kenndi allar viðtökurnar, kulda- leg kurteisi. Iíeimsóknin ekki endur- goldin í bráð „Þýzkaland hefur enn ekki verið tekið alveg í sátt“, sagði brezka biaðið Daily Express og bætti við að Elísabet drottning myndi áreiðanlega ékki endur- gjalda heimsókn Heuss fyrstu tvö árin. „Það er álit ríkisstjórnarinn- ar og ráðgjafa drottningar að af pólitískum ástæðum sé ó- tímabært að endurgjalda heim- sóknina fyrr“. IJtbreiddasta blað Bretlands, Daily Mirror, segir að það hafi verið pólitískt glapræði að bjóða Heuss í opinbera heim- sókn til Bretlands. Blaðið nefn- ir 5.000 sterlingspunda ávísun þá sem Heuss gaf til endur- reisnar dómkirkjunnar í Cov- entry og minnist þeirra um- mæla einhvers talsmanns ut- anríkisráðuneytisins að með þeirri gjöf væri bætt fyrir á- rás þýzka flughersins á borg- ina. Blaðið segir þau ummæli algert fávitalijal: „Við óskum ekki eftir neinum drykkjupen- ingum til að leggja á þjóð- helg leiði okkar“. Vesturþýzk blöð ræða einnig hinar kuidalegu viðtökur sem Theodor Ileuss Heuss fékk i Bretlandi. Gener- al-Anzeiger sem talið er sér- stakt málgagn Bonnstjórnar-1 innar segir að ekki komi til mála að Elisabet Englands- drottning komi í opinbera heimsókn til Vestur-Þýzkalands í bráð. Fölsk hlutabréf til sölu í Pai*ís 62 ára gamall maður, Georg- es Dubois, hefur játað fyrir rétti i París að hafa látið gera fölsk hlutabréf sem hljóðuðu upp á um 15 milljónir króna. Lögregian skýrði réttinum frá! því að þetta væri í fyrsta sinn sem hún hefði orðið var við fölsuð hlutabréf. Eftirlíkingin tókst svo vel að enginn starfs- manna né viðskiptamanna kauphallarinnar í París tók eft- ir því að bréfin voru fö’sk þeg- ar þau voru boðin til sölu þar. Eftir svindlinu var tekið í banka þegar þangað komu tvó hlutabréf sem báru sama núm- er. Skömmu síðar hafði lög- reglan fundið 3.600 hlutabréf, -öll með sama númeri. Flugvél smíðnð lír rvðfríu stáli Bristol-flugvélaverksmiðjurn- ar brezku eru nú að smiða flugvél úr ryðfríu etáli. Þetta; er tilraunaflugvél sem á að geta flogið 4.000 km á klukku- stund og því farið gegnum' „hitamúrinn". Þegar hraði liluta í gufuhvolfinu nálgast! 3.200 km á klukkustund verð- ur mótstaða loftsins svo mik-1 il að allir málmar bráðna nema i sérstakur kæliútbúnaður sé not- aður. Búizt er við að tilrauna- flugvélin mimi kosta um fimm milljónir sterlingspunda. Hjálmar Björns- son látinn Hjálmar Björnsson, elzti son- ur Gunnars og Ingibjargar Björnson lézt 24. þ. m. í Minn- eapolis, Bandaríkjunum. Verður hann jarðsettur á morgun, mánudag. Monlgoinery segir nauðsyn að gerbreyta slipulagi NATO Utanríkissteína USA sjálíri sér ósamkvæm, Eisenhower ekki mikill hermaðu# Montgomery marskálkur, sem nýlega lét af embætti sem annar æðsti lierstjóri Atlanzbandalagsins, hefur ritaö æviminningar sínar og gagnrýnir hann þar mjög allt skipulag bandalagsins og herja þess. Endurminningar hans hafa birzt í bandaríska vikuritinu Lil'e og það er í þriðja og síð-i asta kafla þeirra sem hann gagnrýnir bandalagið. Mont.gomery segir að utan- rikisstefna Bandarikjanna hafi ekki verið sjálfri sér samkvæm og hafi það orðið til r.5 veikja mjög hernaðaraðstcðu Atlanz- bandalagsins. „En N ' TO er einnig af cðrum orsökum í i slæmu ásigkomulagi og þarfn-! ast mjög gagngerðrar endur- sköðunar“. Hann segist ekki eiga von á etyrjöld í Evrópu fyrsta ára- tuginn, en hins vegar sé At- lanzbardalagið. ekki búið und- ir þá styrjöld sem hann telur að óvinaríki þess muni heyja.: „Utanríkisstefna Bandaríkj- anna hefur ekki bætt ástandið“, segir hann. „Mér finnst hún oft vera csamkvæm sjálfri sér. Bandaríkin virðast fylgja einni stefnu í Sameinuðu þjóðunum, í en annarri og andstæðri stefnu, þegar einungis er um hagsmuni j Bandaríkjanna sjálfra að ræða.; Þetta ósamræmi hefur verið ein meginástæðan fyrrir því hve hernaðaraðstaða vesturveld-j anna hefur versnað. Haldi | þessu áfram getur það leitt til þess að bandalag þeirra leysist upp“. Of mikil skriffinnska Hann segir brýna nauðsyn. Eisenliower bera til þess að rey.nt verði að hressa upp á Atlanzbardalagið þegar í stað. „Bandalagið hefur of mikla yfirbyggingu, pening- um er sóað, herráðsforingjar eru of margir og of mikil skrif- finnska. Öll herstjórn banda- lagsins er að áliti Mor.tgomerys of þung í vöfunum. „Ekki mikill hermaður“ Montgomery gerir heldur lít- ið úr herstjórnarliæfileikum Eisenhowers sem var æðsti for- ingi herafla vesturveldanna í síðustu heimsstyrjöld. ,,Ég myndi ekki kalla Ike mikinn hermann i þess orðs eiginlegu merkingu", segir hann. „Hann hefði getað orð- ið það, ef hann hefði nokk- urn tíma haft á hendi beina stjórn herdeildar eða herfylk- ingar, en því miður kom það a’drei í hans hlut“. Montgomery segir vesturveld- Montgomery in hafa gert sig sek um mik- ið glapræði í’ síðustu heims- styrjöld þegar þau léty hjá líða Framhald á. 10 síðu Volkswagen '58 1 Opei-Record '58 '7t »»{ Zephyr Six '58 • 71 Ford Preíect '55 1 Ford Junior '47 & Skoda 440 '56—'33 •x } liustiii A 70 '50 1 jjAustin 3 '46 y Skoda 2ja dyra '47 Moskwitch '58 . 1 Moskwitch '57 Moskwifeh "53 öpel-Caravan '53 \ Borgward '55 Hillmann '50 Skoda Station r ; f '52—'55 """5 Vauxhall '55 Pofeeda '54 áustin 10 ‘46 Vauxhall '54 '7% lover '50 < StandaFd 14 '47 Öragg þjónusta. Kiapparstíg 37. Sími 19032. ....u.uAíaJ!

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.