Þjóðviljinn - 22.11.1958, Blaðsíða 5
Laugardagur 22. nóvember 1958 — ÞJÖÐVILJINN — (5
Verzlun íslands við Austurevrópuríkin
heíur stóraukizt síðastliðið ár
Vöxtur sá, sem veri'ð hefur í verzlunarviðskiptum
Evrópuþjóðann innbyrðis hin sí'ðari ár viröist nú hafa
stöðvazt, að minnsta kosti í bili. Er talið víst, að á
árinu sem nú er að líða dragi heldur úr heildarvið-
skiptmium milli Evrópuþjóðanna samanborið við árið
áður. Efnahagsnefnd Sameinuöu þjóðanna, sem nýlega
sat fund í Genf komst að þessari niðurstöðu.
Samdrátturinn í verzlunar-
viðskiptum milli Evrópuland-
kom ekki með öllu á óvart.
Efnahagsnefndin. hafði þegar
í fyrstu ársfjórðungsskýrslum
sínum fyrir yfirstandandi ár
bent á hvert stefndi í þessum
efnum.
Það vakti sérstaka athygli
í fyrrnefndri ráðstefnu ECE,
að svo virðist sem einnig muni
draga úr viðskiptum milli Vest-
ur- og A/ stur-Evrópulanda á
þessu ári. Þessi viðskipti voru
í örum vexti þar til fyrir tveim
árum. 1957 fór að draga úr
viðskiptunum og 1958 hefur
ekki til þessa verið um neina
aukningu að ræða. Efnahags-
nefndin er þeirrar skoðunar
að aðalástæðan fyrir þessu sé
almennur viðskiptasamdráttur í
Vestur-Evrópulöndum og enn
fremur ástand í kola- og olíu-
verzluninni. En auk þess- er
það staðreynd, að minni hrá-
efnabirgðir eru nú fyrir hendi
í Vestur-Evrópu en á undan-
förnum árum.
Þá þótti ráðstefnunni það
a.thyglisvert, að útflutningurinn
frá Sovétríkjunum til Vestur-
Evrópu, sem-aðallega er mat-
væli og hráefni, hefur minnkað
um 15% á þessu ári, miðað
við árið sem leið.
I eftirfarandi töflu eru sýnd
viðskipti Norðurlandanna fimm
við Sovétríkin og Austur-Evr-
ópulönd á tímabilinu jan.—
ágúst 1957 og 1958. Tölurnar,
sem sýna milljónir dollara eru
úr hagskýrslum ECE:
Innflutt í jan.—ágúst frá títflutt í jan —ág. til
Sovétríkjunum A-Evrópul. Sovétr. A-Evrópul.
1957 1958 1957 1958 1957 1958 1957 1958
Danmörk 7,0 9,7 23,0 25,6 7,4 10,4 14,7 17,8
Finnland 10-1,0 77,1 87,8 33,0 99,4 120,9 44,2 51,2
Island 8,9 7,8 4,0 6,9 6,8 5,7 2,9 5,4
Noregur 12,2 9,0 13,6 13,4 10,4 10,6 14,2 13,1
Svíþjóð 19,8 13,8 23,2 19,8 9,5 7,8 26,7 22,5
(Frá upplýsingaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna).
Hasidíöktir Serkja
í Strasbourg
Lögreglan í Strasbourg í
Frakklandi gerði í fyrradag
mikla leit í þeim hverfum borg-
arinnar sem Serkir frá Alsír
búa í. Um 50 manns voru hand-
teknir.
Eftir að dómstóll í London
dæmdi Molly Bush í fangelsi
fyrir svjk og pretti kom í ljós
að hún var þunguð. Þegar kom
að þeim tíma að hún vænti -sin,
var hún fiutt í fæðingarheimili.
Samdægurs strauk hún, en nóð-
ist aftur og var flutt í fangels-
ið.
Vopnabúr IRÁ .
I New York
Lögreglan í New York hefur
fundið miklar vopnabirgðir í í-
búðarhúsi einu þar í borg. í í-
búðinni þar sem vopnin voru
geymd bjó írskur innflytjandi
og hefuf komið í ljós að vopn-
in, vélbyssur, handsprengjur
o.s.frv., voru ætluð írska lýð-
veldishernum, IRA. Innflytj-
andinn og fimm samstarfsmenn
hans haía verið handteknir.
liirt EneS erieetdgn
hsr fri larokké!
Mohammed 5. konungur í
Marokkó hefur krafizt þess, að
Bandaríkjamenn hverfi skilyrð-
islaust á hrott með herlið
sitt frá flugherstöðvum þeim,
er þeir hafa þar í landi.
Einnig krafðist hann þess.
að allar franskar og spánskar
hersveitir, sem fyrir eru í
landinu, hverfi þaðan.
Sagði 'konungur í ræðu sinni
að seta erlendra herja í land-
inu orsakaði stöðuga hætt.u
fyrir sjálfstæði og alla velferð
Marokkóbúa.
Irak hannár inn-
flutning á vörum
Stjórn Iraks hefur bannað
allan innflutning á frönskum
vörum til landsins. írak sleit
stjórnmálasambandi við Frakk-
land þegar árið 1856, er Bret-
ar og Frakkar réðuet á Egypta-
land og síðan í sumar þegar
byltingin var gerð í landinu,
hafa frönsk fyrirtæki ekki
fengið leyfi til að stunda neinn
rekstur í landinu og frönskum
farþegaflugvélum hefur verið
bannað að lenda þar.
UNIBOÐS- & HEILDVERZLUN
HVERFISGÖTU 50 • S I M I 1 048 5
Fyrii: þá sem byggja
útvegum vér: steypu-hrærivélar, afkastamiklar og sem auðvelt
er að hreyfa til. Ýmsar gerðir og aflvæðing. Stærðir frá 75 til
250 lítrar. — Vinsamlegast, látið oss vita hvers þér óskið.
Deutscher Innen- nnd Aussenliandel MASCHINEN-EXPORT
Molirenstrasse G1 (M7) BERLIN \V 8
Deutsclie Demokratische Republik