Þjóðviljinn - 01.03.1959, Síða 6
<?)
ÞJÓEVILJINN
SunnudagTir 1. marz 1959
ÞlÚÐVIUINN
ÚtRefandl: Samelnlngarflokkur alþýBu - Sóslallstaflokkurtnn. - KltstJórarj
Magnús KJartansson, Sigurður Ouðmundsson íáb.). - FréttaritstJóri: Jón
ftJarnason. — Hlaðamenn: Ásmundur SierurJónsson, Ouðmundur Vlefússon.
var E Jónsson. Matmús Torfl Ólafsson. SlKurJón Jóhannsson. Sigurður V
FriObJófsson. — AuslýslngastJórl: Guðuelr Magnússon. — Ritstjóm, af-
auKK«lne'or nrentsmjðla: SkólavðrOustíg 19. — Sími: 17-600 (S
liaur. — Askriftarverð kr. 30 á mánuðt — Lausasöluverð kr. 2.00.
Prentsmiðja Þjóðviljans.
Ósvífin ögrun
ffSretar hafa nú fyrirskipað
ránsflota sínum við fslands-
miö að stunda veiðiþjófnað á
tyeimur veigamestu miðum
bátaflotans. Er annað þjófnað-
arsvæðið á Selvogsgrunni, ein-
•nitt á þeim slóðum þar sem
Vestmannaeyjaþátar hafa eink-
arri sótt og talið aflavon að
undanförnu. Hitt svæðið er út
af Snæfellsnesi, en þau mið
ækja bátar frá verstöðvum
viö Breiðafjörð og einnig
Akranesbátar. Ákvörðun Breta
;im þessi nýju þjófnaðarsvæði
ítu þannig vísvitandi og ósvíf-
án ögrun við íslendinga; með
lienni er verið að stofna til
átaka við bátaflota íslendinga
einmitt þegar vonir standa til
að vertið hefjist fyrir a’vöru,
■og er ætlun Breta auðsjáan-
:ega sú að torvelda íslending-
lim vetrarvertíðina. Eftir þessa
íiðustu atburði spyrja sjó-
rnenn í verstöðvunum og þjóð-
n öLL: Er einnig ætlun stjórn-
arvaldaiuia að taka þessu ný.i-
tsta tilræði rycð þögn og þoL-
.nnueði og aðgerðarieysi?
;171ins og margsinnis hefur ver-
■*-* ið sannað og rakið hér i
biaðinu eiga íslenzkir aðilar
mikla sök á þvi að Bretar hófu
ofbeldisaðgerðir sinar hér við
and og hgfa síðan haldið þeim
áfram um sex mánaða skeið.
Veiðiþjófnaður Breta undir
herskipavernd hefur fært þeim
sáraiítinn afla en stórfelldan
'iiLkostnað; tilgangurinn með
honum er því ekki sá að hijóta
ábata af fiskveiðum. Áætlun
Breta hefur verið og er sú að
reyna að kúga íslendinga til
undanhalds með ofbe’.di og
ógnunum, og viðbrögð sumra
: IsLenzkra stjórnmálamanna hafa
sífellt haldið vonum Breta iif-
'andi um uppgjöf af hálfu Is-
lendinga,
Því var veitt athygii í Bret-
landi að á sl. vori þurfti
bókstaflega áð neyða Alþýðu-
flokkinn tiL þess að fallast á
stækkun landhelginnar og að
minristu munaði að ríkisstjóm-
in færi frá vegna átakanna um
það mál. Það fór ekki heldur
fram hjá Bretum að leiðtogar
Sjálfstæðisflokksins gerðu allt
sem þeir gátu til þess að hafa
áhrif á Alþýðuflokkinn og
kotna í veg fyrir ákvörðunina
um 12 mílna landhelgi. Brezka
sendiráðið hér lét það auðvit-
að ekki liggia í láginni í
skýrslum sinum til Bretastjórn-
ar að allt sl. sumar birti Morg-
unblaðið aðeins neikvæðan á-
róður um landhelgismálið,
tuggði upp níð andstæðinga
okkar með mikilli velþóknun-
un en birti ekkj eina einustu
-íslenzka röksemd. Allt þetta
--- auk þess sem kann að hafa
gerzt að tjaldabaki — kom
þeirri skoðun inn lijá brezkum
| s ic Á K ÞÁTTUR
örlagai'ík nefndarstörf
stjórnarvöldum að skoðanir ís-
lendinga í landhélgismálinu
væru skiptar, að áhrifamiklir
aðilar vildu sætta sig við
,,málamiðiun‘! urö minna en 12
mílur, og því væri sjálfsagt
að þrýsta eins fast að íslend-
ingum og þorandi væri. Með
neikvæðri og tvísfígandi fram-
komu sinni kölluðu ráðamenn
Sjálfstæðisflokksins og Alþýðu
flokksins þannig yfir okkur
hernaðarárás Breta og þær
stórfelldu liættur sem lienni
hafa fylgt.
Ixessi hikandi framkoma hef-
* ur síðan haldið áfram —
einnig eftir að Bretar hófu á-
rás sina og hafin voru hin af-
drifaríkustu átök um alla
framtið íslenzku þjóðarinnar.
Róðamenn Alþýðuflokksins og
Sjálfstæðisflokksins hafa all-
an tímann komið í veg fyrir
að íslendingar beittu þeim
vopnum sem áhrjfarikust voru
og Breta hefði sviðið mest und-
an. Eðlilegu stjórnmálasam-
bandi hefur verið haldið við
Bretland eins og ekkert hafi
í skorizt, á sama tíma og
brezk herskip hafa ógnað lög-
gæzlumönnum okkar og beitt
þá ofbeldi dag eftir dag. Engin
. • r*
skýrsla hefur verið send Sam-
einuðu þjóðunum um árás
Breta, enda þótt þeir hafi aug-
Ljóslega brotið sáttmála Sam-
einuðu þjóðanna með framferði
sínu. íslendingar eru enn í
herngðarbandalagi við Breta,
aðilar að Atlanzhafsbandalag-
inu sem þó liefur rofið öll sín
heit með því að styðja beint og
óbeint hernaðaraðgerðir Breta
gegn íslendingum. Og enn
dvelst hér „varnarlið“ á veg-
um þessa bandalags, þótt það
hafi brugðizt öllum þeim skyld-
um sem liernámssinnar töldu
því til ágætis. ÖIL þessi atrjði
liafa orðið Bretum staðfesting
þess að Það mætti bjóða fs-
lendingum hvað sem væri, hér
væru valdainiklir aðilar sem
væm trúrri erlendum fyrirmæl-
um en augljósnstu hagsmunum
þjóðar sjnnar og þeir myndu
að lokum „leysa“ landhelgis-
deiluna með málamiðlun í sam-
iremi við óskir Breta.
"ITonir Breta um síka lausn
® hafa birzt mjög greinilega
eftir að vinstri stjómin fór
frá og íhald og Alþýðuflokkur
tóku höndum saman um stjórn
landsins. Síðan hafa einnig
gerzt ýmsir kynlegir atburðir,
svo sem Valafellshneykslið á
Seyðisfirði. 'Innrás Breta á
bátamiðin sýnir síðan Ijóslega
að nú er ætlun andstæðinga
okkar að knýja fast á, og verð-
ur srinnarlega fróðlegt að sjá
viðbrögð Guðmundar í. Guð-
m.undssonar og- félaga hans.
Á fyrra hluta aðalfundar
Skáksambands íslands, sem
lialdinn var e.l. sunnudag
lagði stjórn sambandsins
fram tillögur til breytinga. á
lögum sambandsins. Snerta
breytingarnar einkum landslið
íslands. Ein veigamesta breyt-
ingin er sú, að stjóm Skák-
sambandsins skuli hafa vald
til að velja fjórðung kepp-
enda til landsliðsins og auk
þess velja menn í stað þeirra
réttindamanna, er kunna að
forfallast. Samkvæmt fenginni
reynslu um forföll manna í
landsliði er ekki óvarlega á-
ætlað, að Skáksambands-
stjórnin kæmi samkvæmt
nefndri breytingartillögu til
með að velja um eða yfir
50% þátttakenda í landsliðs-
keppni.
Ýmsum fulltrúum á fundin-
um þótti sem hér væri alltof
mikið vald lagt upp i hendur
stjórnar Skáksambandsins og
bentu á, hve það er vanda-
samt og óvinsælt starf að
velja og hafna þegar menn
eru valdir til keppni, enda
algjörlega ástæðulaust að
leggja inn á þá braut, þar
sem sú leið, sem hingað til
hefur verið farin að láta menn
keppa um réttindin til lands-
liðs hefði enga sýnilega á-
galla. Var bent á til saman-
burðar, að ekki mundi það
þykja lýðræðislegt, ef forseti
íslands fengi vald til að skipa
lielming alþingismanna, án til-
lits til kosningaúrslita.
Ýmsar fleiri greinar hihna
fyrirhuguðu lagabreytinga ollu
ágreiningi á fundinum og
voru einkum fulltrúar Taflfé-
lags Reykjavikur ósammála
Skáksambandsstjóm i veiga-^
miklum atriðum og lögðu
fram breytingartillögur við
breytingartillögurnar. Þótti þá
sýnt að til tíðinda drægi.
Fyrir eggjanir liollráðra
manna tókst þó að bera klæði
á vopnin og var siðan kosin
nefnd sex manna til að reyna
að samræma tillögurnar og
henni veittur til þess viku-
frestur en framhaldsaðalfund-
ur Skáksambandsins verður í
dag 1. marz.
Eftirtaldir menn skipa
nefnina:
Fyrir hönd Taflfélags
Reykjavíkur: Högni ísleifsson,
Jón Pálsson, Óli Valdimars-
son.
Fyrir Taflfélag Hafnar-
fjarðarí Árni Finnsson.
Fyrir Taflfélag Patreks-
fjarðar: Þorvaldur Tliorodd-
sen.
Fyrir Taflfélag Sauðár-
króks: IIjálmar Theodórsson.
Nefrd þessi skal leita sam-
komulags við fjögurra manna
laganefnd Skáksambandsins,
en hana ekipa: Ásgeir Þ. Ás-
geirsson, Guðmundur Arn-
laugsson, Baldur Möller og
Sigurður Jónsson.
Vonandi tekst nefndarmönn-
um að komast að farsælum
niðurstöðum, sem skákmenn
almennt geta sætt sig við og
vonandi ber síðan framhalds-
aðalfundurinn gæfu tll að sam-
þykkja þær. Sérstaklega vænt-
ir þátturinn þess, að sá hátt-
ur verði á hafður hér eftir
sem hingað til að láta menn
keppa um réttindi til lands-
liðs og horfið verði frá þeirii
fráleitu fyrirætlun Skáksam-
bandsstjómarinnar að láta
þessi réttindi vera að veru-
legu leyti háð skeikulu mati
og ef til vill annarlegum
sjónarmiðum manna.
Ifinir sex
sióru
Þegar þetta er ritað, er að
hefjast úrslitakeppni sex
manna um titilinn Skákmeist-
ari Reykjavíkur 1959. Eru
þarna þrír efstu menn úr
hvorum riðli undanrásanna
samankomnir, en þeir eru Ingi
R. Jóhannsson, Stefán Briem,
Arinbjörn Guðmundsson, Jón
Þorsteinsson, Benoný Bene-
diktsson og Jónas Þorvalds-
sori. Munu þeir tefla ein-
falda umferð til úrslita. Ekki
er hægt að spá öðrum efsta
sætinu en Inga, enda þótt ó-
væntir hlutir kunni að gerast
og iitlu megi muna í svona
stuttu móti. Hann býr yfir
öruggastri tækni þeirra sex-
menninganna og er þeirra
lærðastur, endá sýndi hann
á Olympíuskákmótinu í
Miinchen, að hann er að
verða h'utgengur í hópi
sterkustu alþjóðlegra meistara
erlendra.
Hver næstur honum kann
að ganga, hvort það verður
annarhvor berserkjanna Ben-
oný Benediktsson eða Jón
Þorsteinsson, Arinbjörn með
með sinn lipra positionstíl,
eða annaðhvort ungmennanna
Stefán eða Jónas, um það
treysti ég mér ekki að spá
neinu.
Við híðum eftirvæntingar-
fullir og sjáum hverju fram
vindur.
Svo er að lokum ein ekák
frá undanrásuni Reykjavíkur-
þingsins:
Hvítt: Guðmundur Ársælsson
Svart: Sigurður Jónsson
Spánskur leikur
i. e4 e5
2. Rf3 Ee6
3. Bb5 afi
4. Ba4 dfi
Vörnín, sem Sigurður velur,
er kennd við Austurríkismann-
inn W. Steinitz, fyrsta opin-
bera heimsmeistarann í skák.
5. 0—0 Bd7
Ludek Pachmann telur 5.
0—0 veikan leik, þar sem
svartur geti svarað honum
með 5. — Bg4. T.d. 6. c3,
Df6. 7. d3. Rg—e7. 8. Be3,
Bxf3. 9. Dxf3, Dxf3. 10. gxf3,
g5! og svartur stendur vel.
6. h3 í þessu afbrigði svarar
svartur hins vegar með 6. —•
h5!).
6. e3 gfi
7. d4 Bg7
8. dxeö dxeð
Hvorugur kennenida teflir
hvrjunina riákvæmt. 8. —
Rxe5 léttir meira á svörtum.
Sterkasti leikur hvíts væri nú
9. Bg5).
9. Kb-d2 Rg-e7
10. De2 0—0
11. Hdl Kh8
Svartur er nú laus úr öllum
bvrjunarerfiðleikum og undir-
býr • f5.
12. Rfl DeS
13. Re3 Rd4!
14. Rxd4 Bxa4
Framhald á 11. síðu
Skáldapáttur
Ritstjóri: Sveiribjörn Beinteinsson.
í gömlum rímum er að finna
bragarhátt þann sem dverg-
henda nefnist, og er þannig:
Bæði tvö ef enn við ættum
orð til góðs,
rakið skal af þúsundþættum
þræði ljóðs,
Hátturinn er mjög iíkur svo-
nefndu úrkasti, munar einu
atkvæðj í síðlínum (2. og 4.
línu.)
Breyta má visunni þannig
að hún verði með úrkasts
hætti:
Bæði tvö ef enn við ættum
orð tjl góða,
rakið skal af þúsundþættum
þræði ljóða,
Gömlu rímnaskáldin gerðu
ekki fyllilega greinarmun á
þessum tveim afbrigðum, og
í fornum rímum er þeim ein-
att ruglað saman.
Á 17. öld er farið að hafa
dverghendu aðgreinda frá úr-
kasti í rímum. Guðmundur
Bergþórsson ruglar þessum
háttum ekki saman.
En á 18, öld er dverghend-
an að mestu horfin úr rím-
unum ásamt öðrum stýfðum
háttum, svo sem valhendu,
sjúfhendu og stefjahruni. A,llt-
af var þó ort ein og edn rima
undir þessum háttum en áð
rnestu sneitt hjú þejm. Árni
Böðvarsson og Sigurður Breið-
fjörð notuðu þessa fornu stýfðu
hætti ekki.
Sérstakt afbrigði dverghendu
er svonefndur ljúfling'sháttur:
Sást þar dalur fönnum falinni
fagnar því
hann sem lengi hefur ,gengið
hættum í. .
Annars var . algengast að
dverghenda væri ort. frumhend,
Framhald á 10. síðu.