Þjóðviljinn - 01.03.1959, Blaðsíða 12
Bæjarsfjórnaríhaldið svíkst
um 6% rafmagnslækkun
Hefur hækkað rafmagnsverðið um samtals 34% og neitar að lækka
það nema um 6% í stað 12 sem það ætti að lækka samkv. vísitölu
Fyrst hækka'ði íhaldið rafmagnsverðið nm 34%. Síðan
lét það Alþýðuflokksstjórn þá sem það myndaði lækka
vísitöluna um 27 stig og laun verkamanna þar með um
13,4%.
Samkvæmt vísitölulækkuninni ætti rafmagnsverðið að
lækka um 12%, en íhaldið felldi í gær tillögu fulltrúa
AlþýÖubandalagsins um að framkvæma þessa sjálfsögðu
lækkun, þverneitaði að skila aftur nema 6% — og hélt
þvi fram að 3% væru gjöf!
Og Magnús ellefti greiddi þjónustusamlega atkvæði
með íhaldinu — lika gegn því að lækka heimilistaxtana!
þlÓÐViyiNN
Sujmudagnr 1. marz 1959 — 24. árgangur ■— 50. tðlufclað.
"S
Aukafundur var haldinn í
bæjarstjórinnl í gær til að
ræða rafmagnsverðið — málið
eem forseti bæjarstjórnarinn-
ar sagði um níu dögum áður:
Þetta mál má alls ekki ræða!
Gunnar borgarstjóri hélt
-stutta framsöguræðu, þar sem
hann reyndi að réttlæta það,
að íihaldið sviki bæjarbúa um
helming þeirrar lækkunar á
rafmagnsverðinu sem fram-
Jcvæma ætti.
Samtals 34% Iiækkun
Það er ekkert ljósara en að
rafmagnsverðið á að lækka um
12% sagði Guðmundur Vig-
fússon, en hann tók til máls
næstur á eftir framsögu borg-
arstjóra. Ihaldið hefur fjórum
sinnum hækkað rafmagnsverðið
um 6% síðan það fékk stað-
festa reglugerðina um að mega
hækka rafmagnsverðið um 6%
fyrir hver 10 stig sem vísital-
an hækkaði. Þannig hefur raf-
magnsverðið verið hækkað
tvisvar um 6% síðan 1. sept-
ember s.l. Og þessi 24% hækk-
un er auk þeirra 10% hækk-
unar á grunnverðinu, sem gerð
var í fyrra, þannig að íhaldið
hefur hækkað rafmagnsverðið
um samtals 34%.
Stefna Sjálfstæðisflokksins:
neyzluskattar
Um áramótin lögfestu stjóm-
arflokkarnir lækkun á verðlagi
og kaupgjaldi, var kaupið
lækkað um 13,4%, og sjaldan
ihafa stjómarflokkamir stað-
izt reiðari en hafi þeim verið
borið á brýn að verðlækkunin
væri áróður.
Það hefur verið föst stefna
Sjálfstæðisflokksins að láta sér
ekki nægja verulegan rekstrar-
afgang hjá Rafveitunni, sem
lengi hefur um flest ár numið
á annan tug milljóna kr., held-
ur að rafmagnsnotendum bæri
að standa undir öllum útgjöld-
um og árlegum aukningum og
framkvæmdum Rafveitunnar.
Það hefur liins vegar verið
stefna okkar Alþýðubandalags-
manna að halda yrði rafmagns-
verðinu í hófi, og alls ekki
ætlað að rafmagnsnotendur
standi undir öllum framkvæmd-
um Rafveitunnar árlega.
Emil blessar yfir
Rafmagnsveitan hefur feng-
ið 12% hækkun á rafmagns-
verðinu út á bilið milli 195
stiga sem rafmagnsverðið var
miðað við og 175 stiga. Það
liggur því ljóst fyrir að raf-
Áfengi hækkar 10-15%
Séð um að hækkunin hafi engin áhrif á vísitöluna
Nýjasta aðgerð ríkisstjórn-
arinnar í verðbólgnmálum er sú
að liækka allt áfengi í verði
um 15%. Þannig hækkar
brennivínsflaskan úr 125 kr. í
149 kr., ákavítisflaskan úr
1.30 kr. í 145 kr., gin hækkar
um 80—35 kr., viský um 35
kr:, konjak inn 30 kr. o.s. frv.
Þessi hækkun kom til fram-
kvæmda í gær, og það var
gert af ráðnum hug. í gær var
sem sé síðasti gildisdagur
göhilu visitölunnar, en í henni
gætir verðlags á áfengi sama
og ekkert. 1 dag tekur hins
vegar gildi nýja visitalan, og
er þar gert ráð fyrir nokkrum
áfengiskaupum meðalf jölskyldu.
Hefði hækkuninni á áfengi
verið frestað í einn dag hefði
ISoiniiiiin orðin
rösklega 800 þus.
krónur í gær
Enn heldur fé áfram að
streyma í söfnunina til styrktar
aðstandendum sjómannanna, er
fórust með togaranum Júlí og
vitaskipinu Hermóði. Á hádegi
í gær höfðu borizt alls rösk-
lega 800 þúsund krónur.
verðhækkunin þannig valdið
hækkun á vísitölunni! Segi
menn svo að ríkisstjórnin
kunni ekki vel til verka í
ráðstöfunum sínum í verðlags-
málum.
magnsverðið á að lækka um
12% eða 6% fyrir hver 10
stig sem vísitalan hefur lækk-
að niður fyrir 195. Nú lýsir
íhaldið yfír að það ætli ekki
að lækka um nema helming
þessa, eða 6%.
Og það sem meira er: borg-
arstjóri lýsti yfir á síðasta
bæjarráðs"! ndi að forsætisráð-
herra, Emil .Jónsson væri sam-
þykkur því að Iækka rafmagns-
verðið ekkt nema um helming
þess sem það ætti að lækka,
og myndi gtaðfesta það.
Greiðsla fyrir ráðherra-
stólana
Borgarstjórinn hafði ekki á
síðasta bæjarstjómarfundi lof-
orð forsætisráðherra um þetta,
þess vegna mátfc[ ekki ræða
hækkunina þá. Nú sér maður
til hvers tíminn hefur verið
notaður síðan: fcil að segja Al-
þýðuflokknum fyrir verkum um
að samþykkja rafmagnsverðið.
Það dettur engum í hug að
Alþýðuflokkurinn hafi myndað
núverandi ríkisstjórn. — Al-
þýðuflokkurinn með 8 þing-
menn — og þar af helminginn
á náð Framsóknar — var þess
vitaftlega ekki umkominn að
mynda ríkisstjórn. Það var því
Sjálfstæðisfl. sem myndaðí nú-
verandi ríkissfcjórn Alþýðu-
flokksins — af þvi honum
þótti þægilegra að láta Al-
þýðuflokkinn. vinna fyrir sig
óþverraverkin. Og nú á Al-
þýðuflokkurinn að leyfa íhald-
inu að lialda eftir helming
þess er rafmagnsvei-ðið ætti
að lækka.
Telur 4 millj. uppí 1
milljón!
Lækkuu rafmagnsverðsins
um 12% ætti að leiða af vísi-
tölulækkuninni, og er þá á
engan hátt tekið tillit til hárr-
ar gjaldskrár.
Borgarstjóri sagði raunar að
rafmagnsverðið ætti ekki að
lækka nema um 3% vegna
lækkunar vísitölunnar, það væri
aðeins rausnarskapur Sjálf-
Framhald á 9. síðu.
Kauplækkunarsíeínan í framkvæmd:
Húsnæðiskostnaður vex
um 100 kr. á mánuði
íbúðaeigendur í Verkamannabústöðunum í RcykjKvík
fengu glaðning fyrir fáeinum dögum. Var það tilkynn-
ing frá stjóm Byggingafélags verkamanna um að imán-
aðargreiðslur fyrir húsnæiiSi hækki um 36% frá 1. jan.
vegna hækkunar opinberfa gjalda fyrst og fremst, þó
að litlu leyti einmg vegna viðhaldskosnaðar. Verkamaður
sem býr í þriggja herbergja íbúð verður nú að greiða
100 kr. meira mánaðarlega en áður, aðallega vegna
hækkunar á fasteignagjöldum í Reykjavík. Það ero ekki
stóreignamennimir sem þetta bitnar harð&st á heldur
þeir smáu sem nýlega hafa verið lækktaðir í lanrnun.
Alfreð Gíslason skýrði frá framangreindu dæmi nm
„lækkúnarstefnuna" marglofuðu í umræðum á Alþingi í
fyrradag, um leið og liann mótmæltj því að samþykkt
yrði heimjld til enn frekari hækkunar iasteignagjalda.
Nánar er sagt frá þessum umræðum á 4. síðu.
Stjórn Málarafélags Reykja-
víkur varð sjálfkjörin
Félagið lagði 5000 krónur í fjár-
söfnunina vegna sjóslysanna
Aöalfundur Málarafélags Reykjavíkur var haldinn í
fyrrakvöld og varö stjórnin einróma endurkjörin. Á fund-
inum var samþykkt aö' leggja fram 5000 kr. úr félags-
sjóöi í fjársöfmmina til að'standenda þeirra sem fórust
með’ Júlí og Hermóöi.
Stjóm Málarafélags Reykja-
víkur er þannig skipuð:
Lárus Bjarnfreðsson formaður,
Hjálmar Jónsson varaform.,
Leifur Ólafsson ritari, Halldór
Gislason ritari stjórnar, Grim-
Ur Guðmundsson gjaldkeri.
Varastjóm:
Sigursveinn Jóhannsson, Ingi
M. Magnússon.
Sósíalistar Reykjavík
Fundir í öllum deildum
annað kvöld.
Sósíaiistafélag
Reykjavíkur.
Trésmlðir! Fylkið ykkur um Álistann
Kosning hefst kl. 10, lýkur ld. 22
Stjórnarkjör hófst í Trésmiðafélagi Reykjavíkur í gær
og höfðu í gærkvöldi kosið 206 félagsmenn. Kosning heldur
áfram í dag frá kl. 10—12 f. h. og 13—22 e. h. og er þá
lokið.
Listi vinstri manna í Trésmiðafélagi Reykj avíkur er A-
listi, og eru Stuðningsmenn hans hvattir til að kjósa
snemma í dag.
Ihaldið hefur síðustu árin um taxtamál
lafað við völd í félaginu, og
er listi þess nú B-listi. Einu
afrek þess á starfsárinu eru
að þegar áðrar stéttir fengu
6—9% kauphækkun í fyrra
lækkuðu útborguð laun tré-
smiða um 4%.
Þá hefur íhaldið einnig rek-
ið einn vinsælasta starfsmann
félagsins úr starfi á miðju ári
án nókkurra saka, og sett í
það starf pólitískan agent,
Þegar vinstrimenn fluttu
tillögu um kosningu sögunefnd-
ar, fræðslunefndar og taxta-
nefndar reyndi íhaldið að gera
grín að því, en þegar formaður
íhaldsstjómarinnar, Guðni
Árnason, flutti skýrslu um
starfið á síðasta fundi þá var
uppistaðan í ræðu hans skýrsla
um það sem þessar nefndir
sem einvörðungu vom skipað-
ar vinstri mönnum höfðu gert!
bæjarfulltrúa íhldsins, sem er í Mogginn í gær kallar þettá
þekktur að því að vita ekkert I niðurrifsstarf! — en það var
þó hið eina starf sem íhalds-
stjómin hafði til að skýra
frá.
Trésmiðir. Hrindið jaf liönd-
um ykkar liinni duglausu
stjórn íhaldsins! Sameinizt um
lista vinstri manna, A-listann.
Vinnið allir að sigri A-listans.
Kjósið strax!
Trúnaðarmannaráð:
Magnús Stephensen, Símon
Konráðsson, Kristján Guðlaugs.
son, Þorsteinn B, Jónsson.
Lánis Í5janifreðss»n,
Til vara: Roþert F. Gests-
son, S'gursveinn Jóaannsson,
Gísli iStefánsson, Eyþór Guð-
mundsson.
. ' . l‘ ■
Stjórn og trúnaðarraannaráð
voru sjálfkjörin.
fhaldsstjórnin hækkar kaup
Magnúsar Jóhannessonar um 50%
Á saraa tíma og stjórn Trésmiðafélagsins sam-
þykkti lækkun á almennu trésmiðakaupi, þrátt
fyrir aö engin gTunnkaupshækkun fékkst á síö-
asta ári, þá liækkar hún kaup Magnúsar Jóhann-
essonar uppmælingafulltrúa um 50%.
Yfir þessari gjaldbreytingu þagði Guöni for-
maöur sem fastast á síðasta fundi!