Þjóðviljinn - 18.04.1959, Blaðsíða 12
Larsen og Friðrik ætla
|ið berjast til þrautar
„Erfðafjendurnir“ við skákborðið, þeir Friðrik og' Lar-
sen, eru enn sem fyrr ekki á því að semja grið, heldur
berjast þeir nú til þrautar á skákmótinu í Moskvu. Mik-
ið mannfall hefur orðið 1 liði beggja og standa nú aðeins
þrír uppi hjá hvorum.
Eftir níu umferðir á skák-| Þær og aðrar biðskákir voru
mótinu í Moskvu var staðan tefldar í gærmorgun og varð
flessi: 1. Spasskí 5’/>, 2. 3. engri lokið.
Bronstein og Smisloff 5 (1),
4.—5. Filip og Portisch 5, 6.
Mileff 4y2, 7. Simagin 4 (1),
8. Vasjúkoff 4, 9.—10. Friðrik
og Aronin 3y2 (1), 11. Larsen
3 (1), 12. Lútikoff 3.
Níunda umferð fór þannig:
Jafntefli varð hjá Friðrik og
Portisch, Larsen og Spasski,
Filip og Vasjúkoff, Lúdikoff
og Mileff. Skákir Bronsteins og
Smisloffs, Simagins og Aronins
fóru í bið.
„Horf ðu reiður um
öxl“ sýnt í síðasta
sinn í kvöld
„Horfðu reiður um öxl“ verð-
iir eýnt í allra síðasta sinn í
Þjóðleikhúsinu í kvöld. Leikrit-
ið var sýnt í Bíóhöllinni á
Akranesi s.l. fimmtudag og
seldust þá allir miðar upp á
svipstundu.
Smisloff rétti hlut sinn í við-
ureigninni við Bronstein, Frið-
rik vann tvö peð í viðureign-
inn við Larsen. Þar eru eftir
á borði sex menn og staðan er
þessi (Larsen hefur hvítt):
Hvítt: Kg4, Bg5, ph4. Svart:
Kd7, Hf8, pe5. Larsen lék bið-
leikinn.
Svart: Friðrik
Friðarsinnar á
fundi í Bagdad
Hálf milljón manna tók I gær
þátt í fundi sem haldinn var í
Bagdad, höfuðborg fraks, eftir
að þriggja daga Þingl samtaka
íraskra friðarsinna lauk. Kassem
forsætisráðherra setti þingið.
Fréttaritari brezka útvarpsins
sagði að litið hefði borið á and-
úð í garð vesturveldanna á
fundinum, en margir fundar-
manna hefðu ekki farið dult
með fjandskap sinn í garð Sam-
bandslýðveldis Araba og Nass-
ers forseta Þess
Garðyrkjufélag
Islands efnir til
4 fræðslukvölda
Garðyrkjufélag fslands efnir
í þessuin mánuði til fjögurra
fræðslukvölda fyrir almenning
í Iðnskólanum á Skólavörðu-
holti.
Á fyrsta fræðslukvöldinu,
mánudaginn 20. apríl, ræðir ÓIi
-unqjupuiuoA uin uossubh JnjBA,
ing í garðinum (sáningu, upp-
eldi, jarðvegsundirbúning o.fl.)
og Hannes Amgrímsson og
kona hans veita fræðslu um
pottaplöntur. Miðvikudaginn
22. þ.m. leiðbeina þau Ólafía
Einarsdóttir og Jónas Sig. Jóns-
son um útiplöntur og svala-
ker. Mánudaginn 27. apríl veit-
ir Óli Valur Hansson fræðslu
um trjágróður og runna og
Jón H. Björnsson um trjáklipp-
ingu. Á síðasta fræðslukvöld-
inu, miðvikudaginn 29. apríl,
ræðir Jón H. Björnsson um
skipulag skrúðgarða og Einar
Siggeirsson um grasfleti o.fl.
Fræðslukvöld þessi hefjast
öll kl. 8.30 og er almenningi
heimill ókeypis aðgangur að
þeim.
B C O E F C
Hvítt: Larsen
f tíundu umferð skákmótsins
í Moskvu sem tefld var í gær
tefldi Friðrik við Bronstein og
hafði hvítt.
Lokið er alþjóðaskákmótinu
í Mar del Plata í Argentínu.
Efstir og jafnir urðu þeir Naj-
dorf, Argentínu, og Pachman,
Tékkóslóvakíu, með 10Vá hvor
af 14 mögulegum.
Alþýðabanda-
lagið
heíur opnað
kosningaskrif-
stofu
að Tjarnargötu 20, sem
opin verður alla virka
djaga frá kl. 9 f.li.—6 e.li.
(opið verður í hádegi).
Sími 1-75-11.
Mjög áríðandi er að
stuðmngsmenn Alþýðu-
bandalagsins hafi hið
allra fyrsta samband við
skrifstofuna, gefi henni
upplýsingar um kjösendur
erlendis o.g aðra, er verða
utan kjörstlaðar, þegar
kosningar fara lram, og
taki við verkeínum í sam-
bandi við könnunarstarfið
og annan undirbúning
kosninganna.
Skipulagsnefnd.
Jafnframt verður veitt
viðtaka framlögum í kosn-
in.gasjóð ALþýðxibanda-
lagsins.
Háskólafyrir-
lestur um bráð-
kaupsssiðabækur
Prófessor dr. Jón Helgason
flytur síðari fyrirlestur sinn
við Háskóla íslands í dag, laug-
ardaginn 18. apríl kl. 5 e.h.,
og fjallar hann um brúðkaups-
siðabækur frá 16.—18. öld. Fyr-
irlesturinn verður fluttur í há-
tíðasal Háskólans og er öllum
heimill aðgangur.
þlÓÐVIUINN
Laugardágur 18. apríl 1959 — 24. árgangur — 87. tölublað.
Fiysteinn og Jón Pálmason
báðir léttvægir?
Brigður bornar á embættishæfni beggja
í umræðum á Alþingi
Nær allur fundur neö'ri deildar Alþingis í gær fór í
umræöur inn ríkisreikninginn 1956, eð'a réttar sagt ekki
um reikningimi sjálfan, heldur í hugleiðingar Eysteins
Jónssonar um hvort Jón Pálmason væri óhæfur yfir-
skoöunarmaöur landsreikninga og álíka tímafrekar bolla-
leggingar Jóns um þaö hvort nokkurt vit væri í þvi aö'
hafa Eystein fyrir fjármálaráöherra!
öllu óhæfur yfirskoðandi lands-
reikninga og Jón að þeirri nið-
urstöðu að Eysteinn væri með
öllu óhæfur til að gegna hinu
háa embætti fjármálaráð-
herra. Lauk umræðu með
hálfgerðum heitingum á báða
bóga. Kvaðst Jón vona að Ey-
steinn næði áldrei aftur í emb-
ætti fjármálaráðhérra en 'Ey-
steinn fullyrti að Jón myndi
ekki þurfa að hafa áhyggjur
af fjármálastjórn ríkisins fram-
vegis, hvernig sem skilja ber
þá hótun.
Loks var þó ríkisreikningur-
inn 1956 samþykktur með sam-
hljóða atkvæðum og önnur mál
sem á dagskránni voru afgreidd
á skammri stúndu, nema
tekjuskattsfrumvarpið sem deil-
urnar urðu um í fyrradag.
Forseti, Einar Olgeirsson,
boðaði fund í neðri deild í dag,
(laugardag), og er það mál
ní.a. þá á dagekrá.
Komst Eysteinn að þeirri
niðurstöðu að Jón væri með
Meðalafli í róðri nokkuð
betri í Keflavík en 1958
En vegna stöðugra ógæfta hefur veiðiferð-
um fækkað og heildaraflinn minnkað
Ógæftír hafa verið í Keflavílc I nam afli Akranesbáta um 2.000
að undanförnu, hvöss norðlæg lestum, en fyrri hluta sama
átt og’ yfirleitt hefur livergi
verið fiskur, ncina djúpt und-
an landi, fyrir utan 12 mílna
mörkin. I»ar hafa þó nolckrir
bátar lagt og þar er mikill
fiskur, en þessir bátar hafa
orðið fyrir töluverðu veiðar-
færatjóni af völdum togara.
Á miðvikudag voru bátar yf-
irleitt á sjó frá Keflavík, en
veður var slæmt og mjög lítill
afli. 1 fyrradag. var yfirleitt
landlega, en í gær voru allir
Keflavíkurbátar á sjó.
Afli Keflavíkurbáta er nú
orðinn samtals um 15.000 lestir
en heildaraflinn á sama tíma í
fyrra var um 17.000 lestir.
Bátafjöldinn var svipaður þá
og nú, um 50 bátar, en róðrar
töluvert færri nú, 2.200, en
voru 2.600 í fyrra. Meðalafli
í róðri hefur því aukizt úr 6.5
lestum í tæpar 7 lestir.
Aflahæstu hátarnir í Kefla-
vík eru nú Ólafur Magnússon
með 557 lestir í 56 róðrujn,
Bjarmi með 510 lestir í 50
róðrum og Guðmundur Þórðar-
son með 466 lestir í 56 róðr-
um.
Þriðjungi minni afli en í fyrra
Fyrri hluta þessa mánaðar
en
mánaðar í fyrra var aflinn nær
þriðjungi meiri, eða 2.900 lestir.
Þess er þó að geta að óvenju-
mikill afli var á Akranesi í
aprílmánuði í fyrra, þannig að
afli þess mánaðar var um helm-
ingur alls vertíðaraflans. Alls
nemur afli Akranesbáta á þess-
ari vertíð um 8.000 lestum.
Aflahæstu hátarnir eru Sig-
rún með 616, Sigurvon með
585 og Sæfari með 500.
Lélegur afli í Reykjavík
Afli netabáta sem róa frá
Reykjavík hefur bæði verið
misjafn og lélegur það sem af
er vertíð. Aflahæstu bátarnir
sem leggja upp hjá frystihús-
inu Kirkjusandi h.f. eru aðeins
komnir á annað hundrað í
lestatölu. Hjá Fiskiðjuveri rík-
isins er aflahæsti báturinn bú-
inn að fá 480 lestir, annar er
kominn hátt á 4. hundraðið, en
hinir með rösklega 300 lestir.
Gæftirnar hafa verið mjög
stopular. Féll febrúarmánuður
gersamlega úr hjá Reykjavík-
urbátum sem öðrum. Marzmán-
uður mátti heita sæmilegur, en
apríl hefur verið rj'sjóttur það
sem af er.
Læknar látnir
skoða Herter
Eisenhower Bandarlkjafor-
seti hefur enn ekki skipað eft-
irmíann Dullesar í embætti ut-
anríkisráðherra. Herter að-
stoðarutanrikisráðherra sem
talinn hefur verið líklegastur
að hreppa embættið hefur geng-
ið undír læknisskoðun að beiðni
forsetans og varð niðurstað-
an sú að heilsufar hans gæfi
ek'ki ástæðu til að ætla að ;hon-
um væri um megn að gegna
c-mbættinu. Herter þjáist af
liðagigt í fótunum og getur
ekki gengið nema við hækjur.
Krataleiðtogar á
Stokkhólmsfundi
Flestir höfuðleiðtogar sósíal-
demókrata í Vestur-Evrópu eru
komnir til Stokkhólms til að
vera viðstaddir hátíðahöld í -til-
efni af því að 70 ár eru liðin
frá stofnun sænska sósíaldemó-
krataflokksins. í hópi þeirra
eru forsætisráðherrar Danmerk-
ur og Noregs, Finnarnir Tanner
og Fagerholm, Gaitskell, leiðtogi
brezka Verkamannaflokksins, og
Ollenhauer, foringi vesturþýzkra
sósíaldemókrata. Þeir munu
ræða ýms alþjóðamál í dag, en
hátiðahöldin hefjast á morgun.
Lýst eftir skilvís-
um finnanda
Síðdegis s.l. þriðjudag týndi
unglingspiltur 2105 krónum
— í seðlum — einhversstaðar
í miðbænum. Hafði hann geng-
ið frá einni af skrifstofum
bæjarins á Lækjartorg, en
saknað peninganna er þangað
var komið og hann hugðist
greiða strætisvagnafargjald.
Það eru vinsamleg tilmæli4K>
skilvís finnandi peninganna
komi þeim til lögreglunnar.
32 fá islenzkan
ríkisborgararétt
Þar aí eru átján Þjóðverjar og fimm Danir
Fmmvarpið’ um ríkisborgavarétt var afgreitt sem lög
frá Alþingi í gær. Var þaö ti.1 einnar umræöu í neöri
deild, því efri deild bætti á frttmvarpiö' nokkrum nöfnum
Neöri deild afgreiddi frumvarölö með samhljóða atkvæö-
um.
Með frumvarpi þessu fá 32
menn íslenzkan ríkisborgararétt.
Eru langflestir þeirra Þjóðverj-
ar eftir fæðingarstað að dæma,
en fjöldi Þjóðverja hefur feng-
ið ríkisborgararétt á fslandi
frá því í stríðslok. Eftir fæð-
ingarstað skiptast hinir nýju
ríkisborgarar svo á lönd. *
Þýzkaland 18
Danmörk 5
Noregur 3
Færeyjar 2
Fjnnland 1
Holland 1
England 1
ísland 1.
Eins og undanfarin ár er rík-
isborgararétturinn bundinn því
skilyrði að hlutaðeigandi taki
upp íslenzkt nafn samkvæmt
lögum um mannanöfn.
Þjófurimi hafði
hálfan kjötskrokk
á brott með sér
1 fyrrinótt var brotizt inn í
Kjötbúð Norðurmýrar við
Rauðarárstíg og stolið hálfum
kjötskrokki og nokkrum niður-
Isuðudósum.