Þjóðviljinn - 21.06.1959, Page 3

Þjóðviljinn - 21.06.1959, Page 3
Sunnudagur 21. júní 1959 ÞJÓÐVILJINN (3 Kópavogsfundur Frarnhald af 12. síðu. -isstjóra Alþýðuflokksins hefði þegar framkvæmt kauplækkun og gengislækkun væri yfirvof- andi með haustinu. Um þessi máí þyrfti einnig- að hugsa. I •efnahagsmálunum væru tvær stefnur uppi. Önnur sú að fá sem mest fé inn í landið frá hernum, en hermangspening- arnir færu ekki til þess að auka tekjur þjóðarinnar, þess vegna væru einu úrræði þeirra er fylgdu þessari s.tefnu kauplækk- un og gengislækkun. Hin stefn- an væri sú að auka framleiðsl- una og hafa gætur á að af- rakstur þjóðarbúsins færi ekki í neina vitleysu. Þetta væri stefna Alþýðubandalagsins og eina færa leiðin í efnahagsmál- um þjóðarinnar. Finnbogi ræddi síðan nokkuð kjöniæmamálið. Benti á að kosningarhar 1956 liefðu sann- að svo að ekki varð um villzt, að ltosningalöggjöfinni varð að breyta. Framsókn hefði mátt vita, að leikurinn með Hræðslu- bandalagið myndi ekki verða látinn. endurtaka sig. Alþýðu- þandalagið hefði krafizt þess að það yrði tekið upp í stjórn- arsáttmálann 1956 að leysa þetta mál á kjörtímabilinu. Framsókn hefði ekki reynt að ná samningum um málið, hún hefði metið meira að koma frám kauplækkuninni. f þessu máli hugsaði hún ekki um hag þjóðarinnar heldur einungis um eigin hagsmuni. Sitt álit væri, sagði Finnbogi, að sú lausn málsins sem nú hefði náðst samkomulag um bætti veruiega úr misréttinu, a.m.k. milli flokka en ekki á milli héraða Allt landið eitt kjör- dæmi gæti eitt tryggt það. La n d hel gi sniá 1 i ð Að lokum ræddi Finnbogi landhelgismálið ýtarlega og rakti gang þess. Það hefði fyrst og fremst verið verk Alþýðu- bandalagsins að það mál komst fram. Þjóðin hefði að vísu verið einhuga í málinu eins og komið hefði í ljós í öllum fundarsam- þykktunum, en vissir stjórn- málaleiðtogar hefðu staðið gegn því. Það hefði kostað einhverja hörðustu baráttu í íslenzkum stjórnmálum að koma málinu fram. Vinstri stjórnin hefði í maí 1958 verið raunverulega fallin á því. Sjálfstæðis- og Alþýðuflokkurinn hefði verið búnir að bindast samtökum um að koma í veg fyrir stækkun- ina, en þegar Alþýðuflokkurinn sá, að hann yrði að standa ábyrgð á því frammi fyrir þjóðinni í kosningum, án stuðn- ings Framsóknar, hefði hann gugnað. Finnbogi sagði, að Bretar hefðu fylgzt vel með því sem gerðist. og vitað að Alþýðu- flokkurinn og Sjálfstæðisflokk- urinn voru reiðubúnir til þess að mynda ríkisstjórn til samn- inga við þá um málið. Þess vegna hefðu þeir álitið sér ó- hætt að beita okkur ofbeldi í því skyni að knýja okkur til undanhalds. Framkoma Banda- rikjamanna hefði þó verið okk- ur enn hættulegri en Breta. Þeir hefðu vegið aftan að okk- ur með tillögu sinni á ráð- stefnunni í Genf sem þeir beittu öllum brögðum til þess að fá samþykkta. Mynd þessi var tekin á liiniim ágæfta fundi Alþýðubandalagsins Hafnarfirði sl. mánudagskvöld. (Ljósm.: Sig. Guðm.) Góðtemplarahúsinu í Að síðustu þalaði FinnbogJ um hættuna á því að Sjálf- stæðisflokkurinn og Alþýðu- flokkurinn semdu um undan- hald í lar.dhelgismálinu við Breta. Brezkir togaraeigendur færu ekki dult með þá von sína og í brezkum blöðum væri rætt um að vonir stæðu til að samningar næðust í haust eftir kosningar. Stefna Breta væri sú að knýja okkur til bráða- birgðasamninga fyrir næstu landhelgisráðstefnu, fá okkur til þess að semja um „Fær- eyja“-lausn málsins. Landhelg- ismálið væri stærsta efnahags- og sjálfstæðismál okkar. Eina tryggingin fyrir því að ekki yrði slegið undan í málinu væri sú að Alþýðubandalagið kæmi sterkt út úr kosningunum. Þá myndu hvorki Sjálfstæðisflokk- urinn né Framsóknarflokkur- inn þora að mynda afturhalds- stjórn, hvorki til samninga um landhelgismálið né um launa- lækkun og gengisfellingu. Villa Þjóðvarnarflokksins Næstur á eftir Finnboga Rút talaði Þormóður Pálsson. Kvaðst hann fyrst vilja gera grein fyrir því hvers vegna hann sem væri þjóðvarnarmað- ur kæmi hér í pontuna. Hún væri sú að þjóðvarnarmenn væru ekki idauðir, þótt Þjóð- varnarflokkurinn kynni að vera það. Þeir væru nú að hasla sér völl til baráttu í samvinnu við aðra en ekki til þess að ekapa sundrungu. Höfuðvilla Þjóðvarnarflokksins hefði verið að einangra sig. Hann hefði verið þjóðvarnarflokkur í sam- keppni við aðra ílokka en ekki í samvinnu. Þess vegna hefði barátta hans orðið ófrjó og vanmáttug enda væri nú ekk- ert um það spurt hvernig hon- um reiddi af í þessum kosning- um. En Bretar og Bandaríkja- menn og aðrir slíkir spyrðu um það hver yrði hlutur AJ- þýðubandalagsins í kosningun- um. Stórsigur Alþýðubanda- lagsins væri eina viðnámið sem hægt væi’i að veita gegn er- lendum yfirgangi og innlendri leppmennsku. Vaxandi fylgi þess táknaði vaxandi siðferð- isþrek þjóðarinnar og sigur hennar. Síðar ræddi hann nokkru nánar um bæði her- námsmálið og landhelgismálið þar sem hann tók mjög í sama streng og Finnbogi Rútur. Mikill einhugur fundarmanna Aðrir sem tóku til máls á fundinum voru Haukur Jó- hannesson sjómaður er einkum ræddi um nauðsyn uppbygging- ar útflutningsatvinnuveganna og benti á að gullnáman við Grænland væri nú óðum að tæmast vegna rányrkju og þeg- ar væru horfur á að Nýfundna- landsmiðin færu sömu leið. Framtíð okkar yrðum við að byggja á því að rækta fiski- ktofninn. yið strendur landsins. Sigurður Ólafsson ekrifstofu- maður talaði um eflingu kosn- ingasjóðsins og bíla á kjördegi og Páll Bjarnason prentari ræddi um kjördæmamálið, efna- hagsmálið og landhelgismálið, benti á óheilindi Framsóknar í kjördæmamálinu og sýndi fram á að aðeins sigur Alþýðubanda- lagsins í kosningunum gæti tryggt sigur í landhelgismálinu og staðið gegn gengisfellingu og launaskerðingu. Að lokum flutti fundarstjór- inn Ingjaldur Isaksson bifreiða- stjóri nokkur hvatningarorð. Máli ræðumanna var mjög vel tekið og fur.durinn vel sóttur. Fimmta norræna málanámskeið haldið í Reykjavík n.k. haust Fimmta málanámskeiðið verður haldið í Reykjavík n.k. haust á vegum Stúdentaráðs Háskóla íslands. Á námskeiðinu verður kennt íslenzkt mál og bókmenntir og er kennslan ætluð stúdenþum frá Norðurlöndum sem stunda nám í norrænum fræðum. Hlið- stæð námskeið hafa áður verið haldin í Danmörku (1955— 1958), Noregi (1956) og Sví- þjóð (1957). Þar hafa verið kennd mál og bókmenntir þeirra þjóða, sem fyrir námskeiðun- um hafa gengizt, eii landssam bönd stúdenta á Nmðurlönd- um hafa með sér samvinnu um námskeiðin og skiptast á um að halda þau. Fimmta norræna málanám- skeiðið stendur yfir frá 11. sept. til 6. nóv. n.ík. Gert er ráð fyrir að kennslustundir verði alls 80, 60 í íslenzku og 20 í bókmenntum. íslenzku- kennsluna mun dr. Hreinn Benediktsson prófessor annast, en þeir dr. Steingrímur J. Þor- steinsson prófessor og dr. Ein- ar Ól. Sveinsson prófessor annast kennslu í bókmenntum. Áætlað er að hingað komi 15 þátttakendur frá Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi. Stúdentaráð Háskóla Islands sémx sér um alla framkvæmd náihskéiðsins, álítur það mjög æskilegt, að hinir erlendu stúd- entar eigi þess kost að dvelj- ast á íslenzkum heimilum þáhri tíma, sem þeir verða á Is- landi, þannig að þeir hafi sem nánust kynni af þjóðinni og læri sem fljótast að skilja og tala íslenzku. Beinir Stúdenta- ráð því þeim tilmælum til þeirra, sem áhuga kynnu að hafa á að veita stúdentunum fyrirgreiðslu. Fjallkonan lét eliki rokið og kuklann hindra sig í því að skauta á þjóðhátíðardaginn. — Myndin er tekin í Alþin.gisliúss- garðinum, — Ljósm. Sig. Guðm. Biskupsvígsla Prestastefna í dag vígir Ásmundur Guð- mundsson biskup eftirmann sinn í biskupsembættinu, sr. Sigur- björn Einarsson. Vígslan hefst kl. 10 f.h. í Dómkirkjunni og verður úlvarpað, — geta menn lesið nánar um bað í útvarps- dagskránni. Kl. 7 í kvöld held- ur kirkjumálaráðherra veizlu. að Ilótel Borg. Kl. 10 í fyrramálið hefst vigsla Ingþórs Indriðasonar til prests Herðubreiðarsafnaðar í Langrut’n í Manitoba'fylki ; j Kanada. Kl. 2 e.h. á mo.rgun setur Ásmundur Guðmundsson biskup prestastefnuna í kapellu háskólans. varð námer 3 Sú missögn varð í fpétt pj fegurðarsamkeppninni að sagt Var að Edda Gunr ^ ’sdóttin hefði orðið nr. 3, en það var Edda Jóis.dót.tir sem lilaut það sæti. Eru báðar stúlkurnar og lesendur blaðsins beðncr af- sckunar á þessum mistökum. Kosningaskrif- stofur Alþýðu- Kosningaskrifstofur Al- þýðubaridalágsins eru á eftirtöldum stöðum utan Reykjavíkur: Hafnarfjörður; Góðtempl- arahúsið, sími 50273. — opin kl. 4—10 daglega. Kópavogskaupst.: Illíðar- vegur 3, sími 22794. Akranes: Skagabraut 8, sími 201 — opin kl. 1_10 e.h. ísafjörður: Skátaheimilið, sími 282. — Opin kl. 5—7 og 8—10 e.h. Sigiufjörðnr: Suðurgata 10, sími 210. Akureyri: Hafnarstræti 88, sími 2203. — Opin allan daginn. Vestmannaeyjar: Báru- gata 9, sími 570. Keflavík: Kirkjuvegur 32, Selfoss: v/Tryggvator,g, sími 143. Ilúsavík: Hringbraut 13, sími 55 — opin kl. 6—10 síðdegis. Neskaupstaður: Hólsgáta 4, Opin allan daginn. sími 372.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.