Þjóðviljinn - 21.06.1959, Síða 12
þfÓÐVIUINN
Sunnudagur 21. júní 1959 -— 24. árgangur — 128. tölublað.
Fundarmenn staSráSnir i að gera sigur
flokksins sem stœrstan i kosningunum
í gærkvöld hélt Alþýðubandalagið ágætan fund í Fé-
lagsheimilinu í Kópavogi. Hafði Finnbogi Rútur Valdi-
marsson alþingismaður framsögu á fundinum, en síðan
tóku til máls nokkrir fundarmanna og studdu þeir allir
Alþýðubandalagiö. Ríkti mikil eining á fundinum og
kom fram eindreginn vilji fundarmanna til þess að gera
sigur Alþýðubandalagsins í Gullbringu- og Kjósarsýslu
sem mestan í þessum kosningum.
1 upphafi framsöguræðu sinn-
ar sagðist Finnbogi Rútur hafa
látið í ljós þá skoðun sína á
fundi fyrir síðustu Alþingis-
kosningar, að eftir þ-ær myndu
Framsóknar- og Alþýðuflokkur-
inn mynda stjórn með Alþýðu-
bandalaginu, þrátt fyrir allar
yfirlýsingar þeirra flokka um
að. þeir myndu aldrei ganga til
stjórnarmyndunar með því. Það
sem gerðist eftir kosningarnar
1956, sagði Finnbogi, var það
að þessir flokkar treystust ekki
til þess, eftir sigur Alþýðu-
banidalagsins, að mynda aftur-
haldsstjórn með íhaldinu.
Árangur vinstri
stjórnarinnar
Finnbogi ræddi þessu næst
hvað unnizt hefði með vinstri-
stjórnarsamstarfinu: Tekin
hefði verið upp ný stefna í at-
vinnu- og launamálum þjóðar-
innar, er miðaði að eflingu at-
vinnulífsins og bættum kjörum
alþýðunnar. Hins vegar hefði
verið komið í veg fyrir gengis-
og launalækkun. Stærsta málið
hefði þó verið útfærsla land-
helginnar í 12 mílur, en það
hefði fyrst og fremst verið
verk Alþýðubandalagsins knú-
ið fram gegn harðvítugri and-
stöðu Alþýðuflokksins.
Hvað er líklegast að gerist
eftir næstu kosningar? spurði
Finnbogi. Ef Alþýðubandalagið
heldur velli, og ég hef trú á
því að það muni verða sterkara,
munu bæði Framsóknar- og
Sjálfstæðisflokkurinn ganga á
Á tíu mínútna fundi af->
greiddu ráðherrarnir tilkynn-
ingu um fre^tunina. Þar segir
einungis, að á fundum sínum
eftir því um að mynda með
þeim ríkisstjórn. Þótt Alþýðu-
flokkurinn komi að manni með
hjálp Sjálfstæðisflokksins og
þeir fái samanlagt meirihluta á
Alþingi munu þeir ekki treyst-
ast til þess að mynida gengis-
lækkunarstjórn, ef Alþýðu-
bandalagið vinnur sigur í kosn-
ingunum. Þess vegna eru þær
svo þýðingarmiklar.
Kjördæmamálið ekki
aðalmálið
Ýmsir virðast halda að þess-
ar kosningar eigi aðeins að
snúast um kjördæmamálið,
sagði Finnbogi. Það væri fjar-
stæða. Þær ættu ekki síður að
snúast um okkar stærstu þjóð-
mál. Brezk herskip væðu enn
uppi í íslenzkri landhelgi. Rík-
Framh. á 3. síðu
síðustu fimm vikur hafi ráð-
herrarnir skipzt á skoðunum
og hafi viðræðurnar spannað
vítt svið. Þeir hafi komizt að
þeirri niðurstöðu, að þörf sé
frekari viðræðna, og verði
fundurinn því hafinn að nýju
13. júlí. í tilkynningunni er ekki
minnzt á fund æðstu manna.
Eftir fundinn í gær snæddu
þeir saman miðdegisverð Grom-
iko, utanríkisráðherra Sovét-
rí'kjanna og bandaríski utan-
ríkisráðherrann Herther.
Fréttamenn í Genf telja, að
rneðan fundir í Genf liggja niðri
muni stórveldin halda áfram
að athuga málin eftir venju-
legum diplómatískum leiðum.
Fréttaritari brezka útvarpsins
segir, að Vesturveldin leggi nú
mest kapp á að fá afstöðu
Sovétríkjanna til Berlínarmáls-
ins skilgreinda sem nákvæmleg-
ast.
200 manns á fundi
Alþýðubandalags-
ins á Húsavík
Um 200 manns sóttu fund Al-
þýðubandalagsins á Húsavík í
fyrrakvöld og er það langfjöl-
mennasti stjórnmálafundur sem
þar hefur verið haldinn í þess-
ai'i kosnin’gabaráttu. Framsögu-
menn voru Björn Jónsson al-
þingismaður, Páll Kristjánsson
frambjóðandi- Alþýðubandalags-
ins í Suður-Þingeyjarsýslu og
Hannibal Valdimarsson alþingis-
maður og var gerður hinn bezti
rómur að máli þeirra. Auk
þeirra tóku til máls á fundinum
Karl Krisfjánsson alþingismað-
ur og Arni Jónsson vélsmiður.
Fundarstjóri var Jóhann Her-
mannsson bæjarfulltrúi.
Hverfaskrifstofur
G-listans í Reykjavík eru á
eftirtöldum stöðum:
1. Kleppsholt: Langholtsveg 63, opin kl. 8,30—10 e.h. dag-
lega, sími 33837.
2. Vesturbær, norðan Hringbrautar og vestan Lækjargötu:
Tjarnargötu 20, opin daglega kl. 8—10 e.h., sími 18077
(gengið inn bakdyramegin).
. 3. Þingliolt — SMolavörðuholt (suð laustur hluti): Berg-
staðastræti 48A, 2. hæð. Sími 10913. Opin daglega kl.
8—10 e.h.
4. Skuggahverfi — Skólavörðuholt (norður-hluti): Skóla-
vörðustígur 19, 2. hæð. S'ími 17504. Opin daglega kl.
8—10 e.h.
5. Hlíðar: Miklabraut 34. Opin daglega kl. 8,30—11,30.
Sími 14575. Skrifstofan verður opnuð n.k. mánudag.
6. Smáíbúðahverfi: (vestan Breiðagerðis), Múlakampur, Her-
skólakampur, Kringlumýri, Bústaðahverfi, Raðhúsahverfi,
og Fossvogsblettir): Heiðargerði 114 opin daglega kl.
8—11 e.h., sími 35359.
7. Smáíbúðahveríi (austan Breiðagerðis), Sogamýri, Breið-
holtshverfi, Selásblettir, Árbæjarblettir og Smálönd: Mos-
gerði 12, II. hæð, opin daglega frá kl. 8—-10 e.h., s’ími
33779.
8. Melarnir og Skjólin: Nesvegur 10, I. hæð, s'ími 12785,
opin daglega 8,30—10 e.h.
9. Laugarneshverfi: Rauðalæk 3, I. hæð, sími 35333, op-
in n.k. sunnudag frá kl. 2—6 e.h. og alla virka daga
næstu viku frá kl. 8—10 e.h.
10. Grímsstaðahnlt — Skerjafjörður og vesturhluti Haganna:
Lynghaga 4, II. hæð, sími 24031, opnuð n.k. mánudag,
opin daglega kl. 8,30—10 e.h.
Fleiri hverfaskrifstofur verða opnaðar næstu daga og
verða þær tilkynntar jafnóðum.
Stuðningsfólk G-listans er beðið að liafa sambanil við
hverfisskrifstofurnar.
Fundi ufanrikisráðherra
frestað í þrjár vikur
Fundi utanríkisráðherra fjórveldanna í Genf var í gær
frestað tii 13. júlí.
Þjóðhátíðin á Arnarhóli 17. júní. — Ljósm.: Sig. Guðm.
Bifreiðir á kjördegi
Þeir stuðningsmenn Alþýðubandalagsins, sem vilja lána bif-
reiðir á kjördag, eru vinsamlegast beðnir að hafa samband sem
allra fyrst við kosningaskrifstofu G-listans Tjarnargötu 20,
sími 23495 — Opin daglega frá kl. 9 f.li. til kl. 10 e.h.
Kosningasjóðurinn býður
ódýr listaverk til sölu
Athygli lesenda blaðsins
og stuðningsmanna Alþýðu-
bandalagsins skal vakin á
því, að nú gefst þeim ein-
stakt tækifæri til að eign-
ast fyrir lítið verð lista-
verk til heimilisprýði um
leið og kosnfngasjóði
bandalagsins er veittur
mikilsverður stuðningur.
Kosningasjóðurinn hefur
sem sé til sölu allmörg
málverk, svartlistarmyndir
og endurprentanir, sem
stuðningsmenn hafa gefið.
Þarna eru meðal annars
málverk eftir ýmsa af
kunnustu listamönnum
þjóðarinnar, einnig hinar
ágætu endurprentanir
IlelgafelJs, svo og eftir-
myndir af erlendum lista-
verkum. Verði myndanna
er mjög í hóf stiUt, ís-
lenzku málverkaeftirprent-
anirnar innrammaðar t.d.
allt að helmingi ódýrari en
hjá útgefanda.
Myndirnar verða allar
til sýnis og sölu í kosn-
ingaskrifstofu Alþýðu-
bandalagsins í TjarnargÖtu
20. Þar sem veggpláss er
þar mjög takmarkað er að-
eins hægt að koma litlum
hluta myndanna fyrir á
veggjunum í einu. en fyllt
er í skörðin jafnóðum og
listaverkin seljast.
Lesendur ættu að lita
inn í skrifstofuna í Tjam-
argötu 20 nú um helgina
og kynnast því sem þar er
á boðstólum af ' listavei'k-
um og hafa jafnframt sam-
band við kosningasjóðinn.
K0SNINGASKRIFST0FA
ALÞYOUBANDAIAGSINS
er í Tjarnargötu 20.
Opin alla virka dasa kl. 9—22, og sunnudagu klukkan
1.30—6.30 síðdegis. — SlMAR:
Utankiöríundaratkvæðagreiðsla: 2 35 15.
Kjörskrár aí öllu landinu: 2 35 09.
Kosningasióður: 2 37 63.
Almennar upplýsingar: 1 75 11
og 2 34 95.
Framkvæmdastj óri Alþýðubandalagsins:
1 75 12.
UTANKJÖRFUNDARATKVÆÐAGREIÐSLA stendur yfir.
Kosið er í Melaskólanuin, 1. liæð, gengið inn úr portinu.
Iíosning fer frain alla virka daga frá kl. 10—12 fh., og
2—6 og 8—10 e.h. Á sunnudögum kl. 2—6 e.li.
TILKYNNIÐ skrifstofunni uin þá stiiðiiingsinenn Alþýðu-
bandalagsins, sein dvelja erlendis eða kunna að vera fjar-
verandi á kjördegi.
HAFIÐ samband yið skrifstofuna, sem veitir allar upp-
lýsingar varðandi kosningarnar.
Sendið framlög ykkar í kosningasjóð til skrifstofunnar Tjarnargötu 20.