Þjóðviljinn - 02.10.1959, Blaðsíða 5
og Danir eru
mesfM
Enda þótt sykurneyzlan í heiminum fari sívaxandi og
verð á sykri lækki, aukast umframbirgö'ir af sykri stöðugt,
segir í skýrslu Matvæla- og landbúnaöarstofnunar Sam-
einuðu þjóðanna (FAO).
í síðasta hefti af Bulletin of
Agritcultural Economics anrl
Statistics, eerri kemur út mán-
aðarlega, segir að sykurfram-
leiðslan 1958—’59 sé alls 48,8
millj. tonn. Er hún því 9,5 af
hundraði hærri en árið áður og
50 af hundraði meiri en meðal-
ársframleiðslan á timibilinu frá
1948-’49 til 1952’53. Þessar
tölur taka einnig til sykurfram-
l'eiðslunnar í Austur-Evrópu,
Sovétríikjunumi og Kína.
Á síðasta áratugi hefur syk-
urneyzlan aukizt um 5 af
hundraði árlega, en þessi aukn-
ing hefur eigi að síður verið
minni en aukning framleiðslunn-
ar. Öll sykurneyzla heimsins- er
talin vera 44 milljónir tonna
eða 1,8 milljón tonnum meiri
en árið 1957. Það kemur fram
í skýrslum FAO, að umfram-
birgðir af sykri eru nú um 15
milljónir tonna. Það er um
þriðjungi meira en árið 1957 —
1958. I
framleiðsluaukningin á fyrst og
fremst rætur að rekja til hag-
stæðra veðurskilyrða og stór-
bættra framleiðsluhátta.
I skýrslunni er nánar rætt
um sykurneyzluna í heiminum,
og kemur þar fram að árið
1957 voru íslendingar mestu
sykurneytendur í heimi með 61
kíló á hvert m'annsbarn. Dan-
ir voru næstir með 59 kíló á
mann, en meðal annarra þjóða
sem milcið nota sykur eru Bret-
ar (56 kíló), Ástralíumenn (53)
Ný-Sjálendingar (52), Sviss-
lendingar (51) 1 Bandaríkjun
um er árleg neyzla á mann 46
kíló og í Kanada 44 kíló.
í Austur-Evrópu voru Tékk
ar liæstir með 37 kíló á mann,
en í Sovétríkjunum var árleg
sykurneyzla á mann árið 1957
25 kíló. Sykurneyzlan er minnst
í Asíu og öðrum vanþróuðum
svæðum í lieiminum.
(Frá upplýsingastofnun SÞ)
Skar bóndann á
háls á mótorhjóli
33 ára gömul húsfrú í Genf
í Sviss reyndi fyrir skömmu að
skera eiginmann sinn á háls
með rakhriíf þar sem hún sat
fyrir aftan hann á mótorhjóli
sem var á fullri ferð.
Eiginmaðurinn missti stjórn-
ina á mótorhjólinu sem féll í
götuna ásamt þeim hjónum.
Lögreglan hélt að hér væri um
umferðarslys að ræða, en þeg-
ar hún kom á vettvang tók
konan til fótanna og flúði. Hún
var handtekin og flutt í geð-
veikraspítala til rannsóknar.
Braskarar verða
hýddir í Pakistan
RJkisstjórnin í Pakistan hef-
ur ákveðið að þyngja refsingu
við afbrotum eins og smygli,
svartamarkaði og braski af
ýmsu tagi.
Meðal þeirra hegningarað-
ferða sem teknar verða upp er
hýðing.
Ayub Khan forsætisráðherra
hefur staðfest lögin um þessar
hegningar og hefur ríkið látið
gera svipur, er nota á við hýð-
ingarnar.
Eftir allsnarpa verðhækkun
árið 1956 hefur verð á sykri
farið sílækkandi á heimsmark-
„Þessum þrældómi verður s! Iisina“
aðnum. í jún’í í ár var verð á
sykri frá Kúba 2.8 cent pundið,
en 3,5 cent í fyrra. V.erðið á
sýkri fyrstu tvær vikurnar í
júlí sýndi, að enn er verðið að
lækka.
Skýrslan sýnir fram á, að
Framhald af 12. síðu
Hver einasti kjósandi þarf að
gera sér ljóst hvað gerist ef í-
haldsöflin vinna sigur í kosn-
ingunum:
1. Stjórnarílokkarnir boða
opinskátt að það þurí'i að gera
hvetur alla alþýðu til virkrar
baráttu til að varðveita það
sem unnizt hefur, til að vinna
aftur það sem tapaðist með
kupránslögunum í vor, til þess
að sækja fram í stéttabarátt-
unni og þjóðfrelsisbaráttunni.
Reynsluferð Len-
íns gekk að óskum
Útvarpið í Moskva skýrir frá
því að reyneluferð kjarnorku-
isbrjótsins Leníns hafi geng-
ið að óskum.
— Kjarnorkuknúðu aflvélam-
ar hafa nú verið í gangi í tvo
sólarhringa samfleytt, segir í
fréttinni. Reynslan sýnir að
þær vinna eins og.til var ætl-
azt. Þar með er reynsluferð
Leníns lokið.
Fækkað í her páfa
Mennimir sem þarna þramma í
herinannabúningum eins og þeir
gerðust fyrir 430 árum eru
Svisslendingar úr lífverði páfa.
Jóhannes páfi hefur nú ákveð-
ið að fækka þessu liði sínu úr
133 mönnum niður í 100.1 þeim
hópi verða fjórir yfirforingjar,
einn prestur, 23 undirforingjar,
tveir bumbuslagarar og 70
brynþvaraberar.
verzlunina frjálsa, m.ö.o. að
ríkið liætti að gera heildarsamn-
inga um vöruskipti við einstök
lönd:. Þessuin aðgerðuin er ætl-
að að eyðileggja algerlega við-
skipti íslendinga við sósíalist-
ísku löndin. Afleiðingin yrði
víðtækt atvnnuleysi, það at-
vinnuleysi sem atvinnurekendur
þurfa á að halda til -þess að
geta lialdið verklýðshreyfing-
unni í skefjum.
2. Afturhaldsflokkarnir boða
einnig opinskátt að þeir ætli
að framkvæma stórfellda geng-
islældum eftír kosningar, og
efnahagslega gagnbyltingu.
þeir fara ekkert dult með það
að til þess að gengislækkun
komi „að gagni“ þurfi jafn-
framt að binda kaupið. Þetta
verk var hafið með kaupráns-
lögunum 1. febrúar í vor. Kaup-
ránsflolíkaruir fengu aukið
fylgi í kosningunum eftir þær
aðgerðir, og' lialdi þeir fylgi
sínu enn í haust þarf enginn að
efast um að áfram verður hald-
ið á sömu braut og að næstu
sporin verða margfalt stærri en
það sem þegar er stigið.
Tveir kostir
Efnahagsvandamáli n verða
ekki leyst, hélt Einar áfram,
nema með harkalegum ráðstöf-
unuin annaðhvort gegn auðvaldi
eða verkalýð. Það jafnvægisá-
stand, sem verið liefur í jijóð-
félaginu um skeið er nú á enda
runiúð. Annaðhvort hefur al-
þýðan nýja sókn til aukinna
lífsgæða, eða afturhaldið sækir
fram og rænir verkalýðinn
mörgu því sem unnizt hefur
undanfarna áratugi. Um þessa
tvo kosti verður kosið 25. og
26. október. Alþýðubandalagið
Vatnsveitan
Framhald af 3. síðu.
aðalvatnsæða innanbæjar. Verð-
ur fyrsta æðin væntanlega
komin í jörðina um næstu ára-
mót, sagði verkfræðingurinn,
en það er Vesturbæjaræð, 600
mm víð, víðasta vatnsæð, sem
enn hefur verið lögð hér í bæn-
um.
1 beinu framhaldi af lagningu
þessara aðalæða er svo bygg-
ing vatnsgeyma á Litluhlíð. í
fyrsta áfanga er gert ráð fyrir
að byggðir verði geymar er
taka 10 þús. rúmmetra. Til
samanburðar má geta þess að
þeir geymar sem nú eru fyrir
hendi rúma 2 þús. rúmmetra.
Smíði dælustöðva í Laugar-
ási og á Landakotshæð er nú
nær lokið og verða þær vænt-
anlega teknar í noktun innan
skamms.
Berklavarnadagur
Framhald af 12. síðu.
samkvæmt Iðjutaxta ’í tíma-
vinnu. Starfsemi þessi hefur gef-
ið mjög góða raun það sem af er.
SÍBS hefur leitað eftir sam-
vinnu við önnur öryrkjafélög um
starfsemi þessa og mun jafnvel
hafsj v'erið rætt eitthva'ð um
stofnun landssambands fyrir ör-
yrkja.
Kosningaskzifstofa
Alþýðubandalagsins
er í Tjarnargötu 20. Opin
alla virka daga kl. 9 árdeg-
is til 10 síðdegis.
Símar: 17511, 16587 og
15004.
Hafið samband við skrif-
stofuna.
Föstudagur 2. október 1959 — ÞJÓÐVILJINN — (5
FRAMBOÐSLISTAR
í Norðurlandskjördæmi eystra við alþingis-
kosningar 25. og 26. október 1959
A. LISTI ALÞÝÐUFLOKKSINS:
1. Friðjón Skarphéðinsson, dómsmálaráðherra, Akureyri
2. Bragi Sigurjónsson, ritstjóri. Akureyri
3. Guðmundur Há'konarson, iðnverkamaður, Húsavík
4. Tryggvi Sigtryggsson, bóndi, Laugabóli, Reykjadal,
S- Þing.
5. Guðni Árnason, gjaldkeri, Raufarhöfn
6. Kristján Ásgeirsson, skipstjóri, Ólafsfirði
7. Hörður Björnsson, skipstjóri, Dalvík
8. Sigurður E. Jónsason, bóndi, Miðlandi, Öxnadal
9. Ingólfur Helgason, trésmíðameistari, Húsavik
10. Jóhann Jónsson, verkamaður, Þórshöfn
11. Jón Sigurgeirsson, iðnskólastjóri, Akureyri
12. Magnús E. Guðjónsson, bæjarstjóri, Akureyri.
f
B. LISTI FKAMSÓKNARFLOKKSINS:
1. Karl Kristjánsson, alþingismaður, Húsavík
2. Gísli Guðmundsson, alþingismaður, Reykjavík
3. Garðar Halldórsson, bóndi, Rifkelsstöðum
4. Ingvar Gíslason, lögfræðingur, Akureyri
5. Jakob Frímannsson, (kaupfélagsstjóri, Akureyri
6. Björn Stefánsson, kennari, Ólafsfirði
7’. Valtýr Kristjánsspn, bóndi, Nesi
8. Þórhallur Björnsson, kaupfélagsstjóri, Kópaskeri
9. Edda Eiríksdóttir, húsfrú, Stokkahlöðum
10. Teitur Björnsson, bóndi, Brún
11. Eggert Ólafsson, bóndi, Laxárdal
12. Bernharð Stefánsson, alþingismaður, Akureyri.
D. LISTI SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS:
1. Jónas G. Rafnar, alþingismaður, Akureyri
2. Magnús Jónsson, alþingismaður, Reykjavík
3. Bjartmar Guðmundsson, hóndi, Sandi, S.-Þing.
4. Gísli Jónsson, menntaskólakennari, Akureyri
5. Björn Þórarinsson, bóndi, Kílakoti, N.-Þing.
6. Vésteinn Guðmundsson, framkvæmdastj., Hjalteyri, Ef.
7. Friðgeir Steingrímsson, verkstjóri, Raufarhöfn, N.-Þing
8. Páll Þór Kristinsson, viðskiptafræðingur, Húsavík
9. Árni Jónsson, tilraunastjóri, Akureyri
10. Baldur Kristjánsson, hóndi, Ytri-Tjörnum, Eyjafj.sýslu
11. Baldur Jónsson, hreppstjóri, Garði, Þistilfirði, N.-Þing.
12. Jóhannes Laxdal, hreppstjóri, Tungu, S.-Þing
F. LISTI ÞJÓÐVARNARFLOKKS ISLANDS:
1. Bjami Arason, ráðunautur, Reykjavík
2. Bergur Sigurbjörnsson, viðskiptafr., Reykjavík
3. Hjalti Haraldsson, bóndi, Ytra-Garðshorni
4. Björn Halldórsson, lögfræðingur, Akureyri
5. Eysteinn Sigurðsson, bóndi, Arnarvatni
6. Hermann Jónsson, skrifstofustjóri, Reykjavík
7. Tryggvi Stefánsson, bóndi Hallgilsstöðum
8. Sigfús Jónsson, verkstjóri, Akureyri
9. Svava Skaptadóttir, kennari, Akureyri
10. Magnús Alberts, trésmiður, Akureyri
11. Aðalsteinn Guðnason, loftskeytamaður, Reykjavík
12. Stefán Halldórsson, bóndi Hlöðum
G. LISTI ALÞÝÐUBANDALAGSINS:
1. Björn Jónsson, verkamaður, Akureyri
2. Páll Kristjánsson, aðalbókari, Húsavík
3. Ingólfur Guðmundsson, bóndi, Fornhaga, Skriðuhreppi
4. Soffía Guðmundsdóttir, tónlistarkennari, Akureyri
5. Kristján Vigfússon, trésmiður, Raufarhöfn
6. Sigursteinn Magnússon, skólastjóri, Ólafsfirði
7. Olgeir Lúthersson, bóndi, Vatnsleysu, Hálshreppi
8. Jón B. Rögnvaldsson, bílstjóri, Akureyri
9. Lárus Guðmundsson, kennari, Raufarhöfn
10. Jón Þór Buch Friðriksson, bóndi, Einarsstöðum,
Rey'kjahreppi
11. Daníel Daníelsson, héraðslæknir, Dalvík
12. Tryggvi Helgason, sjómaður, Akureyri
Aðsetur yfirkjörstjórnar á kjördögum og við talningu
atkvæða er á Akureyri.
Akureyri, 24. september 1959.
Yfirkjörstjómin í Norðurlandskjördæmi eystra,
Kristján Jónsson, Jóhann Skaptason, Sigurður M.
r T
Helgason, Þorsteinn Jonatansson,
Brynjólfur Sveinsson. ]