Þjóðviljinn - 07.04.1960, Qupperneq 9
V* i « »■
íHF
5~
SKS
v!iq
m
-lajs
mi
•ia£l
11 1.11. y
iv- h
i«S ÉS OL'TT
m
§1 m s
siá
ZJT. z:i2.
•
i
SSE?
SrH
■7I|H
V;
S
m
tru
Si
Fimmtudagur 7. apríl 1960 — ÞJÓÐVILJINN -— (3
íþrótt erlendis — afbrot á íslandi
Ritsfjóri: Frímann Helgason
Handknattleiksmót íslands:
FH sigraði ÍR og á
vísan sigur í mótinu
Um síðustu helgi fóru fram
tveir leikir í meistaraflokki
karla, einn í 1. deild milli FH
og ÍR, annar í 2. deild miili
Fram og Akraness. Leikur FH
11111111111111111111111111II11111111111 [ 1111 II.I
I Bill Nieder I
| varpar kúlu (
| 19,99 metra! (
S f Bandaríkjunum heldur —
E stöðugt áfram keppnin um E
E það að komast j’fir 20 m 5
E í kúluvarpi, og nú 2. þessa 5
E mánaðar vantaði Bill Ni- E
E eder aðeins 1 sentimetra til E
E þess að ná þessu mjög svo E
s eftirsótta marki, sem eng- E
= um hefur tekizt enn að ná. E
E Ekki er vitað hvort allt hef- E
= ur verið löglegt í sambandi E
É við keppnina, en það hefur E
= oft viljað brenna við að E
= einhverjir meinbaugir hafa E
5 verið á, svo að ekki hef- jE
= ur reynzt unnt að stað- E
S festa metin. Gildandi heims-E
E met er 19,25 m og á O’ E
= Brien það, en hann hefur =
E varpað lengra, og einnig =
E Dallas Long, sem varpaði E
E kúlunni í síðustu viku —
S 19,67 m. Virðist svo sem ”
E þeir í alþjóðasambandinu E
E hafi ekki við að staðfesta E
E metin! E
E Nieder er engin smásmíði, E
£ 110 kg. að þyngd og 1,90 E
E m á hæð. Hann er liðsfor- E
5 inSi í hernum um þessar E
E mundir. Hann hefur áður E
E komið við sögu kúluvarps- E
E ins, því að hann var annar «
E maðurinn í heiminum sem E
E varpaði kúlu yfir 60 fet, E
E eða 18,29 m og hann varð E
E einnig annar á OL í Mel- E
E bourne. E
E Þessi árangur Nieders á E
E mótinu sem haldið var í E
E Texas vakti gífurlega at- E
E hygli svo og það að Ol- =
E ympíumeistarinn Bobby E
E Morrow varð í 3. sæti á |
E 200 m sem einhverntíma E
E hefði þótt saga til næsta É
E bsejar! Sigurvegari varð =
E Red Voods, og hafði for- =
E ustu allt hlaupið. Tíminn É
E var 21.0 sek. E
E Morrow vann 100 m |
E hlaupið á 10,6 sek., þó É
E tókst honum ekki að -
E þrengja sér fram fyrir E
E Weaver, sem varð annar E
E á 200 m, fyrr en á enda- E
E mörkum.
iiiiiiiitiiiimimiuiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiTi
og ÍR var á stórum köflum
afbragðs skemmtilegur, enda
hratt og vel leikinn af báðum
liðum. Leikur Fram og' Akraness
gat vart talizt skemmtileg'ur
sökum mikilla yfirburðá Fram-
ara.
Fram gersigraði síðasta
keppinautinn í 2. deild
Framarar léku nú fjórða og
síðasta leik sinn í 2. deild, að
þessu sinni gegn liði Akurnes-
inga. Sigurinn var allan tím-
ann í höndum Framara, ef svo
mætti segja. Þeir skoruðu fimm
fyrstu mörkin, Akurnesingar
svöruðu þá með tveim fremur
tilviljunarkenndum mörkum og
sóttu þá talsvert í sig veðrið um
stund, en misstu síðan algerlega
af leiknum það sem eftir var.
í hálfleik stóðu leikar 20:6 Fram
í vil. Síðari hálfleikur var mjög
svipaður í sniðum, Framararn-
ir 'juku bilið smátt og smátt
og sigruðu með miklum yfir-
burðum 43:15.
Liðin: FRAM: Sigurjón Þórar-
insson, Hilmar Ólafsson (fyrir-
liði) Jón Þorláksson, Guðjón
Jónsson, Hrannar. Haraldsson,
Valdimar Guðnason, Jón Frið-
steinsson, Erlingur Kristjánsson.
Lið Fram hafði ekki mikið
fyrir að sigra þetta kvöld, enda
við fremur veikan andstæðing
að etja þar sem handknattleiks-
lið Akurnesinga er. Oft mátti
þó sjá allgott spil Framara og
mjög góð skot.
Með leik þessum lauk keppni
í 2. deild meistaraflokks með
yfirburðasigri Fram, sem hefur
sigraði alla keppinautana í deild-
inni, og ekki lent í vandræðum
með neinn þeirra. Markatala
liðsins i keppninni talar skýru
máli, liðið hefur skorað 86:40
(leikurinn við SBR ekki talinn
með) í þrem leikjum.
í leiknum við Akranes áttu
nokkrir liðsmenn Fram góðan
leik. Guðjón og' Hilmar áttu báð-
ir góðan dag, skoruðu samanlagt
meira en helming markanna,
Erlingur, Hrannar og Valdimar
lofa góðu.
AKRANES: Atli Marinósson,
Sveinn Teitsson, Helgi Daníels-
son, Björgvin Hjaltason (fyrir-
liði), Kjartan Sigurðsson, Kristj-
án Frederiks., Tómas Runólfs-
son, Ingvar Elíasson, Guðlaugur
Bergþórsson.
Akurnesingar áttu nú mun
verri leik en fyrr í mótinu,
enda hafa þeir, að eigin sögn,
ekki stundað handknattleik síð-
an í febrúarmánuði s.l. Sterk-
asti handknattleiksmaður Akra-
ness í leiknum var Björgvin
Hjaltason.
Dómari í leiknum var Daníel
Benjamínsson og' dæmdi vel.
Daníel hefur sýnt mjög miklar
framfarir í vetur og hefur skip-
að sér á bekk með okkar beztu
dómurum.
FH tryggði sigur í
mótinu?
Með sigri sínum yfir ÍR hef-
ur FH að öllum líkindum tek-
izt að sigra enn einu sinni í
meistaraflokki karla á íslands-
mótinu í handknattleik. Leikur
ÍR og FII varð skemmtilegur
eins og við mátti búast. ÍR tókst
að taka forystuna, náði mjög
góðri byrjun, eins og á móti
KR á dögunum, skoruðu 4:0 og
voru óheppnir að skora ekki
það 5. úr vítakasti sem Iljalti
varði.
Einar Sigurðsson varð fyrstur
til að svara fyrir Hafnarfjörð
og skoraði eftir herfilegt klúður
í ÍR vörninni, og Ragnar tekur
upp þráðinn og bætir tveimur
mörkum við, 4:3, Pétur Antons-
son jafnar andartaki síðar 4:4.
Á þessu tímabili var leikurinn
bráðspennandi og skemmtileg-
ur. Örn náði forustunni um
miðjan hálfleikinn fyrir FH, en
Matthias jafríar 5:5 fyrir ÍR.
Eftir það má segja að leikurinn
hafi verið í höndum FH. Birgir
og Einar 3 mörk og FH hefur
yfir 8:5, og í hálfleik hefur enn
dregið sundur og leikar standa
12:7 FH í vil.
í siðari hálfleik virtust ÍR-
Frambald á 10. síðu.
rm nokkurra ára skeið liafa hnefaleikar ekki talizt til íþrótta
á íslandi lögum samkvæmt lieldur afbrota. Allt að einu birtum
við þessa mynd hér á síðunni í dag. Hún er tekin erlend’s
á æfin.gu hnefaleikamanna — liér á landi má lögsækja og dæma
í refsingu hvern þann sem slíkar æfingar stundar eða á þau
æfingatæki sein á myndinni sjást.
Ármann íslandsmeistari í kven-
flokki, ÍR í 2. flokki karla
Á mánudagskvöldið fóru fram
tveir úrslitaleikir í Körfuknatt-
leiksmóti íslands.
í meistaraflokki kvenna áttust
við lið Ármanns og ÍR, en það
eru einu liðin, sem senda flokka
í keppnina, þannig að leikur
þessi var sá fyrsti og síðasti í
keppninni.
Yfirburðir Ármannsstúlkn-
anna voru algerir, og' strax í
upphitun liðanna mátti greina
mikla yfirburði í körfuskotum
og ýmsum fleiri tæknilegum at-
riðum. Það ætlaði þó að ganga
erfiðlega fyrir Ármann að ná
fyrstu stigunum, en eftir að Rut
Guðmundsdóttir hafði tekizt að
skora, varð ekkert lát á stigun-
um, sem hreint og beint „rigndi"
fyrir hinar lítt leikvönu ÍR-stúIk-
ur.
Fyrstu 28 stigin voru skoruð
af Ármanni, en þá tókst ÍR að
skora einu körfuna, sem liðið
skoraði i leiknum. Leiknum
lauk með stórsigri Ármanns
36:2.
íslandsmeistarar Ármanns eru
þessir:
Sigríður Lúthersdóttir, Rut
Guðmundsdóttir, Kristín Jó-
hannsdóttir, Sigriður Sigurðar-
dóttir, Þuríður ísólfsdóttir, Þór-
un Erlendsdóttir, Katrín Her-
mannsdóttir, Malla Magnúsdótt-
ir, Hrafnhildur Lúthersdóttir.
Sigur Ármanns á mótinu er
fremur „ódýr“; aðeins eitt lið
til að keppa við, og það mjög
veikt. Engu að síður er lið Ár-
Fimleikamönnum Ármanns ágætlega tekið í Borgarnesi
r
Fimleikamenn Ármanns fóru
í i'imleikaför til Borgarness um
helgina. Yoru það bæði karla-
og kvennaflokkar sem sýndu.
Sýndu flokkarnir tvisvar á
sunnudaginn, og í bæði skiptin
fyrir fullu húsi og komust færri
að en vildu.
Sýningarnar tókust vel og
vöktu hrifningu Borgnesinga,
sem létu óspart í ljós aðdáun
sína á listum íimleikafólksins.
Var það mál manna að sýning-
árnar hefðu verið góð auglýsing
fyrir íimleikana. Munu aldrei
hafa verið íjölsóttari fimleika-
sýningar í Borgarnesi.
Eftir þessa vel heppnuðu för
munu fimleikamennirnir hyggja
á fleiri ferðir um nágrennið, og
munu þeir hafa í huga Selfoss
og Laugarvatnsskóla, en hvenær
þær ferðir verða farnar er enn
ekki ráðið.
Eins og' vikið var að um dag-
inn er sagt var frá ferð fim-
leikaflokkanna til Borgarness,
er mikið líf í fimleikadeild Ár-
manns og samheldni. Skemmti-
fundir eru haldnir, og eru þeir
vel sóttir. Þá má geta þess að
deildin mun vera að athuga
möguleika á því að fá hingað
til lands fimleikakennara um
stundarsakir frá Sovétríkjunum,
en þar munu fimleikar, og þá
ekki sízt áhaldaleikfimi, vera
beztir í heiminum í dag.
1. IR
2. Ármann (A)
3. KR
4. Ármann (B)
L
3
3
3
3
manns gott; margar stúlknarína
ráðar yfir ágætri knatttækni,' t.d.
Kristín, sem skoraði 19 stig og
Sigríður Sigurðardóttir sem skor-
aði 11 stig.
ÍR-liðið var svo sem fyrr seg-
ir mjög veikt og virtist lítið
kunna fyrir sér, t.d. vai* bolt-
inn oft sendur aftur fyrir miðju,
en eins og flestir vita er það
bannað í körfuknattleik. Sóknar-
tilraunir ÍR voru einnig mjög:
frumstæðar, t.d. var aldrei
reynt að leika undir körfuna„
heldur reynt að skjóta af löngu
færi.
ÍR varð íslandsmeistari
í 2. flokki
Leikur Ármanns og ÍR í 2- '
flokki karla bætti fremur leið-
inlegt leikkvöld mikið upp. Leik-
urinn var allskemmtilegur og
oft mátti sjá bráðfalleg tilþrif
og mikið öryggi í skotum. Það er
enginn efi á að í þessum tveim
liðum eru stórgóð efni, sem vaia-
laust eiga eftir að auka á hróð-
ur íslenzka körfuknattleiksii s.
IR hafði forystuna mestal.an
leikinn, leiddi í hálfleik með
30:21, en sigraði með nokkru
minni mun eða 53:46.
íslandsmeistarar ÍR eru:
Guðmundur Þorsteinsson. Guð-
mundur Aðalsteinsson, Þorste.inn
Hallgrímsson, Einar Bollason.,
Einar Hermannsson, Óli Geirs-
son, Donald Rader, Björn Jó-
hannsson.
í leiknum bar mest á meist-
araflokksmönnunum, þeim Guð-
mundi Þorsteinssyni og Þor-
steini Hallgrímssyni, sem er einn
okkar bezti körfuknattleiksmað-
ur. Ármannsliðið átti ekki mikið
lakari leik en ÍR-ingarnir; þuir-
léku oft mjög vel og veittu ÍR-
ingum talsverða keppni.
Röðin i 2. flokks mótinu er-
þessi: