Þjóðviljinn - 10.08.1960, Síða 6
I
6) —; ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 10. ágiist 1960
þlOÐVILIINN
ÓtRefandl: SameinliiKarflokkur alþýBu — Sóslallstaflokkurlnn. —
RltstJA^ar: Magnús Kjartansson (áb.), Maenús Torfl Ólafsson. Bíb-
urBur Guömundsson. — Fréttarltstlórar Ivar H. Jónsson. Jón
BJarnasor.. - Auglýslngastjóri: Guðgelr Magnússon. — Ritstjórn.
afgreið8ia auglýslngar, prentsmiðJa: Skólavörðustig 19. — Blml
17-500 (£ línur). - Áskriftarverð kr. 45 á mán. - Lausasöluv. kr. 3.00.
PrentsmiðJa ÞJóðviljans.
Röng stefna
fjað hlýtur að hafa verið átakanlegt fyrir sam-
vinnumenn um land allt að fylgjast með
málsvörn Tímans í tileíni af hinu stórfellda
svikamáli Olíufélagsins h.f. Það hefur verið
helzta haldreipi blaðsins að benda á það að marg-
ir gróðamenn Sjálfstæðisflokksins hafi einnig
stundað rnikil fiársvik, verið dæmdir fyrir þau æ
ofan í æ, og Ví farist þeim sízt að áfellast aðra.
Víst eru frásagnir blaðsins um atferli gróðabralls-
manna í Sjálfstæðisflokknum sannar, en er hægt
að afsaka það sem gerzt hefur innan vébanda
samvinnuhreyfingarinnar með slíkum rökum?
Samvinnuhreyfingunni var sérstaklega ætlað að
vernda almenning, bændur og neytendur, fyrir
féflettingu og svikum einstakra gróðamanna al-
ger heiðarleiki í viðskiptum og óbrigðul þjónusta
við almenning áttu að vera einkenni hennar; sú
siðferðilega reisn sem einkenndi brautryðjend-
urna þurfti að vera leiðarljós í öllupi athöfnum
hen.nar. Það er hörmulegt að spilltir menn skuli
hafa notað slík samtök og fjármagn þeirra til
hinna verstu óhæfuverka — en þó er hitt kannski
ennþá alvarlegra að reynt skuli að réttlæta fram-
ferði þeirra með þeim rökum að ekki séu aðrir
betri. Sú málsvörn ber vott um alvarlegar sið-
ferðilegar veilur, sem óhjákvæmilegt er að sam-
vinnumenn uppræti að fullu i samtökum sínum-
eti
mt
ua
Annur málsvörn Tímans er sú að hamra á því
^ að fjandmenn samvinnuhreyfingarinnar reyni
nú að nota olíumálið til hinna harðvítugustu
árása á samvinnuhreyfinguna í heild, og því
þurfi samvinnumenn að snúast til varnar. Þessi
ábending er einnig rétt, en samstaðan gegn óvin-
um samvinnuhreyfingarinnar má sízt af öllu
verða til þess að meiin verji og afsaki fjársvikin
og lögbrotin sem Vilhjálmur Þór og félagar hans
hafa gert sig seka um. Því aðeins hafa andstæð-
ingar samvinnuhreyfingarinnar nú beitt vopn í
'höndum, að sumir forustumenn samtakanna hafa
brugðizt þeim mikla trúnaði sem þeim var sýnd-
ur. Þessir menn hafa í verki unnið óvinum sam-
vinnuhreyfingarinnar hið mesta gagn, og það er
samvinnuhreyfingunni til mikils tjóns ef enn
verður reynt að halda yfir þeim hlífiskildi. Sam-
vinnuhreyfingin verður nú umfram allt að gera
hreint í híbýlum sínum — hversu svo sem Morg-
unblaðið hælist um á meðan; aðeins með slíkri
hreingerningu mun samvinnuhreyfingin megna
að endurvekja það traust og þá samheldni, sem
hrinda mun öllum árásum andstæðinga og leiða
samvinnustefnuna til nýrra sigra.
/~illum er nú ljóst að það var röng stefna þegar iæ
^ fjármagn samvinnumanna var notað til að
stofna hlutafélög í stórgróðaskyni í samvinnu við
fjárplógsmenn íhaldsins. Engum ætti heldur að
dyljast lengur að samvinnuhreyfingin fór inn á SJ
háskalegustu brautir þegar hún reyndi að gera jJg
hernámið að stórfelldri tekjulind. Þau lögbrot jrrj
og svik sem framin hafa verið eru afleiðing af
rangri stefnu, og þeirri stefnu verður umfram
allt að breyta ef samvinnuhreyfingin á aftur að rgjj
öðlast það traust sem hún þarfnast umfram allt.
Þá stefnubreytingu ber Tímanum að ræða af
heiðarleik og einlægni, f stað þess að ástunda •Hr?
lágkúrulega málsvörn sem gerir blaðið samdauna
óþurftarmönnunum og verkum þeirra. — m.
Miðvikudagur 10. ágúst 1960 — ÞJÓÐVILJINN — (7
hana „mömmu”~
glápa á málleysingjana eins
og einhver viðundur þegar
það mætti þeim eða sá þá
ræða saman á fingramáli.
(Rétt mun að skjóta því inn
hér, að áður fyrr var málleys-
ingjum kennt fingramál, nú
er þeim kennt varamál. þ.e.
að lesa orðin aif vörum hinna
talandi. Fvrir allmcrgum ár-
um kvað hafa verið til einn
lögregluþjónn. sem skyldi
fingramál, og læknar munu
yfirleitt ekki skilja það).
Þegar Sigríður kom á Mál-
leysingjaskólann tck Margrét
Rasmus, forstöðukona skól-
ans hana að sér, og hjá henni
ólst Sigriður. unp. Sigríður
er ekki fædd málVaus. en hafði
heyrn fyrstu árin, eða þar til
henni, einkum öll iheimilisstörf
og vinnu.
1 Málleysingjaskólanum var
samtímis Sigríði mállaus pilt-
ur, Jón Sigfússon að nafni.
Hann lærði síðan bakaraiðn
og var bakari í Alþýðubrauð-
gerðinni. Giftust þau Sigríð-
ur og Jón og stofnuðu heim-
ili, er að dómi kunnugra var
hið ánægjulegasta. Hvor-
tveggja mun hafa verið, fá-
titt, bæði að mállaust fólk
stofnaði þannig he:mili,
og hitt að þau héldu
tryggð við kunningja úr
Málleysingjaskólanum, enda
tóku reykvískir málleys-
ingjar strax að venja
komur sínar heim til þeirra
og safnast þar saman Einn-
ig þeir sem komu í Málle.vs-
ingjskclann utan af landi.
Sérstaklega kvað Sigríður hafa
verið stúlkum er komu utan
af landi sem væri hún móðir
þeirra. Alltaf þegar eitthað
var um að vera hiá mállevs-
ingjunum hér eða þeir voru í
klípu, fóru þeir héim til Sig-
Heimili Sigríðar varð þannig
þegar í upphafi miðstöð og
samkomustaður málleysingja
og raunverulega félagsheimili
þeirra, og héfur svo verið ’i
37 ár. Enn mæla málléysingj-
ar sér mót heima hjá Sigríði.
Heimp hjá henni ræða þeir og
imdirbúa árlegt ferðalag sitt,
ofr heima hjá henni sýna þeir
myndir og kvikmyndir úr þess-
um ferðalöerum. Flest stóraf-
mæli sín halda þeir þar. heim
til hennar leita þeir um hátíð-
ar og þangað fara þeir með
máileysingia utan af landi.
Fg sovr Sigríði hvort henni
hafi ekki fundizt ltfið erfitt,
ov hvort það hafi verið leið-
inlegt.
Það er eins og hún þurfi
rmkkurn ulma til að át-ta sig
á svo fip^s^æðri spurningu.
Fn svo hlær hún innilega
hjartanlega og svarar:
— Nei, lífið hefur verið á-
gætt — og það er ánægjulegt
enn.
Mesta ánægja Sigríðar hef-
ur vitanlega verið að annast
sjá landið, en iþess hefur hún
átt lítinn kost.
Að heimili mállausra hjóna,
og síðustu árin mállausrar
konu (íón S:gfússon lézt fyr-
ir nokkrum árum), skuli hafa
verið félagsheimi'i málleys-
ingjanna, vekur óhjákvæmi-
lega spurningu um það
hvað samfélagið geri fyrir
mállaust fólk. Það mun stað-
reynd að fólki sem útskrifast
af Málleysingjaskólanum mun
ganga erfiðlega að fá vinnu.
Áður fyrr a.m.k. gátu mál-
leysingjar lært iðn. Jón Sig-
fússon var t.d. bakari og tveir
klæðskerar hér voru málleys-
ing.jar, en margir mállausra
karlmanna munu gerast sjó-
menn. Þau Sigríður og Jón
eignuðusf 3 börn. Ein dóttir
þeirra hefur eðlilegt mál og
heyrn, en ein dóttirin og son-
ur eru máll.aus. Grétar sonur
henrar lærði matsveinsstörf,
en það þorir vist enginn að
hafa mállausan matsvein —
svo hann er háseti. Mállausa
systirin hefur unnið í verk-
ríður Kolbeinsdóttir
hún var orðin fjögurra ára
gömul að hún datt og missti
heyrnina af þeirri byltu. Eft-
ir að Sigríður kom til Reykja-
víkur lagði Margrét Rasmus
mikla rækt við að kenna
ríðar og réðu ráðum sínum
þar. Oft voru á heimili þeirra
Sigríðar á kvöldin tvö her-
bergi fullsetin mállausu fólki
er m.a. spilaði þar og stytti
sér stundir með ýmsu mcti.
heimili sitt og ekki síður að
hafa „opið hús“ fyrir allt
mállaust fólk, en af öðrum
,,skemmtunum“ kveðst hún
hafa notið mestrar ánægju af
því að skreppa í ferðalög og
smiðju langt til 20 ó.r.
Fyrir nokkrum árum fóru
málleysingjar héðan til Dan-
merkur. Þar dvöldu þeir á
málleysingjaheimili þar
sem allt var miðað við
- Þeir kalla
Málleysingjarnir í Reyk.ja-
vík kalla hana flestir mömmu.
að því mér er t.jáð. Hvers
vegna gera þeir það? Cg hver
er hún þessi kona,
Sigríður Kolbeinsdóttir heit-
ir hún, og er sextug í dag
Einn daginn heimsótti ég
hana og lagði fyrir hana
'heimskulegar spurningar •—
með aðstoð fingramálatúlks.
Jafnframt fékk ég frekari
upplýsingar hjá vinkonu henn.
ar, sem kveðst hafa þekkt
heimili Sigriðar frá því hún
var ung.
Sigríður Kolbeinsdcttir
fæddist 10. ágúst árið '1900
í Æðey á Isafjarðardjúpi, en
þar var móðir hennar vinnu-
kona. Hún fór strax I fóst-
ur til foreldra Jón Baldvins-
sonar, en móðir hans var
Ijósmóðir og tók telpuna til
sín. Á því heimili var hún til
9 ára aldurs, að hún fór á
Málleysingjaskólann í Reykja-
vík Sigríður á mynd af nem-
endum Málleysingjaskólans
hér árið 1909. Þar eru nem-
endur allir með einkennishúfu.
Það segir Sigríður að þeim
hafa fallið þynest, að vera
þannig auðkenndir frá öðru
fólki. og verst af öllu hafi
verið þegar fólk stoppaði og
sneri sér við á götunni til að
þarfir mállauss fclks. Fyr-
ir þá sem kynnast sl.'kum
heimilum eru viðbrigðin mikil
þegar þeir þoma aftur hnim.
Þá finna l>eir betur og sáfar
hve skammt þessum málum
er komið hjá okkur. Nú mun
hópur málleysingja vera á
norrænu málleysingjamcti,
undir fararstjórn og leiðsösm
Brands Jónssonar skólastjóra
Máilleysingjaskólans.
Til er Zontaklúbbúr á landi
hér og a.m.k. deild úr hon-
um vinnur að málefnum mál-
lauss fólks. Stofnaður hefur
verið Minningarsjóður Mar-
grétar Rasmus, fyrsta skóla-
sti^ra Mállevsingjaskólans og
á að nota sicðinn í þágu mál-
levsirgia. Sióðnrinn hecur
m.a. tékjur af sölu minning-
arsnialda, — en skvldu bmr
ekki vera margir sem ekki
v:ta að hann er t.il?
Heimili Sigríðar Kolbeíns-
dct.tur á Grettisgctu 69 hef-
”r verið revkv:skum máll°vs-
ingium félagsheimili í ára-
tugi Ekki getur svo orðið um
pl'a framii'ð. Það bezta s°m
S’frr’Aur Rpcrist ge+a óskað °ér,
sé að reykvískir máúevsingi-
ar mgnipf gut.t o,y follorrt fé-
]ííct0.1-1 eimili Fær bún nð siá
þá ósk pírq rætast ? Eðs. vr”-ð-
1 ’r soTnfélagÍð áf"rm i"f'i-
og vleymið á að til
sé mállaust fclk.
Mállausa fólkið í Revk.iavík
mun áreiðanlega fiölmenna
heim til „mömmu" í dag, færa
henni hamingiucskir og þakka
he-mi — og það gera margir
fleiri. J. R.
....................... 'iiiiiMiimmmmmiimmimimmimiiiimimmmiimiimmiiiiiMmiiiiimmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimimmmiiimmmimmmmmiimmiiiMiiiimiiimiMiiiiiMiiiiiiiiiiimiiiliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimmmmiiiiimimmmiiiiimimiiii
' \
Alþjödlegt nuðitmgn 09 alþjöðlegt arðröit
I þriðja hefti fjármálatíð-
inda siðastliðirs árs skrifar
Valdimar Kristinsson, við-
skiptafræðingur, grein, sem
hann nefnir „Réttindi er-
lendra fjármagnseigenda í
nokkrum löndum“. Greinin er
rituð á þeim forsendum, að
Það sé sjálfsagt fyrir Islend-
inga að veita eriendu auð-
magni starfsskilyrði á ls-
landi. Það beri að búa í hag-
inn fyrir það með setningu
heppilegra laga um gjaldeyr-
ismál og skattgreiðslur, svo
sem gert hefur verið í ýmsum
löndum. I greininni örlar
varla á Þeirri skoðun, sem
eykst nú æ fylgi í he’minum,
að gjalda beri varhug við
innflutningi erlends fjár-
magns. Þessi afstaða við-
skiptafræðingsins gefur til-
efni til nokkurra hugleið-
inga og birtingu tölfræði-
legra staðreynda um f jár-
magnsflutninga.
Það, sem ríður á að at-
huga gaumgæfilega, er ekki
hið ytra lagalega form vanda-
málsins heldur hagrænt og
stjórnmálalegt innihald þess
Það er hins vegar í nánum
tengslum við eðli auðmagns-
ins sem slíks. Auðmagn eða
fjármagn er ekki aðeins sam-
safn peninga, auðs, sem ávís-
unar á framleiðsiutæki, held-
ur hefur það og er skilyrði
hinnar þjóðféiagslegu af-
stæðna milli atvinnurekenda
og verkalýðs. Þessar afstæð-
ur eru fólgnar í sameiningu
andstæðra skauta, launavinnu
og auðmagns, þar sem sam-
einingin hefur chjákvæmilega
arðrán í för með sér. Annað
skautið leitast við að halda
uppi arðránsafstæðum, hitt
við að sundra þeim. Hér er
um að ræða baráttu tveggja
aðalstétta auðvaldsþjóðfélags-
ins, verkalýðs og borgara-
stéttar. Þessi móthverfa
dýpkar mjög við innflutning
auðmagns. Þá verður það
deginum ijósara, að hið al-
þjcðlega auðmagn arðrænir
verkamanninn á alþjóðlegan
mælikvarða, enda er undir-
okun annarra hjóða í senn
f.;rsenda og afleiðing arð-
ránsferlsins.
I grein Valdimars Krist-
inssonar um „Réttlæti er-
lendra fjámagnseigenda í
nokkrum löndum“ endur-
speglast útbreiddustu skoðanir
þeirrar hagfræði, sem nýtur
náðar og v:ðurkenningar auð-
valdsheimsins, um flutning
fjármagns landa á milli. Nú
eru hagfræðingar Vestur-
landa ekki annað en sltósvein-
ar borgarastéttarinnar til að
viðhalda auðnum og réttlæta
völdin. Fræði þeirra eru ekki
eilíf sannindi, heldur tak-
markaðar skýringar á yfir-
borðsfyrirbærum efnahags-
lífsins með hina þröngu- sér-
hagsmuni auðvaldsins fyrir
augum. Það er lærdómsríkt
að kynna sér kjarnan í kenn-
ingum borgara'egrar liag-
fræði um auðmagnshreyfing-
ar, og skal nú reynt að setja
hana fram.
Fyrst er að geta þess, að
framleiðsla til fullnægingar
mannlegum þörfum fer fram
við það, að svonefndir
framleiðsluþættir, þ.e. land,
vinna og auðmagn sameinast.
Hver þáttur fyrir sig leggur
fram sinn skerf til framleiðsl-
unnar, sérhver þeirra býr yf-
ir vissri framleiðni.
Handhafendur eða eigend-
ur framleiðsluþáttanna, land-
eigendur, verkalýður og f jár-
magnseigendur (sem sé borg-
arastétt) fá í sinn lilut jafn-
miklar tekjur og nemur
framlagi þ áttarins til fram-
ieiðslunnar. (Þannig , eru
stéttarafstæður samkvæmt
þessari hagfræði ekki annáð
en tæknileg hlutföll iriilli ták-
markaframleiðni liinna ýmsu
f ramleiðsiuþátta!).
Visst hlutfall milli fram-
leiðsluþáttanna er hagstæð-
ara en önnur hlutföll. Ef of
mikið er af e:nhverjum í
samanburði við hina, er fram-
leiðni þess þáttar ákaflega
lítil eða hann liggur ónotað-
ur. Þannig eru t.d. auð og
ónýtt landf'æmi ef því er að
skipta. Ef of m'kið er af
vinnu (sem framleiðsluÞætti,
þ.e. cf margir verkamenn
borið saman v:ð framleiðslu-
tækin), þi er hún ekki full-
uýtt, atvinnuleysi ríkir. Sé
um of af auðmagni, er ekki
hægt að koma því í fyrir-
tæki, í bezta lagi er hægt að
legg.ia það inn í lánastofnan-
ir, en ékki fer hjá því að
framleiðni þess (og þar með
arður) verður ákaflega lítill.
Tæknileg þróun kapítalismans
miðár að því að minnka tak-
markaframleiðni auðmagns.
ins.
'Framleiðsluþættir eru mis-
munandi hreyfanlegir. Land
er það alis ekki. Vinna er
það, ef svo má segja, bara
stundum. Auðmagnið er hins
vegar hreyfanlegt í bezta
lagi.
Hreyfanleiki þáttanna eða
öllu lieldur eins þeirra, auð-
magnsins, er svo það, sem
gefur skilyrði til sköpunar
jafnvægis milli þáttanna á
hinum ýmsu svæðum. Lágur
arður fjármagns í einhverju
lardi er tákn um það, að mis-
vægi sé kom'ð á milli þátt-
anna. Þá er um að gera að
flytja fjármagn út í önnur
iönd, Þar sem minna er af
því fyrir og framleiðni þess
enn þá há. Enda er þar eftir-
tekjan meiri’.
I ljósi þessa verður að
átelja harðlega öll þau höft,
sem lögð eru í götu hins
frjáísa direyfanleika. Ef þau
eru engin, getur auðmagnið
streymt til og frá og skapað
sjálfkrafa jafnvægisástand-
ið milli þáttanna. Þá mynd-
ast af sjálfu sér hámark
mannlegrar veliíðunar, at-
vinnuleysi og iðjulausri fjár-
söfnun er útrýmt.
Vonandi nægir hessi stutt-
orði útdráttur til að sýna,
hvernig borgararnir setja
vandamálin fram. Hvað hafa
svo scsíalistar um Þessa
kenningu að segja? Fyrst og
fremst það, að húri er óvis-
indaleg, auk þess sem hún
afsakar á lymskulegan hátt
atferli borgarastéttarinnar
og slær ryki í augu fólks um
hina sönnu náttúru auð-
magnsflutninga.
Það verður ekki farið út
í það hér að hrekja þátta-
kenninguna frá orði til orðs,
aðeins bent á, að hún hvílir
á rangri, huglægri gildiskenn-
ingu. Sú staðhæfing, að vinn-
an ein sé skapari verðmæt-
anna, er óhjákvæmilegur
grundvöllur allrar vísinda-
legrar hagfræði. Og að vísu
er vinnugildiskenningin ekki
forsenda, sem hægt er að
velja eða hafna að vild, heid-
ur rökfræðilega sannanleg
kenning, og verður gengið út
frá því hér. Fyrir verkalýð-
inn er tvöföld ástæða til að
tileinka sér vinnugildiskenn-
inguna, því að hún er biturt
vopn í stéttarbaráttunni.
Með hjálp hennar skiljum við
eðli sjálfrar stéttarbarátt-
unnar, arðránsafstæður og
aðrar innri mótsagnir auð-
valdsþjóðfélagsins. Með
Þáttakenningunni er hins
vegar hægt að afsaka livaða
arðrán sem er, enda er það
nú líka tilgangurinn með
henni.
Tekjur atvinnurekenda eða
fjármagnse’genda eru ekki
mælikvarði þess, hve auð-
magnið hefur mikla „fram-
leiðni“, heldur þess, hve
mikinn gildisauka tekst að
sjúga úr vinnu verkalýðsins.
1 löndum, sem skemmra eru
á veg komin tæknilega, er
hægt að verja meirililuta auð-
magnsins til arðráns verka-
lýðsins, þar verður magn
gildisaukans eða gróðinn
meiri. Einmitt þetta og ekk-
ert annað er afivaki auð-
magnsf lutninga.
Það er stórhættulegt efna-
hagsiegu og pólitísku sjálf-
stæði hverrar þjóðar, einkum
smárrar og lítilsmegnandi,
að leyfa auðmagnsinnflutn-
ing, enda er og hætt við, að
það komi efnahag þjóðarbús-
ins á ka’dan klaka. Verð-
mætum þeim, sem vinna
landsins búa skapa, er hin
mesta nauðsvn að halda inn-
anlands og láta ekki helming
þeirra, gildisaukann, renna
til erlendra aðila.
Kenningin um óhindrað
rennsli framleiðsluþáttanna
og jafnvægi j eirra er fögur
á að sjá, en hún hefur þann
Hjalti Kristgeirsson
regingalla að gera ráð fyrir
mótsagna'.eysi og fyllsta sam-
ræmi í efnahagslífinu. Það er
hins vegar óhugsandi, meðan
auðva'dsskipulagið er við
lýði. E'nmitt þess vegna er
kenningin til einskis nýt
nema til að réttlæta efna-
hagspólitík þeirra stjórnmála-
manna, sem sjá heiður s:nn
(eða kannske frekar vö'd) í
því áð vera attaníossar al-
þjcðlegs auðvalds. Jafnframt
er talið um „frjálst rennsli"
tómt þvaður á tímum hinna
tröllauknu einokunarhringa.
Framhald » VO siftu
Hialti Kristgeirsson, sem stundar nám í hagíræði í Ungverjalandi, heíur
sent Þjóðviljanum alllanga ritgerð um eíni ,sem nú er mjög á dagskrá hér á
landi: Eigum við að veita erlendu auðmagni aðstöðu til stórframkvæmda á
íslandi? Ritgerð Hjalta verðúr birt í nokkrum köflum hér í blaðinu.
Effir H]alfa Krisfgeirsson