Þjóðviljinn - 12.08.1960, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 12.08.1960, Blaðsíða 10
10) — ÞJÓÐVILJINN —- Föstudagur 12. ágúst 1960 f auðma Frainhald af 7. síöu. þrisvar sinnum lægra. Það mætti vitna í ummæli Pérez, efnahagsmálaráðherra: Þjóð- in er „sárfátæk að matvælum, fatnaði, húsnæði og sam- göngutækjum“. Að hverju er hún þá rík? Jú, hún hefur undir fótum einhverjar auð- ugustu lendur heims, sem hún getur ekki einu sinni látið veita sér til fæðis og skæðis vegna ásóknar framandi hræ- gamma. Hinar lögmálsbundnu krepp- ur auðvaldsskipulagsins koma einkarhart niður á lör.dum með einhæfan þjóðarbúskap. Yfirleitt hafa hráefni og matvæli líka hneigð til að lækka í verði gagnvart iðn- aðarvörum. Enda þótt Argen- tína sé þróaðasta land róm- önsku Ameríku og iðnaðar- framleiðslan sé nú orðin eins mikil eða meiri að verðmæt- um en landbúnaðarframleiðsl- an, eru þó landbúnaðarafurðt ir enn þá ríkjandi í útfluth- ingnum (korn, kjöt og ull yf- ir 60%). I árslok 1957 og á árinu 1958 komst Argentína í mjög erfiða aðstöðu. Kreppa gerði vart við sig í Banda- ríkjunum og yíðar, verð hrá- efna féll á heimsmarkaðinum. Verzlunarjöfnuður varð óhag- stæður og erfitt að standa í skilum við útlönd. I desember 1958 neyddist Frondizi for- seti til þess að taka 329 millj- ón dollara lán í Bandaríkjun- um. En það -fylgdi böggull skammrifi, því að ganga varð að hinum svívirðilegustu kostum. Skilyrði lánveiting- arinnar voru þessi: gengis- iækkun, afnám hafta á inn- og útflutningi, hætta að greiða niður neyzluvörur, banna kauphækkanir, hætta að styrkja taprekstur ríkis- fyrirtækja í iðnaði. (Þetta var sem sé „viðreisn“ í orðs- ins nýjustu merkingu). Hið yfirlýsta takmark var að minnka neyzlu innanlands og auka útflutning. Á eftir þessum aðgerðum komu erleml auðfélög í stórhópum og buðu „aðstoð“ sina. Gerðir voru samningar um athafna- frelsi og þess háttar við fjölmörg slík, einkum þó olíuhri/nga svo sem ESSO, Shell, Pan American Inter- national Oil, þar eð það þótti hin mesta óhæfa, að argentíska ríkið skyldi hafa frumkvæðið um nýtingu hinna tiltölulega nýfundnu iinda í Patagónf.u. Árangur- inn af öllu þessu varð sá, að f jölmörg meðalstór og smærri fyrirtæki urðu gjaldþrota, en ■þau stærri juku við sig, eink- um döfnuðu erlend fyrirtæki. ■Það tókst að vísu að minnka innflutning og skerða lífskjör almennings, en að auka út- flutninginn með þessum ráð- um reyndist að sjálfsögðu ókleift. Svona notfærir 'al- þjóðlega auðvaldið sér vand- ræði smærri ríkja, hlutast til imi efnahagsmál þeirra og reynir að ná fótfestu í lönd- um þeirra. Einn tíundi hluti banda- rísks fjármagns á svæði róm- önsku Ameríku er að finna á ■gmáeyju í Karabíska hafinu, Kúbu. Banidaríkin gerðu Kúbu að svkurframleiðs'.u- landi, og er í þeirri land- fræðilegu verkaskiptingu ekk- ert vitrænt eða heppilegt ann- að en það, að með þvi gátu Bandaríkjamenn tryggt sér bæði sætan sykur og enn sæt- ari gróða. Þriðji hluti syk- urinnflutnings Bahdaríkjanna kom frá Kúbu. Sykurfram- ieiðslan veitti 67% þjóðar- tekna eyjarskeggja og yfir 80% útflutningsins. Þannig sáu Bandaríkjamenn um það að Kúbumenn lifðu og dæju fyrir sykur. I því b’rtist þó ekki neins konar náttúrulög- mál eða óumbreytanleg örlög, því að eyjan er t.d. alveg sérstaklega auðug að járn- grýti og öðrum málmum, sem gætu veitt grundvöll blóm- legs iðnaðar, enn fremur er landið vel faliið til hins fjöl- breyttasta landbúnaðar. En drottnuri auðmagnsins gerði Kúbumönnum ókieift að fram- le'ða handa sér nóg matvæli (þau eru flutt inn í stórum stíl), hváð þá nýta auðæfin í iðrum jarðar. 42 prósent sykursins kom af ekrum í eigu Bandaríkjamanná og það sem ekki kom þaðan varð líka að hreinsa í tækjum bandarískra. Ekki gekk nú þessi sykurparadís betur en svo, að allan ársins hring var stöðugt atvinnuleysi um 300 þúsundir og á vissum árstímum allt upp í milljón, en það er helmingúr verka- lýðsstéttar landsins. Yerka- maður á Kúbu bar að meðal- tali úr býtum 70 pesa á mán- uði (pesi — jafngildi doll- ars), en 100 pesar er talið það minnsta sem hægt er að komast áf með (Lebensmin- imum). Eins og kunnugt er þoldi almenningur á Kúbu ekki lengur við undir oki Batista einvalda, góðvinar Banda- ríkjastjórnar, gerði uppreisn um áramótin 1958-1959 og kom á frjálslyndri borgara- legri stjórn undir forsæti Fidels Castro til valda. Verkalýður og bændur styðja þessa svonefndu byltingar- stjórn af heilum hug, enda ber hún hag þeirra fyrir brjósti. En þrátt fyrir allt frelsishjal Bandarikjamánna, þykknaði brátt í þeim, er þeir sáu, að Castro væri al- vara að bæti kjör þjóðar sinnar. Hér er einfaldlega um að ræða, að hagsmunir Bandaríkjamanna og þjóða eins og Kúbumanna eru svo andstæðir, að engin mála- miðlun getur komið til greina. Þetta er sögulegt framhald og rökrétt afleiðing af mótsögninni milli launa- vinnu og auðmagns, verka- lýðs og borgarastéttar. Eitt brýnasta verkéfni byltingarstjórnarinnar var að skipta landinu milli bænda. Áður áttu nefniléga kúbansk- ir og útlendir stórjarðeigend- ur 90% landsins, aðeins fjög- ur bandarísk auðfé-’.ög áttu eamtals 700 þúsund hektara, I maí ,í fyrra var farið að framkvæma jarðskiptingar- lögin, en samkvæmt þeim er land tekið til skiptingar frá fyrri eigendum, þeim gre'dd- ar skaðabætur eftir eigin mati á jörðinni við skatt- framtal 1958, og verði þær inntar af hendi á 20 árum með 4% vöxtum. (Það er þetta sem Bandaríkjamenn kaila þjófnað og rán). Nú eru 400 hektarar mesta land- stærð, sé um sykurekru að ræða, þá 1300, en það er skil- yrði að eigandi sé kúbanskur ríkisborgari. Jarðnæðisiaus- um landbúnaðarverkamönn- um er yfirleitt úthlutað 26 ha skika endurgjaldslaust. — Þessar ráðstafanir Kúbu- stjórnar, og þær sem fylgt h'afa eftir (þjóðnýting syk- uriðnaðarins), eru Banda- rikjamönnum mikill þyrnir í augum. Linna þeir ekki lát- um að svívirða, rægja og ógna stjórn og fylgismönn- um Castros. Hafa þeir nú þegar takmarkað mjög sykur- innflutning frá Kúbu. En þegar byltingarstjórn Castr- os gerði samhinga við Mik- ojan um sölu 1 milljón lesta sykurs til Sovétríkjanna næstu fimm árin, urðu Banda- ríkjamenn æfir. Þyrluðu þeir upp miklu moldviðri út af því, að Rússar skyldu kaupa sykurinn á heimsmarkaðs- verði, þar sem þeir, Banda- ríkjamenn, hefðu verið reiðu- búnir til að greiða mun hærra verð (5 cent í stað 3 centa á pund). Fjölyrtu þeir mjög um það tjón, sem „ofstæki" Castros bakaði Kúbu. Sann- leikurinn er hins vegar sá, að Bandaríkjamenn greiddu ekki þetta háa verð af gamni sínu eða eintómri góð- mennsku, heldur er þetta hið rikjandi Sykurverð í Banda- ríkjunum. Þvi er hins vegar haldið svona háu í þágu bandarískra framleiðenda (sem ,vel að merkja reka ekki aðeins starfsemi sína innanlands, heldur og erlend- is, t.d. á Kúbu-!). Útávið bera Bandaríkjamenn það sama, og gildir það að sjálf- sögðu líka um sykurinn, sem keyptur er frá Filipseyjum, Perú, Mexíkó, Dómíníkanska lýðveldinu o.s.frv. Banda ríkjamenn segja, að Kúba skaðist Castro og hans menn eru að gera á Kúbu. Þær hafa heit- ið því, að standa allar vörð um sjálfstæði eyjarinnar, og það er ekki að efa, að fleiri slíkar 'tilraunir munu á eftir koma. Það er sannaríega kominn tími til að megin- land Suðurameríku hristi af sér klafann og fari sjálft að skapa sér framtíð. Það er í iðnaðarlegu og landbúnaðar- legu tilliti óþróað, og í út- flutningi hvers lands er ein eða örfáar vörutegundir ríkj- andi (kaffi í Brasilíu, tin í Bó.livíu, kopar og sáltpétur í Chile o.s.frv.). Þetta mega þau þakka hinu alþjóðlega auðmagni og það líka, að þau bæta ekki hvert annað upp nema að sára'itlu leyti. Það sýnir bezt utanríkisverzlunin, en aðeins 10% hennar er milli landanna innbyrðis, aft- ur á móti allt að 50% við Bandaríkin og 30% við iðn- aðarsvæði meginlands Vest- urevrópu. Erlenda auðmagnið hefur líka séð fyrir því, að samgöngur Suðurameriku eru ekki aðeins lélegar innan hvers Jands, heldur allt að því ómögulegar milli landa. Járnbrautalagningar ein-- stakra útlendinga eru svo fáránlega gerðar, að mismun- andi breið spor eru í hinum ýmsu löndum, þannig að oft þarf að umhlaða vörum þr:svar sinnum, ef flytja á yfir álfuna þvera. íþróftir Framhald af 9. síðu. að þetta er krafa ttímans. Þeir virðast ekki heldur hafa komið auga á, að slíkar lýsingar hafa mikla áróðurs- þýðingu fyrir íþróttina. Það er fólkið, sem ekki hefur aðstöðu til að vera á sjálfum vellinum, vekjandi og örfandi fyrir unga en það lítur helzt út fyrir að þeir hefðu helzt viljað fá það allt inn á völlinn, a.m.k. til þess að fá aðgangseyrinn, og fyrst það er ekki hægt, þá það. Maðurinn var óðamála, og þsg- ar hægt var að komast að og spyrja hvort ekki væri komið nóg, sagði hann það ekki vera, ef það dvgði ekki til að vekia um 100 milljónir þessa menn, gem þarna ráða dollara á ári vegna viðskipt-1 málum, þá mætti halda lengi anna við Sovétríkin. En á ' áfram ennþá og það vildi hann ^ þp-S er að líta, að ekki að- ^ til vinna. Knattspyrnusam- eins Sovétríkin, heldur og öll lönd önnur en Bandaríkin kaupa sykurinn á heimsmark- aðsverði, og þau voru aldrei einu kaupendur Kúbusykurs. Það mun líka • hafa verið margt gruggugt í viðskipt- um Bandaríkjanna og Kúbu, og það þó að hið • innra arð- rán sé ekkí tekið með í reikn- inginn. Einn af leiðtcgum kúbönsku byltingarinnar heldur þvi fram, að Kúba hafi tapað einum milljarð dol’.ara á tíu árum vegna hinna cjöfnu verzlunarvið- skipta v'ð Bandaríkin (un- e^ual change). Og banka- stjóri þjóðbankans á Kúbu hefur lýst vfir því, að jafn- vel hafi orðið að greiða 60 dol.’ara vaxtakostnað eftir hverja hundrað, sem Kúba fékk að láni í Bandaríkjunum áður fyrr. í dag líta þjóðir rómönsku Ameríku með vonarbliki í augum á tilraunina, sem 1 bandið væri í sama bát og út- varpið, það skyldi ekki kröfu tímans og það skyldi ekki að á þe’m hvílir sú kvöð að veita þjónustu og að uppfylla óskir hinna mörgu unnenda knatt- spyrnunnar, sem ekki geta komizt á leikvanginn i Revkja- vík. Nú látum við þetta duga, að minnsta kosti í bili, nema, að það mætti benda báðum að- ’lum á að tala saman eins og þjónum fólksins í landinu. Þótt maðurinn hafi verið all- stcrorður. munu margir taka undir sköðun hans og að hann hafi mikið til síns má's. og því er það flutt hér, óg von- aodi finna útvarpið og stjórn KSÍ lausn á málinu. ÖLL RAFVERK Vigfús Einarsson Nýlendugötu 19. B. SÍMI 18393. Hafðu það sem sannara reynist Framhald af 8. síðu. upp og gefast ekki upp, þó í móti blási. Um leið og ég lýk þessu spjalli, vil ég aðeins segja. þetta. Mér er líkt farið og Agli Skallagrímssyni og mýmörg- um eftirkomendum hans í því,. að mér þykir lofið gott. Þess vegna þakka ég Benedikt Gröndal, þrátt fyrir allt, fyr- ir það lof, sem hann á nokkr- um stöðum ber á mig í grein . sinni innan um allt möld- viðrið. Á einum stað segir hann: „Hannibal hefur látið sér annt um hag kvenna á ís-’ ladi. . . “ Það ættu fleiri að gera, þvf að launajafnrétti kynjanna er réttlætismál, já, sjálfsagt mannréttindaniál, sem aðeins verður tafið, en ekki stöðvað héðanaf. Þá segir Benedikt á öðrum stað,: „Hánnibal hefur notið mik- ils álits og ýmsir stutt hann persónulega, þrátt fyrir æv- intýrapólitík hans með komm- únistum, í þeirri trú, að þessi gamla kempa mundi aldrei láta kommana beygja sig, en ef til vill takast að mynda lýðræðissinnaðan sa'meiningar- flokk.“ Hér er um mikið lof að' ræða, og þó að rétt' sé; að óg sé farinn fast að éld- ast, er ég hræddastur um, áð ég rísi ekki undir ,,kempu“- heitinu. En þá fyrst dró úr mér allan mátt, er ég las eftir- farandi málsgrein í helgi- dagspistli Benedikts: „Hannibal Valdimarsson á að baki langan feril í íslenzk- um stjórnmálum og er einn þróttmesti baráttumaður sinn- ar kynslóðar.“ Annað eins og þetta mundi sóma sér ágætlega í líkræðu. Svo lofsamlegt er það. — En bíddu við, Benedikt, — ennþá er ég ekki alveg dauð- ur. Og þrátt fyrir allt oflof- ið kann ég því illa, að þú skulir neita staðreyndum. Það er sem sé staðreynd, að fólk fær öll lyf ókeypis í Tékkó-iSlóvakíu. Þar er cll læknishjálp líka ckeyois. Þar eru tannlækningar einnig ó- keypis. Þar nemur húsaleiga aðeirs 7-—10% af kauni manna. — En það skal tekið fram, að þar eru yfirleítt gerðar minni kröfur til hús- næðis en hér á landi. — Þar er fullur ellilífeyrir greiddur konum frá 55 ára aldri og karlmönnum frá sextugu. Þar nær eHilTe.yrir 90% af verka- mannstekjum. Og þar er börnum og verkafólki séð fvrir ódýrri sumardvöl við hii’ ákir-anleeustu skilyrði. Eg hrili á big að fara fil_ Tékkó-Slr.vakíu og ganaa úr skugga. um a.f eigin sjón e.g raun, hvort þet+u og annað l'>ð. sem é/>: hef frá skýrt, sé ekki sannleikanum samkvæmt. Að því búnu skulum við bera saman bækurnar, og muu okkur bá bera stórum minna á milli. Hannibal Valdimarsson.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.