Þjóðviljinn - 05.01.1961, Side 1

Þjóðviljinn - 05.01.1961, Side 1
Fimmtudagur 5. janúar 1961 — 26. árgansur — 3. tölublað. , ' r) Stöðvnn á Akranesi og í Olafsvík Fyrsti fundnrinn með sáttasemjara <s> Hvað gerisf •■} / Belgiu? í gær, á öðrum degi umræðna belgíska þingsins um kjaraskerð- ingaráform stjórnarinnar, kröfðust þingmenn sósíaldemó- krata þess enn, að- Eyskens for- -æ.tisráðherra segði af sér. Einn , af þingmönnum, verkalýðsleið- toginn Louis Major krafðist einnig nýrra þingkosninga. I yfirlýsingu frá ríkisstjórn- inni í gær, segir að heldur hafi rætzt úr samgöngum til útlanda í gær, en samgöngur innanlands liggja að mestu leyti niðri. Mið- stjórn sósialdemókrataflokks Framhald á 10. síðu. A Akranesi hefjast ekki róðrar fyrir en samið hefur verið um vertíðarkjörin, og í Ólafsvík hefst vinnustöðv- un á bátaflotanum 15. janúar hafi ekki verið samiö fyr- ir þann tíma. Sjómerin á Akranesi ákváðu á fjölmennum fundi í fyrra- kvöld að hefja ekki róðra fyrr en igengið hefði verið frá samningum við útgerðar- menn um kjör sjómanna. 1 Ólafsvík héldu sjómenn einnig furd í fyrrakvöld. Þar var ákveðið að fara að boða vinnustöðvun frá og með 15. janúar haf i samningar þá ekki tekizt, eins og samninga- nefnd sjómanna í samning- unum við LÍIÍ hafði lagt til að félögin gerðu. Eins og skýrt var frá í bl^ðinu 'i gær ákváðu sjómenn á Suðurnesjum á fundi í Keflavík að fresta ákvörðun um sérsamning þara sem gerður var án samráðs við samninganefnd sjómannasam- takanna. Hefur þessi ákvörð- un vakið mikla gremju Morg- unblaðsins og Vísis. í gær boðaði sáttasemj- ari rikisins, Torfi Hjártarson, samninganefiulir sjómamia og útgerðarmanna á fnnd sinn í fyrsta skipti. Samninga- nefn,d sjómanna lagði deiluna fyrir sáttasemjai-a á mánu- da.ginn. Sáttasemjari boðaði fund- inn klukkan níu í gærkvöld. Var búizt við að þessi fyrsti fundur færi í að rekja það sem gerzt hefur í samninga- umleitunum til þessa. Mikil sprenging í kiarn- orkutilraunastöð í USA Hæííuleg geislun á stóru svæði Gífurleg sprenging varð í fyrrinótt í kjarnorkutilrauna- stöð í Idaho í Bandaríkjunum. I stöð þessari er aðallega unn- ið að tilraunum með kjarn- orkuhreyfla í kafbáta og einn- ig' í flugvélar. Þrír menn fórust. Talsmaður kjarnorkumála- slofnunar Bandaríkjanna var í gær tregur á að gefa frétta- Boðskapur frá Krústfoff í gær var birtur í Bonn boð- skapur, sem Krústjoff lie.fur sent Adenauer kanzlara. I boð- skap sínum kveðst Krústjoff vona, að á hinu nýbyrjaða ári muni finnast lausn á alþjóð- legum deilumálum, og vonandi verði á þessu ári gengið end- anlega frá friðarsamningum við Þýzkaland. mönnum upplýsingar um at- ^ burðinn. Þó sagði hann að sprengingin hefði verið mjög kraftmikil, og að byggingin, sem hún varð í, hafi gjörsam- lega hrunið í rúst. Hann sag.ði einnig, að mikil geislun hefði orðið og væru stór svæði um- hverfs slysstaðinn hættulega geislavirk, en ælla mætti að vindur bæri geislunarloftið frá þéttbýlum svæðum. Aðspurður kvaðst talsmaður- inn ekki vita, hvort hér liefði verið um hreina kjarnorku- sprengingu að ræða. Sagðist hann vona að svo væri ekki, he’dur hefði þetta verið kemisk sprenging. Á daginn vinna yfir 4.000 manns í ]: assari tilraunastöð, en um nóttina, þegar spreng- ingin varð, voru þar aðeins þrír hermenn á verði, og fórust þeir allir. Frá Reykjavíkurhöfn. — Illuti fiskiflotans sem útgerðarmenn ætla nú að stöðva með því að neita sjóniönnum um ínannsæiiiandi lífskjör. — Við þeniia flota bætist bráðuin nýr bátur sem Ólafur. Björnsson formaður sjómannadeildarinnar í Keflavík fær með sérstöku ríkisláni frá ríkisstjórn íhalds og' krata. Klofningstilraun þjappar sjómönnum þéttar saman Júdasarhlutverk Olafs Björnssonar hvarvetna fordæmt Sjómenn á Suðurnesjum höfnuöu á Keflavíkurfund- inum í fyrrakvöld svika- samningum þeim og klofn- ingstilraunum sem íhaldið og kratarnir höfðu undirbú- ið, eins og Þjóðviljinn sagði frá í gær. Klofningstilraun þessi er meö eindæmum, enda hæg heimatökin hjá útgerðar- mönnum því einn úr þeirra hópi er fulltrúi í samninga- Inefnd sjómanna: útgerðar- maðurinn Ólafur Björnsson, 1 sem jafnframt því að vera útgerðarmaður er formaður Sjcmannadeildar verkalýðs- og Sjómannafélags Kefla- víkur, varaformaður Verka- lýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og tilnefndur af því sem fulltrúi í samninga- nefnd sjómanna. Rétl or að drepa aðeins á forsögu þeirra samninga um sjómannakjörin er staðið hafa yfir undanfarið. Bæði giðasta Alþýðusambandsþing og sjó- mannaráðstefnan sem haldin var að loknu Alþýðusambands- þingi voru á einu máli um að sjómenn um land allt hefðu samráð og samstöðu um kjara- samninga og að ein nefnd færi með samningana. Ehgiun ágreiningur Sjómannaráðstefna Alþýðu- sambandsins kaus því samn- inganefnd er undirbjó nýja samninga í samráði við félög þau er sjómenn eru í. Ólafur Fcamhald ó 2. siðr Á Þorláksmessu var dre.gið í Happdræiti Þjóo- viljans, en vinningsnúmer hefur ekki verið liægt að birta fyrr en nú í dag, þar eð nokkuð dróst að skilagreinar bærust frá öllum sem fengið höl’ðu happdrættismiða til sölu og dreifingar. Aðalvinningsnúinerið er 39756 — vinninguriiin: íokheld íbúð að verðmæti 180 þús. kr. Aukavinn.ninga: 50Ö0 króna vöruúttekt hljóta nr. 39755 og 39757, þ.e. næsta númer fyrir ofan og næsta núiner fyrir neðan aðalvin,ningsnúmerið. Vinningsnúmenim má framvísa í skrifstofu Þjóð- viljans, Skólavörðustíg 19. O- E3SIOÍ

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.