Þjóðviljinn - 05.01.1961, Side 12

Þjóðviljinn - 05.01.1961, Side 12
Bandaríkin slíta stjórnmála- sambandi við lýöveldið Kúbu Bandaríkjastjórn til- kynnti í fyrrinótt, aö hún hefði slitið stjórnmálasam- taandi við ríkisstjórn Kúbu. Stjórn Kúbu telur þessa á- kvörðun enn eina sönnun- ina fyrir árásaráformum Bandaríkjamanna á hendur Kúbu. Undanfarið hefur Kúbustjórn margsinnis tilkynnt, að hún haíi sannanir fyrir hví að Banda- rikjamenn hyggist gera vopn- aða úrás á Kúbu, og muni þeir finna sér tilefni til þess í sam- bandi við flotastöð sína í Guan- tanamo. í fyrradag skipaði Kúbustjórn að Bandaríkjamenn skyldu fækka sendiráðsmönn- um sínum, sem skipta hundruð- um. niður í 11, eða sömu tölu og staríar í sendiráði Kúbu í Washington. Var Bandaríkja- stjórn borið á brýn, að nota hið fjölmenna starfslið sitt til njósna og til að skipuleggja skemmdarverk á Kúbu. Banda- ríkjamenn svöruðu þessari fyr- irskipun með því að slíta stjórn- málasambandinu og leggja jafn- fram allar ræðismannsskrifstof- ur á Kúbu niður. Þá bað Banda- ríkjastjórn alla bandaríska þegna á Kúbu að hverfa þaðan þegar í stað. Öryggisráðið. Fidel Castro, forsætisráðherra Kúbu, sagði um þessa ákvörðun Bandaríkjastjórnar, að þetta væri eitt síðasta skref hennar á þeirri leið sem hún færi til á- rásar á Kúbu. Crústjoff, forsætisráðherre Sovétríkjanna, sagði í gær, að Kúbumenn ættu marga vini í öllum heimsálfum, sem myndu veita þeim iiðstyrk þótt Banda- r.'kin slitu við þá sambandi. Tæpum 24 stundum eftir að Eisenhower tilkynnti sambands- slitin við Kúbu, kom Öryggis- ráð SÞ saman til að ræða ásak- anir Kúbustjórnar um að Bandarikjamenn hyggi á árás á Kúbu. Fulltrúi Kúbu, sem flutti málið, fór fram á að Öryggis- ráðið fordæmdi þvingunarað- gerðir og árásarfyrirætlanir Bandaríkjamanna gagnvart Kúbu. Sagði hann að Eisen- hower skapaði sér ömulegt hlut- skipti með því að ætia að láta árás á Kúbu verða síðasta emb- ættisverk sitt. Fulltrúi Bandaríkjanna valdi Kúbumönnum hin hörðustu orð. Sagði að þeir væru verkfæri í höndum Sovétmanna og Kín- verja, og hefðu borið miklar lygar á Bandaríkin. Krafizt rýmingar erl. herstöðva í Afríku og frelsis Lumuinba Ráðstefna leiðtoga Afríkuríkja í Casablanca Múhameð konungnr í Marokkó útlagastjórliar Alsírbúa er meðal þáttakenda. í ræðu sinni lagði konungur fram tillögu í 10 liðum. Þar er gert ráð fyrir að Öryggisráð Framhald á 11. síðu. setti í gær ráðstefnu leiðtoga frjálsra Afrikuríkja í Casa- blanea. Meðal þátttakenda eru forsetarnir Nasser frá Samein- aða arabalýðveldinu, Touré frá Gíneu, Nkrumali frá Ghana og Keita frá Mali. Einnig eru full- trúar frá Liberíu og Ceylon og allmargir álieyrnarfulltrúar frá öðrum Afríku- og Asíurikjum. Ferhat Abbas, forsætisráðhcrra þlÓÐVIUINN Fimmtiidagur 5. janúar 1961 —■ 26. árgangur —- 3. tölublað. Kínverskir læknar kynna sér íslenzk heilbrigðismál „Þótt langt sé á milli landa eru þjóðir vor- ar tengdar vináttuböndum" Kínverska læknanefndin hóf í gær að kynna sér ís- lenzk heilbrigðismál og stofnanir, með leiðsögn Arin- björns Kolbeinssonar, formanns Læknafélags Reykjavík- ur. í kvöld flytur fararstjórinn, dr. Hsueh Kung-cho, er- indi á fundi Læknafélagsins í Háskólanum. Nefndin kom síðdegis á þriðju- daginn flugleiðis frá Kaupmanna- höfn, en hún er á margra mán- aða ferðalagi um Evrópu. Tók stjórn Kínversk-íslenzka menn- ingarfélagsins á móti henni, og strax fyrsta kvöldið bauð Arin- björn Kolbeinsson. formaður Læknafélags Reykjavíkur, gest- ina velkomna, og hafði ágæt- lega undirbúið að kynna þá ís- lenzkum starfsbræðrum. I nefndinnl eru þessir menn: Fararstjóri nefndarinnar er dr. Hsueh Kung-cho, varaforseti Kínversku læknavísinda-aka- demíunnar. Aðrir nefndarmenn eru: Barda«ar áfram í Laos Isvestia í Moskvu birti í gær bréf írá Suvanna Phuma, for- sætisráðherra í Laos, sem her- ið Nosavans hrakti frá völdum. í bréíinu segir, að ástandið í Laos sé nú orðið álíka hættu- legt fyrir heimsfriðinn og Kóreu- styrjöldin var á sínum tíma. í Laos sé um að ræða erlenda íhlutun, og þessvegna sé æski- legast að einhver alþjóðleg stofnun taki að sér að leysa vandann. Bandaríkjastjórn hafi haldið, að hún þyrfti ekki annað e“n að veita herliði hægri manna öflugan herstyrk til þess að það sigraði á stuttum tima. og kæmi að völdum stjórn undir áhrifum vesturveldanna. Þetta hafi þeim mistekizt. Suvanna Phuma lýsir yfir stuðningi við tillögu fulltrúa Kambodja hjá Sameinuðu þjóð- unum um að Laos og Kambodja verði hlutlaus ríki undir sér- stakri ve.rnd Sameinuðu þjóð- ánna. Bardagar geysa enn í Laos, og eru hersveitir vinstri manna og hlutleysissinna enn í sókn. í um gækmis« Kínversk-íslenzka menningar- félagið heldur fund á föstudags- kvöld, 6. jan.. í MÍR-salnum, Þinghoitsstræti 27, og hefst hann kl. 8.30. Kínver:|ka læknasendinefndjn sem hér er stödd verður á fundinum, en læknarnir fara héðan á laugardagsmorgun. gærkVoidi voru hersveitir þeirra aðeins tæpa 30 km frá konungs- borginni Luang Prabang. Talsmaður stjórnar hægri manna í Vientiane sagði i gær að stjórn Boun Oums hefði feng- ið stuðning 41 þingmanns aí 59 í þingi landsins. Ilánn kvaðst ekki vita um úrslit bar- daga i grennd við Luang Pra- bang síðustu daga. Stjórn hægri- manna hefur sent sendiboða til New York á fund Sameinuð þjóðanna. Hafa hægri menn neitað að samþykkja að alþjóð- lega Laos-nefndin i'rá 1954 taki til starfa á ný. Stjórnarblöð og hlutlaus blöð í Kambodja bera þungar sakir á Bandaríkjamenn íyrir íhlutun þeirra í Laos, og lýsá sök á Framhald á 8. síðu Kínverska laekn,anefndin. — Frá vinstri: Dr. Chu Shoirlio, prófessor Lan Hsi cliun, prófessor Cliang Hsi chun, dr. Hsuch Kung-cho (fararstjóri), prófessor Chu I-tun.g, prófessor Líang Chih chuan. (Ljósm.: Þjóðv. A. K.). eribæ I gær liafði Þjóðviljinn fregnir af því, að fyrir saka dómi Beykjavíkur væri nú til raunsóknar gjaldeyrissvika- mál, er heildverzliirsin Teehn- ica h.f. Háteigsvegi 57 er að- ili að. Bl^ðið snéri sér fyrst til Gunnlaugs Briem, fulltrúa sakadómara, og staðfesti lrann, að frétt þessi væri á rökum reist. Kvaðst hann fyrst hafa fengið mál þetta til meðferðar, er það kom upp á sl. hausti. Var fyrir- tæ:kið 'I upphafi grunað um verðiagsbrot en síðan kom í Ijós, að málið mundi vera um- fangsmeira og var þá skipað- ur í því sérstakur setudómari, Elías El'iasson fulltrúi í dóms- málaráðuneytinu, og vísaði Gunnlaugur til Elíasar um allar frekari upplýsingar. Er Þjóðviljinn snéri sér til Eliasar Elíassonar, sagði hann, að rannsókn máls þessa væri algerlega á byrjunarstigi og gæti hann ekki að sinni gefið neinar upplýsingar um það þar eð enn væri með öllu óséð, hversu umfangsmikið það kynni að reymast, Sagðist hann hafa fengið málið til meðferðar um miðjan desem- bér sl. Samkvæmt upplýsingum, sem Þjóðviljinn hefur feng- ið annars istaðár frá, ér fyr- irtækið sakað um allmikið gjaldeyrissvindl og eru tann- lækrúngatæ'ki meðal þess sem fyrirtækið er grunað um að hafa flutt inn á óleyfilegan hátt. Próf. Chang Hsi-chun, pró- fessor í lífeðlisfræði, Peking. : Próf. Lan Hsi-chun. prófessor í skurðlækningum, Shanghaj. Próf. Chu I-tung, prófessor í meinafræði, Shanghaj. Próf. Líang Chih-cliuan. prófessor í lííefnafræði, Peking. Dr. Chu Shou-ho, barnasjúk- dómalæknir, Peking. ~k Til eflingar læknis- fræði og vináttu. í ávarpi frá nefndinni segir m.a.; ,,Þótt langt sé milli landa eru þjóðir vorar tengdar vináttu- böndum. ísland er fagurt land með gagnmerka menningu allt frá fornu fari. íslendingar eru orðlagðir fyrir iðjusemi, fram- sækni og friðarvilja. Vér treystum því að geta rætt hér sameiginleg óhugamál í læknis- fræðum við starfsbræður vora ef verða mætti þeim fræðum til eflingar og til að treysta vin- áttu þjóða vorra.“ ★ Hehnsókn að Reykja- lundi og Keldum. í gærmorgun skrapp nefndin til Krísuvíkur, en fór svo að Reykjalundi og Keldum og dvaldist þar lengi dags í góðu yfirlæti. Með í förinni voru Arinbjörn Kolbeinsson og Jak- ob Benediktsson. X dag og á morgun er ráðgerð heimsókn ó Landsspitalann og Heilsuvernd- arstöðina. og í kvöld hitta kín- versku gestirnir reykviska starfsbræður sína á fundi Læknafélags Reykjavíkur í Hó- skólanum. Nýr stálbátur til Ólafsfjarðar í gær I gær kom tjl Ölafsfjarðar nýr bátúr, Sæþór ÓF 5, og var lionum veitt hátíðleg mót- taka á staðnum. Eigandi hins nýja skips er Hraðfrystihús Ólafsfjarðar og var báturinn smíðaður 'I Noregi. Sæþór er stálskip, 155 lestir að stærð. Gekk hann í reynsluför 11.7 sjómílur en á heimleið- inni gekk hann mest 10.7 sjó- mílur. (ítvarpstæki og verkfæram stolið í fyrrinótt var framið inn- brot í bifreiða- og yfirbygg- ingarverkstæði Kristjánis Jóns- sonar vagnasmiðs að Grettis- götu 21. Var stolið þaðan dá- litlu af verkfærum og útvarps- tæki úr bifreið, er var þar til viðgerðar.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.