Þjóðviljinn - 20.04.1961, Qupperneq 1
ÞJOÐVILJINtt
er 24 síður í dag
Fimmtudagiir 20. apríi 1961 — 26. ár,ganp,ur — 90. tölublað.
Kennedy lysír stuBningi W3 árásina
Fregnir af átökunum á Kúbu bentu enn í gær til þess
a5 innrásin væri alveg að fara út um þúfur. Útvarp
Kúbustjórnar hefur lýst frásagnir um sigra innrásar-
manna hreinan uppspuna. Þeir hafi hvergi náð fótfestu
og hafi verið þurrkaðir út í Las Villas héraði.
'Her stjómarinnar hefur skotið
niður níu flugvélar fyrir innrás-
armönnum. í gær voru fjórar
flugvélar af bandarískri gerð
skotnar niður. Flugmaðurinn á
einni þeirra reyndist vera banda-
rískur, Leo Francis að nafni.
Herskip Kúbustjórnar hafa
orðið vör við óþekkt skip og
flugvélar á sveimi úti fyrir
ströndum eyjarinnar. Útvarpið í
Havana segir að ekkert frekara
líð haíi veiúð sett á land, enda
sé Kúbuher nú við því búinn
að taka á móti ef frekari til-
raunir til landgöngu verði gerð-
ar. Sendiherra Kúbu í Mexíkó
Daglieimilið Hagaborg
er nýjasta barnaheimiiið
sem er reist á vegum
Barnavinafélagsins Sum-
argjafar og tók það til
starfa í nóvember sl. Á
myndinni sjást bövn sem
dvelja á dagheimiiinu, en
frá því segir nánar á
opnu blaðsins.
Þjóðviljinn óskar öilum
lesendum sínum gleðilegs
sumars með þökk fyrir
veturinn.
segir áð flestir flokkar innrásar-
manna hafi nú verið umkring'd-
ir og sé unnið að því að upp-
ræta þá. Sendiherrann, Jose
Portuondo, skoraði á allar þjóð-
ir Mið- og Suður-Ameríku að
standa með Kúbuþjóðinni í bar-
áttu hennar gegn innrásarlið-
inu. Hér væri ekki barist fyrir
tífi kúbönsku þjóðarinnar einn-
ar heldur fyrir þvi að þjóðir
rómönsku Ameríku verði ekki
ameríkanismanum að bráð.
Örvænting í USA
Fréttaritari Reuters í Miami í
Flórida, Ronald Batchelor, sagði
: gær, að þar yrðu þeir stöðugt
fleiri sem efuðust um að innrás-
in myndi bera árangur. Menn
þættust skilja það á þeim frétt-
um er bærust frá Kúbu að inn-
rásarliðið hefði alls ekki fengið
þann stuðning sem það bjóst við
hjá Kúbumönnum. Þá gerast
Bandaríkjamenn mjög uggandi
vfir þeim áhriíum sem árásin á
Kúbu muni hafa í öðrum lönd-
um Mið- og Suður-Ameríku en
þar vex stöðugt reiðin í garð
Bandaríkjamanna fyrir að hafa
skipulagt og kostað árásina á
Kúbu.
Útvarpið í Havana sagði í
gser, að árásaröflin gegk Kúbu
hefðu blásið upp lygafréttir um
framsókn sína. Þau hefðu m.a.
lcgið því upp, að menn úr Kúbu-
her hefðu gerzt liðhlaupar. Það
væri einnig lygi að sett hefði
verið lið á land í Oriente-héraði,
óg að innrásarmenn hefðu náð
eynni Pinos og leyst fanga úr
haldi.
Hrekkir fyrir USA
Fréttaritari brezka útvarpsins
í Washingtón sagði í gær að
j ekki blési byrlega fyrir innrás-
armönnum. Þeir hefðu ekki
neinn mikilsverðan stað á valdi
sínu, þe'r hefðu ekki komið upp
neinni útvarpsstöð og íréttir frá
þeim væru stöðugt dræmari.
Stjórnarherinn á Kúbu hefði
reynzt stjórninni tryggur. Bláðíð
Washington Post segir að horf-
urnar verði nú æ ískyggilegri
fyrir inn.rásarliðið úr því að
Kúbubúar hafi ekki snúizt á
sveif með því. Aðalstöðvar and-
bvltingarsinna í New York til-
kynna að innrásarliðið haíi orð-
ið íyrir hörðum árásum skrið-
:dreka og orustuflugvéla Kúbu-
hers. Bandar'ska utanríkisráðu-
ne.vtið hefur viðurkennt að
miklar mótmælagöngur, sem
beint er gegn Bandarikjunum,
hafi átt sér stað í allri róm-
önsku Ameríku, og óeirðir hafa
orðið í Mexíkó, Panama. Venez-
ucla og Bólivíu vegna árásar-
innar á Kúbu.
Washington Post segir að álit
Bandaríkjanna sé i hættu vegna
ástandsins á Kúbu. JBlaðið segir,
að með tilliti til bréfaskipta
Kennedys og Krústjoffs fái Sov-
étríkin góðan höggstað á Banda-
ríkjastjórn ef innrásin misheppn-
ast.
Kennedy hefur sent svar við
boðskap Krústjoffs tij hans urn
i að forsetinn stöðvi þegar i stað
árásina á Kúbu. sem sé garð að
Framhald á 2. síðu.
Inni í blaðinu í dag er birt
auglýsing um hátíðahöld og
skemmtanir Barnavinafélagsins
Sumargjafar sumard. fyrsta.
Útihátíðahöldin hefjast með
sk. 'ðgöngiim frá Austurbæjar-
skólanum og Melaskólanum kl.
12,45, en útisamkoma í Lækj-
argötu hefst kl. 1,30. Meðal
skemmtiatriða þar verður
kynning nokkurra pilta úr vél-
hjólaklúbbnum Eldingu á starf-
i semi klúbbsins, hæfnisakstur
Castro: Hingað og ekki lengra!
Eichmann lýsir útrýmingu gyðinganna
Jesúse'.em, 19/4 (NTB) — Ég
er reiffiibúinn að þola persónu-
lega hegningu fyrir þá hroðu-
legu atburði sem hafa skeð, og
ég get búizt við dauðadómi,
sagði Aifolf Eiclimann í yfir-
lieyrslum lögreglunnar I ísrael
skömmu áður en hann kom
fyrir réltinn. Segulbandsupp-
tökur af yfirheyrslunum voru
leiknar í dómsalnum í Jerúsa-
lem í dag. Ég vcit að ég get
ekki krafizt miskunnar, því ég
á það cúki ■ sldlið, sagði haiin
enefremur. Hann kvað t hafa
ákveðið að segja allt af léttá
eftir því sem minnið leyfði.
Það ríkti grafarþögn í rétt-
arsalnum þegar milljónamorð-
inginn sagðist ekki þcla að sjá
sýndur og þ.syttur boðakstur.
— Myndin er af einum strák-
anna úr Eldingu að æfingu á
skellinöðru sinni.
blóð. Hann kvaðst fá skjálfta
í hnén og verða cg'.att þegar
hann sæi fólk pyntað. Maður-
inn, sem ber ábyrgð á morði
sex mibjóna gyðinga, sagði að
sér fyndist manndráp liræði-
leg.
Eiclimann kvaðst hafa orðið
að fara í eftirlitsferð til allra
halztu útrýmingarstöðvanna,
þar sem nazistar slátruðu gyð-
ingum eins og fénaði. Hann
kvaðst hafa forðazt að horfa á
aftökurnar, en ekki komizt hjá
’pví að verða vitni að þeim
sumstaðar. I Lutolin í Póllandi
hefði hann séð gyðinga myrta
með gasi í járnbrautarvögnum.
Þeir hefðu æpt' og hrópað þeg-
ar búið var að troða þeim inn
í vagna.na. Hann sagði að sér
hefðj liðið illa þegar hann sá
líkin urðuð í fjö'dagröfum eins
og dýrahræ, eftir að búið var
að rífa gu’l úr tönnum þeirra
sem það höfðu.
í Minsk sá hann gyðinga
skotna á 'barmi grafanna, sem
þeir höfðu verið látnir grafa
siá'fir. I Lvov hefði hann ætl-
að að komast hjá því að liorfa
á útrýminguna, en hann hafði
orðið að fara fram hjá þeim
stað þar sem aftökurnar fóru
fram. Þar hefði allt flotið í
blóði, líkt. og þar væri gcs-
brunnur sem stöðugt gvsi
blóði. Það var einmitt á þess-
um stað, sem hin illræmda út-
Framhald á 2. síðu.