Þjóðviljinn - 20.04.1961, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 20.04.1961, Qupperneq 5
Fimmtudagur 20. apr'íl 1961 — ÞJÓÐVILJINN — (5 Fólk úr öllum landsfjórð-f ungum tekur þátt í annarri j Keflavíkurgöngunni sem, farin er til aö' mótmæla er- lendri hersetu á íslandi. I Samtök hernámsandstæðinga skýra á þessa leið í fréttatil- kynningu frá undirbúningi und-; ir gönguna og-. öðrum fram- kvæmdum. , Keflavíkurganga vegna 10 ára hernáms. Sunnudaginn 7. maí eða eftir rúman hálfan mánuð gangast Samtök hernámsandstæðinga fyrir nýrri Keflavíkurgöngu. Þann dag eru rétt tíu ár liðin síðan ameríska hemámsliðið kom til íslands öðru sinni. Mótmælagangan frá Keflavik- urflugvelli til Reykjavíkur var ákveðin á Þingvallafundi her- Háaleitl - ný strætlsvagnaleið N.k. laugardag hefst akstur á nýrri strætisvagnaloið. Verð- ur það leið nr 23 og ber nafnið Háaleiti. Ekið verður frá Kalkofnsvegi á hálftíma fresti frá kl. 7.00—24.00 um Hverfisgötu, Laugaveg, Nóa- tún, Lönguhl'ið, Miklubraut, Háale'tisveg, Stcragerði og Hvassaleiti og til baka um Miklubraut, Lönguhlíð, Nóatún, Laugaveg, Skúlagötu og Kalk- ofnsveg. Skáfa«fteaaur á sunnudóginn Fyrsta sumardag fagna skát- ar sumri með guðsþjónustu. í ár verður messað í Dómkirkj- unni og í Fríkirkjunni. Gengið verður til kirkju frá Skátaheimilinu við Snorrabraut kl. lo f.h. Gengið verður um Snorrabraut, Hringbraut að vegamótum Suðurgötu og Skot- húsvegar. Þar skiptist fylkingin og prestar koma í gönguna. Síð- an gengur hvor fyiking til sinn- ar kirkju, um Suðurgötu og Kirkjustræti, og Skothúsveg og Fríkirkjuveg. Guðþjónusta hefst kl. 11 f.h. í þáðum kirkjum. í Dómkirkjunni messar séra Ósk- ar J. Þorláksson og í Fríkirkj- unni séra Arelius Níelsson. Þar sem skátar eru ekki Jeng- ur einir um hátíðahöld fyrsta 'sumardag, hafa þeir helgað sér fyrsta sunnudag í sumri, sem sérstakan skátadag. Var hann í fyrsta sinn haldinn í fyrra. Fær- ist því hin mikla skrúðganga skátanna yfir á þann dag. Vegna hinnar öru fjölgunar í skátafélögunum verður þeim skipt í hvejrfi og leiðir sú breyt- ing til þess, að skátar munu sækja kirkjur hver í sinni sókn fyrsta sumardag. Á skátadaginn verða útihá- tiðahöld skáta með varðeldi og sýningum á skátafræðum. í framtíðinni munu skátarnir hafa hátíðahöldin í Öskjuhlíðinni, en ekki er fullvíst enn, hvojt svo verður nú. námsandstæðinga í septembér. Hún er farin til að mótmæla setu amerísks hers á íslandi og til að leggja áherzlu á kröfu samtakanna um að herinn hverfi þegar úr landi og ísland verði hlutlaust ’á ný. Samtökin vilja með Keflavíkurgöngunni 7. maí vekja athygli allra íslendinga á undirskriftasöfnuninni, sem sam- tökin gangast nú fyrir. Fyrsta gangan í fyrra. Eins og mönnum er í fersku minni var fyrsta Keflavíkur- gangan farin 19. júní í fyrra og var hún upphaf hinnar miklu mótmælahreyfingar sem nú er risin gegn hersetunni, og leiddi af sér stofnun Samtaka hernáms- andstæðinga haustið eftir. í fyrra gengu alla leiðina, 50 km, um 200 manns, en gífurlegur fjöldi fólks kom til móts við gönguna og varð hún er til Rvík- ur kom fjölmennasta hópganga er hefur sézt á götum bæjar- ins. Útifundurinn í fyrra í lok göngunnar var einnig einn sá fjölmennasti, er hér hefur ver- ið haldinn, en þar hyllti mann- fjöldinn samþykkt Keflavíkur- göngunnar um herlaust og hlut- laust ísland. Útifumlui' — skemmtun í Lídó. I lok göngunnar nú í ár er aftur fyrirhugaður útifundur í Reykjavík og verður nánar skýrt frá honum síðar. Fimmtudaginn 27. april mun Keflavíkurgöngufólk gangast fyr ir skemmtun i Lido og verður þar fjölbreytt dagskrá. Skráið' ykkur strax í gönguna. Þeir sem ætia sér að vera með frá byrjun í Keflavikurgöngunni 1961 ættu að láta skrá sig nú þegar á skrifstofu samtakanna í Mjóstræti 3, símar 23647 og 24701, því að það auðveldar mjög allan undirbúning. Nú þeg- ar hafa margir skráð sig þar á meðal fólk úr öllum landsfjórð- ungum. Lagt verður af stað frá Rvík um kl. 6 að morgni og ekið í bílum suður eftir, en síðan geng- ið aftur sem leið liggur til Rvík- ur, og með álíka hraða og í fyrra yrði komið hingað á ní- unda tímanum um kvöldið, en í fyrra varð reyndar að halda aftur af göngufólkinu, svo að ekki væri kornið í bæinn fyrir áætlaðan fundartíma. Óhætt er að segja, að gangan . í fyrra hafi reynzt mönnum minna erfiði en flestir hugðu og er vert að minna á frækilegt ; íordæmi þeirra Sigríðar Sæland og Sigurðar Guðnasonar, er þá gengu bæði alla leið, þó komin væru á áttræðisáldur. Samtökin vilja þó taka fram, að þau vilja ekki hvetja neinn þann, sem ekki veit sig heilan heilsu, til að leggja harðar að sér en góðu hóii gegnir. Undirskriftasöfnunin gengur vel. Undirskriftasöfnuninni miðar vel áfram og berast stöðugt list- ar bæði úr Reykjavík og utan aí landi. Við birtum í dag aí handahófi stöðuna í nokkrum hreppum, en það skal skýrt tek- ið fram að í engum þeirra er söfnun að fullu lokið, þar sem eítir er að ná til margra, eink- um þeirra sem að heiman dvelja, en það er víða úti um land drjúg- ur hluti íbúanna um þetta leyti árs. Af öllum atkvæðisbærum mönnum hafa nú þegar þetta margir af hundraði undirritað i eftirtöldum hreppum: I Egilsstaðahreppi S.-Múl. um 55, í Hálsahreppi í Borgarfirði um 45, í Hvítársíðuhreppi í Mýrasýslu um 35, í Hólmavikur- hreppi Strandasýslu um 45, í Beruneshreppi S.-MúJ. rúm 70. í Borgarfirði eystra um 55, í Presthólahreppi N.-Þing um 45, í Stafholtstungnahreppi Mýra- sýslu um 50, í Hvammshreppi Dalasýslu tæp 50. Væru hins vegar hlutfallstöl- urnar miðaðar eingöngu við þá sem til hefur náðst væru þær að sjálfsögðu mun hærri. SjóstangaveiðibátUrinn Nói við bryggju í Hafna. 'irði. Nýr bátur smíðaður og búinn sérstaklega til sjóstangaveiða Nýslofnað hlutafélag, Sjóstangaveiðin hf., hefur látið smíða vélbát, sem er aö öllu leyti sérstaklega útbúinn til stangaveiða á sjó. Verður báturinn tekinn í notkun einhvern næstu daga. Báturlim lieitir. Nci, RE 10, 35 feta langur, 8 tonn að stærð. Þorbergur Ólafsson for- stjóri Bátalóns í Hafnarfirði teiknaði bátinn, sem smíðaður er þar undir stjórn Sigmundar Bjarnasonar yfirsmiös. Vandaður bátur Nói muii vera fyrsti sport- veiðibáturinn, sem smíðaður er hér á landi, og var við smíðina höfð hTðsjón af erlendum stangaveiðitátum, aðallega am- erískum. Er báturinn smíðaður j fyrir íslenzka staðhætti og hinn vandaðasti að allri gerð og smíði. Báturinn er fram- byggður og sæti 'í yfirbygging- unni fyrir 10 menn, auk þess sem þar er salerni og snyrti- klef'. Innréttingar eru úr harð- viði. Aftan við yfirbygginguna er opið athafnasvæði fyrir veiði- mennina. Eru þar 7 sérstak- lega gerðir veiðimannastólar. Báturinn er útbúinn öllum venjulegum siglinga- og örygg- istækjum. UppreisKiarmenn á. Angóla sækja fram Sjóstangaveiðin hf. muu gera Nóa út frá Reykjavík, aðallega. á Faxaflóamið. Gert er ráð’ fyrir að farnar verði tvær veiðiferðir daglega þegar viðr- ar — átta klukkustundir í senn. Þátttökugjald fyrir hverja veiðiferð verður um kr. 650 fyrir einstaklinginn, cn í því verði eru innifalin not af veiðarfærum af fullkomnustu gerð og hlífðarfötum, en einnig leggur útgerðin til beitu og brauð og kaffi fyrir þáttta'k- endur meðan á ferð stftidur. Geta rnenn því komið til veið- anna spariklæddir og án alls útbúnaðar og matar, því að fyrir öllu er séð. Skipstjóri á Nóa verður Sig- urður Teitsson en bryti um borð Örn Ingólfsson. Stjórn Sjóstangaveiðinnar hf., sem hefur skrifstofur í Tryggva- götu 4, skipa beir Smári Karls- son, Stefán G'islason og Hákon Daníelsson sem jafnframt er framkvæmdastjóri fyrirtækis- ins. éðarframSe Luanda, Angóla 19/4 (NTB-AFP) Uppieisnarmenn liafa um- kringt bæirar Uige, um 200 km. fyrir norðaustan höfuðborgina Luaiida. Stór svæði í norður- h'uta Angóla cru á valdi upp- reisnarmanna, cn Portúgalir flytja nú mikið herlið frá Lissa- bon til nýlendunnar. Samkvæmt fréttum, sem bor- izt haía til Luanda, hal’a evr- ópskir íbúar í bæjunum Mambe og Mucaba ilúið þaðan. Þessir bæir eru á milli Uige og landa- mæra Kongó. Einnig hafa upp- reisnarmenn umkringt bæinn Damba, en þangað hafa Evrópu- menn einmitt flúið. í Lissabon er tilkynnt að portúgalskir menn hafi séð að uppreisnarmenn streymi nið- ur úr Canda-ijöllum, sem eru aðeins 70 km. frá Luanda. Þeir halda í átt til Lifunafljóts i grennd við Caxito. Fréttastof- an Lusitania segir að uppreisn- armenn hafi komið upp mörg- um útvarpssendistöðvum við landamæri Kongó, en fyrir norðan iandamærin bíði mikið lið uppreisnarmanna. Fulltrúi þjóðfrelsishreyfingar- innar í Angóla, Mario de Andr- ade, sagði i Casablanca í dag, að Angólabúar væru nú að skerpa vopn sín og hyggðu á allsherjarárás gegn Portúgölum. Andrade tekur þátt í þriggja daga ráðstefnu í Casablanca á- samt 12 öðrum þjóðírelsisleið- togum frá ófrjálsum Afríku- löndum, er lúta Porlúgölum. Þeir eru fulltrúar fyrir 12 milljónir Afríkumanna. Andrada sagði að verkefni ráðstefnunnar væri að skipuleggja rothöggið á ógnar- stjórn Salazars einræðisherra. Framhald af 12. síðu. leiðslunni á hvert mannsbarn á þessu tímabili. Einnig ber auðvitað að minn- ast þess, þegar þessi þróun er borin saman við kaupmátt tima- kaupsins, að því fór mjög fjarri að skipting þjóðarteknanna væri réttlát 1950, þótt það ár sé hér lagt til grundvallar. Það ár var einmitt framkvæmd gengislækk- un sem skerti mjög kjör vin- andi stétta og jók að sama skapi hlut auðstéttarinnar. 70% hækkun á mannsbarn En þegar litið er á kaupmátt tímakaups verkamanna kemur í ljós að hin stórfellda framleiðslu- aukning hefur að engu leyti auk- ið hann. Á þessu tímabili hjakk- ar hann yfirleitt í sama farinu, er stundum læg.ri en 1950, stund- um heldur hærri, eins og sjá má á línuritinu. Og nú 'eftir kaup- ránið og gengislækkunina er kaupmáttur tímakaupsins orðinn mun lægri en 1950 — og var hann þó ekki mikill eftir geng- islækkunina þá. Jafnframt því sem þjóðar- framleiðslan tvöfaldast stend- ur kaupmáttur tímakaups verkamanna þannig í staðe og er nú raunar 8,5% lægri en liann var 1950. Hvað segja hagfræðingar stjórnarinnar? Þjóðviljinn hefur áður birt tölur um sambandið milli fram- leiðsluaukningar og kaupgjaids. Þær tölur sem hér eru birtar gefa þó ennþá greinilegri mynd! og ná yfir lengra tímabil. Þess er að vænta að stjórnarblöðin og hagfræðingar þeirra gefi ein- hverja skýringu á hinu algera misræmi sem er milli þjóðar- framleiðslunnar annarsvegar og kaupmáttar verkamannakaups- ins hinsvegar, ekki sízt þar sem það hefur verið ein eftirlætis- kenning þeirra blaða að því áð- eins væri hægt að hækka raun- verulegt kaup að framleiðslani ykist. Til þess að kaupmáttu-inn ykist í sama hlutfalli og þ.ióð- arfram'eiðslair á síðusta ára- tug þyrfti tímakaup Dags- brúnarmanns nú að vera kr. 44,88! Verkalýðsfélögin cm sannarlega hógvær í kröfum cíiniim

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.